Morgunblaðið - 20.12.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 20.12.2019, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 ✝ ÞorsteinnÁgústsson fæddist á Brúna- stöðum í Hraun- gerðishreppi hinn 26. apríl 1956. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu Syðra-Velli í Flóahreppi þriðju- daginn 10. desem- ber 2019. Foreldrar hans voru Ingveldur Ástgeirsdóttir húsmóðir, f. 15. mars 1920, d. 6. ágúst 1989, og Ágúst Þor- valdsson, bóndi og alþm. á Brúnastöðum, f. 1. ágúst 1907, d. 12. nóvember 1986. Systkini Þorsteins eru: Ásdís, f. 1942, gift Guðjóni Axelssyni, Þor- valdur, f. 1943, Ketill, f. 1945, kvæntur Þórunni Pétursdóttur, Gísli, f. 1946, d. 2006, Geir, f. 1947, kvæntur Margréti Stef- ánsdóttur, Hjálmar, f. 1948, kvæntur Ingibjörgu Einars- dóttur, Guðni, f. 1949, kvæntur Margréti Hauksdóttur, Auður, f. 1950, gift Jens Jóhannssyni, Valdimar, f. 1951, Bragi, f. 1952, Guðrún, f. 1954, gift Guð- jóni Skúla Gíslasyni, Tryggvi, f. urnir eru báðir í foreldra- húsum. Þorsteinn ólst upp á Brúna- stöðum í stórum systkinahópi. Hann sótti skólagöngu sína í Barnaskólann í Þingborg og lauk gagnfræðaprófi frá Gagn- fræðaskóla Selfoss og varð síð- an búfræðingur frá Bændaskól- anum á Hvanneyri 1976. Þorsteinn reri í nokkrar vertíð- ir frá Þorlákshöfn, vann við tré- smíðar og við sauðfjárslátrun nokkur haust auk þess sem hann vann á búi foreldra sinna á Brúnastöðum. Árið 1982 hófu þau Margrét búskap á Syðra- Velli í Gaulverjabæjarhreppi á æskujörð hennar, endurreistu kúabúið þar og bjuggu auk þess með sauðfé og stunduðu hrossa- rækt. Þorsteinn var formaður Búnaðarfélags Gaulverja frá 2013 og allt til síðustu stundar. Deildarstjóri Gaulverjabæj- ardeildar Sláturfélags Suður- lands um árabil. Auk þess var hann virkur í ýmsum félögum í sveit sinni og tók þátt í félags- starfi bænda í héraðinu. Var mikill áhugamaður um stjórn- mál og starfaði og naut trún- aðar í Miðflokknum frá stofnun hans. Hann hafði unun af fjall- ferðum og smalamennskum á Flóamannaafrétti á haustin. Útför hans fer fram frá Sel- fosskirkju í dag, 20. desember 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. 1955, kvæntur Helgu Bald- ursdóttur, Hrafn- hildur, f. 1957, gift Oddi Bjarna- syni, Sverrir, f. 1959, kvæntur Helgu Sveinsdótt- ur, og Jóhann, f. 1963, kvæntur Olgu Sveinbjörns- dóttur. Þorsteinn kvæntist hinn 27. júní 1987 Margréti Jónsdóttur, f. 11. júlí 1964, frá Syðra-Velli í Gaul- verjabæjarhreppi. Foreldrar hennar eru Gunnþórunn Hall- grímsdóttir, f. 1937, og Jón Ólafsson, f. 1931. Systur Mar- grétar eru: Þóra Bjarney, f. 1959, gift Elíasi Þór Baldurs- syni, og Anna Dóra, f. 1962, gift Hilmari Þór Pálssyni. Börn Þorsteins og Mar- grétar eru: 1) Guðbjörg Anna, f. 21. september 1984, d. 12. september 1994. 2) Ingveldur, f. 15. ágúst 1994, í sambúð með Andrési M. Haraldssyni, búsett á Selfossi. 3) Jón Gunn- þór, f. 12. september 1998. 4) Ágúst, f. 23. ágúst 2004. Bræð- Á þriðjudagsmorgni þann 10. desember áður en risið var úr rekkju sögðum við hjónin hvort öðru draumfarir næturinnar. Þorstein dreymdi að hann væri í eftirleit inni í afrétt, frekar óljós draumur sem hann hálfhló að en var mjög ánægður með. Mín- ar draumfarir þessa nótt voru á annan máta, úti fyrir húsinu stjákluðu svartir kettir. Þetta var ekki eins fallegur draumur og hjá Þorsteini. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Enn og aftur er ég minnt á hverfulleika lífsins, í annað sinn kveð ég hluta af sjálfri mér. Árin sem við Þor- steinn áttum saman eru orðin mörg og við ólum hálfpartinn hvort annað upp. Það er skrýtið að þessi hluti skuli allt í einu vera horfinn. Við höfum gengið veg gleði og sorgar, staðið sam- an í gegnum þykkt og þunnt og reynt að gera lífið að leik. Höggið stóra við dótturmissinn gekk nærri okkur, en við héld- umst í hendur í gegnum það og komum út úr því vonandi sterk- ari manneskjur. En dýrt var það. Sólskinsdagar lífsins eru sem betur fer fleiri en þeir dökku og gleðin yfir lífinu hefur alltaf haft yfirhöndina. En nærri er höggvið þegar ástvinur er kall- aður burtu aldeilis óvænt og ótímabært. Það verða ekki aftur kjarnyrtar pólitískar skammir skrifaðar í Moggann við eldhús- borðið á Syðra-Velli, ekki lesið upphátt eitthvað merkilegt úr blöðunum yfir kaffibollanum á morgnana, ekki meira rabbað um pólitíkina, ekki vangaveltur um hitt og þetta hversdagslegt og ekki þagað saman eða kúrt. Söknuðurinn er sár. Þorsteinn var alltaf heldur að flýta sér, vildi gera hlutina hratt og vera ekkert að drolla við verkin. Lífinu lauk hann líka hratt, dó standandi og ég held hann hafi einmitt viljað hafa það þannig þó það hafi auðvitað ver- ið alltof snemmt. En það er ljós við enda gang- anna. Í þeirri vissu að Sum- arlandið bíði okkar allra birtist vonin um endurfundi og nú hef- ur Guðbjörg Anna fengið pabba sinn til sín, það hafa verið mikl- ir fagnaðarfundir, svo náin sem þau voru. Þráin og söknuðurinn eftir barninu sem lést hverfur aldrei og nú eru þau sameinuð á ný. Það var mín fyrsta hugsun þegar ég gerði mér grein fyrir því hvernig komið var. Lífið heldur áfram hvernig sem allt veltist og við sem eftir lifum höldum minningunni á lofti. Við gleðjumst yfir lífinu sem var og yfir því að við erum til, lifum í samræmi við hálf- gerðan hippastíl Þorsteins og tökum einn dag í einu og reyn- um að hafa ekki of miklar áhyggjur af þeim næsta. Margrét. Þessir undanförnu dagar hafa verið mjög daufir síðan pabbi fór. Hann var alltaf fljótur að öllu þó það kæmi sér ekki alltaf vel og hafði aldrei tíma í eitt- hvert slór. Ég man eftir honum sem meinlausum grínista, alltaf fyrsta apríl tók hann upp kíkinn og leit út um gluggann á úti- dyrahurðinni og hrópaði að Hekla væri byrjuð að gjósa, en við löbbuðum aldrei yfir þrösk- uldinn. Alltaf þegar við keyrð- um framhjá hrossum flautaði pabbi til að gá hvort það væri eitthvað líf í stóðinu. Hann sagði okkur sögu af því þegar hann var lítill, þá ætlaði hann og bræður hans að senda einn strák út á sjó á ísjaka eftir áveituskurðinum. Oft þegar ég kom heim úr skólanum spurði hann mig hvað hefði verið í matinn í skólanun og mitt álit á fæðunni, enda vildi hann mikilvægustu upplýs- ingarnar fyrst og fremst. En nú er hann farinn og ekk- ert getur breytt því, núna verða bara allir að halda sínu striki og halda áfram lífinu. Núna er hann sennilega með Guðbjörgu og Gísla í útreiðatúr. Ágúst. Hálf er nú tómleg tilveran þessa dagana, að pabbi skuli ekki vera hér lengur á meðal vor er skrýtið. Samband mitt við föður minn var eilítið öðruvísi en hjá systk- inum mínum, við vorum ekki bara feðgar, hann var líka minn lærimeistari frá fyrstu tíð. Hann kenndi mér flest sem ég kann. Hann kenndi mér fljótt á vélar, kenndi mér að sitja hest, keyra bíl, mjólka kýr og fóðra skepnur. Alltaf vildi ég vera með pabba í verkum, sama hvað það var, hvort það var að sitja við hlið hans í traktornum eða að gefa fénu, alltaf vildi ég vera með. Við brölluðum margt saman, fórum á hestbak, stundum fór- um við forvitnisrúnt um sveitina á jeppanum. Margar góðar minningar hafa rifjast upp núna síðustu daga. Oft var það að pabbi var að flýta sér, ég man vel eftir því t.d. fyrir rúmum tíu árum að við pabbi vorum við rúllubindingu þegar allt í einu að rúllunetið klárast. Þá voru snarir snúningar hjá föður mín- um, gamli pallbíllinn (geim- skutlan) var settur í gang. Ég held bara að ég hafi aldrei verið svona fljótur í ferðum héðan frá Syðra-Velli á Selfoss og til baka. Svo mikil var ferðin á pabba. Pabbi lifði í núinu og gerði einfaldlega það sem honum datt í hug og langaði til. Eins og síð- asta vor þegar hann sér auglýs- ingu í Bændablaðinu á John Deere-tækjum, þá spyr hann hvort við ættum ekki bara að kaupa traktor og bindivél. Ég varð hálf hissa, sagði bara jújú. Ekki leið á löngu frá þessu að við feðgar keyrðum í Kópavog- inn og festum kaup á þessum tækjum. Skyndiákvörðun var það eins og svo oft áður. Eftir mjaðmaaðgerðina fyrir tæpum tveimur árum yngdist pabbi um fjöldamörg ár. Það var mikill hugur í þeim gamla og lífsgleði. Aldrei féll honum verk úr hendi, gerði allt hratt og örugglega. Meira að segja þegar yfir lauk var hann með verk í hendi. Minningin um pabba lifir og verður hann alltaf í hjarta manns hvert sem maður fer. Líkast til er hann núna kominn inn á Flóamannaafrétt, sker þar niður dýnur á hörðu trébekkina milli þess sem hann þeysir um á Þokka sínum með kíkinn á nef- inu að gá til kinda. Jón Gunnþór. Norðan stormur 24 metrar á sekúndu, –2° gráður. Svona byrjar alltaf dagbókin hans pabba, hann skrifar veðrið niður þó það sé ekki annað. Hann skrifaði stundum ef hann fór í klippingu eða ef mamma var heima allan daginn. Svo skrifaði hann alltaf neðst á blað- ið svona þetta helsta eins og ef einhver kýrin hefði borið. Uppáhaldsliturinn hans pabba var grænn, allt er vænt sem vel er grænt, sagði hann við mig stundum, nema það sé búið að standa of lengi uppi á borði. Grænn er litur náttúr- unnar en pabba leið best þar. Þegar pabbi hellti upp á kaffi þá taldi hann eina skeið sem vel kúfaða, enda þegar hann sendi mig inn einu sinni úr fjárhúsinu og sagði mér að hella upp á kaffi þá taldi ég eina skeið sem slétt fulla og þá sagði hann; „Ingveldur litla, kallarðu þetta kaffi? Þetta er hálfgert piss“, svo hellti hann upp á nýja könnu. Pabbi gerði allt hratt. Hann á hraðamet í að borða hádegis- mat. Hann kom inn og fékk sér skyr með rjóma, drakk kaffi- bolla og lagði sig í stólnum sín- um, allt á undir 5 mínútum. Þetta var algengt á sumrin, enda heyskapur og mikið að gera. Hann hafði líka mjög gaman af því að æsa mig upp. Hann vissi nákvæmlega hvað hann ætti að segja til að fá mig til að rjúka upp og svo þegar ég gekk í burtu þá sat hann eftir og hló. Við áttum það til að sitja og rökræða allhressilega, enda með andstæðar skoðanir á mörgum hlutum. Ég náði, held ég, aldrei að snúa honum en hann náði stundum að fá mig til að skipta um skoðun. Pabbi rakaði af sér skeggið veturinn 2013. Það fór nefnilega að vera í tísku að vera með skegg, hann vildi alls ekki fylgja straumnum. Við systkinin þekktum hann varla enda hafði hann verið meira og minna með skegg í 30 ár. Ég er yfirleitt í ósamstæðum sokkum, stundum eru þeir út- hverfir og jafnvel götóttir líka. Pabbi stóð alltaf með mér þegar mamma og Jón Gunnþór voru að hneykslast á mér því hann var svo oft í götóttum sokkum, sagði að það loftaði svo vel um táfýluna. Við áttum það sameiginlegt að elska ljóð, en á meðan Drápa eftir Gerði Kristnýju er í uppá- haldi hjá mér þá var ljóðið Fák- ar eftir Einar Benediktsson eitt af hans uppáhalds. Pabbi vitnaði oft í seinasta erindið, sérstak- lega þegar við vorum í útreiðar- túr saman; Ef inni er