Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2019, Blaðsíða 29
um hrygg og verður nú í tvo daga á Gauknum og mun skarta tíu hljóm- sveitum, innlendum og erlendum. „Markmið hátíðarinnar er að halda árlega samkomu fyrir unn- endur dómsmálms, þar sem boðið er upp á það besta í íslensku senunni,“ segir Jónas. „Dómsmálmur hefur aldrei verið á toppi undirsenunnar á Íslandi. Aðrar öfgastefnur eins og til dæmis dauðarokk, svartmálmur og harðkjarni hafa notið meiri hylli. Dómsmálmur hefur hins vegar verið að sækja í sig veðrið undanfarið með fleiri og betri hljómsveitum.“ Tvær erlendar sveitir Að sögn Jónasar leitast Doom- cember við að finna góðar og fjöl- breyttar hljómsveitir sem hæfa tón- listarþema hátíðarinnar. Tvær erlendar hljómsveitir, Sun- nata frá Póllandi og Saturnalia Temple frá Svíþjóð, munu spila á há- tíðinni í ár. Stærstu íslensku hljóm- sveitirnar eru Plastic Gods, oft talin besta dómsmálmshljómsveit Ís- lands, að sögn Jónasar, en hún hefur ekki troðið upp í tvö ár og Katla, sem kemur fram í fyrsta sinn á Ís- landi af þessu tilefni. Aðrar hljóm- sveitir á hátíðinni eru Slor, Kvelja, Nornagal, Godchilla, Dynfari og Morpholith. Þrjár síðastnefndu sveitirnar hafa spilað utan landsteinanna í löndum á borð við Bretland, Bandaríkin, Þýskaland og Rúmeníu. Miðar fyrir báða dagana eru til sölu á tix.is en einnig verður hægt að kaupa miða á Gauknum sjálfum fyrir annan daginn eða báða. Saturnalia Temple frá Svíþjóð mun einnig koma fram á Gauknum í næstu viku. 17.11. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 SKILLBIKE er nýtt byltingarkenntæfingarhjól frá Technogym, búið gírskiptingum eins og í venjulegu götuhjóli sem byggt er á nýrri tækni Multidrive™. SKILLBIKE er hannað til líkja semmest eftir raun- verulegumhjólreiðum en hjólið hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir hönnun og nýsköpun. Skoðaðu hjólið í sýningarsal okkar, hjá Holmris Síðumúla 35 NÝTT BYLTINGARKENNT ÆFINGAHJÓL Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is BÍÓ Breska leikkonan Emilia Clarke, sem kunnust er fyrir leik sinn í Game of Thro- nes-þáttunum og jólamyndinni Last Christmas, sem nú er í kvikmynda- húsum, staðfestir í samtali við tímaritið Empire Magazine áhuga sinn á því að leika njósnara hennar hátignar, James Bond, eftir að Daniel Craig gefur það senn frá sér eftir þrettán ár. „Að sjálfsögðu. Mikil ósköp. James Bond er eitt af þessum merkjum sem eru aldr- ei ekki svöl,“ segir hin 33 ára gamla Clarke. Væri alveg til í að leika Bond AFP BÓKSALA 6.-12. NÓVEMBER Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Tregasteinn Arnaldur Indriðason 2 Þögn Yrsa Sigurðardóttir 3 Þinn eigin tölvuleikur Ævar Þór Benediktsson 4 Tilfinningabyltingin Auður Jónsdóttir 5 Hnífur Jo Nesbø 6 Um tímann og vatnið Andri Snær Magnason 7 Systa bernskunnar vegna Vigdís Grímsdóttir 8 Vigdís – bókin um fyrsta konuforsetann Rán Flygenring 9 Innflytjandinn Ólafur Jóhann Ólafsson 10 Hvítidauði Ragnar Jónasson 1 Til þeirra sem málið varðar Einar Már Guðmundsson 2 Mislæg gatnamót Þórdís Gísladóttir 3 Mamma má ég segja þér? Eyrún Ósk Jónsdóttir 4 Þvottadagur Jónas Reynir Gunnarsson 5 Heimskaut Gerður Kristný 6 Ljóð 2007-2018 Valdimar Tómasson 7 Leðurjakkaveður Fríða Ísberg 8 Bestu limrurnar Ragnar Ingi Aðalsteinsson 9 Sólardansinn Þóra Jónsdóttir 10 Þetta er ekki bílastæði Brynjólfur Þorsteinsson Allar bækur Ljóðabækur Ég er alltaf með nokkrar bækur og tímarit á náttborðinu. Ég er ekki sérstaklega mikill lestr- arhestur en mér finnst ákveðin slökun í því að lesa, stundum ekki nema nokkrar síður, fyrir