Fréttablaðið - 22.02.2020, Page 8
Atkvæðagreiðsla um tillögu Eflingar – stéttarfélags
um boðun samúðarverkfalls hjá skólum sem eiga
aðild að Samtökum sjálfstæðra skóla
Rafræn atkvæðagreiðsla hefst kl. 12.00 á hádegi þriðjudaginn 25. febrúar 2020.
Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12.00 á hádegi laugardaginn 29. febrúar 2020.
Þann 25. febrúar nk., kl. 12.00 á hádegi, hefst rafræn atkvæðagreiðsla um boðun samúðarverkfalls félagsmanna
í Eflingu-stéttarfélagi sem starfa hjá skólum sem eiga aðild að Samtökum sjálfstæðra skóla (SSSK).
Samúðarverkfall er boðað til stuðnings kröfum félagsmanna Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg í þeirri kjaradeilu
sem nú stendur yfir vegna endurnýjunar kjarasamnings félagsins sem rann út þann 31. mars 2019.
Samúðarverkfallið tekur til félagsmanna Eflingar sem vinna hjá skólum sem eiga aðild að Samtökum sjálfstæðra
skóla (SSSK) og beinist því verkfallið einkum að eftirfarandi:
• Vinagarður, Reykjavík (rekstraraðili: KFUM og KFUK á Íslandi)
• Leikskólinn Sjáland, Garðabæ (rekstraraðili: Sjáland ehf.)
• Leikskólinn Sælukot, Reykjavík (rekstraraðili: Sælutröð)
• Leikskólinn Vinaminni, Reykjavík (rekstraraðili: Leikskólinn Vinaminni ehf.)
• Leikskólinn Lundur, Reykjavík (rekstraraðili: Lundur ehf.)
• Skerjagarður, Reykjavík (rekstraraðili: Skerjagarður ehf.)
• Fossakot, Reykjavík (rekstraraðili: LFA ehf.)
• Korpukot, Reykjavík (rekstraraðili: LFA ehf.)
• Laufásborg, Reykjavík (rekstraraðili: Hjallastefnan ehf.)
• Askja, Reykjavík (rekstraraðili: Hjallastefnan ehf.)
• Barnaskóli Hjallastefnunnar Reykjavík, Reykjavík (rekstraraðili: Hjallastefnan ehf.)
• Skóli Ísaks Jónssonar, Reykjavík (rekstraraðili: Skóli Ísaks Jónssonar ses.)
• Regnboginn, Reykjavík (rekstraraðili: Dignitas ehf.)
• Mánagarður, Reykjavík (rekstraraðili: Félagsstofnun stúdenta)
• Sólagarður, Reykjavík (rekstraraðili: Félagsstofnun stúdenta)
• Leikgarður, Reykjavík (rekstraraðili: Félagsstofnun stúdenta)
• Ársól, Reykjavík (rekstraraðili: Skólar ehf.)
• Suðurhlíðarskóli, Reykjavík (rekstraraðili: Kirkja aðventista)
• Barnaheimilið Ós, Reykjavík (rekstraraðili: Barnaheimilið Ós)
• Tjarnarskóli, Reykjavík (rekstraraðili: Tjarnarskóli ehf.)
• Waldorfskólinn Lækjarbotnum, Kópavogi (rekstraraðili: Waldorfskólinn í Lækjarbotnum)
Samúðarverkfallið er ótímabundið og hefst þann 9. mars nk. kl. 12:00 á hádegi.
Atkvæðisrétt eiga félagsmenn Eflingar sem vinna í þeim skólum sem eru aðilar að SSSK sbr. framangreinda
upptalningu.
Fái einnhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki aðgang að atkvæðagreiðslunni, getur viðkomandi snúið sér
til skrifstofu Eflingar fram til loka kjörfundar og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi
viðkomandi fram nauðsynleg gögn.
Sjá nánari upplýsingar á www.efling.is
Reykjavík, 22. febrúar 2020.
Kjörstjórn
Eflingar-stéttarfélags
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Ný áætlun Uppbyggingarsjóðs EES
um endurnýjanlega orku, umhverfis-
og loftslagsmál í Póllandi
Opnunarráðstefna og samstarfsfundir
3. og 25. mars í Varsjá
Opnunarráðstefna 3. mars í Varsjá
Michał Kurtyka - ráðherra loftslagsmála í Póllandi
Małgorzata J. Jedynak - ráðherra þróunarsjóðs og byggðamála í Póllandi
Lilja Alfreðsdóttir - menntamálaráðherra frá Íslandi,
Olav Myklebust - sendiherra Noregs í Póllandi
Samstarfsfundur um umhverfis- og loftslagsmál 3. mars í Varsjá
milli fyrirtækja frá Póllandi, Íslandi og Noregi
Samstarfsfundur um endurnýjanlega orku, hitaveitur og
vatnsafl 25. mars milli fyrirtækja frá Póllandi, Íslandi og Noregi
Áætlunin um endurnýjanlega orku, umhverfis- og loftslagsmál í
Póllandi, er sú stærsta sem Ísland tekur þátt í á
alþjóðavettvangi er varðar baráttu við loftslagsmál.
