Morgunblaðið - 20.12.2019, Side 30

Morgunblaðið - 20.12.2019, Side 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 ✝ Rúrik NevelSumarliðason fæddist í Bolung- arvík 8. febrúar 1932. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 15. desm- ber 2019. Foreldrar hans voru hjónin Sum- arliði Guðmunds- son frá Miðhúsum í Vatnsfjarðarsveit, f. 30. september 1888, d. 11. nóvember 1959, og María Frið- gerður Bjarnadóttir frá Látra- koti í Mjóafirði, f. 7. október 1892, d. 23. febrúar 1966. Rúrik var næst yngstur níu systkina, þau eru: Pétur Guðmundur Sumarliðason, f. 24. júlí 1916, d. 5. september 1982, Bjarni Hólmgeir Sumarliðason, f. 4. febrúar 1921, d. 25. maí 1994, Magnús Pétur Kristján Sum- arliðason, f. 12. júlí 1922, d. 17. ágúst 2008, Elín Guðmunda Sumarliðadóttir, f. 25. nóv- ember 1923, d. 27. júní 2014, Björg Sumarliðadóttir, f. 17. júní 1925, d. 14. júní 2014, Guð- jóna Sigríður Sumarliðadóttir, Hulda Rós, f. 2. mars 1964, maki Lárus Finnbogason, synir þeirra eru Lárus Sindri og Arn- ar Heimir. Rúrik var fæddur í Bolung- arvík en bjó fyrstu æviárin í Skálavík. Fjölskyldan fluttist svo til Bolungarvíkur þar sem hann bjó fram á unglingsár. Hann vann alltaf mikið, fór að beita 10 ára gamall, var sendur í sveit á sumrin, fór í síld til Siglufjarðar kornungur og vann í frystihúsi í Hafnarfirði. Hann gerðist sjómaður og sigldi meðal annars til Danmerkur 18 ára gamall. Rúrik lærði svo húsgagnasmíði hjá Snæbirni Jónssyni um tvítugt og vann eftir það við smíðar þar til hann réði sig sem húsvörð við Menntaskólann á Ísafirði og svo í Fjölbrautarskólanum í Breið- holti. Rúrik og Guðlaug bjuggu á Ísafirði frá árinu 1960 og til ársins 1988 þegar þau fluttu til Reykjavíkur. Þau hafa búið í Kópavogi frá árinu 2010 og átt þar ánægjulegt ævikvöld. Rúrik var mikill tónlistarunnandi og söng í mörgum kórum bæði á Ísafirði og í Reykjavík. Hann gekk í Oddfellow-regluna og var í henni til dánardags. Rúrik var hagur í höndunum og féll aldrei verk úr hendi. Útför Rúriks fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi í dag, 20. desember 2019, klukkan 14. f. 7. október 1927, d. 15. nóvember 2002, Kjartan Helgi Sum- arliðason, f. 22. september 1929, d. 9. júní 2012, Krist- ján Björn Hinrik Sumarliðason, f. 28. nóvember 1933 d. 18. nóvember 2015. Eftirlifandi eiginkona Rúriks er Guðlaug Björnsdóttir, f. 21. september 1939. Foreldrar hennar voru Ólafía S. Einarsdóttir frá Bíldu- dal, f. 22. ágúst 1899, d. 30. mars 1990, og Björn Metúsal- emsson frá Vopnafirði, f. 25. maí 1894, d. 3. desember 1953. Dætur Rúriks og Guðlaugar eru 1) María Friðgerður, f. 21. mars 1958, maki Hilmar A. Al- freðsson, dætur hennar eru Þuríður og Ástríður. Synir Þur- íðar og Benedikts Einarssonar eru Ernir, Rúrik Pétur og Birk- ir Alfreð. 2) Helena Snæfríður, f. 29. júlí 1960, maki Jón Pétur Kristjánsson, börn þeirra eru Rúrik Fannar og Guðrún. 3) Pabbi minn var fæddur í Bol- ungarvík þar sem foreldrar hans bjuggu svo lengi sem ég man í gamalli verbúð í Hafnargötu 6b. Hann var næst yngstur níu systkina sem öll eru nú látin. Ver- búðin þeirra taldi eldhús og svefnloft og þangað heimsótti ég ótal sinnum ömmu mína með pabba og mömmu. Eldhúsið var hlýlegt og þegar ég hugsa til baka fullt af hlýju og andlegu ríkidæmi. Veraldleg gæði voru af skornum skammti utan þess að amma var mjög bókelsk kona og átti safn bóka. Nafnið hans pabba, Rúrik Nevel, er einmitt komið úr skáldsögunni Valdimar munki sem amma las og skírði strákinn eftir byssusmiðnum í sögunni. Þegar við fórum til Bolungar- víkur frá Ísafirði á sunnudögum sátu pabbi og systur hans í eld- húsinu í Hafnargötunni, göntuð- ust og ræddu á háværan hátt um pólitík