Morgunblaðið - 29.11.2019, Síða 106

Morgunblaðið - 29.11.2019, Síða 106
106 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2019 Togarinn Egill Skallagrímsson var einn þeirra togara sem voru á Halamiðunum í óveðrinu. Hér er gripið niður í frá- sögn af baráttu áhafnarinnar við náttúruöflin. Síðari hluta nætur keyrði þó um þverbak. Það var eins og tröllah- endur köstuðu skipinu sem leiksoppi á milli sín. Taldi Snæbjörn skipstjóri, samkvæmt fyrri reynslu sinni, að lík- lega væri skipið komið í straumröst- ina sem myndast þar sem Golf- straumurinn og Pólstraumurinn mætast. Hafði hann séð að á þeim slóðum gátu myndast miklir straum- hryggir, jafnvel í blíðskaparveðri, þar sem straumamótin voru, en nokkuð auðvelt var að greina þau vegna lita- skipta sem þar voru í sjónum. Þegar Egill Skallagrímsson hafði verið skamma stund í þessum tröl- lasjó varð skipið fyrir stórkostlegu áfalli. Risavaxinn brotsjór hvolfdist yfir það stjórnborðsmegin, féll yfir þilfarið og skall á yfirbyggingunni. Kastaðist skipið algjörlega á bak- borðshliðina. Sjórinn braut allar rúð- ur í brúnni og flæddi stýrishúsið. Mennirnir sem voru í henni köst- uðust til en enginn þeirra varð þó fyr- ir alvarlegum meiðslum. Stóðu þeir á bakborðsþilinu en svo djúpt lá skipið að sjór vatnaði stöðugt inn í stýr- ishúsið. Fossaði sjór niður í klefa Snæbjörns skipstjóra sem átti erfitt með að komast upp á móti flaumnum. Þegar menn höfðu áttað sig á því hvað gerst hafði, skipaði skipstjórinn að leggja stýrinu hart í bak og binda það fast. Sjór fossaði einnig inn í káeturnar bakborðsmegin og færði neðstu koj- urnar nánast í kaf. Varð mönnum fyrst fyrir að huga að Vilhjálmi. Hafði hann reynt að losa sig og kom- ast úr kojunni en gat það ekki og minnstu munaði að hann drukknaði í kojunni. Gátu þeir Hilmar Norðfjörð og Gísli Kristjánsson háseti komið honum til bjargar á síðustu stundu, hjálpað honum út úr káetunni og á öruggari stað uppi í brúnni. Fljótlega kom í ljós að loftræstirör sem lá úr káetunni og upp á báta- þilfar hafði farið í sundur og streymdi sjór gegnum það niður í káetuna. Tóku menn teppi sem þeir kuðluðu saman og tókst að troða inn í rörið og minnka þannig lekann. Slíkt var heljarafl brotsins að það reif upp allar lifrartunnurnar sem höfðu verið vandlega festar á þil- farinu og báða björgunarbátana tók fyrir borð og kipptu þeir með sér bát- suglunum úr festingum sínum á báta- þilfarinu með beinu átaki, þannig að ekkert sá á festingunum. Matarkist- an sem boltuð var niður á báta- þilfarinu rifnaði laus og fór fyrir borð. Þeir sem voru í lúkarnum voru flestir sofnaðir þegar ósköpin dundu yfir og vöknuðu við vondan draum þegar ískaldur sjórinn fossaði þangað niður. Þegar brotsjórinn reið yfir hafði hann slitið upp stóra bobbinga sem geymdir voru undir hvalbaknum og einn þeirra hafði skollið á lúk- arshurðina og brotið hana upp. Hafn- aði bobbingurinn í koju eins skipverj- ans. Tókst mönnunum fljótlega að loka lúkarshurðinni og minnkaði þá sjórennslið þangað niður. Á skammri stundu urðu menn vissir um að skipið myndi ekki rétta sig af sjálfsdáðum og fóru þeir í hlífðarföt og bjuggust til þess að reyna að komast aftur á. Fóru þeir upp á lúkarskappann og tókst að komast til félaga sinna í yf- irbyggingunni. Var ferð þeirra þang- að mjög áhættusöm þar sem stöðugt braut á skipinu en svo giftusamlega tókst til að þeir sluppu allir inn í ganginn. Einn maður varð þó eftir í lúkarnum. Sá var lasinn og treysti sér ekki til þess að fylgja félögum sínum. Egil Skallagrímsson flatrak undan sjó og vindi og lá svo á hliðinni þannig að reykháfurinn var í sjó. Hér var þörf á snörum handtökum. Menn- irnir sem komu úr lúkarnum og flest- ir þeirra sem voru aftur á fóru rak- leiðis niður í vélarrúm og ætluðu að komast þaðan milli kolaboxanna fram í afturlestina. Mikill sjór var kominn í vélarrúmið og hafði hann