Morgunblaðið - 27.11.2019, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2019
Valdís Þóra Jónsdóttir hefur á
morgun keppni á næstsíðasta móti
tímabilsins á Evrópumótaröðinni í
golfi en hún tekur þátt í Andalucia
Costa del Sol mótinu á Suður-Spáni.
Lokamótið fer síðan fram í Kenía og
hefst 5. desember. Valdís er í 82. sæti
á stigalista LET-Evróumótaraðarinnar
og er í hörðum slag um að halda
keppnisrétti sínum en til þess að vera
með öruggt sæti á mótaröðinni á
næsta ári þarf hún að ná einu af 70
efstu sætunum í ár.
Böðvar Böðvarsson var valinn í úr-
valslið 16. umferðar pólsku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu af vefsíðu
deildarinnar fyrir frammistöðu sína
með Jagiellonia í sigri á Arka Gdynia á
sunnudaginn, 2:0. Böðvar skoraði þar
seinna mark liðsins skömmu fyrir
leikslok en það er hans fyrsta deilda-
mark sem atvinnumaður. Böðvar kom
til liðs við Jagiellonia frá FH í árs-
byrjun 2018. Lið hans er í sjöunda sæti
deildarinnar, aðeins fimm stigum á
eftir toppliðinu Pogon Szczecin.
Akureyrski knattspyrnumaðurinn
Bjarki Mark Antonsson er líkast til á
leið upp í sænsku úrvalsdeildina með
liði sínu, Brage. Sænska knattspyrnu-
sambandið tilkynnti í gær að Öster-
sund, sem hafnaði í 12. sæti úrvals-
deildar í ár, fengi ekki nýtt keppnisleyfi
fyrir næsta tímabil þar sem það upp-
fyllti ekki fjárhagsleg rekstrarskilyrði.
Brage hafnaði í þriðja sæti B-deildar
og tapaði fyrir Kalmar í umspili og
mun taka sæti Östersund, sem hyggst
þó áfrýja úrskurðinum og hefur frest
til þess til 10. desember. Bjarni kom til
Brage frá KA fyrir nýliðið tímabil og
var í stóru hlutverki á miðjunni hjá lið-
inu.
Handknattleikskonan Þóra María
Sigurjónsdóttir leikur ekki meira með
Aftureldingu í úrvalsdeildinni á þessu
keppnistímabili. Skýrt var frá því á vef
félagsins í gær að þessi 18 ára gamla
stúlka hefði slitið krossband í hné á
æfingu. Hún er þriðji markahæsti leik-
maður Aftureldingar sem er nýliði í
deildinni í vetur og hefur skorað 34
mörk í níu leikjum Mosfellinga.
Skagamenn eru mættir til ensku
borgarinnar Derby með 2. flokks lið
sitt í knattspyrnu en ÍA og Derby leika
þar í kvöld seinni leik sinn í annarri
umferð Unglingadeildar UEFA. Derby,
sem er enskur meistari U18 ára liða,
vann fyrri leikinn á Víkingsvellinum
fyrr í þessum mánuði, 2:1. Skagamenn
urðu í haust Íslandsmeistarar í 2.
flokki annað árið í röð, undir stjórn
Sigurðar Jónssonar. Leikið verður á
aðalleikvangi félagsins, Pride Park.
Grindvíking-
urinn Jósef
Kristinn Jós-
efsson hefur
skrifað undir
nýjan samning
við knatt-
spyrnudeild
Stjörnunnar og
gildir hann til
tveggja ára. Jósef,
sem er þrítugur,
hefur leikið með
Stjörnunni und-
anfarin þrjú tíma-
bil en spilað áður
með Grindvík-
ingum. Jósef á að
baki 220 deilda-
leiki með þessum
liðum, þar af 120 í
efstu deild.
Eitt
ogannað
ÞÝSKALAND
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Það hefur legið fyrir síðan í janúar að leiðir mín og
félagsins myndu skilja í lok þessarar leiktíðar. Stað-
an hefur verið kristaltær um nokkurt skeið af ýms-
um ástæðum,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson, hand-
knattleiksþjálfari þýska 1. deildarliðsins HC
Erlangen í karlaflokki, í samtali við Morgunblaðið í
gær. Á dögunum tilkynnti félagið að Michael Haaß
tæki við af Aðalsteini eftir yfirstandandi leiktíð. Að-
alsteinn er nú á þriðja keppnistímabili sínu við þjálf-
un liðsins en alls hefur hann verið í 12 ár við þjálfun
félagsliða í Þýskalandi.
„Ég framlengdi samning minn í byrjun þessa árs
eftir langt og erfitt ferli. Litlu munaði að upp úr
slitnaði í samningum og við flyttum heim á liðnu
sumri. Segja má að við höfum hætt við það á síðustu
stundu og tókum við ákvörðun að vera áfram hjá Er-
langen ár til viðbótar og sjá svo til. Þar erum við
stödd núna,“ sagði Aðalsteinn, sem er kvæntur
Birnu Haraldsdóttur. Þau eiga þrjú ung börn.
„Ég er í viðræðum við félögum um að taka að mér
verkefni. Á þessari stundu er ekki ljóst hver niður-
staðan verður. Elsti sonur okkar er að verða sex ára
og fer að byrja í grunnskóla, svo það er að ýmsu að
hyggja áður en við hjónin stígum næsta skref. Við
ætlum að gefa okkur tíma til þess að fara vel yfir
hvað við viljum og ætlum að gera eftir að samningur
minn við Erlangen rennur út um mitt næsta ár.
Nokkrir kostir eru í stöðunni en ég útiloka alls ekki
að við flytjum heim á næsta sumri,“ sagði Aðal-
steinn, sem hefur þjálfað Eisenach, Hüttenberg,
Kassel og Weibern, auk Erlangen þar sem hann tók
við þjálfun fyrir ríflega hálfu þriðja ári.
Stærra nafn ytra en heima
Á þessum árum hefur Aðalsteinn skapað sér
ákveðið nafn sem þjálfari í Þýskalandi. Má þar m.a.
nefna undraverðan árangur Hüttenberg undir hans
stjórn þegar liðið fór upp úr þriðju og í efstu deild á
tveimur árum. Nánast án þess að tapa leik. Síðan
hefur Erlangen fest sig í sessi í 1. deild, þeirri efstu,
undir stjórn Aðalsteins á undanförnum árum. „Ég
hef að minnsta kosti skapað mér
stærra nafn sem þjálfari hér úti en
heima á Íslandi,“ sagði Aðalsteinn
glaður í bragði. „Ég er vel liðinn og virt-
ur í þýska handboltanum, sem er gott og
gaman. En allt tekur einhvern tímann enda.“
Aðalsteinn segir að þrátt fyrir að árangur Er-
langen hafi verið góður undir stjórn hans, m.a. ní-
unda sæti í þýsku 1. deildinni í vor sem er besti ár-
angur í sögu liðsins, hafi starfsumhverfið verið
erfitt. „Ég var ekki tilbúinn að vera í þessu áfram.
Samstarfið hefur verið erfitt þótt liðinu hafi gengið
vel. Eftir 12 ár við þjálfun í Þýskalandi vil ég vera
meira á eigin forsendum við þjálfun. Ef slíkt tæki-
færi gefst er ég tilbúinn að taka að mér eitt verkefni
hér ytra en annars komum við heim í baráttuna á Ís-
landi.“
Ekkert óvenjulegt
Fyrir okkur hér heima kom það nokkuð á óvart
hversu snemma á keppnistímabilinu forráðamenn
Erlangen tilkynntu að Aðalsteinn myndi hætti hjá
liðinu nærri miðju næsta ári. Spurður hvort hann
óttaðist ekki að þessu gætu fylgt lausatök eða aga-
leysi þegar leikmenn vissu með margra mánaða fyr-
irvara að þjálfarinn þeirra hætti í lok keppnis-
tímabils sagði Aðalsteinn:
„Það var ekki í mínum höndum að tilkynna um
starfslokin. Málið var í höndum stjórnenda félags-
ins. Þeim lá talsvert á að opinbera þetta og greina
frá hver tæki við. Ég skal viðurkenna að ég vonaðist
til að þetta yrði opinberað aðeins síðar en raun var
á. En á móti kom að ég fékk mörg símtöl í kjölfarið.
Svona er Þýskaland. Menn tilkynna stundum um
breytingar á þjálfarateymi eða leikmannahóp einu
til einu og hálfu ári áður en þau eiga sér stað. Hér er
skipulag á hlutunum.