og dægurmál, svo hátt að mamma segist aldrei hafa komist að. Pabbi fór í búrið og náði sér í svið og súrmat og amma setti á kaffiborð fyrir okkur hin. Þetta eru eftirminnilegar stundir. Fátæktin og þetta ríkidæmi andlegra gæða og væntumþykju mótuðu pabba eins og þau öll systkinin. Þetta veraldlega fá- tæka fólk bar sig vel, var glað- vært og einstaklega duglegt og hlýlegt. Ég held að þau hafi auk þess öll verið afar vinstri sinnuð. Pabbi var engin undantekning, þessir sömu eiginleikar og póli- tíska sýn einkenndu hann alla tíð. Pabbi var léttlyndur og tón- elskur. Hlustaði mikið á kórsöng, tenórana þrjá og Ivan Rebroff. Söng með Sunnukórnum og kirkjukórum auk margra ann- arra kóra. Hann elskaði að sitja inni í stofu með tónlistina á hæsta, að ég tali nú ekki um með saltkjöt eða hangikjöt skorið í teninga hjá sér á diski, eða skötu- stöppuna eftir Þorláksmessu. Fyrir jólin keypti hann fyrir okk- ur fulla kassa af súkkulaði beint úr heildsölu og marga kassa af gosi. Við gátum borðað sælgæti og drukkið gos eins og okkur lysti. Á Þorláksmessu fórum við saman í bæinn og máttum við all- ar systurnar kaupa eins mikið jólaskraut og við vildum. Hann elskaði fallegt jólaskraut og var mjög duglegur að skreyta. Pabbi naut sín með fullt hús af fólki, drakk mikið kaffi og reykti mikið þar til hann hætti því alveg. Var alltaf með hárið fullt af spæni og vasabókhaldið í brjóstvasan- um. Vann mikið og endaði vinnu- ferilinn í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti þar sem nemendur gáfu honum bikar sem á stóð „Besti Rúrik í heimi“. Pabbi skammaði ekki. Hann vakti mann með snúð í menntó. Söng manna hæst í fjölskyldu- samkomum og öðrum samkom- um. Stundaði fimleika í æsku og var í fimleikaflokki. Gekk hratt og kvartaði aldrei. Hann var ein- staklega góður pabbi og afi sem lét aldrei deigan síga þótt á móti blési. Var mikið á móti auðvald- inu, þoldi ekki stéttaskiptingu og vildi almannahagsmuni í fyrsta sæti. Var alþýðumaður eins og þeir gerast bestir. Ég vitna í frænda hans Stein Steinarr þegar hann sagði „það vinnur aldrei neinn sitt dauða- stríð“. Nú er líf hans hér á jörð á enda runnið og hann kominn til engl- anna og ömmu og afa og systk- inanna sem hann unni svo mjög. Blessuð sé minning pabba. María Friðgerður Rúriksdóttir. Hann pabbi er jarðsunginn dag. Hann var sá síðasti af átta systkina hópi til að kveðja þenn- an heim. Systkinahópurinn var alinn upp í litlu húsi í Bolungar- vík og var alltaf mjög náinn. Pabbi, eins og hin systkinin, þurfti snemma að fara að sjá fyrir sér enda þungt heimili. Systkinin voru alltaf mjög samheldin og í uppvexti okkar systkina- barnanna þekktumst við öll vel enda mikill samgangur, eða eins mikill og aðstæður leyfðu. María mamma pabba var fötl- uð og eyddi því oft góðum tíma í bóklestur. Þegar hún átti pabba ákvað húna að hann yrði skírður í höfuðið á sögupersónu úr Valdi- mar munki, rússneskri skáldsögu eftir Sylvanus Cobb. Þar var byssusmiðnum Rúrik Nevel lýst sem afar fallegum manni, ekki hávöxnum en með góða líkams- burði, sterka andlitsdrætti og hreinan svip. Ennið var hátt og breitt og ofan á það liðaði sig hrokkið ljósjarpt hár hans. Aug- un voru blíðleg og skörp. Hann hafði alla þá mannkosti sem helst mátti hugsa sér. Skáldsagan var afar vinsæl hér á landi í byrjun 20. aldarinnar. Pabbi var afskaplega blíður og góður maður. Sem ungur maður var hann mikill fimleikakappi og góður í íþróttum almennt. Hann hafði afar góða söngrödd og var hár tenor og vakti rödd hans eft- irtekt alls staðar. Hann var að lágmarki í tveimur kórum og stundum þremur hverju sinni og lífið snérist um kórastarfið. Hann hlustaði mikið á tónlist og kunni ógrynni af