Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.12.2019, Qupperneq 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.12.2019, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.12. 2019 LÍFSSTÍLL deildum. Skólinn er og hefur alltaf verið opinn jafnt kristnum og mús- limum. „Við byrjum hvern dag á helgi- stund í kapellunni, bæði múslimar og kristnir, og biðjum saman. Dag einn var ég alveg að gefast upp. Þá var hér kennimaður sem mér fannst tala til mín. Hann sagði að ég skyldi ekki ör- vænta og minnti á orð Jesú sem sagði: Biðjið og yður mun gefast, knýið á og fyrir yður mun upplokið verða. Eftir að ég heyrði þetta fór ég inn í skrif- stofuna mína og hugsaði hvers vegna ég væri hvergi að knýja dyra? Ég fór að knýja á dyr og biðja um hjálp. Mér fannst allar dyr opnast og Guð gaf okkur meira en við áttum skilið. Á tveimur árum greiddum við upp úti- standandi skuldir og gátum gert upp laun starfsfólksins,“ sagði Saba. Áhersla á friðarfræðslu Hann sagði að á þessum morg- unsamverustundum sé alltaf hug- vekja og oft rætt um þjóðfélagsmál eins og sambúð Araba og Gyðinga, umburðarlyndi, að elska hvert ann- að, að fyrirgefa og önnur góð gildi. „Við erum líka með sérstaka frið- arfræðslu. Tilgangurinn er að upp- ræta ofbeldi í skólaumhverfinu. Við líðum ekki ofbeldi, hvorki af hálfu kennara né nemenda, sama í hvaða mynd það birtist. Þegar ég kom að skólanum voru kennararnir með kennaraprik. Ég sagðist ekki vilja sjá þau. Sumir nemendur skildu það svo að fyrst skólastjórinn fjarlægði kennaraprikin gætu þeir farið sínu fram. Það tók smátíma að ná aftur jafnvægi og við komum á frið- armenningu í hugum og hjörtum nemenda. Það er mjög mikilvægt. Það er einfalt mál að halda uppi aga með kennarapriki en flóknara að gera það með hugarfarsbreytingu.“ Bæta við skólastigum Saba setti af stað tólf verkefni til að afla skólanum tekna. Unnið var með nemendum, kennurum, foreldrum og fulltrúum nærsamfélagsins. Sett voru markmið til þriggja ára og áætlun til að ná þeim. Hlustað var á raddir allra. Ákveðið var að fjölga nemendum. Þeir eru nú 150, þar af dvelja 15 á heimavistinni. Flytja á heimavistina í nýtt húsnæði og þar verður pláss fyrir 38. Leikskóla var bætt við fyrir þrem- ur árum. Börn sem útskrifast úr honum ganga svo upp í 1. bekk og síðan 2. og 3. bekk eftir því sem þau eldast. Á endanum verður samfelld kennsla frá leikskóla og upp í 12. bekk. Einnig er hafin kennsla í handíð fyrir nemendur sem lokið hafa 12. bekk. Nemendur skiptast nokkuð jafnt í múslima og kristna. Skóli von- arinnar er eini einkarekni skólinn á svæðinu þar sem skiptingin milli trúarbragða er svo jöfn. Kristnir eru aðeins 1-2,5% allra íbúa á Vest- urbakkanum og minna en 1% íbúa á Gaza. Meirihluti 15 kennara og tíu annarra starfsmanna skólans er kristinnar trúar en hinir múslimar. Kynjahlutföllin eru nokkuð jöfn hjá starfsfólkinu eða 13 karlar og 12 konur. Stúlkur eru um þriðjungur nemenda. Hagræðing og sjálfsaflafé Reynt hefur verið að hagræða í rekstri skólans. Einn liður í því var að setja upp sólarrafhlöður sem sjá skólanum fyrir rafmagni og fékk skólinn styrk frá sveitarfélaginu til að kaupa þær. Útbúinn var knatt- spyrnuvöllur við skólann sem nem- endur nota en auk þess leigir sveit- arfélagið völlinn til æfinga. Skólinn rekur hænsnabú