Mikil tækifæri eru fyrir fyrirtæki frá Íslandi
í þessum málaflokkum og fundirnir
því mikilvæg byrjun.
Frekari upplýsingar og
skráning má sjá á os.is
MANNRÉT TINDI Umboðsmaður
Alþingis ítrekar við stjórnvöld að
virða sjálfsákvörðunarrétt fatlaðs
fólks þegar teknar eru ákvarðnir
sem hafa áhrif á hagsmuni þess
og daglegt líf. Réttargæslumaður
fatlaðs fólks leitaði til umboðs-
manns fyrir hönd manns sem
taldi sig ekki hafa óskað eftir dvöl
á hjúkrunarheimili. Kvartað var
undan starfsháttum fjölskyldu-
sviðs sveitarfélags og umsóknum
þess um færni- og heilsumat fyrir
einstaklinginn, og dregið í efa að
hann hefði óskað eftir dvöl á hjúkr-
unarheimili.
Að mati umboðsmanns var
meðferð málsins hjá sveitar-
félaginu ekki í samræmi við lög.
Sveitarfélaginu hefði borið að
tryggja að upplýst væri hvað lægi
að baki umsókn viðkomandi um
hjúkrunarheimili, en engin gögn
lægju fyrir um samskipti hans við
sveitarfélagið eða frekari gögn sem
vörpuðu ljósi á hvenær hefði verið
komist að þeirri niðurstöðu að dvöl
á hjúkrunarheimili væri æskileg.
Tók umboðsmaður fram að
dvöl á hjúkrunarheimili geti haft
miklar breytingar í för með sér
fyrir fólk til langframa og vísaði
til þeirrar áherslu sem lögð væri á
sjálfsákvörðunarrétt fatlaðs fólks
í lögum og alþjóðasamningum.
Nauðsynlegt sé að fyrir liggi með
skýrum hætti hvort viðkomandi
hafi óskað eftir slíkri ráðstöfun og
hvaða upplýsingar hann hafi fengið
og þar með samþykkt.
Á vef Umboðsmanns Alþingis
segir að hann hafi vakið athygli
heilbrigðisráðherra á álitinu og
að athugað verði hvort gera þurfi
lagabreytingar til að „tryggja betur
sjálfsákvörðunarrétt fatlaðs fólks í
lögum og stuðla að því að þeir sem
sækja um dvöl á hjúkrunarheimili
fái fullnægjandi fræðslu um áhrif
þess á réttarstöðu sína og daglegt
líf.“ – aá
Sjálfsákvörðunarréttur fatlaðra virtur
Umboðsmaður vill að skoðað verði hvort breyta þurfi lögum til að tryggja betur rétt fatlaðra. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
DÓMSMÁL Landsréttur þyngdi í gær
refsingu rúmlega sjötugrar konu og
dæmdi hana til fimm ára fangelsis-
vistar fyrir tilraun til manndráps.
Konan var sakfelld fyrir að hafa
stungið tengdason sinn með hnífi í
nóvember árið 2018. Héraðsdómur
hafði dæmt konuna til fjögurra ára
fangelsisvistar.
Í dómi Landsréttar segir að ekk-
ert hafi komið fram sem réttlæti að
henni skuli ákveðin minni refsing
en sem svarar til þeirrar fimm ára
lágmarksrefsingar sem lög kveða á
um fyrir brot af þessu tagi. Konan
hefur ávallt neitað sök.
Samkvæmt málavaxtalýsingu
hafi hún verið að gæta barnabarna
sinna meðan dóttir hennar var
erlendis. Til snarpra orðaskipta
hafi komið milli hennar og sam-
býlismanns dótturinnar.
Samkvæmt því sem fram kemur
í dóminum átti verknaðurinn sér
stað eftir að fólkið gekk til náða, en
brotaþoli kveðst hafa vaknað við að
tengdamóðir hans var komin inn í
svefnherbergi til hans með hníf.
Fram kemur að blað hnífsins hafi
verið tæplega tuttugu sentimetra
langt.
Áður en tengdasyninum tókst að
koma konunni út úr herberginu,
hafi hún lagt til hans með hnífnum.
Urðu af leiðingarnar þær að hann
hlaut þriggja til f jögurra senti-
metra breitt stungusár við fjórða
og fimmta rifjabil fram hjá brjóst-
kassa og inn í breiðasta bakvöðv-
ann. Olli áverkinn meðal annars
skaða á tveimur litlum slagæðum
með verulegri blæðingu.
Konan krafðist sýknu, meðal
annars á grundvelli þess að hún
hafi ekki haft ásetning til að valda
manninum tjóni. Jafnframt að hana
skorti sakhæfi og var þar vísað til
andlegs ástands hennar.
Svo sem fyrr segir varð niður-
staða Landsréttar að konan skyldi
sæta fangelsi í fimm ár. Jafnframt
var konan dæmd til að greiða brota-
þola rúmar 800 þúsund krónur í
bætur. – aá
Tengdamóðir fékk fimm
ára dóm fyrir hnífsstungu
Landsréttur þyngdi dóm yfir rúmlega sjötugri konu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Áður en tengdasyninum
tókst að koma konunni út úr
herberginu, hafi hún lagt til
hans með hnífnum.
2 2 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð