Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2019, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.11.2019, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.11. 2019 LESBÓK SKILLBIKE er nýtt byltingarkenntæfingarhjól frá Technogym, búið gírskiptingum eins og í venjulegu götuhjóli sem byggt er á nýrri tækni Multidrive™. SKILLBIKE er hannað til líkja semmest eftir raun- verulegumhjólreiðum en hjólið hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir hönnun og nýsköpun. Skoðaðu hjólið í sýningarsal okkar, hjá Holmris Síðumúla 35 NÝTT BYLTINGARKENNT ÆFINGAHJÓL Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is MÁLMUR Bassafanturinn David Ellefson úr Megadeth situr ekki auðum höndum enda þótt band hans sé í leyfi um þessar mundir vegna veikinda söngvarans og gítar- leikarans, Dave Mustaines. Ellefson gaf í sumar út ann- að bindi endurminninga sinna, More Life With Deth, og nú er fyrsta sólóskífa kappans komin út, Sleeping Gi- ants. Hann fylgir henni eftir með tónleikaferð sem hefst í Wolverhampton á Englandi í dag. Gestur á þeim tón- leikum verður KK Downing, fyrrverandi gítarleikari Judas Priest. Spurður af veftímaritinu Photo Groupie hvort Mega Priest-plata sé í burðarliðnum kveðst Ell- efson njóta samstarfsins en best sé þó að taka eitt skref í einu. Þá lofar hann þriðja bindi endurminninganna, My Life After Deth, sem koma muni út að honum gengnum! Annir hjá Ellefson David Ellefson er maður fjölhæfur. SJÓNVARP Breska leikkonan Ruth Wilson hefur farið mikinn á sjónvarpsskjánum undanfarin ár og misseri í þáttum á borð við Luther, The Affair og nú síðast Mrs. Wilson, þar sem hún lék ömmu sína. Ekkert lát er á önnum hjá Wilson en í kvöld frumsýnir breska ríkissjónvarpið, BBC, glænýja átta þátta seríu eftir verðlaunabókum Philips Pullmans, His Dark Materials. Þar er hermt af ungri konu af öðrum heimi sem kynnist dularfullri konu (sem Wilson leikur) í Oxford og kemst í framhaldinu á snoðir um rán á börnum í Lundúnum. Af öðrum leikendum má nefna Dafne Keen og James McAvoy. Enn birtist Ruth Wilson á skjánum Wilson í hlutverki sínu í His Dark Materials. BBC Morrissey í Laugardalshöll árið 2006. Hjólar í dagblað PIRRINGUR Íslandsvinurinn Morrissey tróð upp í Los Angeles á dögunum í bol með áletruninni „Fuck the Guardian“ eða „Til fjandans með the Guardian“ en söngvarinn hefur verið í stríði við breska blaðið undanfarin misseri og meðal annars sagt það vera „rödd alls þess sem amar að í Bret- landi samtímans“. The Guardian greinir frá þessu. Morrissey er opinber stuðningsmaður flokksins For Britain, sem er einna lengst til hægri í breskum stjórnmálum nú um stundir, og er sannfærður um að the Guardian hafi til langs tíma dreift um sig hatursáróðri. „Kaupið ekki þennan haturssnepil,“ sagði hann á heimasíðu sinni í maí. Hver kannast ekki við að hafahent eldgamalli kvikmynd ítækið, sett hana undir geislann eða sótt hana stafrænt til að létta lundina á grámyglulegu síð- kvöldi? Mynd eins og Casablanca, The Godfather, Jaws, Grease, ET, Back to the Future, Rain Man, Pulp Fiction eða Með allt á hreinu. Hvað veldur þessari tilhneigingu þegar til er miklu meira en nóg af nýju efni sem við höfum aldrei séð og mun aldrei endast aldur til að sjá? Breska ríkisútvarpið, BBC, velti þessu fyrir sér í forvitnilegri grein á vefsíðu sinni á dögunum. Máli sínu til stuðnings bendir blaðamaðurinn, Clare Thorp, á að Netflix hafi á síðasta ári hlaðið upp 8.500 mínútum af kvikmyndum, sem efnisveitan hefur sjálf framleitt, en eigi að síður hafi það ekki verið fyrr en kunngjört var að Dirty Dancing væri orðin aðgengileg að Twitter fór á hliðina. Segir sína sögu. BBC spurði meðlimi í kvikmynda- klúbbi sínum hvað ylli því að þeir horfðu aftur og aftur á sömu mynd- ina og voru svörin af ýmsu tagi. Sumir sögðu að myndirnar væru einfaldlega það góðar að þær kölluðu á reglulegt áhorf; fólk væri alltaf að uppgötva eitthvað nýtt. Aðrir svör- uðu því til að þeir tengdu svo sterkt við söguna en enn aðrir að þeir þekktu myndirnar svo vel að þeir gætu byrjað hvar sem er á þeim. Þá nefndi fólk að sumar myndir væru einfaldlega þeirrar gerðar að auðvelt væri að týna sér í þeim. Gleyma stað og stund. Jafnvel fengust svör þess efnis að klassísk kvikmynd jafnaðist á við „huggunarmáltíð“ – auk þess að vera líklega heldur hollari. Sjálfri þykir Thorp ekkert óeðli- legt að horfa fjórum eða fimm sinn- um á kvikmynd, sérstaklega séu þær krefjandi. Eftir það ætti fólk á hinn bóginn að vera búið að ná utan um myndina og hún hættir að koma á óvart. Hvers vegna höldum við samt áfram að horfa? spyr hún. Ein skýringin gæti verið sú að það að horfa aftur og aftur á sömu myndina, sem við þekkjum út í gegn, krefjist minni andlegrar orku. Flestir horfa á kvikmyndir síðdegis eða á kvöldin og þá er sjaldnast eins mikið á tankinum og fyrr um daginn og mögulega búið að vera í mörgu að snúast. Þess vegna getur verið fínt að slaka á fyrir framan skjáinn og vita við hverju er að búast; heilabúið þarf m.ö.o. ekki að fara á yfirsnún- ing vegna flókins söguþráðar eða ráðgátu sem á borð er borin. Ef við erum illa fyrirkölluð getur verið mun öruggara að leita á náðir kvikmyndar sem við þekkjum vel og mun örugglega ekki valda okkur vonbrigðum. Þess utan hafa sumar kvikmyndir auðvitað gamla góða „fílgúdd-faktorinn“ og geta fyrir vikið auðveldlega hresst okkur við ef á þarf að halda. Sumar myndir vinna á Heldur má ekki útiloka að kvikmynd vinni á eftir því sem við horfum oftar á hana, eins og gjarnan tíðkast með góð lög og tónverk. Thorp nefnir sem dæmi mann sem fannst jólamyndin The Holiday með leiðinlegri myndum sem hann hafði á ævinni séð þegar hann sá hana fyrst en nú líður aðvent- an ekki án þess að hann horfi á hana. Það leiðir okkur að árstíðamynd- um; jólamyndum, sumarmyndum og svo framvegis. Myndum sem við elskum en gætum ekki hugsað okk- ur að horfa á nema undir vissum kringumstæðum. Þannig er óvíst að White Christmas myndi hitta í mark á Jónsmessunni og Cat on a Hot Tin Roof milli jóla og nýárs. Engin leið er þó að útiloka þetta. Sumir þrá sumarið aldrei eins heitt og um jólin. Jólamyndir eiga auðvelt með að verða hluti af hefðum; þannig þekkj- um við öll fólk sem getur ekki hringt inn jólin án þess að hafa horft á Love, Actually eða Christmas Vaca- Humphrey Bogart og Ingrid Bergman í einni frægustu og vinsælustu kvikmynd sögunnar, Casablanca. Einu sinni var ... eða oftar Hvað gerir það að verkum, á tímum þegar við getum auðveldlega horft á nýja kvikmynd á hverjum einasta degi og þess vegna margar á dag, að við leitum alltaf annað veifið í eldgamalt efni? Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Uma Thurman sem hin dulúðuga Mia Wallace í Pulp Fiction.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.