allskonar lögum. Í minningunni var pabbi alltaf í góðu skapi, sagði alltaf „já elsk- an mín“ef manni datt eitthvað í hug og studdi við flestar hug- myndir sem við fengum. Hann var mikill fagurkeri, gekk bara í vönduðum fötum og hafði mjög ákveðinn smekk á þeim. Sama má segja um fallegt handverk, hann bar mikla virðingu fyrir því. Pabbi var líka mikið jólabarn og hafði ótrúlega gaman af því bæði að kaupa sér nýtt jólaskraut sem hann gerði hver jól og hann sá um skreytingar fyrir jólin. Pabbi var handlaginn og allt handverk lék í höndunum á hon- um. Það var ávallt þannig að ef við báðum hann um að smíða fyr- ir okkur eða gera við eitthvað þá var hann byrjaður á verkinu áður en varði og lauk því áður en hægt væri að snúa sér við. Nú er tími hans liðinn og við þökkum fyrir það að hann átti góð efri ár, fylgdist með fram á síðasta dag og var einstaklega sæll með veru sína í Vogatung- unni þar sem hann hafði aðstöðu í bílskúrnum og gat sinnt þar sín- um hugðarefnum. Takk fyrir allt. Helena og Hulda. Nú er komið að leiðarlokum hjá honum Rúrik tengdaföður mínum og mikið er ég þakklátur fyrir að hafa fengið að eiga sam- leið með honum sl. liðlega þrjá áratugi. Rúrik var einstaklega lífsglaður maður og alltaf léttur og kátur. Mér er óhætt að full- yrða að öllum sem kynntumst honum þótti vænt um hann og þeir sem stóðu honum næst og þekktu hann best elskuðu hann og dáðu. Hann tengdafaðir minn var sérlega bóngóður maður og það var nánast sama hvað hann var beðinn um, ávallt var hann tilbú- inn að hjálpa til og aðstoða. Hann var menntaður húsgagnasmiður og afar handlaginn og leituðum við því mikið til hans ef eitthvað þurfti að laga eða smíða, en hann hafði komið sér upp aðstöðu í bíl- skúrnum til slíkra verka. Það átti ekki við hann að vera að drolla við hlutina, heldur var drifið í því að gera það sem þurfti gera, hvort sem það var að smíða eitthvað, ramma inn mynd eða pússa upp og laga húsgögn. Stundum fannst mér sem að maður væri varla kominn frá honum með það sem þurfti að lagfæra eða smíða þegar hann lét vita að hann væri búinn að ljúka verkinu. Við höfum í gegnum árin notið góðs af því hversu einstaklega góð afi og amma þau Rúrik og Lauga eru. Allt frá fyrsta degi hafa þau umvafið syni okkar ást og kærleika og þeir hafa sóst eftir því að heimsækja þau og vera hjá þeim. Það var jafnan auðsótt mál af þeirra hendi að passa drengina þegar þeir voru litlir og mikið þótti þeim gaman að fara með afa sínum og leigja vídeóspólur, kaupa nammi og sitja svo með honum og horfa á myndirnar í sjónvarpinu. Rúrik fylgdist alla tíð vel með barnabörnum sínum, studdi þau, leiðbeindi og hvatti þau áfram í námi og starfi. Við ferðuðumst töluvert mikið með þeim Laugu og Rúrik bæði innanlands og erlendis og voru þau sérlega góðir ferðafélagar. Rúrik hafði mikið yndi af söng og var í kórum lengstan hluta ævi sinnar. Hann söng með Sunnu- kórnum og kirkjukórnum á Ísa- firði og eftir að þau hjónin fluttu þaðan söng hann í nokkrum kór- um í Reykjavík, á tímabili var hann í a.m.k. tveimur kórum á sama tíma. Hann hafði fallega tenórrödd og var sérlega lagviss og því eftirsóttur söngmaður. Það hefur jafnan mikið verið sungið þegar fjölskyldan kemur saman svo sem um jól og áramót og í þorrablótum og leiddi Rúrik jafnan sönginn. Rúrik var í Oddfellow-regl- unni, fyrst á Ísafirði í stúkunni Gesti og síðar í stúkunni Snorra Goða eftir að hann flutti að vest- an. Ég á honum það að þakka að hafa kynnt mig fyrir Oddfellow- reglunni og því góða starfi sem þar fer fram. Síðustu vikur og mánuðir voru honum tengdaföður mínum erf- iðir vegna veikinda en honum lán- aðist þó að dvelja á sínu heimili allt fram undir það síðasta. Hon- um