með um 4.000 varp- hænum og eru eggin seld. Eggja- framleiðslan og önnur fjáröflun út- vega um 10-15% af rekstrarfé skólans. Skólinn er einnig farinn að fá styrk frá sveitarfélaginu. Að öðru leyti er hann háður stuðningi vel- unnara. Aðeins eru ráðnir menntaðir kennarar í kennarastöður við skól- ann. Auk þess hefur skólinn boðið upp á símenntun og námskeið fyrir kennara sína og starfslið. Mörgum hefur vegnað vel Fyrrverandi nemendum hefur mörgum vegnað vel. Saba nefndi þrjá íslamska nemendur sem dvöldu á heimavistinni og búa nú í Banda- ríkjunum. Einn starfar hjá banda- rísku geimferðastofnuninni NASA, annar er verkfræðingur og sá þriðji er læknir. Þeir hafa komið í heim- sóknir í gamla skólann sinn. Þegar sá sem starfar hjá NASA sá gamla rúmið sitt á heimavistinni faðmaði hann kojuna og beygði af. Margir nemendanna hafa átt stuðningsmenn í Bandaríkjunum eða Evrópu sem hafa kostað skóla- vist þeirra. „Þessi stuðningur hefur bjargað framtíð margra barna,“ sagði Saba. „Við gerum engan grein- armun á kristnum og múslimum. Ég beini styrkjunum til þeirra sem þurfa mest á þeim að halda. Það skiptir engu hver trúarlegi bak- grunnurinn er.“ Fátækar fjölskyldur eru yfirleitt ekki rukkaðar um skólagjöld. Al- gengt er að börn úr fátæku fjöl- skyldunum stundi vinnu að loknum skóla, þótt það sé bannað, og það komi niður á námsárangri. Fjöl- skyldunum er boðið að skólagjöldin verði felld niður með því skilyrði að nemendurnir þurfi ekki að vinna eft- ir skóla. Saba sagði að 90% af tekjum skól- ans væru styrkir og gjafir. Það get- ur verið stopul tekjulind og sveiflast eftir efnum og ástæðum gefenda. Það er enginn einn stór styrktaraðili sem stendur að baki skólans. Oft er því þröngt í búi. Engar launaskuldir eru núna en stundum dregst að borga út. Saba sagði að óvissan sé lýjandi og hann hætti aldrei að biðja um styrki. Leikskólann vantaði bíl og gömul blind kona gaf peninga sem nægðu til að kaupa notaðan bíl. Stjórnvöld gáfu eftir opinber gjöld af bílnum og þannig hafðist það. Eitt af verk- efnum Skóla vonarinnar er að veita háskólanemum námsstyrki, en til þess þarf að afla stuðnings. Lifandi steinar að fara Saba kvaðst vilja að kristnir búi áfram á þessu svæði. „Biblían kallar þá lifandi steina í Landinu helga. En þeir eru að fara héðan. Það er mikil bylgja innflytjenda til Bandaríkj- anna, Evrópu og Suður-Ameríku. Fólkið fer fyrst og fremst vegna fá- tæktar og ástandsins hér í leit að betra lífi. Ef svo fer sem horfir þá verða engir lifandi steinar eftir í Landinu helga þegar fram líða stundir. Þá verða bara dauðir stein- ar, ég meina kirkjubyggingar, eftir. Það verða að vera lifandi steinar hér í Landinu helga því hér er vagga kristindómsins. Við þurfum að hvetja þá lifandi steina sem eftir eru til að dvelja hér í stað þess að yfir- gefa landið.“ Við skólann er kennt allt upp í 12. bekk og framhaldsnám undirbúið. Ljósmynd/hopesschoolbeitjala.co Nokkrir nemendur kusu að dvelja á heimavistinni í páskafríinu. Morgunblaðið/GE Bakhlið skólans þar sem sjást gluggar á heimavistinni sem á að stækka. Heimilislausir piltar hafa fengið þar inni. Morgunblaðið/GE Nemendur skólans koma aðallega frá Beit Jala og svæðinu í kringum Betlehem. Ljósmynd/hopesschoolbeitjala.co Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.