Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 10

Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 10
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Niðurröðun dómaraefna við Lands- rétt breyttist milli umsagna dóm- nefnda árin 2017 og 2019. Kann það að endurspegla breytta aðferðafræði dómnefndanna. Stöður 15 dómara við nýjan Landsrétt voru auglýstar til um- sóknar 10. febrúar 2017. Alls bárust 37 umsóknir en síðar drógu fjórir umsækjendur umsóknir sínar til baka. Dómnefnd skilaði umsögn sinni 19. maí sama ár og 29. maí sama ár afhenti Sigríður Á. Ander- sen, þáverandi dómsmálaráðherra, Unni Brá Konráðsdóttur, forseta Al- þingis, tillögu um skipun 15 dómara við Landsrétt sem var samþykkt á Alþingi tveimur dögum síðar. Sem kunnugt er breytti dóms- málaráðherra frá lista dómnefndar og færði fjóra umsækjendur ofar á kostnað jafn margra sem ekki voru skipaðir. Horfði ráðherrann meðal annars til kynjasjónarmiða og fjölgaði konum á listanum. Flokkað eftir tólf matsþáttum Niðurröðunin byggðist á stigagjöf út frá 12 matsþáttum sem sýndir eru á grafi hér á síðunni. Þar má sjá hversu mörg stig fjórir umsækjend- ur fengu hjá dómnefndinni og hvar þeir urðu í röð 33 umsækjenda. Skiptar skoðanir voru meðal al- þingismanna um tillögu ráðherrans. Til dæmis kom fram í máli þing- mannsins Katrínar Jakobsdóttur, sem nú er forsætisráðherra, að ráð- herra hefði átt að vinna málið betur. „Minni hlutinn á Alþingi hefur gert athugasemdir við rökstuðning ráðherra og telur ekki sýnt út frá rökstuðningnum að rannsóknar- skylda hafi verið uppfyllt. Þeir sér- fræðingar sem beðnir voru um álit á því atriði töldu að þeir hefðu ekki nægjanlegan tíma til að leggja raun- verulegt mat á þessi atriði,“ sagði Katrín m.a. Síðar átti Hæstiréttur eftir að komast að þeirri niðurstöðu að ráðherra hefði ekki sinnt rann- sóknarskyldu í málinu. Ólíkir þættir lagðir að jöfnu Þegar dómsmálaráðherra lagði fram tillögu að dómaraefnum fylgdu með sjónarmið hennar vegna valsins. Ráðherra benti á að í umsögn dómnefndar væri reynsla af dómara- störfum lögð að jöfnu við reynslu af lögmannsstörfum og reynslu af störfum í stjórnsýslunni. „Ef lögð er saman reynsla af fræðistörfum og kennslu ásamt menntun vegur það jafn þungt og þrír fyrrgreindu þætt- irnir. Þrír matsþættir … eru hins vegar látnir liggja milli hluta með því að gera ekki upp á milli umsækjenda hvað þá þætti varðar. Um er að ræða matsþætti er lúta að stjórn þing- halda, samningu og ritun dóma og al- menna starfshæfni. Með því að gera ekki tilraun til þess að leggja tvo fyrrnefndu þættina til grundvallar heildarmati verður ekki annað ráðið en að reynsla dómara fái ekki það vægi sem tilefni er til og gert er ráð fyrir í reglum nr. 620/2010,“ skrifaði ráðherra. En eins og sjá má hér til hliðar fengu þrír umsækjendur allir 10 í matsþáttum 5.8., 5.9.2. og 5.9.3. Gagnrýni tekin til greina? Athyglisvert er að bera þessi sjónarmið ráðherrans saman við niðurstöðu dómnefndar vegna um- sókna um stöðu dómara við Lands- rétt síðastliðið sumar. Dómnefndin vék þá í fyrsta lagi frá skorblaðinu, lýsti kostum umsækjenda með al- mennum orðum. Þá tiltók dómnefnd- in sérstaklega að tveir efstu um- sækjendurnir, Eiríkur Jónsson og Ásmundur Helgason, hefðu verið jafnir og efstir vegna matskafla 5.9.2., samning og ritun dóma. Veitir það vísbendingu um að dómnefndar- menn hafi talið þennan matsþátt þýðingarmikinn. Það samræmist áðurnefndum sjónarmiðum ráð- herrans um matið. Kunna slík sjón- armið að eiga þátt í því að dómnefnd vegna dómarastöðu við Landsrétt raðaði nokkrum umsækjendum með öðrum hætti síðastliðið sumar en dómnefndin sem starfaði 2017. Á það ber að líta að umsækjend- urnir kunna að hafa aflað sér mis- munandi reynslu frá árinu 2017. Til dæmis var Ástráður Haralds- son skipaður héraðsdómari hinn 9. janúar 2018. Loks sótti Ásmundur Helgason, dómari við Landsrétt, um lausa stöðu dómara við réttinn