Fréttablaðið - 22.02.2020, Síða 63
Í fyrstu meðferð
hverfa allra
minnstu æðarnar og þær
stærri dragast saman, í
næstu skipti er haldið
áfram þar til hægt er að
loka æðunum alveg.
Guðrún Jóhanna Friðriksdóttir hjá snyrtistofunni Hafbliki sérhæfir sig í háræða
slitsmeðferð með hljóðbylgjum.
Hún segir að fólk eigi ekki að þurfa
að sætta sig við háræðaskemmdir
það sem eftir er. „Margir sem
koma til mín eru búnir að gefa upp
vonina og halda að það sé engin
lausn. Flestir hafa prófað ýmsar
meðferðir eins og til dæmis laser
meðferð og halda að það sé eina
lausnin en það er langur vegur frá
því,“ segir Guðrún.
„Ég er með tæki sem notar hljóð
bylgjur sem vinna 100% á vanda
málinu. Tækið er með margar
sérhæfðar stillingar, eina fyrir
blóðblöðrur, aðra fyrir háræða
stjörnur, háræðaflækjur og svo
framvegis. Háræðaskemmdir geta
verið svo margslungnar.“
Yfirleitt þarf fólk að fara þrisvar
í gegnum ferlið til að háræðarnar
lokist alveg og fjórar til sex vikur
þurfa að líða á milli meðferða.
„Í fyrstu meðferð hverfa allra
minnstu æðarnar og þær stærri
dragast saman, í næstu skipti
er haldið áfram þar sem frá var
horfið þar til hægt er að loka
æðunum alveg,“ útskýrir Guðrún.
„Stundum þarf f leiri en þrjár með
ferðir á háræðastjörnur því það er
oft mikill kraftur í þeim. En þá er
frítt að koma í meðferð eftir þriðja
skiptið svo ég geti klárað að loka
æðunum alveg. Eftir það koma þær
ekki aftur og líkur á að fá nýjar
háræðaskemmdir minnka. Það
léttir á öllu kerfinu að vera laus
við skemmdirnar. Það kemur samt
ekki í veg fyrir að nýjar háræða
skemmdir myndist ef fólk fer ekki
varlega í sólinni eða miklu frosti
eða ef hormónaójafnvægi verður.
Hljóðbylgjurnar leita uppi blóð
próteinið í skemmdum háræðum
og þurrka það upp. Þannig er ég
bara að meðhöndla skemmdar
háræðar en ekkert annað í
kringum þær.“
Árangurinn vel sjáanlegur
Steinn Karlsson er einn þeirra sem
hafa fengið lausn á sínum vanda
hjá Guðrúnu á Snyrtistofunni Haf
bliki. Hann var með mjög miklar
háræðaskemmdir í andliti sem eru
nú næstum allar horfnar en konan
hans þakkaði Guðrúnu fyrir að
hafa yngt manninn sinn um mörg
ár.
„Ég þurfti að fara í frekar mörg
skipti og var lengi í einu. Þetta er
ekki sérlega þægilegt en árangur
inn er alveg vel sjáanlegur. Því er
ekki hægt að neita,“ segir Steinn.
Hann segist strax hafa séð mun
eftir fyrstu meðferð á þeim
svæðum sem Guðrún vann að í
það skipti. „Ég var kominn með
mjög miklar háræðaskemmdir og
eins og Guðrún orðaði það við mig
þá er ég mesta og stærsta lista
Hljóðbylgjur eru
varanleg lausn við
háræðaskemmdum
Háræðaskemmdir í andliti valda fólki oft miklum ama.
Háræðaslitsmeðferð með hljóðbylgjum hefur reynst
góð lausn á vandamálinu en hljóðbylgjurnar ná til svæða
sem ekki er hægt að meðhöndla með lasermeðferð.
Guðrún
Jóhanna
Friðriksdóttir
segir hljóðbylgj-
urnar leita uppi
blóðpróteinið
í skemmdum
háræðum og
þurrka það upp.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Steinn er eins og nýr maður eftir meðferðina.
Steinn var með mjög mikið af háræðaskemmdum í andliti.
verkið sem hún hefur gert fram að
þessu. Þannig að hjá mér tók þetta
nokkra mánuði. Maður þurfti tíma
til að jafna sig inn á milli. Ég var
smá rauður og aumur rétt á eftir en
það var fljótt að jafna sig. Guðrún
ráðlagði mér að nota krem talsvert
á eftir og ég var duglegur við það
fyrsta árið,“ segir Steinn.
Steinn segist hafa rekist á aug
lýsingu um meðferðina og ákvað
að forvitnast um hana. „Ég kíkti
til Guðrúnar og við bara drifum
okkur í þetta. Meðferðin var ólík
því sem ég hafði ímyndað mér.
Það þarf þolinmæði þegar slitið
er svona mikið. En Guðrún var
búin að segja mér að árangurinn
yrði góður, hún myndi ekki hætta
fyrr og hún gerði það ekki. Enda
er árangurinn ótvíræður enn þá
rúmu ári seinna.“
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 2 2 . F E B R ÚA R 2 0 2 0