Morgunblaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 24
AFREKSKONA
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Sprengju var varpað inn í knatt-
spyrnuheiminn á Íslandi í gær þegar
Valur sendi frá sér tilkynningu þess
efnis að landsliðskonan Margrét
Lára Viðarsdóttir hefði ákveðið að
láta staðar numið í knattspyrnunni
eftir sérlega glæsilegan feril.
„Mér finnst þetta vera góður tíma-
punktur. Ég varð Íslandsmeistari á
árinu. Ég snéri aftur á völlinn eftir
meiðsli og náði að vinna mér aftur
sæti í landsliðinu auk þess að vera
fyrirliði landsliðsins. Mér finnst
þetta vera flottur tímapunktur vegna
þess að ég átti frábært sumar,“ sagði
Margrét Lára þegar Morgunblaðið
hafði samband við hana í gær.
Allur gangur er á því hvernig okk-
ar besta knattspyrnufólk hefur hag-
að því að ljúka ferlinum. Sumir velja
að spila eins lengi og þeir hafa
ánægju af eins og feðgarnir Eiður
Smári og Arnór Guðjohnsen sem
spiluðu fram undir fertugt. Sveitungi
Margrétar, Ásgeir Sigurvinsson,
hætti til dæmis sem atvinnumaður
og lék ekki hér heima eftir að at-
vinnumennskunni sleppti. Ásthildur
Helgadóttir hætti aðeins 31 árs sem
atvinnumaður í Svíþjóð en þar
spiluðu meiðsli líklega inn í.
Margrét Lára hafði myndað sér
skoðun á því hvernig hún vildi segja
skilið við knattspyrnuna sem leik-
maður. Hún vildi hætta áður en hún
færi að gefa verulega eftir en vildi
einnig geta tekið þá ákvörðun á eigin
forsendum. Vildi ekki hætta þegar
hún væri á sjúkralistanum. „Ég hef
alltaf viljað enda ferillinn á góðan
hátt. Ekki sem meiddur leikmaður
eða útbrunnin leikmaður. Ég held að
ég hafi náð því þokkalega vel. Það
skiptir ofboðslega miklu máli að
kveðja sem Íslandsmeistari. Þetta
var erfitt sumar að því leytinu til að
það var erfitt að vinna titilinn en við
stóðumst pressuna. Við sýndum að
við vorum besta lið á Íslandi og það
er rosalega gott að kveðja með þá til-
finningu.“
Skoraði 15 mörk í deildinni
Ekki þarf að liggja lengi yfir stað-
reyndum frá sumrinu 2019 til að sjá
að Margrét Lára kveður ekki sem
farþegi á vellinum. Hún var fyrirliði
Íslandsmeistaraliðs Vals og skoraði
15 mörk í 17 leikjum á Íslands-
mótinu. Aðeins marki minna en
markahæstu konur deildarinnar.
Hún er einungis 33 ára gömul en
bendir á að hún þurfi að hafa talsvert
fyrir því að vera í leikhæfu ástandi
núorðið. Margrét sleit krossband í
hné í júní 2017 og hefur tvívegis tek-
ið sér frí vegna barneigna. Þá lék
hún kvalin árum saman í atvinnu-
mennskunni vegna meiðsla sem
langan tíma tók að fá botn í.
„Líkaminn er orðinn dálítið lúinn.
Hann þarf mikla umönnun og ég
þarf að hafa mikið fyrir því að þetta
gangi allt saman upp og ég geti náð
góðu keppnistímabili. Það er ekki
sjálfgefið vegna þess að ég hef barist
við langvarandi meiðsli sem hafa
arið 2017 og hún missti úr sumarið
2018. Spurð hvort hún hafi fundið
fyrir hnémeiðslunum í sumar segir
Margrét þau ekki hafa háð henni að
ráði.
„Ég náði að hrista meiðslin ágæt-
lega af mér en þurfti að hafa fyrir
því. Ég fór í sprautur, sinnti sjúkra-
þjálfun og gerði aukaæfingar utan
fótboltans. Ég fékk gríðarlegan
stuðning og hefði aldrei getað snúið
aftur með þessum árangri hefði ég
ekki fengið þann stuðning. Bæði frá
fjölskyldu minni en einnig frá þjálf-
arateymi Vals. Pétur Pétursson
(þjálfari Vals) er einstakur maður
sem skilur leikinn og skilur út á hvað
þetta gengur. Hjálpaði hann mér
mikið í endurkomunni því ég var
ekki bara að koma til baka eftir
krossbandsslit heldur einnig að
koma til baka eftir að hafa eignast
mitt annað barn. Það var áskorun út
af fyrir sig. En það var eiginlega lyg-
inni líkast hvernig þetta gekk allt
saman í sumar og fyrir það er ég
þakklát,“ sagði Margrét Lára Við-
arsdóttir í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Tíminn leiðir í ljós hvernig titil-
vörnin mun ganga hjá Val næsta
sumar án fyrirliðans. Í liðinu eru
marksæknir leikmenn eins og Elín
Metta Jensen og Hlín Eiríksdóttir
sem skoruðu 16 mörk hvor á Íslands-
mótinu. Einnig er fjöldi reyndra leik-
manna í hópnum sem geta tekið við
fyrirliðastöðunni.
Vildi hætta áður
en hún gefur eftir
Morgunblaðið/Hari
Meistarar Margrét Lára fagnar Íslandsmeistaratitlinum á Hlíðarenda í haust ásamt liðsfélögum sínum.
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2019
Meistaradeild Evrópu
A-RIÐILL:
Galatasaray – Club Brugge..................... 1:1
Real Madrid – París SG........................... 2:2
Staðan:
París SG 5 4 1 0 12:2 13
Real Madrid 5 2 2 1 11:7 8
Club Brugge 5 0 3 2 3:9 3
Galatasaray 5 0 2 3 1:9 2
París SG og Real Madrid áfram.
B-RIÐILL:
Rauða stjarnan – Bayern München........ 0:6
Tottenham – Olympiacos......................... 4:2
Staðan:
Bayern München 5 5 0 0 21:4 15
Tottenham 5 3 1 1 17:11 10
Rauða stjarnan 5 1 0 4 3:19 3
Olympiacos 5 0 1 4 7:14 1
Bayern og Tottenham fara áfram.
C-RIÐILL:
Atalanta – Dinamo Zagreb...................... 2:0
Manchester City – Shakhtar Donetsk ... 1:1
Staðan:
Manchester City 5 3 2 0 12:3 11
Shakhtar Donetsk 5 1 3 1 8:10 6
Dinamo Zagreb 5 1 2 2 9:9 5
Atalanta 5 1 1 3 5:12 4
Manchester City er komið áfram.
D-RIÐILL:
Lokomotiv Moskva – Leverkusen .......... 0:2
Juventus – Atlético Madrid..................... 1:0
Staðan:
Juventus 5 4 1 0 10:4 13
Atlético Madrid 5 2 1 2 6:5 7
Bayer Leverkusen 5 2 0 3 5:7 6
Lokomotiv Moskva5 1 0 4 4:9 3
Juventus er komið áfram.
England
B-deild:
Millwall – Wigan...................................... 2:2
Jón Daði Böðvarsson var á varamanna-
bekk Millwall.
Cardiff – Stoke.......................................... 1:0
Fulham – Derby ....................................... 3:0
Huddersfield – Swansea.......................... 1:1
Luton – Charlton...................................... 2:1
Reading – Leeds....................................... 0:1
Staða efstu liða:
Leeds 18 11 4 3 24:10 37
WBA 17 10 6 1 31:18 36
Fulham 18 9 5 4 29:18 32
Preston 17 9 4 4 31:18 31
Swansea 18 8 6 4 23:18 30
Nottingham F. 16 8 5 3 20:13 29
Bristol City 17 7 8 2 25:21 29
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Mustad-höll: Grindavík – Skallagr. .... 19.15
Stykkishólmur: Snæfell – Valur.......... 19.15
DHL-höllin: KR – Breiðablik.............. 19.15
Blue-höllin: Keflavík – Haukar ........... 19.15
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
Grill 66 deild karla
Fjölnir U – Stjarnan U ........................ 26:22
Staðan:
Þór Ak. 8 6 2 0 241:216 14
Valur U 8 5 1 2 236:229 11
Haukar U 8 5 1 2 235:204 11
Grótta 8 5 0 3 227:228 10
Þróttur 8 3 2 3 243:227 8
KA U 8 4 0 4 250:233 8
FH U 8 4 0 4 239:235 8
Víkingur 8 2 1 5 204:217 5
Fjölnir U 9 2 0 7 228:252 4
Stjarnan U 9 1 1 7 220:282 3
Spánn
Ademar León – Barcelona ................. 28:35
Aron Pálmarsson var ekki í leikmanna-
hópi Barcelona.
Svíþjóð
Sävehof – Alingsås ...............................30:35
Ágúst Elí Björgvinsson varði 4 skot í
marki Sävehof.
