Fréttablaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 34
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Það hefur lengi verið til siðs að eiginmenn færi konum sínum blóm á konudaginn. Þó blóm
séu falleg, er líka hægt að gera allt
mögulegt annað til að halda upp
á daginn. Konur hafa mjög gaman
af alls kyns dekri. Hvaða dagur er
betri til þess að njóta dekurs? Hér
eru nokkur góð ráð fyrir karla um
það hvernig megi dekra á þessum
degi.
n Leyfðu konu þinni að sofa út á
morgun. Þegar hún vaknar gætir
þú haft tilbúið handa henni ný
lagað kaffi og glænýtt bakkelsi
úr næsta bakaríi.
n Eða þú getur boðið henni í bröns
á einhverjum veitingastað.
Flestir veitingastaðir bjóða upp á
ljúffengan dögurð og alltaf hægt
að panta kampavín með. Best
er að vera búinn að panta borð.
Þetta mun koma frúnni á óvart.
n Fara í sund. Það er svo hress
andi að synda nokkrar ferðir og
leggjast svo í heita pottinn og
láta líða úr sér.
n Það gæti líka verið spennandi
að fara út að borða á góðum
veitingastað og síðan á tón
leika. Til dæmis sjá þýska
tónskáldið og stórsveitar
frömuðinn Mariu Baptist
sem kemur fram með
Stórsveit Reykjavíkur í
Hörpu. Það væri líka
hægt að fara í bíó
og sjá rómantíska
gamanmynd, til
dæmis Klovn 3: The
Final. Þessi mynd
fjallar um ástina og
Ísland kemur mikið
við sögu.
n Svo má auðvitað gefa
henni gjafabréf í nudd
eða snyrtimeðferð.
Gott dekur á konudaginn
Eiginkonan á skilið að fá dekur á konudaginn sem er á morgun. Það gæti verið sundlaugarferð. MYND/GETTY
Guðrún J. Bachmann, kynn-ingarstjóri vísinda miðlunar Háskóla Íslands, segir
viðburðinn tilvalinn fyrir alla
fjölskylduna. „Í boði verða vinnu-
smiðjur fyrir alla fjölskylduna þar
sem áherslan er meðal annars á að
tengja saman vísindi og listir með
margvíslegum hætti,“ útskýrir
hún.
Þétt og spennandi dagskrá
Það er úr ýmsu að velja og óhætt
að fullyrða að allir geti fundið
eitthvað við sitt hæfi. „Þarna
verða smiðjur fyrir alla aldurs-
hópa; tilraunir, þrautir, tæki og tól.
Vindmyllugerð, tónlistarforritun,
hönnun valslöngvu og keppni,
innlit í heillandi heim ljóssins
og ögrandi stærðfræðiföndur er
meðal þess sem gestir geta spreytt
sig á.“
Guðrún hvetur fólk til þess að
skoða það sem er í boði. „Tak-
markaður fjöldi kemst að í sumum
vinnusmiðjunum en það er miða-
kerfi á staðnum, svo gestir geta
tryggt sér pláss á vissum tímum.
Hver smiðja stendur í 20 til 40
Gæðastund fyrir fjölskylduna
Margt verður um að vera í Hörpunni í dag þegar Vísindasmiðja Háskóla Íslands opnar þar útibú
frá klukkan 13 til 17 og eru gestir á öllum aldri hjartanlega velkomnir að taka þátt í gleðinni.
Guðrún hvetur áhugasama til að
mæta á þennan skemmtilega við-
burð. MYND/KRISTINN INGVARSSON
Martin Swift,
verkefnastjóri
Vísindasmiðj-
unnar á góðri
stundu.
mínútur og nóg annað er hægt að
uppgötva, skoða og prófa meðan
beðið er eftir fráteknu plássi,“ segir
Guðrún.
Þá geta börnin kynnst leyndar-
dómum Hörpu og notið ljúfra
tóna. „Á sama tíma býður Harpa
upp á skoðunarferðir um leyni-
staði Hörpu fyrir forvitna krakka
og tónleikaröðin Reikistjörnur
verður með tónleika með Hugin.“
Fjölbreytt verkefni
og viðburðir
Það er nóg um að vera hjá Vísinda-
smiðjunni allt árið um kring.
„Vísindasmiðja Háskóla Íslands
hefur fast aðsetur í Háskólabíói og
er aðallega opin skólahópum en
um fimm þúsund skólabörn koma
árlega í heimsókn þangað. Auk
þess er opið á ýmsum viðburðum,
svo sem á Legó keppninni og
Háskóladeginum.“
Guðrún segir starfsemina enn
fremur ekki bundna við höfuð-
borgarsvæðið. „Vísindasmiðjan
ferðast líka um landið með
Háskólalestinni sem hefur heim-
sótt yfir 40 áfangastaði í öllum
landsfjórðungum. Auk þess birtist
hún með farandsmiðjur hér og þar
á höfuðborgarsvæðinu, til dæmis í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, á
bókasöfnum og auðvitað í Hörpu.“
Vísindasmiðjan í Hörpu er opin
klukkan 13 til 16, aðgangur er
ókeypis og allir hjartanlega vel-
komnir.
Verkefnið er styrkt af Barna-
menningarsjóði Íslands og er
hluti af fjölskyldudagskrá Hörpu
veturinn 2019-2020 en þetta er í
fimmta skipti sem dagskráin er í
boði.
SAMFÉLAGSÁBYRGÐ
FYRIRTÆKJA
Föstudaginn 28. febrúar gefur Fréttablaðið, í
samstarfi við Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð,
út sérblað um Samfélagsábyrgð fyrirtækja.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna
dagblaði landsins.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Arnar Magnússon, sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími: 550-5652 / arnarm@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R