hitnað svo mjög að varla var hægt að hafast þar við. Í ganginum var svo djúpur sjór að aðeins höfuð mannanna stóðu upp úr þegar þeir fetuðu sig þar áfram. Í ljós kom að lúga milli gangsins og lestarinnar hafði fest svo rækilega að ekki var hægt að hagga henni fyrr en sótt höfðu verið verkfæri í vél- arrúmið og hún brotin upp. Eftir að komist varð í lestina tóku menn rösklega til hendinni við að kasta fiski úr kös sem hrúgast hafði upp bakborðsmegin yfir í stjórn- borðssíðuna. Aðstaða til þess var erf- ið. Þeir stóðu í sjó og engin lýsing var í lestinni. Í vélarrúminu hafði allt úr lagi gengið við áfallið. Gólfplötur losnað og gengið til og eldur drepist undir öllum fýrum nema einum. Erlendur Helgason 1. vélstjóri stóð í sjóðandi heitum sjónum og reyndi hvað hann gat til þess að halda dampi á fýrnum sem enn var við lýði. Tókst honum að koma dælu í gang og eftir það minnk- aði sjórinn í vélarrúminu fljótlega. Gufuaflið minnkaði hins vegar fljótt og dælan varð óvirk. Þá komst einnig sjór í ljósavélina og hún drap á sér. Smátt og smátt bar elja mannanna við að kasta til fiski í lestinni árangur. Egill Skallagrímsson tók að rétta sig þótt enn væri mikil slagsíða á honum. Eftir að drapst á dælunni gripu menn til þess ráðs að ausa úr lest og vél- arrúmi með fötum. Valdimar Helga- son stóð neðstur og dýfði fötunum í austurinn en síðan voru þær hand- langaðar upp stigann og aftur gang- inn þar sem hellt var úr þeim. Þótt vinnan við að færa til í lestinni hefði verið erfið var ekki þreytu á nokkr- um manni að sjá. Án afláts gengu föt- urnar milli manna og þegar þess fóru að sjást merki að sjór minnkaði í skipinu léttist á mönnum brúnin og þeir fóru jafnvel að gera að gamni sínu. Þannig hafði Þórður Hall- dórsson aðstoðarmatsveinn orð á því að það væri kominn tími á að menn fengju sér kaffisopa. Þórður, sem seinna varð þjóðkunnur maður og jafnan kenndur við Dagverðará á Snæfellsnesi, var í einum af sínum fyrstu togaratúrum. Loks leið hin dimma og örlagaríka nótt og það tók að gráma af degi. Menn vonuðu að hið versta væri yfir- staðið. Veðurofsinn var þó hinn sami og áður og sjólag engu betra en um nóttina. Dagsbirtan gaf hins vegar meiri möguleika á að fylgjast með því sem fram fór, þótt enn væri ekkert hægt að gera til þess að bjarga skip- inu undan þeim háskasjó sem að því reið. Mikill skaði á landi Fregnir bárust líka fljótlega um hörmulegar slysfarir á landi. Á bæn- um Flesjustöðum í Kolbeinsstaða- hreppi á Snæfellsnesi urðu tvö börn úti. Magnús Sveinsson sem átti heima á bænum Valshamri á Mýrum lýsir óveðrinu á þessu svæði. Hann segir að þegar fólk fór á fætur á sunnudagsmorgninum hafi veður verið sæmilegt en svartur bakki verið í norðvestri. Nokkru eftir hádegi hafi skollið á svo mikið fárviðri að ekki hafi verið fært út úr húsi. Þetta ofsa- veður hafi staðið allt fram til morg- uns daginn eftir. Veðrið var svo óskaplegt að beyg setti að fólki og grunur um að veðrið hefði valdið tjóni og slysum. Á Flesjustöðum bjuggu á þessum tíma þau Bergur Teitsson og Kristín Sigurðardóttir með tveimur börnum sínum, Jóhannesi sem var ellefu ára og Sigríði sem var sjö ára. Um morg- uninn var sæmilegt veður og var þá Jóhannes sendur til að líta eftir hest- um sem voru í haga ekki langt frá bænum. Mun Sigríður síðan hafa hlaupið á eftir honum. Líklega hafa börnin verið að koma eða verið komin til hestanna er fárviðrið, ofsarok og svo dimm hríð að vart sást út úr aug- um, skall á sem hendi væri veifað. Brá Bergur við og fór að leita að börnunum. Hann fann þau fljótlega en varð áttavilltur og hraktist allan daginn með börnin í veðurofsanum og fann hvergi skjól þar sem hægt var að láta fyrirberast. Um nóttina örmögnuðust börnin. Reyndi Bergur að hlúa að þeim og beið hjá þeim uns hann taldi að þau væru bæði látin. Hann hélt síðan áfram að leita bæja og seint um nóttina komst hann að bænum