Í þessu tilfelli hefur það líka legið fyrir um langt
skeið og af hálfu beggja aðila að ekki yrði framhald á
samstarfi að þessu keppnistímabili loknu. Þess
vegna voru engin sárindi af okkar hálfu þegar málið
var opinberað. Nú þurfum við allir að leggjast á eitt
um að ljúka núverandi keppnistímabili með sæmd og
helst jafna árangurinn á síðasta keppnistímabili þótt
það verði erfitt,“ sagði Aðalsteinn Eyjólfsson, hand-
knattleiksþjálfari hjá HC Erlangen í Þýskalandi.
Erfitt vinnuumhverfi hjá Erlangen
Hefur úr tilboðum um þjálfun að velja
Ljósmynd/HC Erlangen
Þýskaland Aðalsteinn Eyjólfsson hefur
þjálfað þýsk handboltalið í rúman ára-
tug og dvöl hans þar í landi gæti lengst.
Kristaltær staða
frá ársbyrjun
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Valsmenn renna frekar blint í sjóinn
með andstæðinga sína í 16-liða úr-
slitum Áskorendabikars karla í
handknattleik, en þeir drógust í gær
gegn Beykoz frá Tyrklandi. Liðin
eiga að mætast í Tyrklandi 8. eða 9.
febrúar og á Hlíðarenda viku síðar.
Ekki liggur fyrir hvort báðir leik-
irnir fara fram á heimavelli annars
liðsins, en slíkt er mjög algengt í
þessari keppni.
Beykoz hefur aðeins leikið sex
Evrópuleiki og tveir þeirra voru í
32ja liða úrslitum keppninnar. Þeir
fóru báðir fram á heimavelli liðsins í
Istanbúl um síðustu helgi þar sem
það vann Granitas-Karys frá Lithá-
en tvívegis, 34:29 á laugardag og
37:22 á sunnudag.
Einu Evrópuleikir Beykoz fram
að því voru í EHF-bikarnum haustið
2017. Þá lék liðið við Besa frá
Kósóvó í 1. umferð, tapaði 29:21 á
útivelli en sneri því við með stórsigri
á heimavelli, 35:23.
Í 2. umferð áttu Tyrkirnir enga
möguleika gegn Malmö frá Svíþjóð
og töpuðu 27:36 á heimavelli og
21:35 í Svíþjóð.
Tveir landsliðsmenn
Lið Beykoz, sem er frá samnefndu
hverfi í Istanbúl, er að mestu leyti
skipað tyrkneskum leikmönnum en
er með tvo erlenda hornamenn,
Yurii Babenkov frá Úkraínu og Ous-
sem Boudjenah sem er landsliðs-
maður frá Alsír.
Einn leikmanna Beykoz var í síð-
asta landsliðshópi Tyrkja, línu-
maðurinn Caglayan Öztürk, og hann
var jafnframt sá eini sem mætti ís-
lenska landsliðinu með því tyrk-
neska í undankeppni EM síðasta
vetur.
Beykoz er í þriðja sæti tyrknesku
úrvalsdeildarinnar, en þar hafa að-
eins verið leiknar fimm umferðir, og
liðið hefur unnið fjóra leikjanna. Í
fyrra endaði liðið í fimmta sæti en
það er aðeins á fjórða tímabili sínu í
efstu deild, þar sem það náði öðru
sæti í fyrstu tilraun árið 2017.
Tvö Íslendingalið eru í sextán liða
úrslitunum. Aron Dagur Pálsson og
samherjar hans í Alingsås frá Sví-
þjóð drógust gegn sigurvegurum
keppninnar á síðasta vetri, CSM
Búkarest frá Rúmeníu. Óskar Ólafs-
son og félagar hans í norska liðinu
Drammen mæta AEK Aþenu frá
Grikklandi.
Aðrar viðureignir í sextán liða úr-
slitunum eru: Ramhat Hashron
(Ísrael) – Victor (Rússlandi), Halden
(Noregi) – Neva (Rússlandi), Ma-
deira (Portúgal) – Karviná (Tékk-
landi), Dukla Prag (Tékklandi) –
Red Boys Differdange (Lúxemborg)
og BSV Bern (Sviss) – Potaissa
Turda (Rúmeníu).
Lítt þekktir mót-
herjar Valsara
Mæta Beykoz frá Istanbúl í febrúar
Morgunblaðið/Eggert
Tyrkland Ýmir Örn Gíslason og félagar í Val ættu að eiga góða möguleika á
að sigra Beykoz og komast í átta liða úrslit Áskorendabikarsins.