Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2019, Blaðsíða 14
TÍÐARANDI 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.11. 2019 „Þar tröllríður úr öllu hófi svokallað popp, rokk og nýbylgjurokk, bárujárns- og gaddavírspopp og hver fj ... allt þetta heitir,“ skrifaði öskureiður lesandi árið 1982 og átti við Ríkisútvarpið og dag- skrána þar á bæ. Bubbi Morthens var þá tónlistarmanna vinsælastur meðal íslensks æskufólks. Morgunblaðið/Einar Falur R eiði, pirringur, gremja, röfl, um- vandanir, ábendingar, prédikanir, hól, almennur lífsleiði og auðvitað líka lífsgleði – á köflum. Hvert í ósköpunum sneri fólk sér með allt þetta áður en Þjóðarsálin, Útvarp Saga, blogg og samfélagsmiðlar komu til sögunnar? Jú, auð- vitað átti það öruggt skjól hjá Velvakanda í Morgunblaðinu. Um áratuga skeið var Velvak- andi helsti farvegur fyrir „virka í athugasemd- um“ í þessu landi. Dálkurinn „Velvakandi skrifar“ birtist fyrst í Morgunblaðinu 1. ágúst 1951 og þá sem yfir- skrift yfir eldri dálki „Úr daglega lífinu“ sem hóf göngu sína árið 1935. Á þeim tíma kom efnið frá blaðamönnum á ritstjórn Morgunblaðsins. Ekki leið þó á löngu þangað til þessir tveir þætt- ir voru skildir að og Velvakandi stóð eftir það á eigin fótum. Var hann lengi vel mjög framarlega í blaðinu, til að byrja með á blaðsíðu 6 en seinna á blaðsíðu 4. Engin tilraun var gerð til að fela efnið – enda ekki ástæða til. Velvakandi hefur að líkindum verið stríðlesinn. Sannkölluð al- þýðusprauta í æð. Bálreið húsmóðir Fljótlega fóru Velvakanda að berast bréf, 30. desember 1951 stakk „geðspök kona“ til dæmis niður penna. Og var bersýnilega heitt í hamsi: „Kæri Velvakandi. Hér skrifar reið húsmóðir – mjög reið. – Verst, ef þú hefur ótrú á fram- burði reiðra kvenna, sem kvarta yfir náung- anum. Hér kemur tilefnið. Klukkan 6 í gærkvöldi keypti ég 9 metra af grófri silkisnúru í búðinni S. hér í bæ. Þegar heim kom, reyndist liturinn ekki heppilegur. Kl. 9.30 í morgun hringdi ég í búðina og mæltist til að fá vöruskipti. Bauð ég að greiða andvirði tveggja metra aukalega, svo að víst væri, að varzlunin skaðaðist ekki stórum fjárhagslega af mínum völdum. (Var ekki orðin reið þá, og bauð þetta kurteislega og í mínum blíðasta tón!) Af- greiðslustúlkan svaraði: Tökum aldrei búta, það væri nú laglegt. Svona snúrur eru ónýtar, þegar búið er að mæla þær af. Þér gátuð athugað lit- inn áður. Ég benti kvenmanninum á, að 9 m væri enginn bútur og sagðist ekkert hafa að gera við ónýta snúru. En hún sat við sinn keip. Þá fauk nú í undirritaða, (sem er mjög stilltur kvenmaður). Og er ég enn reið, bálreið einkum vegna þess, að mitt ágæta boð – að gefa búðinni 2 metra af silkisnúru, – var hunzað með öllu.“ Frosti kóngur ríkir Ekki voru allir sem rituðu Velvakanda bréf bál- reiðir, eins og „einn harður af sér“ um miðjan janúar 1955. Ekki er hægt að segja annað en vel hafi legið á honum – enda var hann loksins laus við jólin: „Finnst ykkur þetta ekki skemmtilegir dag- ar? – í gær og dagana þar á undan hafa verið fagurlagaðar og fjölbreytilegar frostrósir á gluggarúðunum og himinninn skafheiður. Kl. er næstum fjögur og samt myndi vera hægt að taka ljósmyndir úti. Og svona er öll tilveran – stálgrá og björt, ekki lengur dimm og drunga- leg, full af kvíða fyrir öllum innkaupum jólanna og styzta sólarganginum. Nú er þetta allt af- staðið og á morgnana, þegar við komum út í tært og hressandi andrúmsloftið, þá látum við eins og ekkert sé. Okkur langar helzt til að fara langt upp á fjöll til að skoða alla þessa vetrar- dýrð. Já, það má nú segja, að lífið er gott og skemmtilegt þessa dagana, þegar Frosti kóng- ur ríkir og Vindkarlinn hefir lokaðan munninn og Snjókarlinn er svo elskulegur að mylja sama og ekkert af ísnum sínum yfir okkur.“ Þjófheldir öryggislásar Bílstuldir færðust óvænt og skyndilega í vöxt árið 1960 og af því tilefni skifaði Viggó Oddsson, formaður Reykjavíkurdeildar Bindindisfélags ökumanna (er það ennþá til?), í Velvakanda um vorið: „Í sunnudagsblaðinu skrifið þér um hina tíðu bílstuldi sem á þessu ári hafa verið tíðari og valdið meira tjóni en menn muna áður hér á landi. Oft er þessum bílum stolið af ölvuðum unglingum sem eyðileggja bæði mannorð sitt og bíla sem kosta hundruð þúsunda, einstakir eða samanlagt, og valda eigendum bílanna tjóni á verðmætum sem oft hefur tekið áratugi að afla. Bindindisfélag ökumanna hefur í nokkur ár reynt að vekja áhuga bílaverzlana á tilveru þjóf- heldra öryggislása á bíla en með litlum árangri. B.F.Ö. á Norðurlöndum hafa í vor vísað mér á viðurkennt fyrirtæki í Svíþjóð sem framleiðir gírlása á um 200 tegundir bíla. Lásarnir kosta um 30 sænskar kr., eða nálægt 500 kr. ísl. úr búð. Þessir lásar hafa meðmæli sænskra trygg- ingafélaga og lögreglu og eru sömu aðilar á Ís- landi mjög hlynntir innflutningi á þessum ör- yggislásum. Bráðlega geta því bíleigendur fengið sér aukatæki í bíl sinn sem kostar um einn af hundraði eða þúsundi af verðmæti bíls- ins, til að koma í veg fyrir gjöreyðingu verð- mæta.“ Sænskar klámmyndir Ófáir hafa fengið útrás fyrir áhyggjur sínar í Velvakanda gegnum tíðina, eins og þessi sem skrifaði einfaldlega undir bréf sitt „Áhyggju- fullur“ snemma árs 1963: „En það er annað, sem eitrað hefur þjóðlíf okkar á síðustu árum. Þar á ég við kvikmynda- farganið. Ég lýsi yfir fyllsta vantrausti á kvik- myndaeftirlitið. Allir vita að kvikmyndir hafa mikil siðferðileg áhrif og ekki er að efa að stór hluti þeirra siðferðisbrota, sem hér eru framin eiga rót sína að rekja til kvikmyndanna. Ætli kvikmyndaeftirlitið álíti að amerískar glæpa- myndir eða sænskar klámmyndir séu siðbæt- andi fyrir unglingana? Í myndum þessum eru sýnd rán, morð og drykkjuskapur, en út yfir tekur þó þegar sýndar eru grófar samfarir, eða þar sem menn hjálpast við að nauðga ungum stúlkum. Ég tel að saurlifnaður sé ærið nógur og nægir þar að benda á hina almennu skemmtistaði hér á landi eða kringum þá. Það er hægt að skilja gróðafúsa kvikmyndahúseig- endur að þeir vilji sýna myndir sem „trekkja“, en það er erfitt að skilja kvikmyndaeftirlitið, því varla er hægt að ætla því hagnað af þessu?“ Enga plastpoka, takk! Velvakandi svaraði lengi vel gjarnan bréfum lesenda eða lagði út af þeim, eins og sjá má á þessari klausu, sem birtist í blaðinu haustið 1969. Óhætt er að fullyrða að Velvakandi hafi þarna verið langt á undan sinni samtíð: Alþýðu- sprauta í æð Vandfundin er betri heimild um sálarlíf þessarar þjóðar á hverjum tíma en Velvakandi í Morgunblaðinu. Óhætt er að segja að tíðarandinn stökkvi beinlínis á mann upp af gulnuðum síðunum þegar þeim er flett. Hvernig væri að gera smá stikkprufu og kanna hvað þjóðinni hefur legið á hjarta gegnum tíðina? Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is „Áhyggjufullur“ sem býsnaðist yfir amerískum glæpamyndum og sænskum klámmyndum í bíó árið 1963 og húðskammaði kvikmyndaeftirlitið hefur ugglaust ekki skellt sér á Psycho eftir Hitchcock. „Einn harður af sér“ var hæstánægður með veturinn 1955 í bréfi til Velvakanda. Ekki fylgdi þó sögunni hvort hann tók þátt í þessu skauta- móti á Reykjavíkurtjörn fimm árum áður.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.