Aron Dagur Pálsson skoraði ekki fyrir
Alingsås.
Ungverjaland
Pick Szeged – Eger ............................. 45:32
Stefán Rafn Sigurmannsson lék ekki
með Pick Szeged vegna meiðsla.
Þýskaland
Bonn – Alba Berlín .............................. 87:90
Martin Hermannsson skoraði 11 stig og
gaf 8 stoðsendingar fyrir Alba.
NBA-deildin
Cleveland – Brooklyn....................... 106:108
Detroit – Orlando ............................... 103:88
Indiana –Memphis ........................... 126:114
Atlanta – Minnesota......................... 113:125
Boston – Sacramento ....................... 103:102
Miami – Charlotte ............................ 117:100
Toronto – Philadelphia ...................... 101:96
Chicago – Portland............................. 94:117
Milwaukee – Utah ............................ 122:118
San Antonio – LA Lakers................ 104:114
Golden State – Oklahoma City.......... 97:100
KÖRFUBOLTI
Pólverjinn Robert Lewandowski
skoraði fjögur mörk fyrir Bayern
München í 6:0-útisigri á Rauðu
stjörnunni Meistaradeild Evrópu í
gær og gerði það á innan við kort-
eri sem er met í keppninni. Mörk-
in komu á 53., 60., 64. og 68. mín-
útu.
Lewandowski og Lionel Messi
eru þeir einu sem skorað hafa
fjögur mörk eða fleiri í leik í
Meistaradeildinni oftar en einu
sinni. Pólverjinn er markahæsti
maður bæði Bayern og Dortmund
í sögu Meistaradeildarinnar.
Lewandowski
setti met
AFP
Ferna Robert Lewandowski fór
mikinn í Belgrað í Serbíu í gær.
Enska knattspyrnufélagið Brighton
hefur framlengt samning sinn við
knattspyrnustjórann Graham
Potter. Potter er nú samningsbund-
inn til ársins 2025, en hann tók við
Brighton í sumar og skrifaði þá
undir fjögurra ára samning.
Forráðamenn Brighton eru hæst-
ánægðir með Potter en Brighton er
sem stendur í 12. sæti ensku úrvals-
deildarinnar eftir 13 leiki.
Potter tók við Brighton eftir eitt
tímabil hjá Swansea í B-deildinni.
Þar á undan náði hann stórkostleg-
um árangri með Östersund.
Ráðinn til sex ára
eftir sex mánuði
AFP
Vinsæll Graham Potter er í miklum
metum hjá Brighton.
Ár/félag/deildarleikir og mörk:
2000-2004: ÍBV 40/48
2005-2008: Valur 62/127*
2009: Linköping 13/2
2009-2011: Kristianstad 51/27
2011-2012: Potsdam 7/1
2012-2015: Kristianstad 50/22**
2016-2019: Valur 41/32**
A-landsleikir: 124/79
*Var einnig hjá Duisburg í lok árs
2006. Lék þar þrjá bikarleiki en ekki
deildarleik.
** Tók sér frí 2014 og 2018 vegna
barneigna.
Ýmis afrek í meistaraflokki:
Íslandsmeistari fimm sinnum
með Val.
Bikarmeistari með ÍBV og Val.
Sænskur meistari með Linköping.
Þýskur meistari með Potsdam.
Markadrottning Íslandsmótsins
fimm ár í röð.
Flest mörk á einu keppnistímabili í
efstu deild hérlendis: 38.
Markadrottning sænsku úrvalsdeild-
arinnar 2011.
Þrívegis markahæst í Meistaradeild
Evrópu.
Markahæst í undankeppni EM 2009.
Markahæsta landsliðskona Íslands
frá upphafi.
Ýmsar viðurkenningar:
Tvívegis efnilegasti leikmaður
Íslandsmótsins.
Fimm sinnum knattspyrnukona
ársins hjá KSÍ.
Íþróttamaður Vestmannaeyja 2004.
Íþróttamaður ársins 2007.
Ferill Margrétar Láru
Margrét Lára Viðarsdóttir lýkur glæsilegum ferli á góðum nótum
vissulega truflað mig. En ég náði
góðu tímabili í sumar og tek það ekki
sem sjálfsagðan hlut. Þess vegna
finnst mér þetta vera góður tíma-
punktur.“
Fékk góða aðstoð
Eins og fram kemur hjá Margréti
hafa meiðslin sett sinn svip á ferilinn.
Krossbandsslitið gerði það að verk-
um að verkum að hún lék lítið sum-