Fréttablaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 18
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
var stirt. Þetta fór fyrir brjóstið á
öðrum þjóðum og ákvað landslið
Kanada að sniðganga Ólympíu-
leikana árin 1972 og 1976. Það kom
ekki í veg fyrir að Sovétríkin mættu
bestu liðum heims, lið þeirra var
skipað bestu leikmönnum heims og
sýndi að Sovétríkin áttu í fullu tré
við þau lið sem voru skipuð NHL-
leikmönnum.
Drengir gegn mönnum
Leikmenn sovéska liðsins voru því
hálfgerð vélmenni en Herb Brooks,
þjálfari Bandaríkjanna, boðaði
68 leikmenn á æfingar og náði að
mynda tuttugu manna hóp drengja
úr háskólum víðs vegar frá Banda-
ríkjunum.
Níu leikmenn höfðu áður unnið
með Brooks, þegar hann var
háskólaþjálfari og aðeins einn hafði
farið á Ólympíuleika áður og meðal-
aldur bandaríska liðsins var aðeins
tuttugu og eitt ár.
Bandaríska liðið lék alls 61
æfingaleik í aðdraganda Ólympíu-
leikanna en í síðasta leiknum fyrir
Ólympíuleikana var bandaríska
liðið niðurlægt af Sovétríkjunum
10-3 í Madison Square Garden í
hjarta New York.
Það áttu því ekki margir von á að
bandaríska liðið myndi gera atlögu
að gullverðlaunum á heimavelli.
Jöfnunarmark á lokasekúndum
fyrsta leiksins, gegn Svíþjóð, vakti
liðið ekki til lífsins á sama tíma
og Sovétríkin unnu 16-0 sigur á
Japan. Öruggur 7-3 sigur Banda-
ríkjanna á Tékkóslóvakíu sem var
talið næststerkasta lið heims, vakti
athygli. Sigrar á Rúmeníu, Noregi og
Vestur-Þýskalandi, stilltu upp leik
Bandaríkjanna gegn Sovétríkjunum
þar sem Sovétríkjunum dugði jafn-
tefli. Trúin á bandaríska liðinu var
ekki meiri en svo að leikurinn var
ekki sýndur í beinni í Bandaríkj-
unum, heldur upptaka af honum,
tveimur tímum síðar.
Sovétríkin komust þrisvar yfir í
leiknum, en með síðbúnu áhlaupi
og frábærum varnarleik og mark-
vörslu tókst Bandaríkjunum að
halda aftur af sóknarlotum Sovét-
ríkjanna á lokamínútum leiksins,
skora síðustu tvö mörk hans og
innsigla sigurinn. Þegar leikmenn-
irnir komu inn í klefa beið símtal
frá Jimmy Carter, þáverandi forseta
Bandaríkjanna, sem vildi hylla hetj-
urnar sem unnu Sovétríkin.
Þetta áfall stöðvaði ekki sov-
éska liðið, sem vann gull á næstu
þremur Ólympíuleikum og sex
gull á HM, ein silfurverðlaun og
tvenn bronsverðlaun, áður en
Sovétríkin liðuðust í sundur og
liðið keppti fyrir hönd Rússlands.
kristinnpall@frettabladid.is
SAGAN Á þessum degi fyrir fjöru-
tíu árum áttu sér stað einhver
óvæntustu úrslit íþróttasögunnar
þegar bandaríska liðið, skipað
háskóladrengjum, vann 4-3 sigur
á Sovétríkjunum í íshokkíi, sem
lagði grunninn að því að Banda-
ríkin unnu gullverðlaunin í Lake
Placid það árið. Leikurinn er titl-
aður Kraftaverkið á skautasvellinu
(e. Miracle on ice) og var valinn
íþróttaviðburður aldarinnar af
Sports Illustrated fyrir aldamót og
einn merkilegasti leikur sögunnar
af Alþjóða íshokkísambandinu árið
2008. Bandaríska liðið þurfti að
vinna lokaleik sinn gegn Finnum
til að tryggja sér gullverðlaunin
og tókst það með frábærri spila-
mennsku í lokaleikhlutanum. Þetta
reyndist annað Ólympíugull karla-
landsliðs Bandaríkjanna í ís hokkíi,
en besti árangur þeirra síðan eru
silfurverðlaunin í Kanada árið 2010.
Ekkert fékk Sovétríkin stöðvað
Óhætt er að segja að fæstir hafi
átt von á að nokkuð myndi stöðva
hið óstöðvandi lið Sovétríkjanna.
Sovéska liðið var búið að vinna
gullverðlaunin fjórum sinnum í
röð og fimm sinnum á síðustu sex
Ólympíuleikum þegar komið var
til Lake Placid. Á þessum fernum
Ólympíuleikum höfðu Sovétríkin
unnið 27 leiki af 29, gert eitt jafn-
tefli og aðeins tapað einum leik með
markatölunni 175-44. Það sama var
uppi á teningnum á HM í íshokkíi.
Á tuttugu ára tímabili frá 1963-1983
unnu Sovétríkin fimmtán gullverð-
laun, tvenn silfurverðlaun og ein
bronsverðlaun á HM.
Á þessum tíma var atvinnu-
mönnum ekki leyft að keppa,
hvorki á HM né á Ólympíuleikum
og tef ldu þjóðir því fram áhuga-
mönnum, nema Sovétríkin. Stjórn-
völd í Sovétríkjunum voru með
fremstu íshokkíleikmenn landsins
samningsbundna hernum, en þeir
æfðu íshokkí daglega. Með því
var komið í veg fyrir að þeir færu
í atvinnumannadeildirnar þegar
kalda stríðið stóð yfir og samband
Þegar Davíð
felldi Golíat
Fjörutíu ár eru síðan lið Bandaríkjanna skipað
háskóladrengjum vann 4-3 sigur á hinu óstöðandi
liði Sovétríkjanna í íshokkíi á Ólympíuleikunum.
Sovéska vörnin verst einni af fáum sóknum bandaríska liðsins í leiknum.
Markvörður Bandaríkjanna ver eitt af 39 skotum Sovétríkjanna.
Bandaríska liðið fagnar sigrinum í leikslok. Stirt samband stjórnvalda Bandaríkjanna og Sovétríkjanna gerði það að verkum að andrúmsloftið var magnað þetta kvöld. MYND/GETTY
2 2 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Markvörður Banda-
ríkjanna, Jim Craig varði 36
skot af 39 í úrslitaleiknum.