Morgunblaðið - 20.12.2019, Side 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019
ragast í okkur systkinunum að
vera stillt, því að mamma þyrfti
frið. Við biðum spennt þegar
hár barnsgrátur barst úr svefn-
herberginu. Þá vissum við að
fjölgað hefði og von bráðar kom
amma til okkar með þær gleði-
fréttir að drengur væri fæddur,
stór og hraustlegur og dökkur á
brún og brá.
Ég rauk út til föður okkar
sem var norðan við bæinn að
sinna verkefnum og flutti hon-
um fyrstur fréttina. Hann kom
strax inn til að líta á tíunda son-
inn og þrettánda barnið sitt.
Síðan kom hann til okkar
krakkanna og sagði að þessi
drengur væri hetjulegur, annað
hvort yrði hann að heita Brúni
eða Grettir. En mamma og
amma réðu nafninu. Þorsteinn
langafi á Berustöðum var gæfu-
maður og Steini bar nafnið
hans.
Steini varð glaðvært barn og
elskaður í systkinahópnum og
aldrei fór leynt hvert hugur
hans stefndi. Í honum bjó bóndi
sem vildi rækta búfé og erja
jörð. Hann gat sér strax orð
sem hugmikill og duglegur ung-
ur maður, sem fór á vetrarver-
tíðir í Þorlákshöfn og vann hin
ýmsu störf. En tvítugur að aldri
lauk hann skólagöngu við
Bændaskólann á Hvanneyri.
Lánið lék við Steina þegar hann
varð ástfanginn af glæsilegri
heimasætu, eins og segir í æv-
intýrunum. Þau Margrét tóku
við jörð og búi foreldra hennar
á Syðra-Velli. Þau byggðu jörð-
ina upp, stækkuðu og bættu
húsakost og voru bændur í
fremstu röð. Þorsteinn studdi
vel við bakið á konu sinni sem
hefur tekið mikinn þátt í fé-
lagsmálum. Þau Þorsteinn og
Margrét urðu fyrir mikilli sorg
þegar þau misstu elstu dóttur
sína, Guðbjörgu Önnu, tíu ára
gamla. Sorgin þá var þeim
þungbær en sólin reis á ný með
hverju nýju barni þeirra hjóna.
Þorsteinn var heljarmenni að
burðum, fljóthuga og þoldi illa
órétt. Hann var þó skjótur til
sátta. Steini var mikill áhuga-
maður um hrossarækt og á hans
fyrstu búskaparárum gerðist
það að Þorlákur Björnsson í
Eyjarhólum bað mig að bjarga
Stóru-Rauð sinni undan hnífn-
um, en hún var með fyli undan
Gassa frá Vorsabæ. Ég fór til
Steina og bað hann að taka
merina en folaldið yrði hans.
Seint gleymi ég ferð okkar Þor-
láks til Steina og Möggu til að
gefa trippinu nafn. Og Þorlákur
sagði með sinni djúpu röddu:
Hún verður gæfuhryssa og á að
heita Harpa. Harpa varð svo
formóðir glæsilegrar hrossa-
ræktar fjölskyldunnar.
Á kveðjustund er margs að
minnast en efst ber þakklæti.
Við Margrét þökkum fyrir allt
og allt. Ferðalokin komu óvænt,
kæri bróðir, en lífssól þín, sem
var svo skær og leiðandi, liggur
til lífsins á ný. „Öll él birtir upp
um síðir.“ Innilega samúð, kæra
Margrét og fjölskylda.
Guðni Ágústsson.
Yfir heim eða himin,
hvort sem hugar þín önd,
skreyta fossar og fjallshlíð
öll þín framtíðar lönd!
Fjarst í eilífðar útsæ
vakir eylendan þín:
nóttlaus voraldar veröld,
þar sem víðsýnið skín.
(Stephan G. Stephanson)
Björt sumarkvöld og sumar-
nætur eru ofarlega í huga er við
kveðjum elskulegan mág og
svila, Þorstein Ágústsson. Hey-
skapur á Syðra-Velli, töðuangan
og sól, Steini að rúlla með nýju
vélinni og traktorinn fullur af
krökkum, allir fengu að vera
með og sjá hvernig þessi undra-
tæki virkuðu, eftir góðan dag
kveikt upp í grillinu og grillað
lambakjöt að sjálfsögðu. Og
mörg að þessum kvöldum og
jafnvel fram á nætur var farið í
útreiðartúra og bestu hestar
landsins teknir til kostanna, þá
voru menn kóngar um stund.
