Morgunblaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2019 50 ára Brynjar er frá Eskifirði en býr í Vest- urbænum í Reykjavík. Hann er sjómaður hjá Brimi á Víkingi AK-100. Hann er núna á kol- munnaveiðum við Fær- eyjar. Brynjar á einnig trilluna Freyju RE-69. Áhugamálin eru útivist og hjólreiðar og hann er mikið í sumarbústaðnum sínum í Hvítársíðunni. Maki: Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, f. 1971, bókmenntafræðingur og starfar hjá Reykjavíkurborg. Sonur: Óskar Freyr Brynjarsson, f. 1993. Foreldrar: Ingvi Rafn Albertsson, f. 1939, d. 1994, skipstjóri á Eskifirði, og María Hjálmarsdóttir, f. 1942, húsfreyja og vann á pósthúsinu á Eskifirði. Hún er búsett í Reykjavík. Brynjar Rafn Ingvason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú er kominn tími til þess að tala út um hlutina við sína nánustu. Reyndu að temja þér þolinmæði og gleymdu ekki að sýna umhyggju þína í verki. 20. apríl - 20. maí  Naut Settu sjálft þig ofar á forgangslistann. Ýmislegt kemur upp úr dúrnum þegar kafað er ofan í hlutina. Þú vefur einhverjum um fingur þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert hjálpsamur/söm að eðlis- fari og átt því inni margan greiðann. Hug- myndirnar hreinlega flæða fram hjá þér. Sperrtu eyrun þegar þú heyrir af spennandi tækifæri. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér finnst þú vera utangátta en þorir ekki að láta til þín taka. Lærðu að gefa eftir og sleppa, því þó það sé erfitt er það þér fyrir bestu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Dagdraumar eru skaðlaus skemmtun svo framarlega sem við missum ekki tengslin við raunveruleikann. Láttu það endilega eftir þér að fara í nudd. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú átt þér marga talsmenn og þarft því ekki að örvænta þegar ákvarðanir verða teknar um framtíðarstöðu þína. Gerðu hreint og komdu heimilinu í röð og reglu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hlustaðu á vandamál vinar í kvöld, ekki reyna að leysa þau öll í einu. Samband þitt stendur föstum fótum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gamansemi þín gengur vel í aðra svo þú ert vinsæl/l meðal vina og samstarfsmanna. Launaðu illt með góðu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Deilur við maka þinn krefjast málamiðlunar af þinni hálfu. Börn þurfa skilyrðislausa ást, sýndu þolinmæði. 22. des. - 19. janúar Steingeit Tækifærin bíða þín. Hugaðu að mataræðinu og því hvaða ósið þú getur helst hugsað þér að gefa upp á bátinn. Slakaðu á í einrúmi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Láttu ekki gráma hversdagslífs- ins ná tökum á þér. Kryddaðu daginn með smá dekri, farðu í sund eða fáðu þér kakó- bolla. Einhver mun slá þér gullhamra. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú veist nákvæmlega hvernig þú vilt hafa hlutina. Þú hefur reyndar allt of mörg- um hnöppum að hneppa og gott væri ef þú gætir ráðið tíma þínum meira. áhuginn við mig og það er gaman að takast á við ómengaðan íslenskan lax. Þá skal viðurkennt að ég er krónískur kartöfluræktandi.“ Fjölskylda Eiginkona Sveinbjörns er Inga Vildís Bjarnadóttir, f. 17.1. 1964, fé- lagsmálastjóri í Borgarbyggð og hár- greiðslumeistari. Þau eru búsett í Hvannatúni í Andakíl. Foreldrar Vildísar: Bjarni Kristjón Skarphéð- insson, frá Þingeyri við Dýrafjörð, rafveitustjóri, f. 1.1. 1927, d. 22.6. 2018 og Sigrún Dagmar Elíasdóttir frá Drangsnesi á Ströndum, félags- málafrömuður, f. 7.2. 1939. Þau gift- ust 26.10. 1959 og bjuggu mestan sinn feril í Borgarfirði. tíma, þar af sem formaður í 6 ár. Hann var í stjórn hestamannafélags- ins Faxa um skeið og sat Landsþing hestamanna fyrir það félag og einnig fyrir hestamannafélagið Hörð í Kjalarnesþingi. Nokkrum sinnum var Sveinbjörn þingforseti á þeim þingum. „Hestamennska hefur lengi verið helsta áhugamálið og ég er svo hepp- inn að öll fjölskyldan hefur gaman af því að fara á bak. Þá var ég ákafur bridsspilari og hef stundum náð að verða Vesturlandsmeistari, bæði í tví- menningi og í sveitakeppni. Helsta viðurkenningin var þó er við Lárus Pétursson urðum í öðru sæti í tví- menningskeppni Bridgehátíðar nú fyrir nokkrum árum. Þá loðir veiði- S veinbjörn Eyjólfsson er fæddur 27. nóvember 1959 á Sólvangi í Hafnarfirði