Krossholti og gat gert vart við sig. Þá var hann meðvitundarlítill og aðframkominn. Var honum veitt aðhlynning og gat þá sagt frá ferðum sínum og barnanna. Veður var þá tekið að ganga niður og hófst þegar leit að börnunum og fundust lík þeirra eftir nokkra leit. Allan tímann var Kristín ein heima á Flesjustöðum og vissi ekkert um afdrif Bergs og barnanna fyrr en um sólarhring eftir að þau fóru að heiman. Eftir þennan voðaatburð fluttu Kristín og Bergur frá Flesjustöðum og bjuggu lengi að Laufási í Borgarhreppi. Til marks um veðurofsann á svæð- inu var að þegar hann skall á var hóp- ur manna á ferð á þjóðveginum með 14 lausa hesta sem ekki var stætt. Slengdi veðrið hestunum af fótum hvað eftir annað og komust menn- irnir við illan leik til bæja þar sem þeir leituðu skjóls. Í Húnavatnssýslu varð tvennt úti í bylnum. Rósa Helgadóttir húsfreyja á bænum Skyttudal var ein heima. Hafði maður hennar brugðið sér til næsta bæjar. Þegar óveðrið skall á mun Rósa hafa ætlað að freista þess að bjarga kindum sem voru skammt frá bænum í hús. Hafði hún sig ekki í hús aftur og fannst örend skammt frá bænum. Rósa var 47 ára, ættuð úr Eyjafirði. Vermundur Guðmundsson bóndi í Kollugerði við Skagaströnd varð úti á leið sinni að bænum Hnjúkum. Þegar hans var saknað hófst leit og fannst lík hans í svokölluðum Hnjúkaflóa, rétt við túngarð bæjarins. Þorsteinn var 65 ára. Fimmti maðurinn sem varð úti hét Halldór Þorsteinn Grant frá Dalvík. Hann var staddur í Svarfaðardal og var þar að leita kinda. Var lífsmark með honum er hann fannst en ekki tókst að koma honum til meðvitundar og lést hann skömmu eftir að komið var með hann til bæja. Halldór Þor- steinn var 18 ára. Mannskæðar hamfarir til sjávar og sveita Í febrúar árið 1925 gekk mikið óveður yfir Ísland – það mesta frá upphafi mælinga. Fimm manns urðu úti í fárviðrinu og alls drukknuðu 74 sjó- menn á Halamiðum úti fyrir Vestfjörðum. Í bókinni Halaveðrinu mikla rekur Steinar J. Lúðvíksson hamfarirnar á láði og á legi. Togarinn Egill Skallagrímsson. Minnstu munaði að hann færi niður í Hala- veðrinu. Þrotlaus barátta skipverjanna bjargaði skipi og áhöfn. Ísinn hlóðst á reiða og stög sem urðu gild eins og staurar. Þetta hafði áhrif á stöðugleikann og gerði skipin enn varnarlausari fyrir brotsjó. Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 Black Friday tilboð aðeins í dag NÝR BÍLL Black friday tilboð: 3.290.000 kr. -50 0.0 00 að ein s í da g Rað.nr. 112763 Rað.nr. 445970 Nánari upplýsingar á benni.is Verð áður: 3.790.000 kr. • 1.4L bensín vél - túrbó • Sjálfskiptur • 150 hestöfl • R4.0 Intellilink margmiðlunarkerfi m/7” skjá • Bakkmyndavél • Fjarlægðarskynjari að framan og aftan • Leðurklætt, upphitað, aðgerðastýri • LED dagljós • Aftengjanlegur loftpúði í farþegasæti • Aksturstölva • Armpúði á framsæti • ESP stöðugleikastýri og ABS hemlakerfi • 16” álfelgur • Fjarstýrð samlæsing • Geymsluhólf milli framsæta • Glasahaldari fram í • Háls-, höfuð- og bakhnykkisvörn í framsætum • Hiti í framsætum • Hiti í hliðarspeglum • Hraðastillir (cruise control) • Hraðnæmt stýri • HSA kerfi - brekkuhjálp • Hæðarstillanlegt stýri með aðdrætti • Hæðarstilling á ökumannssæti • Höfuðpúðar á öllum sætum • ISOFIX barnstólsfestingar í aftursætum • Loftþrýstingskynjari fyrir hjólbarða • Miðstöð með loftkælingu • Rafdrifnar rúður að framan og aftan • Rafstýrðir, upphitaðir hliðarspeglar • Rúðuþurrka á afturrúðu • Samlitaðir hurðahúnar, speglar og stuðarar • Spegill í sólskyggni farþega • Start/stopp kerfi • Tengi fyrir Ipod og MP3 spilara / USB tengi • Varadekk • Vindskeið að aftan • Öryggispúðar í hliðum framsæta • Öryggispúðar í stýri og mælaborði • Öryggispúðatjöld í hliðum • 40/60 niðurfellanlegt sæti Sjá frekari upplýsingar um búnað á benni.is Sýningabíll á frábæru verði – ókeyrður OPEL ASTRA Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.