Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2019, Blaðsíða 19
Anna Þórunn Hauksdóttir vöruhönnuður býr ásamt eiginmanni
sínum, Gian Franco Pitzalis, og sonum þerra Hauki Angelo og
Kára Francesco á dásamlega fallegu heimili í Hafnarfirði.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Notalegt í
hverju rými
Þessa dagana er Anna Þórunn að leggjalokahönd á vefverslun fyrir eigið hönn-unarfyrirtæki ANNA THORUNN.
Fjölskyldan hefur komið sér vel fyrir í fallegu
raðhúsi í Hafnarfirði. Spurð hvað sé eftirlæti í
hverfinu segist Anna Þórunn heillast af óspilltri
náttúrunni allt um kring. „Svo er Hvaleyr-
arvatn á næstu grösum sem við nýtum á öllum
árstímum í göngutúra. Ég elska þessa óspilltu
náttúru í kringum hverfið mitt.“
Heimilið liggur vel við birtu og hátt er til
lofts. Stofa og eldhús eru í opnu rými sem er
sérlega fallega innréttað. „Stíllinn minn er
breytilegur og sífellt í þróun eins og lífið sjálft
en í grunninn er hann líklega alltaf sá sami þar
sem ég vel að blanda nýjum og eldri hlutum
saman. Ég læt hluti sem mér þykir vænt um
passa inn í heildarmyndina. Ég vel frekar að
hafa ljósa liti í kringum mig en hef einnig gefið
dökkum litum séns,“ útskýrir Anna Þórunn og
segist jafnframt vera forfallin bastkona, „en
einnig er ég mjög hrifin af marmara, viði og
gylltu í hófi“.
Nýjar vörur væntanlegar
Spurð hver sé eftirlætishlutur Önnu á heimilinu
segir hún nýjustu hönnun sína, vasann Bliss og
ullarteppið úr Cowboy dream-línunni vera í al-
gjöru uppáhaldi. „Þar á eftir er það glerkúpull-
inn með táskónum mínum sem minnir mig á
góða og eftirminnilega tíma. Mér þykir líka
ótrúlega vænt um öll listaverkin sem strákarnir
mínir hafa gert í gegnum árin.“
Spurð um eftirlætisstað á heimilinu segir
Anna tvo staði í miklu uppáhaldi. „Annar þeirra
er í sófanum við gluggann, en þar get ég horft
beint upp í himininn og gleymt mér í því að
fylgjast með skýjunum og flugumferð sem mér
finnst alltaf jafn heillandi. Hinn staðurinn minn
er í bleika legubekknum við vegginn en þar er
eins og ég sé í vernduðu skjóli hvort sem ég er
að vinna í tölvunni eða bara hvíla mig.“
Anna hefur bersýnilega gott auga fyrir hönn-
un og segir mikilvægt við innréttingu heimilis-
ins að það sé notalegt í hverju rými hússins.
„Mér finnst mikilvægt að fólkið mitt nái að hvíl-
ast og endurhlaða sig fyrir næsta dag. Lýsing
skiptir miklu máli til að ná góðri stemningu á
heimilinu en ég er enn að vinna að henni og
elska borðlampa sem gefa frá sér hlýja birtu.
Þægilegur og kósí sófi sem má borða í og hafa
það notalegt er ómissandi, eins fallegar mottur
og grænar plöntur,“ útskýrir Anna og bætir
jafnframt við að gólfsíðar gardínur myndi mikla
hlýju og geri heimilið enn notalegra.
Hvað varðar að versla inn á heimilið segist
hún kaupa þá hluti sem heilla þegar hún sér þá,
óháð ákveðnum verslunum. „Annars versla ég
helst í Epal, H&M Home, Góða hirðinum og
IKEA.“
Borðstofuborðið í uppáhaldi
Griðastað fjölskyldunnar segir Anna Þórunn
hiklaust vera við borðstofuborðið sem Franco
smíðaði fyrir um 17 árum og hefur fylgt fjöl-
skyldunni síðan. „Við eldum á hverju kvöldi og
leggjum fallega á borð með dúk og kertaljósi,
þannig búum við til notalega stemningu eftir
langan og annasaman dag,“ útskýrir Anna.
Spurð hvort eitthvað sé á óskalistanum inn á
heimilið segir Anna að sig bráðvanti leslampa.
„Leslampinn eftir Arne Jacobsen framleiddur
af Louise Poulsen er ofarlega á listanum ásamt
borðlömpum eftir Achille Castiglioni. Ég er bú-
in að ganga með hugmynd að barvagni í höfðinu
í nokkur ár og vonast til að hann verði bráðlega
að veruleika. Arinn er á sameiginlegum óska-
lista okkar hjóna sem verður einn daginn aftur
að veruleika,“ segir Anna að lokum.
Stofan er ákaflega björt
og fallega innréttuð.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Anna Þórunn hefur einstakt auga hvað við-
kemur hönnun og innréttingu heimilisins.
Feed Me-skálin
er eftir Önnu
Þórunni en
verkið á borð-
inu keypti hún
á útskriftarsýn-
ingu LHÍ.
17.11. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
SINFONIA er einstaklega þægileg dýna
með 7 hægindalögum. Lögin eru samsett
úr hágæða svampi og lagi úr náttúrulegu
Talalay-latexi sem saman gefa mýkt og
stuðning á réttum svæðum. Sinfonia er
með 5 svæðaskiptu pokagormakerfi og
stýrist hreyfing gormanna af mismunandi
þunga líkamssvæða. Þannig veitir dýnan
alltaf hárréttan stuðning. Gormakerfið
er mýkra á axlasvæðum og við mjóbak
til að halda réttri sveigju á líkamanum
alla nóttina. Steyptar kantstyrkingar gefa
þér um 25% meira svefnrými og eykur
það endingu dýnunnar. Áklæðið utan
um dýnuna er úr 100% bómull og andar
einstaklega vel.
Í tilefni 25 ÁRA AFMÆLIS BETRA BAKS höfum við í náinni samvinnu við sérfræðinga
SERTA, stærsta dýnuframleiðanda veraldar, sérhannað og framleitt Sinfoniu, einstaka
heilsudýnu fyrir viðskiptavini sem kjósa gæði og gott verð.
S TÆRS T I DÝNU-
FRAMLE IÐAND I
VERALDAR
SERTA SINFONIA
VÖNDUÐ Á JÓLAVERÐI
STÆRÐ
FULLT VERÐ
STÖK DÝNA
JÓLAVERÐ
MEÐ COMFORT
BOTNI OG FÓTUM
120x200 cm 89.900 kr. 127.900 kr.
140x200 cm 99.900 kr. 139.900 kr.
160x200 cm 109.000 kr. 159.900 kr.
180x200 cm 119.000 kr. 179.900 kr.
180x210 cm 129.900 kr. 199.900 kr.
192x203 cm 134.900 kr. 203.900 kr.