Morgunblaðið - 27.11.2019, Side 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2019
Okkur er minn-
isstætt er Hjörtur
gekk til liðs við
ORF Líftækni árið
2010, settist í stjórn félagsins og
gerðist síðar afar farsæll stjórn-
arformaður þess. Óhætt er að
segja að Hjörtur hafi skipað
stóran sess í vexti félagsins enda
skarpgreindur, nákvæmur og
talnaglöggur.
En það sem skipti þó meira
máli var brennandi áhugi hans á
félaginu, fórnfýsi og baráttu-
kraftur fyrir velgengni þess auk
þess að vera traustur samstarfs-
maður. Ennfremur vakti aðdáun
okkar hversu fljótt hann gat sett
sig inn í líftæknina, hagfræðing-
urinn sjálfur.
Hjörtur J. Hjartar
✝ Hjörtur Jóns-son Hjartar
fæddist 11. júní
1948. Hann lést 17.
nóvember 2019.
Útför hans var
gerð 23. nóvember
2019.
Þetta skynjuðum
við starfsmenn fé-
lagsins og þessa nut-
um við ríkulega;
undir hans stjórn
hélt þetta litla ný-
sköpunarfélag áfram
að vaxa og dafna og
þegar Hjörtur lét af
störfum vegna
heilsubrests skilaði
hann góðu búi, fyrir-
tæki komið í rekstr-
arhagnað og með sterka innviði.
Þessi árangur var ekki sjálf-
sagður og á þessum grunni, sem
hann hafði átt svo stóran þátt í
að leggja, hefur félagið haldið
áfram að eflast.
Þótt Hjörtur gæti stundum
verið beinskeyttur og harður í
horn að taka kunnum við þó allt-
af að meta að það var gert af
heiðarleika og með hagsmuni fé-
lagsins að leiðarljósi. Því gleym-
um við aldrei. Megir þú hvíla í
friði, Hjörtur.
Björn Örvar og Júlíus
B. Kristinsson.
Það var seinnipart sumars 97.
Ég stóð í eldhúsinu í Gautaborg
og var að ganga frá eftir matinn
þegar bankað var á hurðina. Ég
fór til dyra og fyrir utan stóðu
kona og maður sem ég hafði
aldrei séð áður. Konan segir:
„Hæ, við erum nýflutt í hverfið
og fréttum að það byggju hérna
Íslendingar, áttu nokkuð kaffi á
könnunni?“
Þar og þá unnum við fjöl-
skyldan í Lottó. Fólkið sem ég
þekkti ekki skil á voru Hjörtur
og Jagga og þennan dag byrjaði
vinskapur sem hefur verið okkur
ómetanlegur. Hjálpsemi, óeigin-
girni, velvilji og jákvæðni ein-
kenndi Hjört og Jöggu. Svo
mikið að á stundum hvarflaði
það að mér að það hefði ekki
verið slæmt að vera ættleidd af
þeim. En ættleidd eða ekki þá
hafa börnin okkar alltaf litið á
Hjört og Jöggu sem afann og
ömmuna sem þau aldrei hafa
átt.
Við fjölskyldan búum áfram í
Gautaborg en Hjörtur og Jagga
fluttu heim til Íslands. Það
hindraði samt ekki að vinskap-
urinn hélst og hélt áfram að
vaxa.
Þegar Bragi spilaði fótbolta á
Íslandi var heimili þeirra honum
opið í hvert sinn sem hann vildi
og þyrfti hann einhverja aðstoð
voru þau boðin og búin til að-
stoðar, oft áður en maður vissi
af, aldrei nein vandamál, bara
möguleikar.
Hjörtur var sá jákvæðasti
maður sem ég hef kynnst. Það
eina ég man eftir að hann klag-
aði yfir var þegar Bragi gerði
langtímaleigu á bíl. Hirti fannst
bíllinn frekar ljótur og mikil
drusla og tjáði sig óspart um
það, hann hafði út af fyrir sig al-
veg rétt fyrir sér.
En því miður vann ekki
Hjörtur í Lottó þegar hann
greindist með MND. Hræðileg-
ur, ólæknandi sjúkdómur, sem
Hjörtur tókst á við með því jafn-
lyndi og æðruleysi sem ein-
kenndi hann. Þessi sjúkdómur
var svo langt frá því að vera ein-
hver ljót langtímaleiga sem tæki
enda.
Við kveðjum Hjört með sorg í
hjarta, en miðað við alvarleika
sjúkdómsins og allt sem honum
fylgdi, þá vann kannski Hjörtur
í Lottó að lokum, ég vil sjá það
svo. Því ef það er til annað líf, þá
vil ég trúa því að núna líði Hirti
vel, að hann geri það sem hann
ekki gat gert síðustu árin,
kannski spilar hann einn og ann-
an golfhring, gengur á fjöll eða
grillar, hvað veit ég.
Hjörtur og Jagga! Ég og við
fjölskyldan viljum þakka fyrir að
þið bönkuðuð á dyrnar hjá okk-
ur hér um árið í Gautaborg.
Þið hafið gert líf okkar ríkara.
Ingibjörg, Bergur,
Bragi, Aron og Andrea.
Engan hef ég þekkt sem tekið
hefur örlögum sínum af slíku
jafnaðargeði sem Hjörtur. Jak-
obína var hans stoð og stytta og
gerði honum kleift, eftir að hann
veiktist, að lifa lífinu lifandi,
þrátt fyrir meiri skerðingu lík-
amlegra lífsgæða en hægt er að
gera sér grein fyrir.
Heilinn var alltaf sterkasta
vopn Hjartar, þótt hann væri
reyndar góður í flestu sem hann
tók sér yfir hendur, ekki síst
golfi, „en það er reyndar fyrst
og fremst heilaleikfimi“ eins og
hann sagði einhvern tímann við
mig.
Það sem segir að mínu mati
mest um hve einstakur Hjörtur
var er hjónaband hans og Jöggu,
börnin þeirra og hve farsæll
hann var í lífi og starfi, öll hans
skyldmenni og vinir; allt fólkið
sem hann elskaði og elskaði
hann, valinn maður og kona í
hverju rúmi.
Fram á síðustu stundu vildi
Hjörtur diskútera alla skapaða
hluti; pólitík, atvinnumál, mann-
skepnuna, veröldina og himin-
geiminn, í fortíð, nútíð og fram-
tíð. Það var óendanlega gaman
og þroskandi að ræða þessa
hluti við hann.
Þegar við í haust lásum bók
Stefans Zweig; Undir örlaga-
stjörnu, var Hjörtur í stuði eftir
hverja sögu og við ræddum inni-
haldið og þær djúpu andlegu
vangaveltur sem þar lágu að
baki hjá höfundinum. Það fannst
Hirti skemmtilegt. Hann vissi
þá vel hvert hans örlagastjarna
stefndi, en lífið var honum svo
mikil ástríða að hann lét hvergi
undan uns yfir lauk.
Við Helga Lísa vottum Jak-
obínu, börnum, barnabörnum og
allri fjölskyldunni okkar dýpstu
samúð.
Páll Kr. Pálsson.
Það er komið að
því að kveðja þig,
elsku hjartans
mamma. Það er svo
sárt að engin orð fá lýst því
hvernig okkur líður. Þú hefur
verið svo stór þáttur í lífi okkar
og haft svo mikla þýðingu fyrir
okkur, börnin okkar og barna-
börn. Þú varst kletturinn, akker-
ið og límið. Gjafmildi, vingjarn-
leiki, hlýleiki, innsæi, hjarta-
gæska, traust, hjálpsemi, óeigin-
girni, reglusemi, lítillæti og
húmor. Við sem þekktum þig vit-
um að þessi orð lýstu þér svo vel.
Þegar betur er að gáð eru þetta
allt saman persónulegir eigin-
leikar sem vert er að sækjast eft-
ir. Fólk fer á alls kyns námskeið
til að bæta sig í mannlegum sam-
skiptum, verða betri manneskjur,
vinna í sjálfum sér, en þetta var
þér allt svo eðlislægt. Í vinahópi,
á vinnustað, innan fjölskyldunnar
hefur þú alltaf gert þér far um að
koma vel fram við alla, kærleiks-
rík móðir, amma og langamma,
traustur félagi, og í vinnu varstu
vinsæl og eftirsótt. Og nú myndir
Margrét
Guðmundsdóttir
✝ Margrét Guð-mundsdóttir
fæddist 21. janúar
1934. Hún lést 6.
nóvember 2019.
Útför Margrétar
fór fram í kyrrþey
14. nóvember 2019.
þú örugglega segja
okkur að hætta
þessu bulli, því þú
kunnir því illa að
láta skjalla þig.
Hræðileg veik-
indi höfðu herjað á
þig í nokkur ár, en
það var merkilegt
hvað þú hélst tign-
inni og reisninni
þrátt fyrir að það
hallaði hratt undan
fæti. Þú varst ekki þekkt fyrir að
gefast upp, kveinkaðir þér aldrei
og vildir lítið um sjúkdóma tala.