hefði ekki hugnast að þurfa að dvelja síðustu æviárin annars staðar en á sínu heimili með henni Laugu sinni og fyrir það ber að þakka. Ég kveð hann tengdaföður og efst í huga mér er þakklæti fyrir hversu góður maður hann var og fyrir allt sem gerði fyrir mig og mína fjölskyldu. Hvíl í friði. Lárus Finnbogason. Í dag kveðjum við afa Rúrik. Afi var alltaf í góðu skapi, hlýr, fyndinn og skemmtilegur, söng- elskur og handlaginn. Afi sem öll börn óska sér að hafa í sínu lífi. Þegar barnabörnin komu í heim- sókn var hann tilbúinn með úrval af sjónvarpsefni og veitingar eftir pöntun. Ef húsgagn þarfnaðist umhyggju, þá sá afi um það. Hann gegndi hlutverki einkabíl- stjóra þegar við þurftum að kom- ast um borgina á tónlistar- eða íþróttaæfingar, enda naut hann þess að keyra. Hann var byrjaður að gera ráðstafanir um endurnýj- un ökuleyfis á næsta ári, enda stóð ekki til að leggja bílnum. Jólaskrautið var afa ávallt efst í huga á aðventunni. Áhugi hans á jólaskrauti var ekki amalegur fyrir litla stelpu sem fannst fátt skemmtilegra en að koma í heim- sókn til ömmu og afa fyrir jólin og dást að ljósunum og glingrinu. Það var ekki öðruvísi þessa að- ventuna þótt hún hafi verið með öðru sniði. Hann lagði mikið upp úr því að heimilið væri skreytt að innan sem utan og verkstýrði því eins og herforingi allt fram að síðustu stundu. Margir myndu segja það vera úr karakter fyrir hann að kveðja okkur á þessum árstíma en raunin er sú að nú höldum við fyrstu jólin okkar án hans. Afi naut þess að vera til og hafði gaman af lífinu. Með sínum hvella hlátri var hann hrókur alls fagnaðar og auðvitað lykilmaður þegar kom að fjöldasöng í fjöl- skyldunni. Hann var mikill ten- órsöngvari en okkar vandamál var að tónhæðin sem hann valdi var yfirleitt alltof há fyrir sam- söngvara hans, sem þá uppskar hlátrasköll og nú sælar minning- ar. Afi átti aldrei erfitt með að hrósa öðrum, ólíkt mörgum körl- um af hans kynslóð. Hann þreytt- ist ekki á að segja hve stoltur hann væri af okkur. Hann fylgd- ist grannt með öllu sem afkom- endur hans voru að eiga við og hvatti okkur til dáða. Hann var alltaf ánægður með fjölskylduna sína en amma og afi eiga að mestu leyti heiðurinn af sam- heldninni sem einkennir hana og velsældinni sem meðlimir hennar hafa notið. Fyrir stuttu áttum við afi sér- lega skemmtilegan fund á bar einum í Hafnarfirði. Þá sagði hann mér frá því þegar hann sendur einn frá Bolungarvík til Siglufjarðar, 13 ára, til að fá sér vinnu við síldina. Þar vann hann um stund þar til hann fékk far með skipi til Reykjavíkur, eftir viðkomu á Akureyri, en hann átti systkini á báðum stöðum. Hann fékk stöðu á togara á leið til Kaupmannahafnar þegar hann var 18 ára, þar fór hann í land og keypti tvo hægindastóla sem enn prýða stofuna hjá ömmu og afa. Í þeirri ferð áttaði hann sig á að honum væri ekki ætlað að vera sjómaður og eftir heimkomu hóf hann nám í húsgagnasmíði í Reykjavík. Það var dýrmætt að fá að heyra þessar sögur, ég fann um leið hve breitt kynslóðabilið var en hann lét það aldrei á sig fá. Eftir öll hans ævintýri gat hann samt hlustað á kvartanir okkar forréttindabarnanna á 21. öld af þolinmæði og umhyggju. Í dag kveð ég afa minn Rúrik með þakklæti en minning hans lifir í hjörtum okkar. Honum fannst gaman að lifa en að lokum var dauðinn honum líkn, rödd hans er hljóðnuð en hláturinn og söngurinn mun óma um ókomna tíð. Ástríður Pétursdóttir. Erfitt er að koma í orð því þakklæti og þeirri væntumþykju sem kemur upp í hugann þegar hugsað er til Rúriks afa. Í þeirri miklu sorg sem nú ríkir er hugg- un í öllum þeim góðu minningum sem við áttum saman. Afi var mikill fjölskyldumaður og ein- staklega góður afi. Dyrnar