Fréttablaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 38
MS-námsstyrkur við
Hafrannsóknastofnun
og Háskóla Íslands
Markmið námsverkefnisins er að rannsaka útbreiðslu
dýrasvifs og lífræns reks (e. marine snow) í Suðurdjúpi og
í Grænlandshafi í tengslum við umhverfisþætti. Verkefnið
tengist evrópska rannsóknaverkefninu MEESO (Ecologi-
cally and economically sustainable mesopelagic fisheries)
sem Hafrannsóknastofnunin er aðili að og beinist að lífríki
miðsjávarlaga. Verkefninu fylgir námsstyrkur, sem veitist til
tveggja ára.
Umsækjendur skulu hafa lokið B.S. gráðu í líffræði eða sam-
bærilegri gráðu.
Umsóknir skulu sendar á póstfangið umsokn@hafogvatn.
is og innihalda (a) kynnisbréf (1-2 bls.) og (b) afrit af próf-
skírteini B.S. gráðu
Athugið að áður auglýstur umsóknarfrestur hefur verið
framlengdur til 28. febrúar 2020.
Nánari upplýsingar veita Ástþór Gíslason, sérfræðingur á
Hafrannsóknastofnun (575200/8945091;
astthor.gislason@hafogvatn.is) og Jörundur Svavarsson
(5254610/8966739; jorundur@hi.is), Öskju, Háskóla Íslands.
Jafnt karlar sem konur, eru hvött til að sækja um starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
liggur fyrir.
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna
er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna
og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu
og verndun auðlinda hafs og vatna. Mikill hluti starfseminnar tengist
al þjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla.
Stofn unin rekur auk aðalstöðva í Reykjavík starfsstöðvar vítt og breytt
um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip og hefur að jafnaði um
190 starfsmenn í þjónustu sinni.
Við leitum
að liðsauka
STARFSKRAFTUR Í ÁHÆTTUMAT LÍF- OG HEILSUTRYGGINGA
Vörður leitar eftir öflugum einstaklingi í áhættumat líf- og heilsutrygginga. Starfið felur í sér yfirferð og mat
á umsóknum um líf- og heilsutryggingar, samskipti við lækna og heilbrigðisstofnanir og yfirferð læknagagna
sem berast félaginu ásamt almennri þjónustu til viðskiptavina.
Vörður er ört stækkandi tryggingafélag með um 100 starfsmenn og 65 þúsund viðskiptavini um land allt.
Félagið býður upp á nútímalegt vinnuumhverfi og byggir á umbótamenningu þar sem áhersla er lögð
á framsækna hugsun, sveigjanleika, árangur, samfélagslega ábyrgð, vellíðan og starfsánægju.
Vörður er Fyrirtæki ársins 2019 hjá VR.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnur Ósk Björnsdóttir, forstöðumaður, í netfanginu unnur@vordur.is.
Vörður er jafnlaunavottað fyrirtæki og hvetjum við konur jafnt sem karla til að sækja um.
Tekið er á móti umsóknum á heimasíðu félagsins www.vordur.is.
Umsóknarfrestur: 02.03.2020
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda er æskileg.
• Vandvirkni og nákvæm vinnubrögð.
• Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
• Framúrskarandi þjónustulund.
• Almenn stafræn færni.
Starfssvið:
• Yfirferð og mat á umsóknum um líf-
og heilsutryggingar.
• Samskipti við lækna og heilbrigðisstofnanir.
• Samvinna við trúnaðarlækni félagsins.
• Yfirferð læknagagna sem berast félaginu.
• Almenn þjónusta og svörun til viðskiptavina.
Farice ehf leitar að öflugum framkvæmdastjóra til að leiða fyrirtækið áfram á
áhugaverðum tímum en framundan eru mikilvæg verkefni í viðskiptaþróun og
stefnumótun. Leitað er að leiðtoga með mikla reynslu af stjórnun og rekstri félaga,
framúrskarandi félagslega færni, getu til tengslamyndunar og traust orðspor.
Í boði er krefjandi og spennandi framtíðarstarf þar sem unnið er að stefnumótun
og þróunarverkefnum í fjarskipta- og gagnaflutningum.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Daglegur rekstur félagsins
• Samskipti við opinbera aðila
• Fjárfestingar og viðskiptaþróun
• Yfirumsjón með fjármálum
• Starfsmannamál
• Virkur þátttakandi í gerð samninga við
stærstu viðskiptavini og birgja
• Stefnumótun í samvinnu við stjórn
Menntun og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Mikil stjórnunar- og rekstrarreynsla
• Góð reynsla af samningum
• Framúrskarandi samskiptahæfni
• Reynsla af samstarfi við opinbera stjórnsýslu
• Ákveðni og kraftur
• Fagleg vinnubrögð
• Góð enskukunnátta nauðsynleg (tala/skrifa)
• Reynsla og þekking úr fjarskiptageiranum
æskileg
• Reynsla af alþjóða viðskiptum
• Fáguð framkoma
Farice ehf var stofnað árið 2002 til að
veita þjónustu á sviði fjarskipta- og
gagnaflutninga. Fyrirtækið rekur tvo
sæstrengi milli Íslands og Evrópu,
FARICE-1 og DANICE, sem tengja
Ísland við önnur gagnaflutningskerfi.
Viðskiptavinir fyrirtækisins eru
fjarskiptafyrirtæki hvers konar og
stærri viðskiptavinir gagnavera.
Upplýsingar veita:
Katrín S. Óladóttir,
katrin@hagvangur.is
og Sverrir Briem,
sverrir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 9. mars nk. Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is.