Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2019, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2019, Síða 14
E lín tekur á móti blaðamanni á heim- ili sínu í Hafnarfirði einn svalan haustdag. Þar er blindrahundur- inn dyggi, Lubbi, líka mættur til að heilsa gestinum. Elín býður í bæinn og nær í kaffi en heima er einnig litli þriggja ára sonurinn, Tinni Hrafn, sem komst ekki í leikskólann þann daginn vegna kvefs. Fljótlega heilsar heimiliskötturinn upp á gest- inn en þar er mætt hin átján ára gamla svarta læða Fóa. Barn, hundur og köttur keppast um athyglina og er þar kisa ágengust. Elín endar á að vísa hundi út í horn, ketti út að leika og barnið fær að horfa á teiknimynd svo friður gefst til þess að spjalla. Yfir nokkrum kaffibollum segir Elín blaða- manni frá lífi sínu, en hún fæddist heyrnar- skert. Unglingsárin einkenndust af einelti og á erfiðum árum milli tvítugs og þrítugs þjáðist hún af áfallastreituröskun í kjölfar jarð- skjálfta, þunglyndi og kvíða. Loks þegar fór að birta til í lífinu á fertugsaldri fór sjónin að versna og greindist hún um fertugt með ólæknandi hrörnunarsjúkdóminn Usher- heilkenni, sem veldur bæði heyrnarleysi og blindu. Sjúkdómsgreiningin var skellur sem erfitt var að sætta sig við en Elín er ekki af baki dottin. Eftir að mesta sorgin og reiðin dvínaði ákvað hún að taka einn dag í einu og njóta hvers dags með sonum sínum. Grimmt einelti Elín er fædd í desember 1976 og er því að verða 43 ára. Hún segir foreldra sína strax hafa grunað að heyrnin væri ekki í lagi en það var ekki fyrr en um fjögurra ára aldur að stað- fest væri að Elín væri heyrnarskert. „Ég fékk þá heyrnartæki og mamma og pabbi sögðu að það hefði opnast allt annar heimur fyrir mér. Ég hafði aldrei áður heyrt fuglasöng eða hversdagsleg hljóð. Í mörg ár var ég samt ekki sátt við tækin og eyðilagði meira að segja nokkur viljandi,“ segir hún og hlær. Elín ólst upp í Árósum í Danmörku til tíu ára aldurs og segist enn smá Dani í sér. Fljót- lega eftir heimkomuna skildu foreldrar hennar og bjó hún í fyrstu hjá móður sinni í Breiðholti en flutti þaðan í Vesturbæ. „Í rauninni kláraði ég ekki tíunda bekk, svo að segja. Ég byrjaði í Seljaskóla og talaði íslensku með rosalegum dönskum hreim, en danskan var óvinsæl hjá krökkunum og ég var þessi sem var með tíu í dönsku. Svo heyrði ég illa og var kannski að svara vitlaust, en ég hef alltaf sett upp þá grímu að ég heyrði. Þannig að oft virtist ég hrokafull eða dónaleg án þess að ætla mér það því ég var kannski að hunsa fólk. Ég var kynnt strax inn í bekkinn sem heyrnarskerta stelpan frá Danmörku og þannig sett strax í sviðs- ljósið. Ég lenti í mjög miklu einelti þar og þurfti að skipta um skóla,“ segir hún. „Þetta var mjög grimmt. Það voru aðallega strákarnir, og ekki bara úr mínum bekk heldur öllum árganginum. Ég var elt heim úr skól- anum, fékk í mig snjóbolta með grjóti og var kaffærð. Ég man eftir einu lýsandi dæmi sem gerðist í smíðatíma. Þegar kennarinn sá ekki til var ég króuð út í horn og grýtt með verk- færum.