þröngt, tak hnakk þinn og hest og hleyptu á burt undir loftsins þök. Hýstu aldrei þinn harm. Það er best. Að heiman, út, ef þú berst í vök. Það finnst ekki mein, sem ei breytist og bætist, ei böl sem ei þaggast, ei lund sem ei kætist við fjörgammsins stoltu og sterku tök. Lát hann stökkva, svo draumar þíns hjarta rætist. (Einar Benediktsson) Þetta ljóð er pabbi í hnot- skurn, hvar sem hann er stadd- ur núna þá veit ég að hann og Þokki eru sameinaðir á ný með Guðbjörgu á Skjóna sér við hlið og Snata gamla á eftir sér. Ég mun alltaf sakna pabba og eins og hann sagði svo oft, það kemur dagur eftir þennan dag og sólin rís alltaf á ný. Ingveldur litla. Látinn er alltof fljótt og óvænt mágur minn og vinur, Þorsteinn á Syðra Velli, eða eins og flestir þekktu hann Steini á Velli. Það eru orðin um fjörutíu ár frá okkar fyrstu kynnum. Þau voru strax eftirminnileg, þar sá ég og kynntist ungum manni sem var fæddur bóndi, hugsaði og vann eins og góður bóndi, skjótráður og gat verið nokkuð fljótfær. Á þessum fyrstu árum sem ég kynntist honum var hann í ýmsum störfum sem til féllu eins og almennt var áður en menn fundu sitt framtíðar- starf. Þá kynnist hann Steini henni Margréti sinni á Syðra Velli og var svo heppin að hún var af bújörð og ekki var það verra að jörðin var í Flóanum sem honum var alltaf svo kær. Fljótlega fóru þau að koma undir sig búi á Velli sem var strax myndarlegt, skepnurnar fallegar og afurðasamar, það lá í loftinu að þarna væru góðir bændur á ferðinni, enda grónir góðbændur í ættum þeirra beggja. Þau bættu húsakostinn, bústofninn og ræktuðu landið. Steini var alla tíð ímynd hins íslenska bónda, duglegur, hygg- inn, vandaður skepnumaður ásamt því að vera vel læs á landið sem hann hafði fyrir sitt bú. Steini var skemmtilegur, fylgdist vel með þjóðmálum og hafði alla tíð fastar skoðanir á mönnum og málefnum, nokkuð hvatvís í máli ef honum fannst það þurfa, sagði sínar skoðanir afdráttalaust, enginn gat gengið sár frá samtali við hann, Steini var þannig persóna að menn hlustuðu á hann með athygli. Margar eftirminnilegar stundir höfum við hjón áttum með þeim Steina og Möggu. Síðastliðið sumar fórum við ákaflega skemmtilega ferð með þeim ásamt Tryggva og Helgu um hálönd Skotlands. Magga skipulagði þessa ferð með mik- illi snilld. Ferðin tók okkur ell- efu daga og er okkur ógleym- anleg í alla staði fyrir margra hluta sakir. Svona ferð verður ekki endurtekin, Steini verður ekki með. Gaman var að heyra í Steina þegar við fórum um fal- legt landbúnaðarland í Skot- landi þá sagði hann oft „hér er svo fallegt, þetta er eins og í Flóanum“. Það var gaman hjá okkur Steina í aftursætinu því margt var skrafað og tókum við oft eftir því að það var komin þögn í fremri sætin og lagðar við hlustir um það sem skrafað var hverju sinni því margt bar á góma okkar á milli. Á ég góð- ar minningar frá þessu tali okk- ar. Að leiðarlokum minnumst við Steina sem góðs drengs sem fór allt of snemma frá okkur, minn- umst hans sem góðs manns sem ekkert mátti aumt vita, við minnumst hans sem hjálpsams dugnaðarmanns sem hvarvetna var tilbúinn að leggja öðrum lið ef með þurfti. Það er gott fyrir Möggu og börnin Ingveldi, Jón Gunnþór og Ágúst að eiga svo góðar minningar um góðan eigin- mann, föður og uppalanda sem Þorsteinn Ágústsson var. Við hjónin sendum ykkar okkar dýpstu samúðarkveðjur, ykkar er missirinn. Oddur Guðni og Hrafnhildur. „Svo örstutt er bil milli blíðu og éls, og brugðist getur lánið frá morgni til kvelds.“ Þegar stóra bylnum slotaði spurðist sú fregn að Þorsteinn bróðir minn hefði orðið bráð- kvaddur þá um kvöldið við venjulegt eftirlit til mjólkur- kúnna sinna í fjósinu. Svo óvænt, því að hann var hraust- ur og djarfur og hafði ekki kennt sér meins. Fregnin fór sem elding um héraðið með fjallanna hring og nú drúpir sorg og söknuður. Við hugsum til Margrétar og barna þeirra Þorsteins. Lífssól ykkar hefur sortnað um stund og myrkur grúfir yfir þar sem birta jólanna og gleðin virtist framundan. Enn man ég þegar Þorsteinn fæddist, en þá vorum við rétt flutt í nýja húsið á Brúnastöðum, úr þrengslum litlu baðstofunnar, þar sem tveir sváfu í hverju rúmi. Arn- dís amma okkar, sem var ljós- móðir, var komin og byrjuð að Þorsteinn Ágústsson Fyrst kynntumst við á til- raunadagheimilinu Ósi við Dugguvog. Þar var dóttir þeirra Sonju Andrea og strákarnir okk- ar Nínu Benni og Gestur. Svo urðu það hestar sem tengdu okk- ur saman, síðan margvísleg verkefni og skemmtun, einkum ódýrar heimagerðar skemmtan- ir. Helgi var allra manna greið- viknastur. Þegar þurfti að flytja fyrst af Brekkustíg á Holtsgötu, svo þaðan í Drápuhlíð og svo seinna í Ártúnsblett og austur á Eyrarbakka þá var Helgi þar að flytja, bera, mála, tengja og setja í samband. Þegar það þurfti að undirbúa veislur eða jól þá var Helgi Brynjar Þórisson ✝ Helgi BrynjarÞórisson fædd- ist 19. janúar 1942. Hann lést 18. nóv- ember 2019. Útför Helga fór fram 13. desember 2019. Röng útgáfa greinarinnar birtist á útfarardag en þar vantaði síðustu málsgreinina og er hún því endurbirt í held sinni. Helgi þar að hátta rjúpurnar og gera þeim til góða. Þegar þurfti að sækja kjöt af heimaslátruðu út á land þá mætti hann og við keyrð- um saman nátt- langt. Þá var margt rætt, til dæmis hestar. Við fórum saman á landsmót hestamanna í Skóg- arhólum 1978 og horfðum stór- eygir að ekki sé meira sagt á Náttfara frá Ytra-Dalsgerði liggja flatan á skeiði. Um það var oft rætt mikið og lengi með við- eigandi hlátrum, kumri og gleði. Þegar við urðum matarlaus og veðurteppt að drepast úr kulda í hestaferð uppi á Kaldadal þá ók bíll framhjá okkur og ég lét bíl- stjórann hafa miða með síma- númeri Helga og Sonju. Ótrú- lega skömmu seinna kom rauður sendiferðabíll með mat, föt og lífsvökva. Helgi og Sonja. Helgi Þórisson var allra manna skemmtilegastur. Á löngum ferðum okkar sagði hann sögur úr Grímsey en ég af Fells- ströndinni. Endaði með því að okkur fannst báðum að við þekktum þessi pláss utan að og mundum ekki alveg hvor okkar var frá Grímsey og hvor af Fells- ströndinni. Hitt man ég hvað okkur fannst báðum að við vær- um ofboðslega skemmtilegir. Þegar sögurnar þraut var sung- ið; er ekki viss um að við hefðum verið teknir í Metrópólitan en til- þrifin voru gríðarleg. Ekki síst var það fyrsta plata Megasar sem varð fyrir barðinu á þessum geigvænlegu hljóðum. Sumir gagnrýnendur hefðu kannski tal- að um óhljóð; skilningslausir á inntakið sem var gleðin. Stuðið. Aðallega voru það samt hest- arnir. Venus og Perla og Stóri- Blesi sem Sonja átti. Þvílíkt fólk, þvílíkir hestar. Og krakkarnir þeirra Sonju: Andrea snemma skýr blandaði sér í umræður og vildi tafarlaus svör: Ertu hommonisti Svavar, og Ómar lagði gjörva hönd á margt, til dæmis minkabú í Fló- anum sem hann vildi opna eins og eðlilegt var fyrir innilokuðum dýrunum. Ég vil fyrir mína hönd og þeirra sem næst mér standa þakka fyrir að hafa átt Helga að vini og hjálparhellu. Flyt með þessum línum samúðarkveðjur okkar til Sonju og allra krakk- anna. Helgi Þórisson var drengur góður. Svavar Gestsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.