Morgunblaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 25
HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Fyrstu þjálfaraskipti keppnis- tímabilsins í Olísdeild karla í hand- knattleik áttu sér stað í gær þegar Halldór Jóhann Sigfússon var ráð- inn þjálfari Fram í stað Guðmundar Helga Pálssonar sem mátti axla sín skinn í fyrrakvöld eftir þriggja ára veru við stjórnvölinn. Guðmundur Helgi sagði í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær að uppsögnin hefði komið sér á óvart. Hann var við þjálfun Framliðsins sumarið 2016 og skrifaði undir fimm ára samning við Fram í ársbyrjun í fyrra. Svo langir samningar við þjálfara eru fátíðir hér á landi. Þá var hugur í forráðamönnum Fram. Þolinmæði þeirra var hinsvegar á þrotum ríflega 22 mánuðum síðar eftir brösótt gengi Framliðsins á keppnistímabilinu. Fram fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni í haust. Nú þegar keppni í Olísdeild- inni er hálfnuð situr Fram í níunda sæti deildarinnar með sjö stig eftir 11 leiki. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins reyndist tap Fram fyrir Fjölni í Dalhúsum, 27:25, í 8- liða úrslitum Coca Cola-bikarsins í síðustu viku vera kornið sem fyllti mælinn. Menn óttuðustu að ef ekki yrði breyting á væri Fram-liðið, fjarri því að losa sig úr fallbaráttu. Heyrðu í Halldóri fyrir helgi Í framhaldinu fóru Framarar að horfa í kringum sig. Heimildir Morgunblaðsins herma að þegar fyrir síðustu helgi hafi forráða- maður Fram haft samband við Halldór Jóhann og kannað hvort hann væri tilleiðanlegur að leysa Guðmund Helga af hólmi á stóli þjálfara. Eftir að Halldór Jóhann hafði lokið störfum sínum fyrir kvennalandsliðið í fyrradag gaf hann formanni handknattleiks- deildar Fram, Bjarna Kristni Ey- steinssyni, jákvætt svar. Guðmundur Helgi átti ekki sjö daga alltaf sæla á starfsárum sínum í Safamýri. Honum tókst hinsvegar lengst af tekist að spila vel úr stöð- unni sem á stundum var þröng. Talsverð uppstokkun átti sér stað á leikmannahópnum á hverju ári. Meðal þeirra sem yfirgáfu liðið fyrir yfirstandandi leiktíð voru tveir markahæstu leikmenn þess á síð- asta ári, Andri Þór Helgason og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson. Einn- ig landsliðsmarkvörðurinn ungi, Viktor Gísli Hallgrímsson. Slapp fyrir horn í vor Fram-liðið hefur lengi barist í neðri hluta deildarinnar en sloppið við fall á elleftu stundu m.a. í vor sem leið. Hápunktarnir undir stjórn Guðmundar Helga voru án vafa að slá úr þáverandi Íslandsmeistara, Hauka, út úr 8-liða úrslitum Íslands- mótsins vorið 2017 og að ná í úrslit í Coca Cola-bikarum árið eftir. Halldór Jóhann þekkir vel til í herbúðum Fram, ekki síst hvernig baklandið er. Hann var leikmaður Fram frá 2007 til 2012 og þjálfari kvennaliðs Fram frá 2012 til 2014 þegar réði sig til FH. Með FH náði Halldór Jóhann fínum árangri, lék tvisvar til úrslita um Íslandsmeist- aratitilinn, 2017, 2018 og varð bikar- meistari fyrr á þessu ári auk athyglisverðs árangurs í Evrópu- keppni félagsliða. Ekki er einfalt að taka við liði á miðju keppnistímabili, koma inn í hóp leikmanna sem annar