“ Fór í sjö menntaskóla „Ég mætti illa í skólann en eyddi tímanum á bókasöfnum. Svo þegar ég flutti í Vesturbæinn bjó ég hinum megin við götuna á Þjóðar- bókhlöðunni. Ég held ég hafi lesið hálfa bók- hlöðuna, en þarna í níunda bekk var ég búin að gefast upp á skólakerfinu,“ segir Elín og segist oft hafa átt erfitt með að fylgjast með í tímum sökum heyrnarskerðingarinnar. „Það var stundum sagt við mig að ég væri uppreisnargjörn, ætti bara að hlusta betur og taka betur eftir,“ segir Elín og segir hún að oft hafi kennarinn skrifað á töfluna með bakið í bekkinn og hún ekkert heyrt í honum. „Svo var ég oft dauðþreytt af því að vera að rembast við það að heyra. Ég var húð- skömmuð fyrir að vera stundum að dag- dreyma og glápa út um gluggann.“ Þegar komið var að tíunda bekk var Elín komin í Hagaskóla og var þar sett í tossabekk. „Ég stóð mig vel í tungumálum og sögu en náði sumum fögum alls ekki. Þannig að ég kláraði ekki tíunda bekk því ég náði ekki stærðfræði til dæmis. En ég var alltaf ákveðin í því að fara í Háskóla Íslands,“ segir Elín, sem flakkaði á milli menntaskóla og segist hafa loks getað lært stærðfræði í Reykholti. „Ég fór í sjö menntaskóla,“ segir hún og hlær. Það áttu eftir að líða nokkur ár í viðbót en Elín kláraði stúdentsprófið árið 2005 og fór í beinu framhaldi í háskólann. En árin á undan voru ekki auðveld. Hún hafði farið í sumar- vinnu á Sólheimum í Grímsnesi sumarið 1999. Sumarvinnan varð að vetrarvinnu en Elín eignaðist þar kærasta og endaði á að búa þar í ár. Sumarið 2000 reið Suðurlandsskjálftinn yf- ir. „Líf mitt breyttist þarna í Suðurlands- skjálftanum. Við fengum hann beint í æð. Eftir þá reynslu má segja að ég hafi eytt þrítugs- aldrinum í að kljást við þunglyndi, kvíða og áfallastreitu.“ Hélt við myndum deyja Fyrri skjálftinn var 17. júní árið 2000. „Ég fann vissulega vel fyrir honum því ég lokaðist inni í búðinni á Sólheimum og það lék allt á reiðiskjálfi. En svo kom enn stærri skjálfti 21. júní um nóttina. Þá vaknaði ég um hálf eitt, eitt og ég hélt að við værum að deyja. Húsið færðist til og var eins og eldspýtustokk- ur sem verið væri að hrista. Öll ráð sem maður hafði heyrt, eins og að fara í dyragátt, fóru út um gluggann; maður fer ekki fet. Ég bara ríg- hélt mér svo ég myndi ekki kastast á milli veggja. Rúmið var á fleygiferð. Það eina sem ég gat gert var að öskra. Ég hugsaði stundum eftir á að ef ég hefði dáið þarna hefði það síð- asta sem ég gerði í þessu lífi verið að öskra af öllum lífs og sálar kröftum.“ Elín og kærastinn unnu þarna sem stuðningsfulltrúar. „Við vorum á vakt og hlut- verk okkar var að hugsa um 22 einstaklinga sem bjuggu þarna í raðhúsum. Þannig að um leið og skjálftinn var búinn hugsaði ég, ókei, ég er á lífi! Ég hljóp út til að athuga með fólkið og sá að það var stór sprunga í jörðinni beint fyrir framan húsið. Við hlupum af stað og skiptum með okkur húsum. Sums staðar var ekki hægt að opna dyr og maður hugsaði hvort það væri einhver á lífi því það var allt gjörsamlega í rúst. Við náðum öllum íbúunum út og söfn- uðust þeir saman við ljósastaur, allir á náttföt- unum eða í sloppum. Í kringum okkur mátti sjá gufustróka upp úr hverum sem höfðu farið af stað og klóaklykt lagði upp úr rotþrónum. Þarna stóðum við öll skelfingu lostin. Ég sá svo yfirmann minn koma hlaupandi og hugsaði að nú kæmi hjálpin. En hún hafði fengið yfir sig hillu og var sjálf í losti. Þannig að ég þurfti að keyra þetta áfram. Það var kaótískt ástand í þrjá sólarhringa og ég svaf ekkert. Staðurinn var bara á haus,“ segir hún. „Á hópfundi þarna eftir þrjá daga byrjaði ég að skjálfa og nötra. Ég hafði verið svo upp- tekin við það að fá allt fólkið mitt til að fá áfallahjálp en hafði sjálf ekkert gefið mér tíma í það. Ég var á hlaupum. En ég bara hrundi þarna og var flutt á bráðamóttöku í Reykjavík og var þaðan send réttilega á bráðamóttöku geðdeildar. Það var í fyrsta skipti sem ég kom þar inn og gekk út þaðan með haug af lyfjum sem ég vissi ekkert við hvað ég ætti að gera. Ég tók ekkert þessi lyf.