Morgunblaðið - 27.11.2019, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2019
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Mig langaði í þessari mynd að gera
Kjarval meira lifandi og fjalla um
persónuna Jóhannes Kjarval frekar
en verkin. Mig langaði að segja sögu
hans hér, því hann tengdist fólkinu í
sveitinni sterkum böndum,“ segir
Ásgeir Hvítaskáld, leikstjóri nýrrar
íslenskrar heimildarmyndar sem
nefnist Kjarval og Dyrfjöllin og
frumsýnd verður í Bíó Paradís ann-
að kvöld kl. 20 og í Sláturhúsinu á
Egilsstöðum á laugardag. Myndin,
sem er rétt tæpar 50 mínútur, verð-
ur í framhaldinu sýnd næstu vikuna í
Bíó Paradís.
„Hér á Austurlandi er úti í Hjalta-
staðaþinghá hvammur sem kallaður
er Kjarvalshvammur eftir Jóhannesi
Kjarval listmálara,“ segir Ásgeir
þegar hann er spurður um tilurð
myndarinnar. „Kjarval var alinn upp
á Borgarfirði eystri og fór oft þang-
að. Sumarið 1948 var Jóhannes
Kjarval á leið með leigubíl til Borg-
arfjarðar eystri að heimsækja æsku-
stöðvarnar sínar. Ferjan við Unaós
kom ekki og þá sneri hann við og
tjaldaði í fögrum hvammi stutt frá
Ketilsstöðum í Hjaltastaðaþinghá,“
segir Ásgeir og bendir á að Kjarval
hafi tekið slíku ástfóstri við þennan
fagra hvamm að hann heimsótti
hann á hverju sumri næstu 20 árin.
Listamaðurinn krakkagóður
„Það er gífurlega fallegt á þessum
stað. Selfljótið silast eins og ormur
út um allt, mikil fjallasýn og móar.
Fyrstu tvö sumrin bjó hann í
hvamminum í tjaldi, en fékk síðan
leyfi til að smíða lítið sumarhús og
bátaskýli sem stendur enn,“ segir
Ásgeir og tekur fram að sér hafi þótt
tilvalið að gera leikna heimildar-
mynd um listmálarann.
„Myndin samanstendur af leikn-
um atriðum þar sem Jón Hjartarson
bregður sér í hlutverk Kjarvals og
viðtölum við fólk í sveitinni sem
kynntist honum. Þeirra á meðal eru
systurnar Ljósbrá og Sigurlaug
Björnsdætur sem voru aðeins fimm
og sjö ára þegar þær kynntust Kjar-
val árið 1948. Hann var mjög
krakkagóður maður og það virðist
hafa skapast mjög náin tengsl milli
hans og fólksins í sveitinni sem mig
langaði að gera skil. Auk þess lang-
aði mig að reyna að skilja ástríðu
Kjarvals fyrir náttúrunni, en hann
virtist tengjast náttúrunni á ein-
hvern alveg einstakan hátt. Kjarval
var þannig maður að hann málaði
bæði að nóttu og degi og stoppaði þá
hvorki til að borða né sofa. Það eru
til sögur af honum þar sem hann
málaði þrjú málverk um miðja nótt í
roki og rigningu. Þetta umfjöllunar-
efni leitaði sterkt á mig,“ segir
Ásgeir og bendir á að ýmsar sögur
heyrist af Kjarval í viðtölum mynd-
arinnar auk þess sem sumar þeirra
séu útfærðar sem leikin atriði.
Aðspurður segir hann hafa legið
beint við að fá Jón Hjartarson til að
taka að sér hlutverk Kjarvals.
„Enda hefur hann útlitið með sér í
hlutverkið,“ segir Ásgeir kíminn og
rifjar upp að Jón sé ekki óvanur því
að bregða sér í hlutverk listamanna,
en hann lék Þórberg Þórðarson í
hinni rómuðu leiksýningu Ofvitanum
sem frumsýnd var í Iðnó 1979.
„Jón nær Kjarval einstaklega
vel.“ Í öðrum helstu hlutverkum eru
Árni Friðriksson, Máney Mjöll
Sverrisdóttir, Ísey Steingrímsdóttir,
Gyða Friðriksdóttir, Páll Júlíus
Kristinsson og Júlíus Pálsson. „Allt
eru þetta leikarar úr Leikfélagi
Fljótsdalshéraðs þar sem ég er for-
maður,“ segir Ásgeir og tekur fram
að gott hafi verið að geta leitað til
leikfélagsins um búninga og leik-
muni. „Á Minjasafni Austurlands er
Kjarvalsstofa sem geymir mikið
safn af persónulegum munum lista-
mannsins, sem barnabarn lista-
mannsins kom til safnsins á sínum
tíma,“ segir Ásgeir.
Málaði aldrei eftir pöntun – en
gerði þó eina undantekningu
Að sögn Ásgeirs hefur hann á ferli
sínum gert samtals ellefu myndir.
