Fréttablaðið - 22.02.2020, Blaðsíða 50
Nokkrar stöður tollvarða í Reykjavík eru lausar til umsóknar hjá
Tollgæslu Íslands. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi störf sem henta
jafnt konum sem körlum. Í tengslum við ráðningu þarf að þreyta þrí-
þætt inntökupróf, bæði skriflegt og líkamlegt, en nánari upplýsingar
um það er að finna á www.tollur.is. Gera má ráð fyrir að þeir sem kall-
aðir verða í inntökupróf mæti 5. eða 6. mars nk.
Starf tollvarða er fjölbreytt og getur t.d. falið í sér:
• Greiningu á áhættu í vöru- og farþegaflæði og úrvinnslu gagna.
• Sérhæfðar leitir svo sem í bílum, með hundum, gegnumlýsingarbúnaði o.s.frv.
• Almennt tolleftirlit á vettvangi, svo sem í skipum, flugvélum,
bílum, gámum, póstsendingum og með farþegum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða menntun sem má meta til slíks náms.
• Greiningarhæfileikar.
• Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Gott andlegt og líkamlegt atgervi.
• Samviskusemi, nákvæmni og traust vinnubrögð.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Almenn ökuréttindi.
• Hreint sakavottorð.
Reynsla og þekking úr öðrum störfum nýtist vel í starfi tollvarða. Háskólamenntun
er einnig eftirsóknarverð þar sem í mörgum verkefnum er áhersla á greiningar-
hæfni, talnalæsi, tölfræði, skýrslugerð og tölvufærni.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ársæll Ársælsson í síma 560-0300
eða með tölvupósti á arsaell.arsaelsson@tollur.is
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðunni www.starfatorg.is. Ferilskrá sem inniheldur
ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er
máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi. Launakjör eru sam-
kvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Tollvarðafélags Íslands.
Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2020 og verður öllum umsóknum svarað
þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar.
Tollvörður
Spennandi starf í lifandi umhverfi
Óskað er eftir tilboðum lögaðila í lóðina
Hrauntungu 5. Deiliskipulag fyrir lóðina tók
gildi 16. október 2019. Á lóðinni er heimilt að
byggja þrjú tveggja hæða íbúðarhús. Þar af tvö
parhús og eitt einbýlishús, samtals fimm
íbúðir. Á lóðinni standa tvö hús sem skulu
víkja. Tilboðsgjafi skal fjalægja hús af lóð.
Helstu upplýsingar
•Stærð lóðar er 2324,8 fm2
•Hámarksbyggingarmagn er 800 fm2
•Lágmarksverð er 45.122.394.-
Tilboð í lóð ásamt fylgigögnum þurfa að
berast fyrir kl. 10 mánudaginn 24. febrúar
2020. Upplýsingar um lóð er að finna á
hafnarfjordur.is undir leitarorðinu:
Lausar lóðir.
Nánar á hafnarfjordur.is
ÍBÚÐARHÚSALÓÐ
HRAUNTUNGA 5
hafnarfjordur.is585 5500
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær
RÉTT LITAMEÐFERÐ MERKIS
MERKI Í LIT
Tákn – 100% Pantone 371
eða samsvarandi CMYK gildi
Letur – Svart
TÁKN NOTAÐ EINGÖNGU
100% Pantone 371
ÞEGAR PRENTAÐ ER Í EINUM PRENTLIT
Tákn og letur – 100% Pantone 371
Mosfellsbær
Mosfellsbær
Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær
RÉTT NOTKUN
Mosfellsbær
SVART/HVÍTT
Tákn og letur – 100% svartur
ÞEGAR PRENTAÐ ER Í EINUM PRENTLIT
Tákn og letur negatíft á bakgrunni í 100% Pantone 371
TÁKN NOTAÐ EINGÖNGU
100% svartur
TÁKN TIL HLIÐAR VIÐ LETUR
Eingöngu til notkunar á reikningsform Mosfellsbær
Tákn og letur – negatíft í 100% svörtum bakgrunni
Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær
100% Pantone 371
100% svartur
100% Pantone 371
100% svartur
MERKI MOSFELLSBÆJAR
Höf. Kristín Þorkelsdóttir
TÁKN
A) Tilvísun til silfurs Egils Skallagrímssonar
Dóttir Egils, Þórdís, bjó að Mosfelli og dvaldi hann hjá henni síðustu árin.
Í nágrenni Mosfells á Egill að hafa falið silfursjóð sem Aðalsteinn hinn
sigursæli Englakonungur gaf honum.
Táknið er stílfærð mynd af þremur skjöldum sem prýddu bakhlið penings
sem var í umferð á tíma Aðalsteins hins sigursæla.
B) Þrír skildir fléttast saman og mynda samstöðu, sbr. þrjá byggðarkjarna
fyrrum Mosfellshrepps: Mosfellsdalur, Reykjahverfi og „niðursveitin“.
Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær
PANTONE 371
PANTONE 371
MERKI MOSFELLSBÆJAR
Höf. Kristín Þorkelsdóttir
TÁKN
A) Tilvísun til silfurs Egils Skallagrímssonar
Dóttir Egils, Þórdís, bjó að Mosfelli og dvaldi hann hjá henni síðustu árin.
Í nágrenni Mosfells á Egill að hafa falið silfursjóð sem Aðalsteinn hinn
sigursæli Englakonungur gaf honum.
Táknið er stílfærð mynd af þremur skjöldum sem prýddu bakhlið penings
sem var í umferð á tíma Aðalsteins hins sigursæla.
B) Þrír skildir fléttast saman og mynda samstöðu, sbr. þrjá byggðarkjarna
fyrrum Mosfellshrepps: Mosfellsdalur, Reykjahverfi og „niðursveitin“.
Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær
PANTONE 371
PANTONE 371
Tillögur að fjórum
deiliskipulagsbreytingum
Mosfellsbær auglýsir hér með fjórar breytingartillögur
að samþykktum deiliskipulögum, skv. 1. mgr. 43. gr.
Skipulagslaga nr. 123/2010.
EFRI REYKIR OG REYKHOLT 5
Breytingin felur í sér skiptingu núverandi lóða Efri Reykja og
Reykholts 5 í þrjár lóðir í stað tveggja. Nýja lóðin Reykholt 5A er 910
m2 og ætluð einbýlishúsi. Leyfilegt er að byggja allt að 300 m2 hús á
tveimur hæðum með tilliti til landhalla.
Er þetta fertugasta breytingin á gildandi deiliskipulagi fyrir byggð
með fram Varmá sem samþykkt var í bæjarstjórn 2004. Svæðið er
,íbúðabyggð‘ á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030.
FRÍS U D LÓÐIR ÚR LANDI MIÐDALS
Breytingin felur í sér að sex lóðum er bætt við núgildandi
deiliskipulag frístundabyggðar nær Selvatni. Lóðirnar sem bætast
við eru á bilinu 5.488 m2 til 7.500 m2, byggingar geta verið frá 130
m2 til 200 m2 eftir stærð lóðar. Skipulags og byggingarskilmálar eru
annars óbreyttir og haldast hinir sömu fyrir nýjar lóðir.
Umhverfisáhrif vegna uppbyggingar eru staðbundin, svæðið er vel
gróið og breytist ásýnd því lítið. Vegna nálægðar við Selvatn er 50 m
helgunarlína frá vatni virt. Svæðið er ,frístundabyggð‘ á aðalskipulagi
Mosfellsbæjar 2011-2030.
HESTAÍÞRÓTTASVÆÐI Á VARMÁRBÖKKUM
Breytingin felur í sér auka möguleikann á því að nýta betur núverandi
hesthúsahverfi og fjölga því lóðum og byggingarreitum um níu.
Þéttingin er bæði innan svæðis sem og í jaðri þess. Þessu fylgir síðan
færsla, hliðrun og viðbætur vega, reiðstíga og aðbúnaðar á svæðinu
til að bæta aðgengi og auka umferðaröryggi.
Um er að ræða færslu skipulagsmarka til suð-austurs og stækkar
því svæðið úr 16,21 ha. Í 16,24 ha. Fjölgun hesthúsa nemur 1.626 m2
í heildina sem gæti verið aukning um 275 hesta yfir vormánuðina.
Svæðið er ,opið svæði‘ á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030.
LUNDUR Í MOSFELLSBÆ
Skipulagið tekur til lögbýlisins Lundar í Mosfellsdal milli
Þingvallavegar og Kölduvkíslar L123710. Skipulagssvæðið er
tæpir 10 ha. Innan svæðisins er starfrækt gróðurhús. Svæðið er
,landbúnaðarland‘ á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030.
Breytingin felur í sér tilfærslu byggingarreita og sameiningu
þeirra. Innan skipulagsins má byggja tvö íbúðarhús með bílskúrum
að hámarki samanlagt 850 m2, gróðurhús og tengda starfsemi
hámarki 21.000 m2, smáhýsi fyrir starfsmenn samanlagt 600 m2 og
tilraunagróðurhús 2.500 m2.
Tillögurnar verða til sýnis í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2,
frá 24. febrúar 2020 til og með 10. apríl 2020, svo þeir sem þess óska
geta kynnt sér tillögurnar og gert við þær athugasemdir. Uppdrættir
eru einnig birtir á vef Mosfellsbæjar á slóðinni:
mos.is/skipulagsauglysingar.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til
skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbær,
eða í tölvupósti til undirritaðs eigi síðar en 10. apríl 2020.
22. febrúar 2020
Fh. Skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar
kristinnp@mos.is
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐNINGAR Starfsmenn eru lykill að árangri allra fyrirtækja.