þjálfari hefur mótað. Mjög mun reyna á Halldór og leikmenn að nýta hléið sem verður á keppni í deildinni frá miðjum desember til loka janúar. Tapið í Dalhúsum var kornið  Halldór Jóhann tekur við af Guðmundi Helga í Safamýri  22 mánuðir síðan skrifað var undir fimm ára samning  Verður að lyfta Fram upp úr botnbaráttu Morgunblaðið/Eggert Fram Halldór Jóhann Sigfússon snýr aftur í Safamýrina þar sem hann var áður þjálfari kvennaliðsins og þar áður leikmaður karlaliðs Fram í fimm ár. Hann þjálfaði 21-árs landslið karla hjá Barein frá janúar og þar til í september. ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2019 Ég hef reynt af og til að sjá leiki hjá Aroni Pálmarssyni í Meist- aradeildinni í handknattleik að undanförnu. Leikjaálagið er reyndar mjög mikið og manni finnst stundum eins og okkar fremstu menn í körfunni og handboltanum séu að spila nán- ast öll kvöld. Ég held að ég hafi bara aldrei séð Aron jafn vel á sig kominn á vellinum og á þessu keppnis- tímabili. Hann virkar kröftugri og sterkari en áður. Aron hefur auðvitað verið í heimsklassa í áraraðir. Stimplaði sinn inn í þann gæðaflokk þegar hann var valinn í úrvalslið Ól- ympíuleikanna í London árið 2012. Tæknin hefur alltaf verið framúrskarandi og leikskilning- urinn mjög góður. Þessa þætti þarf ekki að rekja sérstaklega. Þegar Aron var að hefja sinn atvinnumannaferil átti hann eftir að styrkja fæturna til að verða heimsklassaleikmaður. Hann gat auðveldlega skorað 12 mörk í leik í íslensku deildinni þótt hann væri innan við tvítugt. En þegar komið er í sterkustu deildirnar þurfa menn að hafa meira fyrir því. Aron er augljóslega miklu sterkari í fótunum en þegar hann var ungur leikmaður. Í sumar virðist hann hafa nýtt tímann vel því sprengikrafturinn er orðinn enn meiri. Fyrir vikið er vonlítið fyrir einn mann að stöðva Aron þegar hann sækir að marki and- stæðinganna. Ef fram heldur sem horfir gæti Aron orðið frábær fyrir íslenska landsliðið á EM í janúar. Aron hefur verið seinheppinn með landsliðinu á undanförnum ár- um. Hver veit nema EM 2020 verði hans besta stórmót síðan 2012? BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Alba Berlín hafði betur gegn Bonn er liðin mættust í þýsku úrvals- deildinni í körfuknattleik í gær. Martin Hermannsson var öflugur hjá Alba eins og svo oft áður. Íslenski landsliðsmaðurinn skor- aði ellefu stig, gaf átta stoðsend- ingar og tók tvö fráköst. Martin er í nýju hlutverki hjá Alba á leiktíðinni og snýst leikur hans meira um að gefa stoðsendingar en að skora sjálfur. Því virðist hann hafa aðlag- ast afar vel. Alba er í þriðja sæti þýsku deild- arinnar með 14 stig eftir níu leiki. Mataði samherja sína í Bonn Morgunblaðið/Hari Stoðsendingar Martin leitar enn meira að liðsfélögunum en áður. „Upp á síðkastið hef ég átt í vand- ræðum með aðra hásinina. Vökvi myndaðist við hana og ástæðan er sú að ég setti of mikið álag á hana þegar ég var slæmur í hnénu á hin- um fætinum. Ég er á batna og fer væntanlega að mæta út á völlinn fljótlega,“ sagði Stefán Rafn Sigur- mannsson, leikmaður ungverska meistaraliðsins í handknattleik, Pick Szeged, við Morgunblaðið. Stefán Rafn hefur litið leikið með Szeged-liðinu á leiktíðinni vegna meiðsla, fyrst í hné og síðan vegna hásinarinnar. iben@mbl.is Vökvi safnaðist við hásinina Ljósmynd/Aðsend Óheppinn Stefán Rafn Sigurmanns- son hefur verið óheppinn í vetur. Rússland fær að vera með á EM karla í fótbolta og handbolta á næsta ári, þrátt fyrir lyfjahneyksli íþróttahreyfingarinnar þar í landi. Nefnd á vegum WADA, alþjóða- lyfjaeftirlitsins, leggur til að rúss- neskt íþróttafólk verði sett í fjög- urra ára bann frá alþjóðlegri keppni vegna meintra, stórfelldra brota á lögum um lyfjanotkun. Verði Rússar dæmdir í fjögurra ára bann, fá karlalandslið þjóð- arinnar samt sem áður að spila á Evrópumótunum á næsta ári. Rúss- land hefur þegar tryggt sér sæti báðum lokakeppnum og munu leik- ir á EM í fótbolta fara fram í Sankti Pétursborg. Ástæðan er sú að UEFA er ekki eitt þeirra sambanda sem ISCCS, alþjóðanefnd sem sér um reglugerð lyfjaeftirlita, nær yfir. Það sama má segja um Handknattleiks- samband Evrópu. Rússar eru með Íslendingum í riðli á EM í janúar. Þessar fréttir bætast við hið um- fangsmikla lyfjahneyksli sem upp komst um í Rússlandi fyrir fjórum árum og skók íþróttaheiminn. Það hafði meðal annars í för með sér að rússneski fáninn var hvergi sjáan- legur á Ólympíuleikunum í Ríó 2016 og Vetrarólympíuleikunum í Pyengchang 2018, en þó keppti þar rússneskt íþróttafólk sem ekki hafði fallið á lyfjaprófi, undir hlut- lausum fána. johanningi@mbl.is Eru með þrátt fyrir lyfjamisferli Spænska stórliðið Real Madrid er komið áfram í 16-liða úrslit Meist- aradeildar Evrópu í knattspyrnu. Liðið fer áfram úr A-riðli ásamt Par- is Saint-Germain en liðin mættust í Madríd í gær og gerðu 2:2 jafntefli. Real hefur aðeins unnið tvo af fyrstu fimm leikjunum í keppninni. Liðið hefur einnig gert tvö jafntefli og það nægir þótt ein umferð sé eftir. Club Brugge og Galatasaray hafa aðeins safnað þremur og tveimur stigum í riðlinum. Real var reyndar 2:0 yfir í leiknum í gær eftir að Karim Ben- zema skoraði tvívegis gegn löndum sínum. Kylian Mbappé og Pablo Sarabia tryggðu PSG stig með mörkum á 81. og 83. mínútu. Furðuleg uppákoma varð í Ist- anbúl þegar Krepin Diatta skoraði jöfnunarmark Club Brugge 1:1 gegn Galatasaray á 90. mínútu. Markið heldur Belgunum fyrir ofan Tyrk- ina. Diatta og Clinton Mata samherji hans nældu sér báðir í leikbann í fagnaðarlátunum. Diatta fékk sitt annað gula spjald fyrir að rífa sig úr treyjunni og Mata sá ástæðu til að brjóta hornfánann eftir að liðið skor- aði og fékk einnig sitt annað gula spjald. Tottenham Hotspur sigraði Olym- piacos 4:2 þrátt fyrir að lenda 0:2 undir í fyrsta Evrópuleiknum undir stjórn Jose Mourinho. Harry Kane skoraði tvö markanna, Dele Alli og Serge Aurier eitt hvor. Tottenham fylgir Bayern München upp úr B- riðlinum. Manchester City er einnig komið áfram eftir 1:1 jafntefli við Shakhtar Donetsk á heimavelli. sport@mbl.is AFP Sigur Mourinho fagnar marki Tottenham í gær í örmum samstarfsmanns. Real, City og Tottenham í 16-liða úrslit

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.