Málin voru rædd og stundum
rifist um pólitík og þá gat há-
vaðinn í körlunum heyrst á milli
bæja, alltaf líf og fjör.
Við vitum að núna eru Steini
og Guðbjörg Anna saman í
Sumarlandinu og eflaust eru
Þokki, Skjóni (sá skjónótti) og
Snati ekki langt undan. Minn-
ingarnar og myndir liðins tíma
lifa með okkur alla tíð.
Elsku Magga, Ingveldur, Jón
Gunnþór og Ágúst, þið vitið
hvar við erum.
Anna Dóra og Hilmar.
Með nokkrum minningarorð-
um viljum við fjölskyldan í
Gerðum kveðja bróður, mág og
frænda, Þorstein Ágústsson,
bónda á Syðra-Velli, sem hrif-
inn var frá fjölskyldu sinni svo
miklu fyrr en nokkurn grunaði
að verða mundi. Auk þess að
tengjast Þorsteini fjölskyldu-
böndum liggja jarðir okkar að
Syðra-Velli og því tíður sam-
gangur milli bæjanna. Þor-
steinn var góður granni, hjálp-
fús og greiðvikinn með
eindæmum. Alltaf boðinn og
búinn að rétta hjálparhönd ef
þörf var á og ekki voru viðhöfð
nein vettlingatök þegar hann
gekk að verki. Hvort sem það
var að svipta skrokkum slát-
urlamba úr gærunni, slá niður
girðingarhæla með stóru
sleggjunni eða strekkja gadda-
vírinn berhentur fór Þorsteinn
fremstur.
Þorsteinn var mikill
ræktunarmaður á allt sitt búfé,
lagði sig fram um að eiga góðan
fjárstofn og hátt dæmda hrúta,
stórar og verklegar mjólkurkýr
og síðast en ekki síst viljug og
skrefmikil reiðhross. Þegar
Steini lagði hnakk á hest var
sjaldan riðið fetið og fóru reið-
hestar hans jafnan greitt með
miklu fasi og er þá Þokki þeirra
eftirminnilegastur.
Þorsteinn var jafnan glaðvær
maður og fasmikill, glettinn í
viðræðum og hnyttinn í tilsvör-
um en kæmi til ágreinings lét
hann ekki eiga inni hjá sér.
Skoðanafastur var hann og gat
verið nokkuð harðvítugur í
dómum sínum á mönnum og
málefnum. Ýmis félagsmála-
störf innan sveitar gengu í hlut
Þorsteins og sinnti hann þeim
öllum af þeirri drift og trú-
mennsku sem hann var þekktur
að. Þegar hann lést sinnti hann
bæði formennsku í Búnaðar-
félagi Gaulverja og stöðu deild-
arstjóra Gaulverjabæjardeildar
Sláturfélags Suðurlands svo
eitthvað sé nefnt.
Það var lán Þorsteins að
kynnast henni Möggu sinni og
stofna með henni heimili og
fjölskyldu á Syðra-Velli. Steini
var góður og umhyggjusamur
faðir og sár var honum miss-
irinn þegar elsta dóttir þeirra
hjóna, Guðbjörg Anna, dó
tæpra tíu ára. Þá var þeim
Margréti nýfædd dóttirin Ingv-
eldur, fjórum árum síðar fædd-
ist Jón Gunnþór og yngstur er
Ágúst.
Nú á sorgarstundu vottum
við Margréti og börnunum okk-
ar dýpstu samúð.
Minning um góðan dreng lif-
ir.