og telst því innfæddur Gafl- ari. Hann gekk í Lækjar- skóla og tók stúdentspróf frá Flens- borgarskóla 1979. Hann hóf nám við Bændaskólann á Hvanneyri sama ár og útskrifaðist sem búfræðikandídat 1983. Hann lauk endurmenntun við Landbúnaðarháskólann í Kaup- mannahöfn vorið 1993. „Ég var öll sumur í sveit, fyrst í Þingnesi í Bæjarsveit hjá Petrúnu Ellu Magnúsdóttur og næstu 6 sumur þar á eftir við tilraunabú Búnaðar- sambands Suðurlands í Laugar- dælum undir leiðsögn Einars Ein- arssonar ráðsmanns frá Nýja-Bæ undir Fjöllunum. Síðustu sumrin við nám, stundaði ég heyskap í Þingnesi og heysölu og fékkst auk þess við leið- sögn veiðimanna í hinum ýmsu ám, mest þó í Grímsá í Borgarfirði.“ Að loknu námi réðst Sveinbjörn til Búnaðarsambands Kjalarnesþings sem ráðunautur og framkvæmda- stjóri Ræktunarsambandsins. Hann var þar í rúmt ár en fór þá til starfa í landbúnaðarráðuneytinu þar sem hann vann sem fulltrúi, deildarstjóri og skrifstofustjóri fram á mitt ár 1996. „Árið 1991 var ég sendur norður í Hjaltadal til að stýra Bændaskól- anum á Hólum einn vetur meðan Jón Bjarnason var í námsleyfi. Það var sérlega gaman að vera með Skagfirð- ingum. Allan tímann í ráðuneytinu togaði sveitin í mig og 1996 gat ég ekki meir. Þegar ég sá auglýsta stöðu forstöðumanns Nautastöðvar Bænda- samtaka Íslands sótti ég um þá stöðu og fékk. Þar hef ég verið síðan, fyrir utan fjögur ár, þar sem ég starfaði sem aðstoðarmaður Guðna Ágústs- sonar landbúnaðarráðherra. Ánægju- leg ár og gaman að vera með Guðna.“ Sveinbjörn var oddviti sveitar- stjórnar Borgarfjarðarsveitar 2002 til 2006, formaður sameiningarnefndar í Borgarfirði, í stjórn SSV og í ýmsum ráðum og nefndum tengdum því. Hann sat í sveitarstjórn Borgar- byggðar 2006 til 2010 og í byggð- arráði á sama tíma. „Ég var í minni- hluta lengstum þann tíma og líkaði illa.“ Hann sat í stjórn Veiðifélags Grímsár og Tunguár í töluverðan Börn Sveinbjörns og Vildísar eru 1) Ragnheiður, f. 18.11. 1981, kennari og langhlaupari, búsett í Reykjavík, gift Þorkeli Guðjónssyni rafeinda- virkja. Þau eiga þrjár dætur, Ingu Vildísi, f. 25.9. 2003, Huldu, f. 21.5. 2006 og Iðunni f. 26.12. 2010; 2) Sig- rún, f. 6.4. 1987, húsmóðir í Reykja- vík, sambýlismaður er Breki Mar Barkarson rafvirki. Þau eiga þrjár dætur, Ragnheiði Hrund, f 15.8. 2008, Hrafnhildi Evu, f. 25.8. 2009 og Dag- mar Rut, f. 10.12. 2010; 3) Kristrún, f. 29.9. 1992, líkamsræktarfrömuður, búsett í Hafnarfirði, gift Gunnari Kristófer Pálssyni verktaka. Þau eiga tvo syni, Úlfar Loga, f. 15.8. 2014 og Erni Stein, f. 29.12. 2016; 4) Klara, f. 29.3. 1994, tamningamaður og reið- kennari, búsett í Hjarðartúni í Rang- árþingi eystra, sambýlismaður er Ágúst Gestur Guðbjargarson nemi. Systkini Sveinbjörns eru Þórdís Birna Eyjólfsdóttir, f. 24.12. 1955, leikskólakennari í Hafnarfirði, og Þorsteinn Eyjólfsson, f. 20.12. 1957, togaraskipstjóri í Hafnarfirði. Foreldrar Sveinbjörns: Eyjólfur Þorsteinsson, f. 8.11. 1933, fv. stýri- maður og verkstjóri í Hafnarfirði, og Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir, f. 29.12. 1936, d. 23.3. 1993, skrifstofu- og stjórnmálamaður. Þau skildu, sambýlisfólk þeirra síðar voru Sigurlaug Guðjónsdóttir skrifstofu- maður og Eðvarð Vilmundarson sjómaður. Sveinbjörn Eyjólfsson, forstöðumaður Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands – 60 ára Gaflari gerðist sveitamaður Kartöflubóndinn Sveinbjörn. Hjónin Vildís og Sveinbjörn. Í Þingnesi í Bæjarsveit Hluti fjölskyldunnar á leið í reiðtúr á Þingsleikum 2017. 40 ára Hólmfríður ólst upp að mestu leyti í Ár- bænum en býr í Hlíð- unum. Hún er MA í blaðamennsku frá UAB í Barcelona. Hólmfríður er blaðamaður á Stundinni. Maki: Jón Oddur Guð- mundsson, f. 1971, hugmynda- og texta- smiður á auglýsingastofunni Brandenburg. Börn: Þröstur Flóki Klemenzson, f. 2008, Þórunn Birna Klemenzdóttir, f. 2010, og Guðmundur Hólmar Jónsson, f. 2017. Stjúpbörn eru Valgerður Jónsdóttir, f. 2002, og Kolbeinn Jónsson, f. 2005. Foreldrar: Sigurður Grímsson, f. 1955, raf- magnstæknifr. og einn eigenda verkfræði- stofunnar EFLU, og Birna Þórunn Páls- dóttir, f. 1948, viðskiptafræðingur, MS og fjármálastjóri á skrifstofu forseta Íslands. Þau eru búsett í Árbænum. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.