hjá honum og ömmu voru alltaf opn- ar og alltaf gaman að fara til þeirra heimsókn. Það var ein- staklega gott að eiga stund með afa, hvort sem það var í kaffi í Hvassaleitinu eða Vogatungu, í sveitinni eða á ferðalagi innan- lands eða utan. Alltaf var skemmtilegra þegar afi var með. Hann setti barnabörnin alltaf í fyrsta sæti og gerði allt sem í hans valdi stóð til að áhugamál og nám væri stundað og hvatti okk- ur áfram í því sem við gerðum. Þegar við bræður hugsum til afa eru ótal margar minningar sem koma upp og mikið sem hægt er að skrifa um. Við eigum það sameiginlegt að hafa verið mikið hjá honum, líkt og öll barnabörnin. Á yngri árum var sérstaklega gott að fara til afa þegar maður var „veikur heima“ og gat, í staðinn fyrir að vera heima með mömmu eða pabba, fengið mömmu til að skutla okkur til hans. Þá lá leiðin í kjölfarið oft- ar en ekki á Vídeóheima þar sem við leigðum mynd, auðvitað kú- rekamynd, og keyptum okkur snakk með. Á menntaskólaárunum var mjög þægilegt að hafa ömmu og afa í göngufæri við skólann. Eftir skóla röltum við til þeirra og kíkt- um á þau í kaffi og pönnukökur. Sátum við þá oft tímunum saman og spjölluðum um daginn og veg- inn, nema auðvitað þegar afi var upptekinn á söngæfingum eða syngjandi á viðburðum tengdum þeim fjölda kóra sem hann var í. Alltaf var afi í góðu skapi og létti upp á daginn. Húmorinn var aldrei langt undan. Við bræður getum sammælst um það að fyrir okkur var hann ekki bara alltaf besti maður og afi í heiminum, hann var líka besti smiður og söngvari sem fyrirfannst. Hann gat smíðað allt og var fljótur að uppfylla allar þær óskir sem hon- um bárust, hvort sem það var að smíða sverð fyrir okkur til að leika okkur með í sveitinni eða laga mynd í myndaramma fyrir mömmu. Verkinu var nánast lok- ið áður en maður vissi af. Nú þegar jólin nálgast hratt er erfitt að hugsa sér þau án afa. Hann var alltaf mikið „jólabarn“, vildi hafa vel skreytt í kringum og var engin breyting þar á þrátt fyrir hækkandi aldur hans. Söng- ur var alltaf í fyrirrúmi og mikill söngur um hátíðir hjá fjölskyld- unni og á öðrum stundum þegar mögulegt var. Afi var alltaf í for- ystu í söngnum. Yfirleitt söng hann svo vel, hátt og skýrt, að hann hefði getað tekið öll lögin í einsöng, eins og honum einum var lagið. „Við tökum því sem að höndum ber,“ sagði afi í síðastliðinni viku og er það víst það eina sem nú er hægt að gera. Á sama tíma og missirinn er mikill munu minn- ingar okkar saman lifa áfram og erum við þakklátir fyrir hverja stund okkar saman. Elsku afi, takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir okkur og hafa verið eins góður við okk- ur og þú varst. Við munum alltaf muna eftir þér og því sem þú gerðir fyrir okkur og halda minn- ingu þinni á lofti um ókomna tíð. Þínir, Arnar og Lárus. Afa Rúrik man ég fyrst eftir í Aðalstræti 33 á Ísafirði, á Heklunni. Mér finnst eins og hann hafi verið með svuntu að berja harðfisk í kjallaranum. Ekki langt undan var pípan hans, stríðnin og dillandi hláturinn. Ég og Rúrik Fannar frændi minn vorum svo heppin að fá að kynn- ast því að vera hjá ömmu og afa á Ísafirði, en þar leyndust óteljandi ævintýri. Þuríður Þorskabítur og Rúki Rófustappa, það kallaði hann okkur alltaf með stríðni í röddinni. Við vorum elstu barna- börnin og afi var alltaf til í að leika. Þegar afi og amma fluttu suður í Hvassaleitið þá leyndust ævintýrin þar. Afi átti alltaf harð- fisk að vestan og lakkrís sem hann hafði keypt í Kolaportinu. Hann smurði fyrir okkur vel af smjöri á harðfiskinn og batt fyrir okkur svartar lakkrísreimar í marga hnúta, sem við kjömsuð- Rúrik Nevel Sumarliðason Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.