vegna óvissu sem hann taldi vera um um- boð sitt eftir dóm Mannréttindadóm- stóls Evrópu gegn íslenska ríkinu. Ósamræmi í mati dómaranefnda  Síðasta dómnefnd vegna dómarastöðu við Landsrétt raðaði umsækjendum í aðra röð en sú fyrri  Dómsmálaráðherra taldi of lítið gert úr dómarareynslu  Nýja nefndin lagði áherslu á það atriði Umsagnir vegna dómaraefna við Landsrétt bornar saman Skorblað vegna skipanar dómara við nýjan Landsrétt 2017 Niðurröðun umsækjenda vegna skipanar dómara við Landsrétt 2019 Þáttur Eiríkur Jónsson Jón Höskuldsson Ástráður Haraldsson Ásmundur Helgason 5.1. Menntun og framhaldsmenntun 9 2 1 4 5.2. Reynsla af dómstörfum 3,5 5,5 1 6 5.3. Lögmannsreynsla 3 6 9 0 5.4. Stjórnsýsla 6,5 8 5 8,5 5.5.1. Kennsla 8 1 6 3 5.5.2. Fræðistörf 9 0 2 5 5.6. Stjórnun 3,5 3,5 7,5 1 5.7. Frumvörp o.fl . 7,5 2,5 5 4 5.8. Almenn starfshæfni 10 10 10 10 5.9.1 Réttarfar 6 8 7 8 5.9.2. Samning og ritun dóma 10 10 10 10 5.9.3. Stjórn þinghalda 10 10 10 10 Einkunn 6,2 5,75 5,525 5,4 Sæti númer (af alls 33) 7 11 14 17 Sæti nr. Vegna kafl a 5.1-5.8 og 5.9.1 Vegna kafl a 5.9.2 1 Eiríkur Jónsson Jafnir og efstir2 Ásmundur Helgason 3 Jón Höskuldsson 4 Ástráður Haraldsson 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell keramik hitarar Verð kr. 13.940 Verð kr. 3.970 Verð kr. 6.770 Fæst svartur eða hvítur Fæst rauður eða hvítur Jólas ning SMIÐJAN Listhús - Innrömmun Þorvaldur Skúlason Karólína Lárusdóttir Hafsteinn Austmann Gunnlaugur Blöndal Ármúla 36 • 108 Reykjavík • Sími 568 3890 Muggur Kjarval Kjarval Verið velkominSmiðjunnar Karl Kvaran Kristján Davíðsson Sverrir Haraldsson Sama ósamræmi virðist hafa komið upp við umsagnir vegna stöðu dóm- ara við Hæstarétt í haust. Embættið var auglýst til umsóknar 6. sept- ember sl. og skilaði dómnefndin umsögn 9. desember. Átta umsókn- ir bárust um stöðuna en ekki hefur verið skipað í dómarastöðuna. Þrír umsækjendur voru metnir hæfastir en þeir voru Davíð Þór Björgvinsson, Ingveldur Einars- dóttir og Sigurður Tómas Magn- ússon. Treysti nefndin sér ekki til að gera upp á milli þeirra. „Eðli máls samkvæmt er því saman- burður á verðleikum þeirra flókinn og telur nefndin af þeim sökum ekki efni til að gera greinarmun á þeim […] Ekki eru því efni til að gera upp á milli hæfni þeirra til að gegna embætti hæstaréttardóm- ara,“ sagði í niðurlagi umsagnar nefndarinnar. Vekur þessi niður- staða athygli í ljósi niðurstöðu dómnefndarinnar vegna Lands- réttarmálsins. Þá var Davíð Þór Björgvinsson metinn langhæstur með 7,35 stig. Næstur kom Sigurður Tómas Magnússon með 6,775 stig og fimmta varð Ingveldur Einarsdóttir með 6,3 stig. Munaði því 1,05 stig- um á Davíð Þór og Ingveldi en til samanburðar munaði 1,025 stigum á Ingveldi og Arnfríði Ein- arsdóttur sem fékk 5,275 stig 18. sæti. Í nýju umsögninni vegna Hæsta- réttar hefur þessi afgerandi munur á Davíð Þór og Ingveldi í Landsréttarvalinu hins vegar jafnast út. Öll voru þau Davíð Þór, Sigurður Tómas og Ingveldur skipuð dóm- arar við Landsrétt 2017. Við fyrstu sýn virðist því ekki hafa orðið mikil breyting á reynslu þeirra eða hæfni sem skýrt gæti breytt hæfnismat nefndarinnar. Bilið hvarf í Hæstaréttarvali Davíð Þór Björgvinsson Sigurður Tómas Magnússon Ingveldur Einarsdóttir Í blaðinu síðustu daga hefur verið fjallað um athug- un umboðsmanns Alþingis á stiga- gjöf við ráðn- ingar. Af því til- efni skal áréttað að athugunin varðar almenna notkun slíkrar stigagjafar við hæfnismat hjá hinu opinbera. At- hugunin einskorðast þannig ekki við stigagjöf vegna dómaravals. Fram kom í umsögn dómnefndar vegna landsréttar 2017 að hún hefði „í mati sínu á hæfni umsækj- enda að því er varðar röðun innan einstakra þátta beitt eins mikilli nákvæmni og kostur er, en mats- grundvöllurinn [væri] bæði fjöl- þættur og margbrotinn“. Síðar var horfið frá reiknileiðinni. Árétting vegna umboðsmanns Tryggvi Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.