svefninn. Ég les ekkert síður tímarit en bækur. Þar sem ég starfa á bókasafni hef ég góðan aðgang að tímaritum og fæ þau reglulega lánuð með mér heim. Vinnufélagarnir gera góðlátlegt grín að mér fyrir að lesa tíma- ritið Hello en ég hef mikinn áhuga á að fylgjast með bresku konungsfjölskyld- unni. Sem barn man ég að pabbi minn las fyrir mig og yngri bróður minn á kvöldin og man ég að bækurnar um Salómon svarta heilluðu mig mikið. Síðan þegar ég var farin að lesa sjálf voru það Öddu-bækurnar sem voru í miklu uppáhaldi. Fyrsta skáld- saga sem ég las sem unglingur var Maður og mold. Ég fékk hana í jólagjöf og las hana nokkr- um sinnum. Einnig las ég bækur eftir Agöthu Christie, Phyllis A. Whitney og Barböru Cartland svo einhverjir séu nefndir. Í dag les ég og skoða mikið af bókum um heimili og húsbúnað. Bækur eins og Heimsóknir eftir Höllu Báru og Gunnar Sverris- son, The Scandinavian Home eftir Niki Brantmark og Life Unstyled eftir Emily Henson. Einnig fjölmörg tímarit svo sem Bo bedre, Bolig liv, Alt interiør o.fl. Mín gæðastund er að setjast niður með kaffibolla og fletta húsbúnaðartímaritum. Fyrir ekki svo löngu fór ég að lesa bækurnar hennar Guðrúnar frá Lundi sem mér finnast feikigóðar en eins og margir vita áttu bækurnar hennar ekki upp á pallborðið þegar þær komu fyrst út en nú eru þær vinsælar og eiga sér dyggan aðdáendahóp. Óhemjumikið magn af nor- rænum spennusögum hefur ver- ið gefið út undanfarin ár og er Sandhamn-serían eftir Vivecu Sten í uppáhaldi hjá mér. Mat- reiðslubækur fæ ég reglulega lánaðar á bókasafninu og bækur um útivist og ferðalög. Þessa dagana er ég að lesa bæk- urnar Glæpur við fæðingu eftir Trevor Noah og Leading With Happiness eftir Al- exander Kjerulf. Bókaútgáfa er núna í mikilli sókn og hafa aldrei verið gefnar út fleiri bækur. Ég fæ alltaf nokkrar bækur í jólagjöf og veit fátt betra á aðfangadagskvöldi en að skríða undir sæng með nýja bók í hendi og berast inn í töfraheim bókarinnar. SIGRÚN INGIMARSDÓTTIR ER AÐ LESA Slökun í því að lesa Sigrún Ingi- marsdóttir er settur amts- bókavörður á Akureyri. hermaður. Hann heitir bara þessu ágæta nafni. Hermanni var vingjarn- legur og virtist ýmsum kostum bú- inn. Þess vegna kól hjarta Donnu þegar á daginn kom að hann taldi það bara frábæra viðskiptahugmynd að ráða hana, blinda konuna, til starfa sem vínþjón á veitingahúsinu sem hann erfði eftir föður sinn. Fauk þá í okkar konu, sem kvaðst mundu íhuga atvinnutilboðið í öðru lífi og henti kappanum öfugum út. Þannig að leitin heldur áfram. Vantreystir svo til öllum Þessu er þveröfugt farið hjá Murphy blessaðri. Hún vantreystir svo til öll- um, sérstaklega karlmönnum, og hefur engan áhuga á föstu sambandi. Situr eigi að síður uppi með kærasta – sem í þokkabót leggur stund á glæpamennsku. Er nema von að aumingja Murphy þurfi á allri sinni kaldhæðni að halda. Í myrkrinu er öðrum þræði glæpa- saga en ungur vinur Murphy (einn af sárafáum) er myrtur og þar sem lög- reglan virðist hafa litla burði til ann- ars en að snúast í hringi tekur Murphy rannsóknina í sínar hendur. Gengur þar á ýmsu. Inn í söguna fléttast févana hunda- spítali foreldra hennar sem furðu- fuglinn á svæðinu, Felix að nafni, bjargar óvænt frá glötun. Þarf Murphy nú skyndilega að fara að taka við fyrirmælum frá þeirri lufsu. Haldiði að það sé nú? orri@mbl.is Murphy Mason kallar ekki allt ömmu sína. Hún er engum háð og hikar ekki við að hefja eigin rannsókn á morðmáli þegar lögreglan virðist komin í öngstræti. CBS Emilia Clarke er eftirsótt leikkona.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.