“ Eftir skjálftann mikla segist Elín hafa sofið með skóna tilbúna við rúmgaflinn. „Ég var skíthrædd við skjálfta og var orðin rosalega hrædd við allt. Ég var með martraðir allar nætur; mig dreymdi að þakið væri að hrynja ofan á okkur,“ segir Elín, sem leitaði þá á geðdeild þar sem hún var greind með alvar- legt þunglyndi, kvíða og áfallastreituröskun. Næstu árin einkenndust af ítrekuðum inn- lögnum á geðdeild. „Ég var bara týnd.“ Korterið sem skipti öllu Á geðdeildinni varð Elín fyrir miklu áfalli sem hún segir hafa slegið sig niður á ný. „Ég var á endurhæfingardeild á Laugarásvegi og þar vorum við nokkrir ungir einstaklingar sem höfðu verið á geðdeild. Eitt kvöldið fór ég inn á klósett og kom þar að stelpu sem hafði hengt sig. Ég man hvert smáatriði. Ég var með starfsmanni í því að ná henni niður og tala við lögreglu. Það var lengi reynt að lífga hana við en hún náði aldrei meðvitund og það var slökkt á öndunarvélinni viku síðar. Hún var nítján ára,“ segir Elín og segist hafa haft sam- viskubit í mörg ár á eftir. „Ég hafði verið á leiðinni á baðið en ég man að ég sá hana ganga framhjá mér og inn á bað og hugsaði, jæja, ég fer bara á eftir, það er korter eftir af þættinum. Ég var í mörg ár að berja á sjálfri mér. Þetta korter. Þetta korter hefði getað bjargað lífi hennar,“ segir Elín. Í kjölfar áfallsins var hún flutt á bráðageðdeild. „Á þessum tíma bjó ég hvergi. Enginn treysti sér til að taka við mér þannig að ég var á götunni. Ég upplifði það að mér hefði verið refsað fyrir að koma að henni.“ Bílslys og tvö börn Næstu ár var Elín að vinna á ýmsum sam- býlum og fékk loks íbúð. Þá kláraði hún stúd- entsprófið og fór í Háskólann þar sem hún kláraði tvö BA-próf, í félagsráðgjöf og í þroskaþjálfafræðum. Hún segist oft hafa verið bæði í skóla og í hundrað prósent vinnu, jafn- vel meira. Mitt í náminu fæddist frumburður- inn Snorri Freyr, sem er í dag tíu ára. „Hann svaf ekkert, var með ungbarna- kveisu. Ég svaf ekki í þrjú ár, hann vaknaði svona 10-20 sinnum á nóttu. Við barnsfaðirinn vorum ekki saman og fyrstu árin var ég mikið ein með hann, en í dag er gott samband á milli feðganna,“ segir hún. „Fyrsta starfið mitt eftir háskólapróf var á endurhæfingarstöðinni í Bæjarhrauni þar sem ég vann með fólk sem notar óhefðbundnar tjá- skiptaleiðir. Ég var í tjáskiptaþjálfun með þeim og var komin í draumastarfið. Mér fannst þetta alveg geggjað og gat nú séð fyrir mér og syni mínum. En einum og hálfum mánuði eftir að ég byrjaði lenti ég í bílslysi. Það var í des- ember-jólaösinni og það keyrði sendibíll aftan á bílinn minn, sem gjöreyðilagðist. Ég var næstu tvö, þrjú árin að kljást við eftirköstin. Ég fékk mjög slæmt högg aftan á hnakkann og ég kastaði stundum upp af sársauka. Þetta var rosalegt tímabil. Ég þurfti að minnka við mig vinnu og endaði á að þurfa að hætta því fólkið þarna þurfti mikla líkamlega aðstoð og ég gat ekki veitt hana. Ég var alveg virkilega fúl. Komin með háskólaprófið, komin með besta starfið, og svo bamm! Ég fékk svo annað starf hjá Reykjavíkurborg