Fyrir hönd fjölskyldnanna
Gerðum 1 og 2,
Stefán Geirsson.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.“
(Úr Hávamálum)
Höggvið er skarð í bænda-
samfélagið í Flóanum sem og
systkinahópinn frá Brúnastöð-
um. Steini frændi minn á
Syðra-Velli er fallinn skyndi-
lega frá. Steini fór oft mikinn
og með hraði þar sem hann
kom. Steini hafði miklar og
sterkar skoðanir á hlutunum og
honum voru ekki allir sammála
og gátu því myndast við eldhús-
borðið á Syðra-Velli eða á ætt-
armótum harðar rimmur um
hin ýmsu málefni. Hann hikaði
ekki við að andmæla fólki hvort
sem það var í ræðu eða riti ef
honum mislíkaði það sem fólkið
hafði fram að færa. Þá gilti
engu hvort það væru systkini
hans eða ráðamenn þjóðarinn-
ar.
Steini var bóngóður og á ég
honum og fjölskyldu hans
margt að þakka. Þegar skorið
hafði verið niður við riðu árið
2006 og átti að taka fé á nýjan
leik haustið 2008, leitaði ég til
Steina hvort ég mætti eiga eins
og tvær kindur hjá honum og
þannig stundað áfram áhuga-
mál mitt, sauðfjárrækt. Það var
alveg sjálfsagt og nokkrum ár-
um síðar þegar ég vildi fjölga
ánum, þá var það einnig sjálf-
sagt. Í staðinn hef ég gert mitt
besta við að leggja þeim feðg-
um, Þorsteini og Jóni, lið við
þau störf sem til falla í kringum
féð, þó svo að Þorsteinn hafi á
stundum litið svo á þegar ég
bauð fram aðstoð mína að hana
þyrfti ekkert, þetta væri ekkert
mál fyrir þá feðga. Þannig var
Þorsteinn, hann var bóngóður
en krafðist oftast einskis í stað-
inn.
Steini var góður bóndi, hann
ræktaði jörð sína og búpening
af kostgæfni og var eftirtekt-
arvert hversu fallega fóðraðir
gripir hans voru. Mig langar að
láta hér fylgja að loknum ljóð-
línur úr ljóði Einars Ben, Fák-
um, því ég efast ekki um að
Steini er nú kominn á bak hin-
um föllnu gæðingum sínu, á
engjum sumarlandsins, þar sem
hann geysist um eins og hans
var von og vísa.
Maðurinn einn er ei nema hálfur,
með öðrum er hann meiri en hann
sjálfur.
Og knapinn á hestbaki er kóngur um
stund,
kórónulaus á hann ríki og álfur.
Það verður skrítið að koma
að Syðra-Velli í framtíðinni og
engin Steini í hægindastólnum í
eldhúshorninu.
Kæra fjölskylda, ég votta
ykkur mína dýpstu samúð á
þessum erfiðu tímum. Megi all-
ir góðir vættir veita ykkur
styrk.
Baldur Gauti Tryggvason.
Þau voru þung skrefin að
morgni 11. desember þegar ég
frétti af ótímabæru fráfalli eins
af mínum bestu frændum. Það
var margt brallað með karlinum
á Velli í gegnum tíðina. Þá að-
allega í kringum hross og
sauðfé. Ég gat oft skemmt mér
við að stríða Steina frænda og
hann skemmti sér ekki síður ef
hann náði skoti á mig.
Eftir því sem árin liðu jókst
okkar vinskapur og hittumst við
oft og töluðum saman í síma.
Hross voru hugleikin okkur
báðum og voru þau oft til um-
ræðu okkar á milli. Svo gerist
það vorið 2012 að Steini eignast
hátt dæmda hryssu sem heitir
Spöng og var með þeim hæst
dæmdu í sínum aldurflokki yfir
landið. Þá var sem frændi svifi
um á skýi af gleði, ánægju og
stolti. Árið 2019 komu tvö
fyrstu afkvæmi Spangar frá
Syðra-Velli til dóms og hlutu
góð 1. verðlaun. Ekki minnkaði
tiltrúin hjá Steina á sína rækt-
un þá.
Söknuðurinn er mikill að
Steina gengnum en minning lif-
ir um góðan vin, frænda og
samferðamann. Nú taka börnin
við keflinu að viðhalda og rækta
gæðinga frá Syðra-Velli.
Elsku Margrét, Ingveldur,
Jón Gunnþór og Ágúst megi
góður Guð styrkja ykkur í sorg-
inni um frábæran mann.
Ármann Sverrisson.
Eldhuginn Þorsteinn frændi
minn kvaddi með hvelli og er
kominn á æðra tilverustig. Sum-
arið 1981 vorum við samtíða á
Brúnastöðum og heillaðist ég
strax af kraftmiklu fasi Þor-
steins og fjöri. Þessi aðdáun
varð til þess að ég fylgdi frænda
hvert fótmál þetta sumar til að
nema handtökin og mest spenn-
andi var nú að komast í bíltúr
með frænda þar sem hann not-
aði hvert einasta hestafl og
rúmlega það. Þetta sumar lærði
ég að sitja hest og þegar leið á
sumarið fékk maður að fara í
lengri túra þar sem Þorsteinn
var fremstur í flokki. Hann
hafði nýlega eignast léttbyggð-
an og háreistan hest er hét
Garpur frá Egilsstaðakoti í Flóa
og var það engu líkara en þota
væri að takast á loft þegar hann
lét gamminn geisa. Þorsteinn
var sveitamaður í húð og hár og
kom því ekki á óvart þegar
hann hóf búskap á Syðra-Velli í
Flóa 1982 með Margréti sinni.
Saman hafa þau byggt upp
myndarlegt blandað bú með
börnum sínum. Lífið hefur þó
ekki verið alltaf dans á rósum
hjá þeim hjónum en þau misstu
Guðbjörgu Önnu dóttur sína á
tíunda ári 1994. Það að missa
barn er eitthvað það þungbær-
asta sem hægt er að ímynda sér
og enginn ætti að þurfa lenda í.
Þá um haustið buðum við Sverr-
ir Ágústsson frændi minn fram
krafta okkar og tömdum nokkur
trippi fyrir þau hjón. Það var
þroskandi fyrir ungan mann að
finna hvernig þau hjón stóðu
saman í sorgarferlinu og lífið
hélt áfram. Þorsteinn lagði mik-
ið upp úr því að vera vel ríðandi
og komast sem hraðast yfir.
Þessar óskir uppfyllti hinn grái
Þokki frá Syðra-Velli sem var
einstaklega fótviss og fimur
gæðingur. Hrossarækt var Þor-
steini hugleikin og hafði hann
náð umtalsverðum árangri á því
sviði. Flaggskipið Spöng frá
Syðra-Velli, frábær mýktar- og
afkastahryssa sem hefur skilað
tveim fyrstu afkvæmunum í 1.
verðlaun. Enda var sláttur á
kallinum þegar hann vildi sýna
manni vonarstjörnur framtíðar-
innar, stökk upp í bíl og maður
átti fullt í fangi með að hoppa
upp í framsætið áður en jeppinn
spólaði af stað. Síðustu ár höf-
um við frændur oft farið í
hrossarekstrarferðir um Flóann
og oftar en ekki áð á Syðra-
Velli yfir nótt. Gestrisni þeirra
hjóna var einstök og þá varð oft
mikið fjör við eldhúsborðið enda
sagði Þorsteinn skoðanir sínar
umbúðalaust og oftar en ekki í
gamansömum tón. Það sem
stendur upp úr þegar maður
minnist Þorsteins er hreinlyndi
hans og þessi kröftuga fram-
ganga, hann var einstaklega
hjartahlýr og vildi allt fyrir alla
gera.
Elsku Margrét og börn, við
sendum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur frá Læk.
Blessuð sé minning Þorsteins
á Syðra-Velli.
Ágúst Guðjónsson.
Mig langar til að minnast í
fáeinum orðum Þorsteins
Ágústssonar bónda á Syðra-
Velli í Flóa. Þorsteinn var vænn
maður og vörpulegur. Búmaður
góður, glöggur og skarpgreind-
ur. Vígfimur í ræðu og riti í
þjóðmálaumræðu.
Hann var raddsterkur og
ákveðinn í framgöngu. Hann
kom úr stórum systkinahópi, af
hinu þekkta Brúnastaðakyni í
hinum gamla Hraungerðis-
hreppi í Árnessýslu.
Eftirminnileg er heimsókn
Þorsteins og Margrétar, í tilefni
af sextugsafmæli hans, til okkar
Önnu Rutar í Jerúsalem, þar
sem ég starfaði um tíma. Það
var okkur mikil ánægja að geta
sýnt þeim helstu gersemar
hinnar gamalfrægu borgar og
sækja heim helga sögustaði.
