Morgunblaðið - 27.11.2019, Page 32
Tríó sem Eiríkur Orri Ólafsson
trompetleikari, Daníel Friðrik Böðv-
arsson gítarleikari og Matthías MD
Hemstock trommuleikari skipa
kemur fram á tónleikum Jazz-
klúbbsins Múlans á Björtuloftum í
Hörpu í kvöld, miðvikudag, kl. 21. Á
efnisskránni eru djassstandardar
eftir meðal annars Monk, Shorter,
Porter og Miles.
Monk og Miles hljóma
hjá Múlanum í kvöld
MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 331. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Ég var ekki tilbúinn að vera í þessu
áfram. Eftir 12 ár við þjálfun í
Þýskalandi vil ég vera meira á eigin
forsendum við þjálfun. Ef slíkt
tækifæri gefst er ég tilbúinn að
taka að mér eitt verkefni hér ytra
en annars komum við heim í barátt-
una á Íslandi,“ segir handknatt-
leiksþjálfarinn Aðalsteinn Eyjólfs-
son sem hættir hjá þýska liðinu
Erlangen í vor. »26
Vil vera meira á eigin
forsendum við þjálfun
ÍÞRÓTTIR MENNING
Ein besta knattspyrnukona sem
fram hefur komið á Íslandi, Margrét
Lára Viðarsdóttir, hefur ákveðið að
láta gott heita sem leikmaður. Mar-
grét er einungis 33 ára gömul en
hefur fengið
sinn skammt
af meiðslum,
sérstaklega á
síðari hluta
ferilsins. Hún
tjáði Morgun-
blaðinu að
fyrir sig væri
mikilvægt að
hætta á eigin for-
sendum eftir gott
keppnistímabil. »24
Vildi ljúka ferlinum
á góðum nótum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Jukkur eða júkkur geta orðið stórar en sjaldgæft
er að þær verði fjögurra metra háar og haldi blöð-
unum frá botni til topps eins og tilfellið er með
eina jukku Sigríðar Karenar Samúelsdóttur á
Akranesi.
Fyrir 20 árum tók Sigríður einn anga af jukku
heima hjá sér og fór með hann í vinnuna. Þar hefur
hún dafnað og vaxið í björtu rými og þó að oft hafi
verið kalsalegt utan við gluggann hefur henni liðið
þar vel, að sögn Sigríðar. „Kannski er það hita-
kerfið, ég veit það ekki, en þegar ég hafði verið
með hana hjá mér í fimm ár sagðist ég ætla að
hætta að vinna þegar hún væri komin í lofthæð og
ég stend við það, hætti um áramótin vegna aldurs.“
Jukkan hennar Sigríðar er að sumu leyti eins og
fagurgrænt jólatré. „Mér finnst þessi jukka sér-
staklega falleg vegna þess að hún hefur ekki fellt
neðstu blöðin eins og jukkur gera yfirleitt, þegar
fer að hausta,“ segir Sigríður. „Hún hefur nánast
haldið öllum sínum blöðum, sennilega vegna þess
að hún hefur fengið kaffisopa reglulega í gegnum
tíðina. Ég klára ekki alltaf úr kaffibollanum mínum
þannig að skvettan hefur farið á jukkuna. Það er
hennar næring.“
Blóm, grænmeti og ávextir
Blóma- og grænmetisrækt hefur fylgt Sigríði
alla tíð. „Ætli þetta sé ekki meðfætt,“ segir hún.
„Ég hef ætíð haft græna fingur og það kemur allt-
af upp af öllu sem ég set niður.“ Hún hefur ræktað
blóm af öllum stærðum og gerðum og átt margar
jukkur. „Engin þeirra hefur haldið blöðunum eins
og þessi og hvað þá orðið svona stór.“
Sigríður ræktar grænmeti og fleira utandyra á
sumrin og eftir að hún fékk gróðurhús hefur hún
ræktað þar matjurtir og séð fjölskyldunni fyrir til
dæmis jarðarberjum, gúrkum, tómötum, vínberj-
um og bláberjum. „Ég var að fá mér kirsuberjatré
og plómutré svo úrvalið eykst stöðugt,“ segir hún.
Sem fyrr segir hættir Sigríður að vinna um ára-
mótin og þess vegna fór hún með jukkuna heim um
helgina. „Ég fékk lánaðan „kálf“ til þess að koma
henni heilli heim,“ segir hún um flutninginn, sem
gekk slysalaust fyrir sig. „Ég stóð frammi fyrir því
að þurfa að skera hana niður og skilja hana eftir
eða taka hana með mér heim, því hún var byrjuð
að lyfta upp plötunum í loftinu í vinnunni.“
Tvöföld lofthæð er í stofunni hjá Sigríði og þegar
plantan verður búin að rétta sig af verður hún um
20 sentimetra frá loftinu. „Við höfum rætt það
hvort við þurfum ekki að setja kúptan glugga á
þakið svo jukkan geti haldið áfram að vaxa en við
sjáum til.“
Mikil næring í reglu-
legri kaffiskvettu
Jukka Sigríðar Karenar orðin fjögurra metra há
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Risaplanta Sigríður Karen Samúelsdóttir við jukkuna sem
stækkar og stækkar í stofunni heima á Akranesi.
Suðurlandsbraut 6, Rvk. | info@handafl.is
Sími 419 9000 | handafl.is
Við útvegum hæfa
starfskrafta
í flestar greinar
atvinnulífsins
VANTAR ÞIG
STARFSFÓLK?
Traust og fagleg
starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum
fyrirtækjum í áraraðir