en þetta var drulluerfitt tímabil, að vera með þennan skrokk og vera ein með strákinn sem á sama tíma greindist á einhverfurófi og með ADHD,“ segir hún. „Svo fæddist Tinni Hrafn korter í fertugt en ég átti hann með sambýlismanni mínum,“ segir Elín en þau slitu samvistir í sumar. „Í dag er ég að vinna sem þroskaþjálfi og ráðgjafi hjá NPA-miðstöðinni. Mér fannst það smá kaldhæðni fyrst þegar ég fékk sjúkdóms- greininguna að vera búin að vera að vinna við það í mörg ár að finna leiðir fyrir fólk að verða sjálfstæðari,“ segir Elín. Lögblind um fertugt Áríð 2016 fór Elín að finna fyrir furðulegum einkennum. „Ég fór að sjá öðruvísi; var mjög birtufælin og var með miklar sjóntruflanir, höfuðverki og eyrnasuð. Ég tók líka eftir að ég var farin að missa hliðarsjón. Þegar ég var að labba á fjölförnum stöðum var ég alltaf að rek- ast í fólk og var farin að hugsa hvað fólk væri dónalegt. En svo áttaði ég mig á því að kannski var það bara ég sem var að rekast í það,“ segir hún og brosir. Elín lagðist í rannsóknir á netinu og í kjölfarið leitaði hún til lækna þar sem hún bað um sér- stakar rannsóknir. Hún var sett í alls konar próf og fékk þá að vita að hún væri með RP- sjúkdóminn. „Ég fór að lesa mér til um það og það passaði; ég var með rörsjón og jaðarsjónin var að minnka. Læknirinn var almennt jákvæð- ur og sagði þetta hægara í mér en í mörgum öðr- um. Ég fór að hitta fólk sem var í sömu stöðu og hafði samband við formann og framkvæmda- stjóra blindrafélagsins sem sögðu mér að ég hlyti að vera með Usher-heilkenni, þar sem ég væri líka með heyrnarskerðingu. Ég hafði líka spurt lækninn minn og hann sagði að ef ég væri með Usher væri ég með vægt tilvik. Ég fór svo í genagreiningu og það kom þá í ljós að ég er með eitt afbrigði þessa erfðasjúkdóms. Ég þurfti að fara ansi víða til að fá greiningu,“ segir hún. „Í mínu tilfelli af Usher, týpu tvö, hefur sjúkdómurinn ekki áhrif á jafnvægi. En því fylgir náttblinda, snjóblinda, sjóntruflanir og heyrnartruflanir. Ég hafði í raun verið lengi með þessi einkenni og greinist því mjög seint. Það er bara dagurinn í dag Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir er með Usher-heilkenni, sem er hrörnunarsjúkdómur sem veldur heyrnarleysi og blindu. Hún er einstæð móðir tveggja drengja sem báðir eru á einhverfurófi. Þrátt fyrir áföll í lífinu hefur Elín ákveðið að taka örlögum sínum með æðruleysi og segist lifa lífinu einn dag í einu. Heilsuræktin Hress heldur sína árlegu góðgerðarleika um helgina og rennur allur ágóði til Elínar og drengjanna. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.11. 2019 Í dag, laugardaginn 2. nóvember eru haldnir hinir árlegu Hressleikar í heilsuræktinni Hress í Hafnarfirði, en leikarnir eru haldnir árlega til styrktar einni hafnfirskri fjölskyldu sem þarf á hjálp að halda. Allur ágóði af leikunum rennur til Elínar og barna hennar, en hver keppandi borgar 3.000 krónur og einnig eru seldir happdrættismiðar. Fyrir þá sem ekki komast á Hressleik- ana en vilja styrkja fjölskylduna er búið að stofna reikning: 0135-05-071304. Kt. 540497-2149. Hressleikar 2019 ’Ég þurfti að ákveða hvort égætlaði að gefast upp eðabretta upp ermar og haldaáfram. Það fór of mikil orka í sjálfsvorkunn og ég mátti ekki við því að nota hana í reiði og sorg. Ég reyni að taka einn dag í einu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.