„Eigum við ekki að tala um eitt-
hvað skemmtilegra,“ sagðir þú ef
verið var að spyrja þig um veik-
indin.
Drungalegt ský dró fyrir sólu
þegar við misstum pabba fyrir
tólf árum. Söknuðurinn var þér
óbærilegur og tómið svo ógnar-
stórt, því þið höfðuð alltaf verið
svo samstiga í lífinu.
Þið héldust í hendur hvort sem
þið sátuð í stofunni heima eða
voruð úti að ganga. Þú sagðir að
þú hefðir aldrei komist yfir þetta
áfall, aðeins lært að lifa með því,
æðrulaus og með reisn. Við vitum
að pabbi hefur sótt þig þegar tím-
inn var úti og nú haldist þið í
hendur í Sumarlandinu fagra og
njótið ykkar þar, laus við þján-
ingu og pínu.
Hendurnar þínar, fallegu
vinnusömu hendurnar þínar, allt-
af að. Þú byrjaðir snemma að
vinna fyrir þér, passa börn í
hverfinu, unglingur í mjólkur-
búðunum, fimm barna móðir, allt
gert í höndunum, mikið gert úr
litlu, traust vinnuafl. Myndbrot
sem koma upp í hugann þegar
leitast er við að finna hvað snýr
upp eða niður þegar svo þýðing-
armikil persóna hverfur frá
manni.
Ekkert verður aftur eins, ekki
hægt að heimsækja þig aftur,
ekki hægt að heyra röddina þína
aftur. Það er svo margt sem
manni áður fannst svo sjálfgefið
sem ekki er hægt að njóta lengur.
Þetta er auðvitað gangur lífsins
og ætti að kenna okkur að meta
betur lífið og þá sem við elskum.
Talandi um að elska, þá ætti nú
ekki að vera nokkur vafi á að við
afkomendur þínir elskuðum þig
afar heitt, öll erum við beygð og
brotin, lútum tárvot höfði og
söknum þín.
Elsku mamma, innilegar
þakkir fyrir að hafa verið okkur
kærleiksrík og góð móðir. Þú
skilur eftir þig óendanlegt tóm í
lífi okkar. Við hefðum svo sann-
arlega óskað þess að fá að hafa
þig lengur, en lífsgæðin þín voru
orðin að engu og þá er dauðinn
líkn. Minningarnar lifa í hjarta
okkar. Hvíldu í friði, elsku
mamma.
Hulda og Margrét.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
KATRÍN SIGURJÓNSDÓTTIR,
Sóleyjarima 15, Reykjavík,
lést á Landspítalanum, Fossvogi,
sunnudaginn 17. nóvember.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 29. nóvember
klukkan 13.
Sigurjón Einarsson
Kristín Einarsdóttir Frosti Gunnarsson
Aron Arnarson Snæfríður Birta Björgvinsd.
Karen Arnardóttir Alexander Sigurðsson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og
útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR ELÍASDÓTTUR,
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu,
Nesvöllum og Lionessuklúbbs Keflavíkur.
Jóhann Pétursson
Elías Ásgeir Jóhannsson Margrét Hrönn Emilsdóttir
Pétur Jóhannsson Sólveig Einarsdóttir
Margrét Sigrún Jóhannsd. Werner Kalatschan
Kristín Jóhannsdóttir
Jón Þorsteins Jóhannsson
Jóhann Ingi Jóhannsson Mariana Tamayo
barnabörn og barnabarnabörn
Bróðir okkar, mágur og frændi,
KRISTMANN GUÐMUNDSSON
Lyngheiði 18, Selfossi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
fimmtudaginn 21. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju
föstudaginn 29. nóvember klukkan 13.30.
Jón Guðmundsson
María Helga Guðmundsd.
Sigurður Guðmundsson Eygló Gunnlaugsdóttir
Bjarni Guðmundsson Rannveig Jónsdóttir
og frændsystkini
Sálm. 86.5
biblian.is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.
ă
Ástkær eiginmaður minn og bróðir okkar
GISSUR ÖRN GUNNARSSON
Háteigsvegi 3, Reykjavík,
lést laugardaginn 23. nóvember.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
laugardaginn 30. nóvember klukkan 13.
Við þökkum fjölskyldu og vinum hlýhug og stuðning á þessum
erfiðu tímum.
Florentina Fund teanu
Kristinn Már Gunnarsson
Anna Lilja Gunnarsdóttir
Eva Björk Gunnarsdóttir
a
Minningarvefur á mbl.is
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Minningar
og andlát