Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2019, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.11. 2019 LESBÓK MÁLMUR Ozzy gamli Osbourne er allur að koma til eft- ir að hafa veikst heiftarlega af lungnabólgu og hrasað í þokkabót á heimili sínu síðasta vor með þeim afleið- ingum að hann aflýsti öllu tónleikahaldi út árið. Nú er kappinn búinn að stilla upp Evróputúr næsta haust, sem hefst í Newcastle 23. október og lýkur í Helsinki 7. des- ember 2020. Upphitunaratriðið verður ekki af lakara taginu; sjálf málmtröllin í Judas Priest. „Ég get ekki beðið eftir að rífa mig upp á rassinum og keyra mig í gang,“ sagði í yfirlýsingu frá Ozzy, „en þið verðið að sýna smá meiri þolinmæði. Ég vil vera 100% tilbúinn til að rokka af ykkur helvítis sokkana. Ég er ekki að setjast í helgan stein; giggin bíða mín áfram, auk þess sem ný plata er á leiðinni.“ Guð sé Ozz næstur. Rokkar af okkur sokkana Reuters Hættur, farinn? Ekki aldeilis. MIÐLAR Enska leikkonan Helena Bonham Carter fékk skilaboð frá Margréti prinsessu áður en hún tók að sér hlutverk hennar í nýju seríunni af The Crown sem kemur inn á efn- isveituna Netflix í dag, sunnudag. Það sætir tíðindum í ljósi þess að Margrét sálaðist árið 2002. Frá þessu greindi Bonham Carter í sjónvarpsþætti Grahams Nortons á dög- unum. Komu skilaboðin fram gegnum miðil sem Bonham Carter leitaði til og hafði Mar- grét á orði, að sögn miðilsins, að hún væri betur til þess fallin að leika hlutverkið en hin leikkonan sem kom til álita. Ekki fylgir sög- unni hvaða ágæta leikkona það er. Fékk skilaboð frá Margréti prinsessu Helena Bonham Carter átti góðan miðilsfund. AFP Kerry King í essinu sínu á tónleikum. Drekkur alla undir borðið BLÓÐ Niðurtalningin heldur áfram; nú eru aðeins tvær vikur þangað til hið goðsögulega málm- band Slayer heldur sína allra síð- ustu tónleika. Af því tilefni var bandaríska rokktímaritið The Aquarian Weekly með sérstaka um- fjöllun á dögunum um feril sveit- arinnar. Ýmsir leggja þar orð í belg, þeirra á meðal Frank Bello, bassaleikari Anthrax, sem margoft hefur túrað með Slayer gegnum tíðina. Hann kveðst munu sakna þess að standa í sviðsvængnum og reyna að láta Tom Araya hlæja, sem hann geri aldrei á tónleikum, en ekki þess að drekka Jägermeis- ter með Kerry King – enda drekki sá ágæti maður alla undir borðið. Dómsmálmur er regnhlíf-arhugtak yfir nokkrargerðir af öfgarokki og ein- kennist af hægum takti, þungum tón í hljóðfærum, háværu andrúmslofti og textum sem fjalla um geiminn, dulspeki, endalok heimsins og margt fleira,“ segir Jónas Hauksson, tals- maður tónlistarhátíðarinnar Doom- cember, sem fram fer á Gauknum á föstudag og laugardag í næstu viku. Hátíðin var fyrst haldin árið 2016 og var upprunalega eins dags tón- leikar með hljómsveitum frá Íslandi. Síðan þá hefur henni vaxið fiskur Sunnata frá Pól- landi kemur fram á hátíðinni í ár. Ljósmynd/Aleksandra Burska Ort um endalok heimsins Tónlistarhátíðin Doom- cember fer fram á Gauknum dagana 22. og 23. nóvember næst- komandi. Svo sem nafnið gefur til kynna er hátíðin helguð svo- nefndum dómsmálmi (doom metal). Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Blindar konur eru áberandi í ís- lensku sjónvarpi um þessar mundir en tveir þættir með slíka persónu í aðalhlutverki hafa verið teknir til sýningar á þessu hausti; annars veg- ar finnski gamanþátturinn Donna blinda á RÚV og hins vegar banda- ríski spédramaþátturinn Í myrkrinu (In the Dark) í Sjónvarpi Símans. Lundarfar persónanna tveggja, hinnar finnsku Donnu og hinnar bandarísku Murphy, er býsna ólíkt; sú fyrrnefnda er glaðlynd og mann- elsk en sú síðarnefnda alvörugefinn einfari. Báðar búa þær þó að tals- verðri kaldhæðni og gera óspart grín að fötlun sinni. Donna er í basli. Unnusti hennar til sex ára tekur einn morguninn bara hatt sinn og slaghörpu og yfir- gefur svæðið – án þess að hafa fyrir því að segja Donnu frá því eða gera henni grein fyrir ástæðum. Donna hefur uppi á kauða hjá nýrri ástkonu og áttar sig á því að ekki verður aftur snúið. Hefst þá leit að nýjum unnusta enda er Donna óforbetranlegur róm- antíker af gamla skólanum og getur ekki bugsað sér að pipra ein og óstudd í þessu lífi. Eftir nokkur púðurskot, þar sem hún fór meðal annars á stefnumót með blindum manni, sem hún getur ekki hugsað sér að búa með, taldi Donna sig loksins vera komna í feitt í seinasta þætti með Hermanni. Til að fyrirbyggja allan misskilning þá var maðurinn veitingamaður en ekki Kotrosknar og kaldhæðnar Donna er glaðlynd og uppátækjasöm og sárvantar nýjan kærasta. YLE BLINDAR KONUR ÁBERANDI Á SKJÁNUM

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.