„Flestar þeirra eru heimildar-
myndir, eins og myndin um hrein-
dýrin hér á Austurlandi. Auk þess
hef ég gert eina leikna kvikmynd í
fullri lengd,“ segir Ásgeir sem bjó
lengi og starfaði um tíma í Dan-
mörku. „Kjarvalsmyndin hefur verið
hálft annað ár í vinnslu. Það er dýrt
og tímafrekt ferli að gera mynd,“
segir Ásgeir og tekur fram að styrk-
ur frá sveitarfélaginu fyrir austan
hafi hjálpað honum að gera
Kjarvalsmyndina að veruleika.
„Sveitarstjórnarmenn hér höfðu
áhuga á að koma Kjarvalshvamm-
inum meira í sviðsljósið,“ segir
Ásgeir og tekur fram að auðvelt sé
að finna Kjarvalshvamminn, enda sé
hann við þjóðveginn, Borgarfjarðar-
veg, mitt á milli Egilsstaða og
Borgarfjarðar eystri við Héraðsflóa.
„Það fer ekkert á milli mála þegar
maður keyrir framhjá honum. Þar
eru tvö lítil hvít hús og skilti. Það
kemur slatti af ferðafólki ár hvert að
skoða staðinn,“ segir Ásgeir.
Spurður um titil myndarinnar
verður Ásgeir skyndilega mjög
leyndardómsfullur. „Kjarval málaði
Dyrfjöllin af ákveðnu tilefni, en ég
vil ekki segja of mikið. Það var oft
verið að biðja Kjarval að mála, en
hann málaði ekki eftir pöntun. Hann
gerði þó undantekningu í tilfelli
Dyrfjallanna vegna atburða sem
gerðust þarna í sveitinni,“ segir
Ásgeir og tekur fram að fólk verði að
koma og sjá myndina til að fá alla
söguna.
Náttföt Leikarinn góðkunni Jón Hjartarson bregður sér í hlutverk Jóhannesar Kjarvals í heimildarmyndinni.
Hattasafn Leikstjórinn Ásgeir Hvítaskáld ásamt hluta af hattasafni list-
málarans Jóhannesar Kjarvals sem geymt er á Minjasafni Austurlands.
„Tengdist fólkinu sterkum böndum“
Kjarval og Dyrfjöllin nefnist ný heimildarmynd eftir Ásgeir Hvítaskáld sem frumsýnd verður í
Bíó Paradís annað kvöld og á Egilsstöðum á laugardag Langaði að gera Kjarval meira lifandi
Til að minnast þess að þrjátíu ár
eru liðin frá falli Berlínarmúrsins
og til að hnykkja á mikilvægi evr-
ópsks samstarfs þegar styttist í að
Bretar yfirgefi Evrópusambandið,
hafa nokkur stór evrópsk listasöfn
undir forystu stofnana í Rússlandi,
Þýskalandi og Frakklandi samein-
ast um að setja saman flennistóra
sýningu, sem ætlað er að vera „ein-
stök“, á myndlistarverkum fjöl-
margra kunnra samtímalistamanna
víðs vegar að úr álfunni.
Samkvæmt frétt The Art News-
paper er sýningunni ætlað að sýna
„einstaka sneið“ af evrópski mynd-
list, nú þegar senn verða 75 ár liðin
frá lokum síðari heimsstyrjald-
arinnar. Sýnd verða um 200 verk
eftir 81 listamann frá 35 löndum.
Heiti sýningarinnar á ensku er Di-
versity United og verður hún fyrst
opnuð í Tretjakov-safninu í Moskvu
í nóvember á næsta ári og ferðast
þaðan til Bonn og Parísar.
Meðal sýnenda eru Anselm
Kiefer, Gerhard Richter, Ilya og
Emilia Kabakov og Ólafur Elíasson,
sem sagður er fulltrúi Danmerkur
á sýningunni.
Mikil sýning á evrópskri samtímalist
Morgunblaðið/Ásdís
Úrvalsverk Ólafur Elíasson verður fulltrúi
danskra listamanna. 81 listamaður sýnir.
Vínaróperan er
eitt af þekktustu
og virtustu
óperuhúsunum.
En í 150 ára sögu
hússins hefur
ópera eftir konu
aldrei verið færð
þar á svið. Það
karlavígi er nú
að falla því í
næsta mánuði verður frumsýnd ný
ópera eftir tónskáldið Olgu Neu-
wirth. Um er að ræða úrvinnslu á
víðkunnri skáldsögu Virginiu
Woolf, Orlando, sem fjallar um kyn-
usla.
Í samtali við The Guardian
kveðst Neuwirth, sem er 51 árs
Ástrali, vilja hrista upp í þeirri
„gamaldags, fallegu og dásamlegu
stofnun“ sem Vínaróperan sé. Hún
hafi hrifist af Orlando strax þegar
hún las söguna, 15 ára gömul.
Óperan er í 19 þáttum og í aðal-
hlutverkinu er bandarískur kabar-
ettlistamaður, Justin Vivian Bond,
sem hefur skipt um kyn. Í öðrum
hlutverkum verða hins vegar
reyndir óperusöngvarar.
Fyrsta ópera konu í Vínaróperunni
Olga Neuwirth
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.