Morgunblaðið - 18.12.2019, Side 24
VIÐTAL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Handknattleiksþjálfarinn Gunnar Magnússon átti
sviðið í íþróttafréttum gærdagsins. Gunnar
greindi frá því að hann myndi ljúka störfum hjá
Haukum næsta sumar og taka við karlaliði Aftur-
eldingar.
„Ég er á mínu fimmta ári hjá Haukum. Í þessu
starfi er viss kúnst að finna rétta tímapunktinn til
að söðla um og erfitt að segja til um hvenær hann
er. Ég tók í raun þá ákvörðun síðasta sumar að
þetta tímabil yrði mitt síðasta með Haukaliðið. Ég
velti því aftur fyrir mér í október og nóvember og
komst að sömu niðurstöðu. Þetta er góður tíma-
punktur fyrir mig og félagið að láta staðar numið
eftir fimm ár,“ sagði Gunnar þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann í gær. Starfsumhverfi
þjálfara í íþróttunum er ekki það öruggasta sem
fyrirfinnst á atvinnumarkaði og ákvörðun sem
þessa ná ekki allir að taka á eigin forsendum.
„Í því felast ákveðin forréttindi að geta kvatt fé-
lagið og leikmennina í góðu. Sérstaklega við þess-
ar aðstæður þegar liðinu gengur vel og allt er í
blóma. Maður er ungur ennþá og á nóg eftir í
þjálfun. Ég kem þá frekar aftur seinna og þjálfa
hjá Haukum. Mér hefur fundist algerlega frábært
að starfa hjá Haukum. Þess vegna vil ég skilja vel
við og halda dyrunum opnum þannig að maður
gæti snúið aftur síðar frekar en að vera of lengi í
einu því menn lenda oft í því í þessu starfi að
brenna inni. Sjálfur hef ég aldrei verið lengur en
fimm ár í starfi sem þessu og tel það vera ágætt
viðmið.“
Gott starf unnið í Mosó
Gunnar þjálfar meistaraflokk karla hjá Hauk-
um en er einnig íþróttastjóri handknattleiks-
deildar. Hjá Aftureldingu bíður hans að þjálfa
meistaraflokk karla en einnig yfirþjálfarastarf
fyrir yngri flokka.
„Starf mitt hjá Aftureldingu verður mjög svip-
að og hjá Haukum. Ég mun taka þátt í að móta af-
reksstefnu félagsins og byggja upp yngriflokka-
starfið. Í Mosfellsbænum er mikill metnaður og
ég kannast við marga sem koma að starfinu hjá
Aftureldingu. Það hjálpar til.
Ég veit að þar hefur verið unnið gott starf und-
anfarin ár. Fyrir mig er spennandi að vera áfram í
metnaðarfullu umhverfi. Þegar maður hefur verið
hjá Haukum í fimm ár er ekki auðvelt að fara í
annað lið en metnaðurinn er mikill í Mosfells-
bænum og við munum reyna að halda áfram því
góða starfi sem þar hefur verið unnið af Einari
Andra Einarssyni og fleirum. Þegar maður veit að
tekið er við góðu búi þá hefur það mikið að segja,“
sagði Gunnar.
Velti þessu fyrir sér í sumar
Þegar Gunnar hafði gert upp hug sinn og náð
samkomulagi við Mosfellinga vildi hann hafa þau
mál uppi á borðum þótt enn sé seinni helmingur
tímabilsins eftir.
„Ég var ekkert að opinbera til að byrja með að
ég gæti hugsað mér að hætta hjá Haukum næsta
sumar. En ég hef verið í góðu sambandi við Þor-
geir (Haraldsson) og Aron (Kristjánsson). Þeir
hafa verið vel upplýstir allan tímann og hafa skiln-
ing á þessu. Mörgum finnst það vera skrítinn
tímapunktur að semja um þjálfun hjá öðru liði á
næsta tímabili þegar þetta tímabil er aðeins hálfn-
að. Mér finnst hins vegar mikilvægt að vera heið-
arlegur gagnvart leikmönnum og öllum sem eru í
kringum liðið hjá Haukum. Allt einstaklingar sem
ég hef átt frábært samstarf við.
Að ekki sé eitthvert leynimakk á bak við tjöldin
sem kæmi í ljós eftir tímabilið. Ég vil frekar hafa
hlutina uppi á borðum og fara ekki á bak við einn
eða neinn. Auk þess þarf maður að taka ákvarð-
anir með einhverjum fyrirvara því þetta er jú mín
atvinna. Eru þetta helstu ástæður þess að ég gekk
frá mínum málum á þessum tímapunkti og til-
kynnti það.“
Ekki laus við útþrá
Gunnar fæddist árið 1977 en hefur verið meist-
araflokksþjálfari um langa hríð. Hefur stýrt
karlaliðum hjá Víkingi, Víkingi/Fjölni, HK, ÍBV
og Haukum auk þess að hafa verið í þjálfarateymi
karlalandsliðsins í mörg ár og stýrt kvennaliði
Fylkis/ÍR. Gunnar hefur unnið bikara með fé-
lagsliðum og til verðlauna með landsliðinu. Þar
sem íslenskir handboltaþjálfarar hafa gert
strandhögg erlendis síðasta áratuginn sérstak-
lega vaknar sú spurning hvort útþráin blundi ekki
í Gunnari?
„Jú, það blundar svo sem í manni að fara í
stærri deildir í Evrópu eins og þá dönsku eða þá
þýsku. Maður skoðar reglulega hvað er í boði og
þegar maður hefur metnað fyir þjálfuninni kitlar
sú tilhugsun að reyna sig úti í heimi. Einhvern
tíma í framtíðinni væri það spennandi en hug-
urinn er heima næstu árin. Það er alveg ljóst. Ég
er þriggja barna faðir og með stóra fjölskyldu.
Ekki er hlaupið að því að rífa fjölskylduna upp,“
sagði Gunnar en hann segist aldrei hafa verið í
þeirri stöðu að fara í samningaviðræður við erlend
félög. Fyrst og fremst hafi verið þreifað á honum
að utan í gegnum tíðina.
„Ég var auk þess með langan samning við
Hauka og var ánægður í því starfi. Að þjálfa
Haukaliðið er í raun draumastarfið í handbolt-
anum hér heima.“
Tekur við Aftureldingu næsta sumar
Heppilegt að söðla um eftir fimm ár
Herforinginn Gunnar Magnússon
leggur á ráðin með sínum mönnum
í KA-heimilinu á Akureyri í vetur.
Ekkert leynimakk hjá
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2019
Heimsbikar félagsliða
Undanúrslit í Doha:
Flamengo – Al-Hilal ................................ 3:1
De Arrascaeta 49., Henrique 78., sjálfs-
mark 82. – Al-Dawsari 18.
Flamengo mætir Liverpool eða Monter-
rey í úrslitaleik á laugardaginn en Al-Hilal
leikur um bronsverðlaunin.
Leikur um 5. sætið:
Al-Sadd – Esperance Túnis..................... 2:6
England
Deildabikarinn, átta liða úrslit:
Aston Villa – Liverpool ............................ 5:0
Þýskaland
Augsburg – Fortuna Düsseldorf ........... 3:0
Alfreð Finnbogason lék ekki með Augs-
burg vegna meiðsla.
Werder Bremen – Mainz ......................... 0:5
Union Berlín – Hoffenheim..................... 0:2
Dortmund – RB Leipzig .......................... 3:3
Staðan:
RB Leipzig 16 10 4 2 45:19 34
Mönchengladb. 15 10 1 4 31:18 31
Dortmund 16 8 6 2 40:22 30
Schalke 15 8 4 3 26:18 28
Bayern M. 15 8 3 4 41:21 27
Freiburg 15 7 4 4 24:18 25
Leverkusen 15 7 4 4 22:20 25
Hoffenheim 16 7 3 6 23:27 24
Wolfsburg 15 6 5 4 17:15 23
Augsburg 16 6 5 5 27:28 23
Union Berlin 16 6 2 8 19:22 20
E.Frankfurt 15 5 3 7 24:23 18
Mainz 16 6 0 10 25:38 18
Hertha Berlín 15 4 3 8 21:29 15
Werder Bremen 16 3 5 8 23:40 14
Düsseldorf 16 3 3 10 16:35 12
Köln 15 3 2 10 14:30 11
Paderborn 15 2 3 10 18:33 9
Holland
Bikarkeppnin, 32 liða úrslit:
Excelsior – Eindhoven............................ 0:2
Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelsior.
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Blue-höllin: Keflavík – Grindavík ............ 18
Origo-höllin: Valur – Haukar ................... 18
Smárinn: Breiðablik – Skallagrímur .. 19.15
DHL-höllin: KR – Snæfell................... 19.15
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Origo-höllin: Valur – Haukar .............. 20.15
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
Danmörk
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Aalborg – GOG .................................... 24:25
Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk
fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er
frá vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoð-
arþjálfari liðsins.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði eitt
mark fyrir GOG, eins og Arnar Freyr Arn-
arsson. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 13
skot.
Svíþjóð
Varberg – Alingsås ............................. 25:31
Aron Dagur Pálsson skoraði þrjú mörk
fyrir Alingsås.
1. deild kvenna
ÍR – Fjölnir ........................................... 57:64
Hamar – Keflavík b ................... (frl.) 104:98
Grindavík b – Njarðvík ........................ 51:90
Staðan:
Fjölnir 12 9 3 893:765 18
Keflavík b 12 8 4 898:855 16
Tindastóll 12 8 4 813:781 16
ÍR 12 7 5 756:676 14
Njarðvík 12 7 5 789:676 14
Hamar 12 2 10 710:865 4
Grindavík b 12 1 11 640:881 2
Svíþjóð
Norrköping – Borås ............................ 73:83
Elvar Már Friðriksson skoraði 14 stig,
tók þrjú fráköst og gaf níu stoðsendingar á
tæpum 34 mínútum hjá Borås.
