Morgunblaðið - 18.12.2019, Side 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
KRISTALSLJÓSAKRÓNUR
í Glæsibæ
Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir
falleg heimili. Handskornar kristals-
ljósakrónur, veggljós, matarstell,
kristalsglös til sölu.
BOHEMIA KRISTALL,
Glæsibær. Sími 7730273
Til sölu
Raðauglýsingar
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkti þann 12. desember sl. að auglýsa eftirfarandi deiliskipulagstillögur, skv. 1. mgr.
41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lambafell – Deiliskipulagstillaga
Um er að ræða nýtt deiliskipulag, um 6,0 ha að stærð, fyrir hluta jarðarinnar Lambafell L163699 og Lambafell lóð 8 L200484.
Skilgreind verður ein ný lóð, Lambafell 2 þar sem áformað er að reisa hótel með allt að 60 herbergjum fyrir allt að 130 gesti ásamt
gestamóttöku, veitingasölu, aðstöðu fyrir starfsmenn auk heilsulindar. Lambafell lóð 8 verður stækkuð og útbúnir tveir byggingarreitir.
Á byggingarreit B-01 er gert ráð fyrir 25 smáhýsum til útleigu með heildarbyggingarmagni allt að 350 m2 og gistirými fyrir allt að 50
manns. Á byggingarreit B-02 stendur gamla bæjarhúsið sem verður nýtt sem þjónustumiðstöð. Einnig verður heimild fyrir stækkun
gamla íbúðarhússins um allt að 50 m2. Að auki er gert ráð fyrir allt að 50 m2 aðstöðuhúsi og baðaðstöðu.
Ofangreinda deiliskipulagstillögu er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags-
og byggingarfulltrúa frá 18. desember 2019. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera
athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 29. janúar 2020. Athugasemdum skal skila skriflega á
skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.
F.h. Rangárþings eystra
Guðmundur Úlfar Gíslason
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfisalur-
inn er opinn milli kl. 9.30-11.30. Jóga 60+ með Grétu kl. 12.15 og
13.30. Aðventusöngsund við píanóið með Helgu kl. 13.45. Kaffi kl.
14.30-15. Bókaspjall með Hrafni kl. 15. Nánari uppl. í síma 411-2702.
Árbæjarkirkja Opið hús, félagsstarf fullorðinna, í safnaðarheimili
kirkjunnar kl. 13 til 15. Barna- og unglingakór Árbæjarkirkju ætlar að
syngja með okkur jólalög og eiga með okkur notalega stund í aðdrag-
anda jóla. Fáum okkur heitt súkkulaði og smákökur og þeir sem eiga,
endilega koma í jólapeysu. Allir hjartanlega velkomnir.
Árskógar 4 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15.
Brids kl. 12. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Innipútt og
rafpíla kl. 13-14. Þáttur úr STIKLUM kl. 14.14-14.45. Hádegismatur kl.
11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir.
Sími 535-2700.
Dalbraut 18-20 Samverustund í borðsal kl. 14 með sr. Davíð Þór frá
Laugarneskirkju. Handavinnusamvera með Rannveigu kl. 9.30 í vinnu-
stofu. Jólastemmning og huggulegheit.
Dalbraut 27 Boctsía kl. 14 í parketsal.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Ljóða-
hópur kl. 10-12. Hádegismatur kl. 11.30. Jólaball með jólasveini og
börnum af leikskólanum JÖRFA kl. 13.30. Sungið og dansað kringum
jólatréð í borðsalnum. Heitt súkkulaði og smákökur í boði hússins.
Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Minigolf kl. 10. Tölvu- og snjallsíma-
aðstoð kl. 10.30. Kvikmyndasýning kl. 12.45. Frjáls spilamennska kl.
13-16.30. Hádegismatur frá kl. 11.30-12.30 alla daga vikunnar og kaffi
frá kl. 14.30-15.30 alla virka daga. Nánari upplýsingar í síma 411-9450.
Verið öll velkomin.
Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl.
13. Vatnsleikfimi kl. 7.10/7.50/15.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 9.30.
Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 10.30. Jólafrí stólajóga, Jólafrí zumba.
Gerðuberg 3-5 111 Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður
með leiðbeinanda kl. 9-16. Qigong kl. 10-11. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-
11.30. Útskurður /pPappamódel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist
kl. 13-16. Döff félag heyrnarlausra kl. 12.30-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 félagsvist.
Guðríðarkirkja Litlu jólin félagsstarf eldri borgara miðvikudaginn
18. desember kl. 13:10. Helgistund í kirkjunni og syngjum jólasálma.
Páll Benedikt kemur í heimsókn og les upp úr bók sinni um síldar-
árin. Heitt súkkulaði og meðlæti 700 kr.
Gullsmári Myndlist kl. 9. Gönguhópur kl. 10.30. Postulínsmálun,
kvennabrids og silfursmíði kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Botsía kl. 10–11. Útskurður með leiðbeinanda, kl. 9-12, 500 kr. skiptið,
allir velkomnir. Opin handavinna kl. 9–14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga frá kl. 8-12. Kl 11 línudans, kl.