Þorsteinn fór í heimsókninni á
kostum í frásögnum sínum af
mönnum og málefnum. Betri
gesti er vart hægt að hugsa sér.
Andlát Þorsteins var óvænt
og ótímabært. Í önnum bústarfa
og undirbúningi jóla var hann
fyrirvaralaust kallaður burt.
Hans er sárt saknað. Að leið-
arlokum þakka ég Þorsteini
ánægjuleg og eftirminnileg
kynni. Mér þykir vænt um þann
stuðning og hvatningu sem
hann sýndi mér á vettvangi
stjórnmálanna.
Elsku Margrét og fjölskylda,
við Anna Rut færum ykkur inni-
legar samúðarkveðjur. Lífið
getur stundum verið ósann-
gjarnt og sárt. Megi Guð styðja
ykkur og styrkja á erfiðum tím-
um.
Birgir Þórarinsson.
„Hann Þorsteinn dó í kvöld.“
Þessi orð Möggu vinkonu minn-
ar og nágranna hljóma í huga
mínum, svo ótrúleg, svo óraun-
veruleg, lífið er stundum svo
ósanngjarnt.
Hugurinn reikar á minninga-
slóðir; ég ligg á hnjánum í kart-
öflugarðinum að reyta arfa og
sendi þá ósk út í tómið að ein-
hver komi nú og frelsi mig úr
þessari leiðindavinnu. Viti menn
... ég heyri hófadyn í fjarska,
rétt næ að snúa mér við til að
skynja eitthvað þjóta framhjá,
greini útlínur stinnra gæðinga
hverfa í rykmekki, feðgarnir á
Velli á ferð. Aldursforsetinn
ræður ferðinni, það er farið
hratt yfir. Ég snara mér inn og
set í könnuna, líta kannski við í
bakaleiðinni, eftir svona tvær
mínútur, þá búnir að ríða út að
Skógsnesi og aftur til baka.
Hann var hugmaður hann
Þorsteinn bóndi, svipmikill yst
sem innst, duglegur og vinnu-
samur, týpískur íslenskur bóndi
sem unni landinu sínu, skepn-
unum sínum og fólkinu í kring-
um sig, bóngóður og samkvæm-
ur sjálfum sér. Það gekk
stunum mikið á þegar við rædd-
um þjóðmálin, ýmist yfir kaffi-
bolla eða þegar hann gegndi
hlutverki fláningsmanns hjá
okkur, hratt og örugglega. Það
varð stundum hávaði, við vorum
ekki alltaf sammála en ágrein-
ingurinn risti aldrei djúpt og
glettnin var skammt undan. Það
var gestkvæmt á Syðra-Velli,
gott að sækja þau hjónin heim.
Þar réð léttleikinn ríkjum og oft
glatt á hjalla. Skemmst er að
minnast að eitt sinn þegar okk-
ur bar að garði hafði Steini til-
kynnt vinnumönnunum að nú
þyrftu þeir að fara út og færa
skítahauginn sem þeir voru að
enda við að moka út úr fjárhús-
unum.
Á erfiðum stundum sækjum
við styrk hvert til annars og
eins í reynslubrunn okkar og
þroska. Að missa maka og for-
eldra er erfitt, að missa barn er
óbærilegt. Þá reynslu gengu
þau Magga og Steini í gegnum
þegar Guðbjörg dóttir þeirra dó
aðeins 10 ára gömul.
Sorgin var djúp og áþreif-
anleg en með styrk og skynsemi
hefur Vallarfjölskyldan náð að
lifa með sorginni og yngri
systkinin lært að dauðinn er
hluti lífsins, lífið heldur áfram
þrátt fyrir allt.
Skömmu eftir að Guðbjörg dó
dreymdi mig hana á hraðferð
upp Þjórsárbakka. Mér varð
hugsað til þess þegar Magga
færði mér fréttirnar um andlát
Steina. Nú eru þau saman feðg-
inin einhvers staðar í Sumar-
landinu ríðandi á gráum og
skjóttum og fara mikinn.
Stefanía Geirsdóttir.