NBA-deildin
Detroit – Washington....................... 119:133
Toronto – Cleveland......................... 133:113
Milwaukee – Dallas .......................... 116:120
Oklahoma City – Chicago ................ 109:106
Houston – San Antonio .................... 109:107
Memphis – Miami............................. 118:111
Phoenix – Portland........................... 110:111
Staðan í Austurdeild:
Milwaukee 24/4, Philadelphia 20/8, Boston
17/7, Miami 19/8, Toronto 18/8, Indiana
18/9, Brooklyn 14/12, Orlando 12/14, Char-
lotte 12/17, Detroit 11/16, Chicago 10/19,
Washington 8/17, Cleveland 6/21, New
York 6/21, Atlanta 6/21.
Staðan í Vesturdeild:
LA Lakers 24/3, LA Clippers 20/8, Dallas
18/8, Denver 17/8, Houston 18/9, Utah 15/
11, Sacramento 12/14, Oklahoma City 12/
14, Phoenix 11/15, Portland 11/16, Minne-
sota 10/15, San Antonio 10/16, Memphis 10/
17, New Orleans 6/21, Golden State 5/23.
KÖRFUBOLTI
Suður-Ameríkumeistarar Flam-
engo leika til úrslita í heimsbikar
félagsliða í fótbolta eftir 3:1-sigur á
Asíumeisturum Al-Hilal Saudi í
undanúrslitunum á Khalifa-
vellinum í Katar í gærkvöldi. Bras-
ilíska liðið er að taka þátt í keppn-
inni í fyrsta skipti og getur því orð-
ið heimsmeistari félagsliða í fyrsta
sinn í sögunni.
Úrúgvæski landsliðsmaðurinn
Giorgian De Arrascaeta og Bruno
Henrique skoruðu fyrstu tvö mörk
Flamengo og þriðja markið var
sjálfsmark.
Á laugardag freistar Flamengo
þess til að verða fyrsta liðið utan
Evrópu til að landa heimsbikar-
meistaratitlinum síðan Corinthians
vann 1:0-sigur á Chelsea í úrslitum
2012. Evrópumeistarar Liverpool
og Norður-Ameríkumeistarar Mon-
terrey mætast í síðari undanúrslita-
leiknum í kvöld.
AFP
Markaskorari Bruno Henrique skoraði annað mark Flamengo í Katar.
Brassarnir í úrslit
Ljubomir Vranjes, þjálfari sænska handknattleiksliðsins
Kristianstad sem Ólafur Guðmundsson og Teitur Örn
Einarsson leika með, hefur verið ráðinn þjálfari karla-
landsliðs Slóveníu. Hann mun stýra slóvenska liðinu á
Evrópumótinu sem hefst 9. janúar en þar eru Slóvenar
einmitt í riðli með Svíum og Vranjes, sem var lengi í sig-
ursælu landsliði Svía, þarf því að stýra sínu nýja liði
gegn löndum sínum. Slóvenar leika í F-riðli keppninnar í
Gautaborg, þar sem Vranjes er fæddur og uppalinn, og
mæta Pólverjum í fyrsta leik 10. janúar en síðan Svíum
og Svisslendingum.
Vranjes, sem heldur áfram þjálfun Kristianstad þrátt
fyrir þetta aukaverkefni, var lengi leikstjórnandi sænska landsliðsins og
varð Evrópumeistari með liðinu 1998, 2000 og 2002 og heimsmeistari 1999.
Hann hefur áður stýrt landsliðum Ungverjalands og Serbíu og þjálfað
Veszprém í Ungverjalandi og Flensburg í Þýskalandi. Hann vann Meist-
aradeild Evrópu með Flensburg árið 2014. vs@mbl.is
Vranjes á heimavelli á EM
Ljubomir
Vranjes
Hinn íslenskættaði Hans Óttar Lindberg er elstur og
reyndastur í 19 manna landsliðshópi Dana sem Nikolaj
Jacobsen landsliðsþjálfari tilkynnti í gær fyrir Evr-
ópukeppnina í næsta mánuði. Heimsmeistaralið Dan-
merkur mætir Íslandi í fyrstu umferð riðlakeppninnar í
Malmö í Svíþjóð laugardaginn 11. janúar.
Hornamaðurinn Hans Óttar, sem á íslenska foreldra,
er orðinn 38 ára gamall og hefur leikið með landsliðinu í
sextán ár þar sem hann hefur orðið heims- og Evrópu-
meistari. Hann missti hinsvegar af Ólympíuleikunum
2016 þegar Danir fengu gull undir stjórn Guðmundar Þ.
Guðmundssonar. Hans er orðinn næstleikjahæsti lands-
liðsmaður Dana frá upphafi og sá fimmti markahæsti en hann hefur spilað
265 landsleiki og skorað í þeim 743 mörk.
Hans Óttar hefur leikið með Füchse Berlín í Þýskalandi frá 2016 og er
samningsbundinn félaginu til 2021. Hann hefur spilað í Þýskalandi frá
2007 og lék fyrstu níu árin þar með Hamburg. vs@mbl.is
Hans er elstur og reyndastur
Hans Óttar
Lindberg