13 bingó, kl. 13 handverk.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Zumba með Carynu kl. 12.30. Frjáls spilamennska kl.
13. Handavinnuhópur kl. 13-16.
Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag í Egilshöll og gengið frá Borgum, keila í
Egilshöll kl. 10 í dag, frjáls spilamennska og qigong með Þóru Hall-
dórsdóttur kl. 16.30 í dag í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, opin lista-
smiðja, morgunleikfimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl.
10.30-12, upplestur kl.11, félagsvist kl.13.30, heimildarmyndasýning
kl. 16. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Gler / bræðsla kl. 9 og 13 á neðri hæð félagsheimilis-
ins. Leir Skólaraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum
kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Valhúsaskóla kl.
13. Í dag kl. 14.30 verður söngur og súkkulaði í salnum á Skólabraut.
Samverustund í aðdraganda jóla. Nemendur úr Tónlistarskólanum,
söngur og upplestur. Allir hjartanlega velkomnir ásamt gestum.
Stangarhylur 4, Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl.
10, kaffi og rúnnstykki eftir göngu.
Vantar þig
hjólbarða?
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ GuðmundurViggó Sverr-
isson fæddist á
Setbergi á Skógar-
strönd 4. október
1938. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 13. des-
ember 2019.
Foreldrar hans
voru Sverrir Guð-
mundsson, f. 1910,
d. 1986, og Ólöf
Guðrún Guðbjörnsdóttir, f.
1915, d. 2003. Systkini Guð-
mundar eru: Jón Ingiberg, f.
1934, d. 2000. Ólafur, f. 1940.
Gunnar Guðbjörn, f. 1943, d.
2002. Hulda, f. 1945. Þórdís
Ingibjörg, f. 1946, d. 2011.
Bjarnfríður, f. 1952.
Guðmundur giftist 9. júní
1973 eftirlifandi eiginkonu
sinni Ástu Angelu Grímsdótt-
ur, f. 25. nóvember 1950. For-
eldrar hennar voru Grímur
Hallgrímsson, f. 1919, d. 1984,
og Elínrós Eiðsdóttir, f. 1919,
d. 1957. Saman eiga þau fjögur
börn, þau eru: 1. Matthildur
Ólöf, f. 1974, gift Skúla Péturs-
syni, f. 1971. Þau
eiga þrjú börn og
eitt barnabarn. 2.
Fanney Elínrós, f.
1976, gift Gunnari
Ellertssyni, f.
1974, þau eiga sex
börn, þar af eitt
látið, og tvö barna-
börn. 3. Pálmi
Grímur, f. 1977, í
sambúð með
Bjarneyju Katrínu,
f. 1980, eiga þau tvær dætur og
á Pálmi tvö börn af fyrra sam-
bandi, þar af eitt látið. 4. Guð-
mundur Eiður, f. 1982, d. 2006.
Guðmundur átti einn son,
Sverri, f. 1968, af fyrra sam-
bandi með Sigríði Jóhanns-
dóttur.
Guðmundur og Ásta bjuggu í
Stóra-Langadal til ársins 1978,
síðan í Hrísey til ársins 1981.
Fluttu þá í Stykkishólm og
voru þar til ársins 1986. Fluttu
þá til Hafnarfjarðar þar sem
þau hafa búið síðan.
Útför Guðmundar verður
gerð frá Víðistaðakirkju í dag,
18. desember 2019, klukkan 15.
Elsku pabbi minn, hvað get ég
sagt? 13. desember fékkstu hvíld-
ina sem þú varst búinn að bíða eft-
ir lengi miðað við þín veikindi.
Varst löngu búinn að fá nóg og
varst hvíldinni feginn og þvílíkur
friður yfir þér. Ég veit að þér líður
betur núna en eftir sitjum við hin
með sorgina. Takk fyrir öll 43 árin
sem þú gafst mér, elsku pabbi, án
þín væri ég ekki hér. Nú kveð ég
að sinni sjáumst síðar, pabbi minn.
Elska þig endalaust
Lát opnast himins hlið,
þá héðan burt ég fer,
mitt andlát vertu við
og veit mér frið hjá þér.
Þá augun ekkert sjá
og eyrun heyra’ ei meir
og tungan mæla’ ei má,
þá mitt þú andvarp heyr.
(V. Briem )
Þín dóttir
Fanney Elínrós.
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi
minn
vegir okkar skiljast núna, við sjáumst
ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum okkar
hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu, okkar
ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og
góðleg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og lítur
okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara
það ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú
á braut
gleði og gæfa okkur fylgdi með þig
sem förunaut.
Og ferðirnar sem fórum við um landið
út og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Guðrún Sigurbjörnsdóttir)
Hvíl þú í friði, elsku pabbi
minn, og takk fyrir allt.
Þín dóttir,
Matthildur Ólöf.
Guðmundur Viggó
Sverrisson
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát