Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2019, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2019
TRATTO model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 83 Verð 395.000,-
L 215 cm Leður ct. 25 Verð 585.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
STAN model 3035
L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 359.000,-
L 206cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-
Liverpool hefur rokið upp úr rásblokkunum á þessari
leiktíð í ensku knattspyrnunni og er með átta stiga for-
skot á næstu lið að tólf leikjum leiknum. Auðvitað er
langt í land en margir sparkskýrendur, innanlands og ut-
an, eru eigi að síður þegar farnir að spá liðinu meist-
aratitlinum; þeim fyrsta í slétta þrjá áratugi.
Ekki nóg með það. Menn velta einnig fyrir sér hvort
þeir Kloppungar séu þess umkomnir að slá stigametið í
Englandi, 100 stig, sem Manchester City setti veturinn
2017-18. Það eru 88% stigaheimtur og bæði City, 98 stig,
og Liverpool, 97 stig, hjuggu nærri því á síðustu leiktíð.
Það er í raun besti árangur Liverpool í sögunni, 85%
stigaheimtur, sem er mergjuð staðreynd í ljósi þess að
liðið vann ekki deildina. En síðasta leiktíð var að sönnu
afbrigðileg á Englandi.
Raunar þarf að fara aftur til fyrstu leiktíðarinnar á
Englandi, 1888-89, til að finna lið sem fékk yfir 90%
stiga. Preston North End hlaut þá 40 stig af 44 mögu-
legum. Þá voru leikirnir aðeins 22. Preston fór líka tap-
laust gegnum mótið, afrek sem aðeins Arsenal hefur
leikið eftir, veturinn 2003-04. Liverpool er ennþá án ósig-
urs í vetur og getur fyrir vikið slegist í þann elítuhóp.
Átján sinnum hefur Liverpool orðið enskur meistari,
mest með 81% stigaheimtum, þegar liðið fékk 68 stig í 42
leikjum veturinn 1978-79. Þá voru aðeins gefin tvö stig
fyrir sigur. Hefðu menn splæst þremur stigum á sigur á
þeim tíma hefði Liverpool fengið 98 stig, einu meira en á
liðinni leiktíð en höfum í huga að það lið lék fjórum leikj-
um meira en liðið í fyrra. Minnst fékk meistaralið Liver-
pool 63% stiga veturinn 1983-84.
Ber er hver að baki … Liv-
erpool-keðjan er vel smurð
og þétt um þessar mundir.
AFP
Rýfur Liverpool 90% múrinn?
Verður Liverpool fyrsta liðið frá 1889 til að leysa til sín yfir 90% stiga í ensku
úrvalsdeildinni? Til þess þarf liðið af fá 103 stig á yfirstandandi leiktíð.
Hinn vinsæli þáttur „Með morg-
unkaffinu“ var lengi á sínum
stað í Morgunblaðinu og kenndi
þar jafnan margra grasa. Á þess-
um degi fyrir áttatíu árum, 17.
nóvember 1939, var þessa sögu
þar að finna:
„Íbúar í húsi einu í Mährisch-
Ostrau höfðu ekki sjeð nábúa
sinn – prófessor einn – í mán-
aðartíma. Þeim fanst þetta ein-
kennilegt og gerðu lögreglunni
aðvart. Lögreglan braust inn hjá
prófessornum og fann hann
liggjandi í baðkerinu. Prófess-
orinn var lifandi og gat skýrt frá
því, að fyrir mánuði síðan hefði
hann runnið til í baðkerinu, er
hann ætlaði upp úr því, og slas-
ast í baki. Síðan hefði hann altaf
fallið í öngvit er hann ætlaði að
reyna að reisa sig á fætur. Pró-
fessorinn var fluttur í sjúkrahús
og kom í ljós, að hann hafði slas-
ast í hryggnum. Gera menn sjer
þó vonir um, að hægt verði að
bjarga lífi hans.“
Í sama dálki var vitnað til lista
í enska blaðinu „Daily Sketch“
um helgidaga sem lönd heims
héldu hátíðlega árið 1939, þegar
frá voru teknir sunnudagar.
Neðst á listanum var England
með sex daga, Ísland var með
þrettán en á toppnum var Júgó-
slafía, með effi, með hvorki fleiri
né færri en 36 slíka daga.
GAMLA FRÉTTIN
Var í
mánuð í
baðkerinu
Það er vesen að renna til í baðkerinu. Þetta er ekki baðker prófessorsins.
Morgunblaðið /Árni Sæberg
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Ebba Katrín Finnsdóttir
leikkona
Júlíana Sara Gunnarsdóttir
leikkona
Mamie Gummer
leikkona