Morgunblaðið - 18.12.2019, Side 2

Morgunblaðið - 18.12.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019 Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 19.990 3 LITIRÞÚ VELUREINN:) VERÐ ÁÐ UR 21.980 JÓLA TILBOÐLENOVO TAB M7Höggvarin 7” spjaldtölva og þráðlaus heyrnartól FRÍTT SENDUM ALLAR VÖR UR ALLT AÐ 10 kg ALLA DAGATIL JÓLA OPIÐ10-19 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tveir menn slösuðust um borð í hrað- skreiðum léttbáti nýja Herjólfs 17. júlí í sumar. Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa, siglingasviðs, segir um atvikið að slysið megi rekja til skorts á viðeigandi þekkingu báts- verja og þjálfunarleysis á bátnum, auk þess sem siglingahraði hafi verið of mikill miðað við aðstæður. Atvikum er lýst þannig að þegar ferjan var fyrir utan höfnina hafi verið ákveðið að tveir starfsmenn útgerðar- innar, sem erindi áttu í land, yrðu fluttir þangað með hraðskreiðum létt- báti skipsins sem einnig var verið að framkvæma prófanir á. Á leiðinni í land fór báturinn, sem var með þrýsti- drifi, fram af báru með þeim afleið- ingum að starfsmennirnir tveir slös- uðust. Annar enn frá vinnu Annar mannanna fékk brot í hryggjarlið og samfallna tvo hryggj- arliði, en hinn fékk samfallsbrot, brjósklos og rófubein brotnaði. Samkvæmt upplýsingum frá Guð- bjarti Ellert Jónssyni, framkvæmda- stjóra Herjólfs, er annar mannanna enn að glíma við eftirköst slyssins og hefur ekki snúið aftur til starfa. Hinn maðurinn meiddist minna og missti ekkert úr vinnu. Skýrsla RNS var afgreidd á fundi síðasta föstudag og segir í henni að við rannsókn hafi komið fram að skip- verjar Herjólfs hafi verið að prófa bátinn og sjósetja hann í fyrsta skipti. Fjórir skipverjar af Herjólfi og tveir starfsmenn útgerðarinnar voru fremst í léttbátnum og skall annar þeirra sem slösuðust með höfuðið í málmstykki fremst á léttbátnum og féll síðan í botninn á honum. Hinn sat á botninum þegar báturinn sigldi fram af bárunni. Enginn af áhöfn léttbátsins hafði hlotið sérstaka þjálfun í notkun á hraðskreiðum léttbátum en Slysa- varnaskóli sjómanna býður upp á námskeið í notkun þeirra. Í skýrsl- unni er bent á að samkvæmt SOLAS- samþykkt um öryggi mannslífa á haf- inu eigi að lágmarki tveir skipverjar að vera í áhöfn sem hafa hlotið þjálfun í meðferð hraðskreiðra léttbáta og stunda reglulegar æfingar á þannig bátum. Vindur var 4-5 metrar af aust- norðaustri og ölduhæð einn metri þegar óhappið varð. Fram kemur í skýrslunni að sam- kvæmt upplýsingum frá skipstjóra hefur hluti áhafnar lokið námskeiði bæði fyrir líf- og léttbáta og hrað- skreiða léttbáta eftir atvikið en til stendur að senda fleiri. Í áhöfn Herj- ólfs voru 10 skipverjar í þessari ferð en aðeins fjórir þeirra voru lögskráð- ir. Skýringar fengust ekki á því. Siglingar hafa gengið vel Aðspurður segir Guðbjartur að siglingar Herjólfs í Landeyjahöfn hafi gengið mjög vel í vetur. Í heildina hafi veður og sjólag verið hagstætt frá því að nýja ferjan var tekin í notk- un 25. júlí og dýpið við höfnina ekki takmarkað siglingar. Á þessu tímabili segir Guðbjartur að ferðir í Land- eyjahöfn hafi fallið niður í 20 daga, fyrst og fremst vegna lagfæringa á nýju ferjunni og uppsetningar á raf- búnaði og tengingum. Hluta þess tíma hafi gamli Herjólfur ekki getað siglt í Landeyjahöfn vegna veðurs. Tveir menn slösuðust um borð í léttbáti Herjólfs  Siglt of hratt  Þekkingu skorti Ljósmynd/Frá RNS Slys Léttbáturinn siglir fram af bárunni við Landeyjahöfn. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sent for- seta Evrópuráðsþingsins erindi þar sem vakin er athygli á því að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þing- maður Pírata, hafi gerst brotleg við siðareglur fyrir alþingismenn, fyrst þingmanna. Bréfið var sent 9. des- ember sl. og stílað á Liliane Maury Pasquier, forseta þingsins. „Mér finnst mikilvægt að gera við- vart um þessi brot þingmannsins. Þórhildur Sunna rækti ekki störf sín af ábyrgð, heilindum og heiðarleika samkvæmt áliti forsætisnefndar og siðanefndar,“ segir Ásmundur í sam- tali við Morgunblaðið og bætir við að Evrópuráðsþingið ætti nú að íhuga aðgerðir gagnvart þingmanninum í ljósi þessa, en Þórhildur Sunna er varaformaður Íslandsdeildar Evr- ópuráðsþingsins og formaður laga- og mannréttindanefndar Evrópu- ráðsþingsins. „Evrópuráðsþingið hefur ítrekað lagt mikla áherslu á það við aðildar- ríki sín að þau setji siðareglur fyrir alþingismenn sem feli jafnframt í sér viðurlög. Þá hefur Evrópuráðsþingið sjálft sett sér siðareglur þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum, til dæmis skerðingu réttinda innan þingsins,“ segir Ásmundur. Þá bendir hann einnig á að Evrópuráðsþingið hafi áður látið sig varða skipan Íslandsdeildar. Í samræmi við það ætti þingið nú einnig að láta sig það varða þegar Íslandsdeildin skipar þingmann sem gerst hefur brotlegur við siða- reglur alþingismanna. Skaðaði ímynd Alþingis Umrædd ummæli Þórhildar Sunnu féllu í viðtali í Silfrinu 25. febrúar 2018. Komst hún svo að orði að uppi væri „rökstuddur grunur“ um að Ásmundur Frið- riksson hefði „dregið sér fé, al- mannafé“ þegar rætt var um akst- ursgreiðslur til Ásmundar. Að mati siðanefndar voru ummæli Þórhild- ar Sunnu til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess. Á þetta mat nefndarinnar er meðal annars bent í bréfinu til Evrópu- ráðsþingsins. Vekur athygli á broti Þórhildar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Ásmundur Friðriksson  Evrópuráðsþingið íhugi aðgerðir „Við ætlum að telja niður 500 bestu lögin frá áttunda, níunda og tíunda áratugunum á Retró milli jóla og nýárs. Þetta er heljarinnar verk- efni og unnið myrkranna á milli við að koma saman listanum, sem er reiknaður út frá alls konar formúl- um og breytum.“ Þetta segir Sig- urður Þorri Gunnarsson, dagskrár- og tónlistarstjóri útvarpsstöðvanna K100 og Retró 89,5. Hann situr nú langt fram á nætur og raðar saman vinsælustu lögum umræddra ára- tuga. „Þetta er gert til þess að endur- ræsa Retró, sem hefur verið jóla- stöð núna í aðdraganda jóla. Stöðin spilar alla jafna bestu tónlistina frá 1970 til 2000 en hefur undanfarið helgað sig jólalögunum,“ segir Sig- urður. Retró hefur verið að sækja mjög í sig veðrið í hlustun á þessu ári og það er greinilegt að það er hljóm- grunnur fyrir þessum gömlu og góðu. „Við ætlum að fara enn lengra á nýju ári með stöðina og þessi listi er liður í að vekja enn meiri athygli á henni,“ segir Sig- urður. Spurður hvað einkenni 500 vin- sælustu lögin segir Sigurður að sumt komi á óvart, annað ekki. „Það er samt alveg klárt að það verða ekki allir sammála um hvaða lög eigi að vera efst á listanum. Ég hlakka alla vega til að hlusta. Þetta verður mjög skemmtilegt og um að gera að hafa útvarpið í gangi milli jóla og nýárs. Við hefjum leik klukkan átta föstudagsmorguninn 27. desember. Niðurtalningunni lýkur klukkan 18 mánudaginn 30. desember. Við munum telja niður alla dagana fram að því yfir dag- inn.“ Hlustendur eru hvattir til að senda inn sína tillögu að lagi á heimasíðunni retro895.is. Vinsælustu lög allra tíma á Retró Sigurður Þorri Velur 500 lög. Jólahlé var gert á fundum Alþingis í gær og var þingfundum frestað til 20. janúar 2010. Þingið samþykkti í gær að lengja fæðingarorlof úr níu mánuðum í tólf. Það verður gert í tveimur skref- um. Það fyrra vegna barna sem fæðast, eru ætt- leidd eða tekin í varanlegt fóstur á næsta ári og það síðara vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í fóstur 1. janúar 2021 eða síðar. Alþingi samþykkti m.a. lög um tímabundnar endur- greiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, lög um sviðslistir, lög um skráningu raunverulegra eigenda, lög um landlækni og lýðheilsu, lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar o.fl. og lög um kynrænt sjálfræði. Einnig veitti Alþingi 24 einstaklingum íslenskan ríkisborgararétt. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, fór yfir gang mála á haustþinginu í ávarpi í gær. Hann sagði að þingið hefði verið starfsamt. Nú hefði verið afgreiddur mesti fjöldi mála fyrir ára- mót frá 120. þingi árið 1995. Framlögð stjórnar- frumvörp voru 64 og stjórnartillögur 19 talsins. Fjöldi þingmannamála var lagður fram eða 93 frumvörp og 99 tillögur. Auk þess lögðu nefndir fram níu mál. Af þessum fjölda urðu 30 stjórn- arfrumvörp að lögum og 15 stjórnartillögur voru samþykktar. Þá urðu tvö þingmannafrumvörp og níu nefndafrumvörp að lögum. Fimm þingmanna- tillögur voru samþykktar. „Það er sérstakt ánægjuefni og er til fyrirmynd- ar hversu tímanlega Alþingi tókst að afgreiða fjár- lög og var afgreiðsla þeirra að fullu í samræmi við starfsáætlun. Sama gildir um flest fjárlagatengd mál. Samþykkt fjárlaga 27. nóvember sl. var í reynd tímamótaviðburður því fjárlög komandi árs hafa ekki áður verið samþykkt svo snemma,“ sagði forseti Alþingis. Hann sagði það hafa verið nokkur vonbrigði hvað mörg frumvörp frá ríkisstjórn komu seint fram og seinna en þingmálaskrá gerði ráð fyrir. gudni@mbl.is Mesti fjöldi mála frá 1995  Jólahlé var gert á fundum Alþingis í gær  Fæðingarorlof lengt í áföngum Morgunblaðið/Eggert Alþingi Þingmenn kvöddust fyrir jólafrí í gær. „Þetta var ekk- ert venjulegt veður en það breytir því ekki að við verðum að vera undirbúin og þetta minnir okkur á hvar við búum,“ sagði Katrín Jakobs- dóttir í gær þeg- ar hún flutti munnlega skýrslu á Alþingi um af- leiðingar óveðursins í síðustu viku. Hún sagði m.a. að horfa þyrfti aftur til ársins 1973 til að finna álíka norðanveður. Katrín sagði skelfi- legt þegar ofsaveður ylli mann- skaða. Slíkt tjón yrði aldrei bætt. Hún nefndi veraldlegt tjón og sérstaklega rafmagnsleysið sem hefði haft ótrúlega mikil áhrif. johann@mbl.is, gudni@mbl.is „Þetta var ekkert venjulegt veður“ Katrín Jakobsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.