Traustur og hreinskiptinn ná-
granni er fallinn frá, snöggt og
óvænt. Harmur upp kveðinn hjá
góðum nágrönnum okkar og
vinum, sem ýmislegt hafa þurft
að reyna.
Við Þorsteinn hófum búskap
um svipað leyti fyrir allnokkr-
um áratugum. Hann varð strax
sem algjör heimamaður hér í
sveit þó uppalinn væri á hinum
enda Flóans við bakka Hvítár.
Af dugnaði byrjuðu hann og
Magga aftur með kúabúskap á
Syðra- Velli sem hafði legið
niðri um skeið. Byggðu upp á
hófstilltan og myndarlega hátt.
Með sínar kýr, kindur og hross
var Þorsteinn heill og áhuginn
alltaf óskiptur, sannarlega
bóndi af lífi og sál. Ætíð áhugi á
ræktun búfjár og árangur vel
að skila sér. Vélar sem fylgja
nútímabúskap voru honum sem
fleirum nauðsyn en hins vegar
fráleitt áhugamál.
Hann Þorsteinn hvíslaði ekki.
Háum djúpum rómi og með
Brúnastaðahljómbotn ræddi
hann um daginn og veginn.
Lesinn og vel að sér um sín
áhugasvið og málefni líðandi
stundar. Ávallt inni í öllum
fréttum og með skoðanir sem
var ekki hans stíll að byrgja
inni heldur lét hann þær í ljós
umbúðalaust. Um sumt í mis-
jöfnum tegundum pólitíkur í
okkar nærumhverfi greindi
okkur á en það skyggði aldrei á
góð samskipti. Við virtum skoð-
anir hvor annars. En í flestu
vorum við reyndar hjartanlega
sammála.
Morgungjöfin í fjárhúsið var
nálægt því að vera heilög stund.
Hann grínaðist sjálfur með hve
afleitt var ef tímasetning funda
raskaði því. En færi hann á
fund, hvort sem hann var mætt-
ur sem fulltrúi bænda hér í
sveit eða af áhuga, gekk hann
ekki með veggjum. Tæki hann
til máls vöknuðu allir og enginn
sónaði út.
Skýrt og meitlað kom hann
sinni skoðun á framfæri og eng-
um var hlíft. Þó alltaf á hátt
sem hæfði góðum dreng og að-
eins um málefni sem hann
þekkti eða hafði kynnt sér.
Kæra fjölskylda og vinir,
blessun fylgi ykkur. Við Stína
vottum ykkur samúð á erfiðum
og óvæntum tímamótum.
Valdimar Guðjónsson.
Svo fer um kletta
Veturinn barði grimmur á brjóst,
baldinn á eyjuna góndi.
Rólyndur vann og veðrinu bjóst,
vanur hinn íslenski bóndi.
Stoltur hann hafði staðið um ár,
styrkur á velli sá klettur.
Aðfaranótt þessa óveðursdags,
yljuðu draumsýnir hugans.
Hófarnir spyrntu, hlykkjaðist fax,
hjalaði sálarró fjallmanns.
Er morgunsár gleypti draumanna
glóð,
grunaði engan þann vilja,
að inn yfir sand á ættfeðra slóð,
áfram hélt sál milli gilja.
Óttalaus barðist því beljanda við,
brattur þótt hríðina þétti.
Vanur þeim íslenska vígreifa sið,
vanga sinn óhræddur rétti.
Uns frækinn hneig bóndi mót for-
lagaröð,
við fótskör að ævinnar starfi.
Engum til mæðu, einskis manns
kvöð,
einarður varðist þeim arfi.
Svo fer um kletta sem kafaldsins byl,
kraftur að endingu lætur.
Nú völlurinn krýpur og kveður sinn
yl,
kalinn og einmana grætur.
En von er á birtu sem þíðir hans ból,
hún brjóstið af þreki hans fyllir.
Og völlur minn, líttu nú vetrarsól,
sem vindsorfinn klettinn þinn gyllir.
Í haustlitum fjallasal hjalar svo þýtt,
hjörðin sem glaður má sinna.
Og sírjóðan vanga hans strýkur svo
blítt,
sú, sem hann þráði að finna.
Fanney Hrund
Hilmarsdóttir
frá Hamarshjáleigu.