Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 37
ÍÞRÓTTIR 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019
Teitur Örn Einarsson, landsliðs-
maður í handbolta, hefur framlengt
samning sinn við sænska félagið
Kristianstad til ársins 2022. Teitur
kom til Kristianstad frá Selfossi fyrir
síðustu leiktíð og hefur leikið stórt
hlutverk með liðinu. Hefur Teitur
skorað 78 mörk í sænsku deildinni í
vetur. Ólafur Andrés Guðmundsson
leikur einnig með liðinu.
Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur
úrskurðað Jón Arnór Stefánsson,
leikmann KR og einn besta leikmann
Íslandssögunnar, í eins leiks bann
vegna reiðikasts hans er KR mætti
Grindavík í Geysisbikarnum fyrr í
mánuðinum. Jón Arnór missti stjórn
á skapi sínu í 3. leikhluta og var vikið
út úr húsi fyrir vikið.
Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi
hafnaði í 8. sæti í stórsvigi á al-
þjóðlegu móti í St. Moritz í Sviss en
mótið er hluti af EC-mótaröð ólymp-
íuhreyfingar fatlaðra. Hilmar skíðaði
á 55,13 sekúndum í fyrri ferðini og
56,25 sekúndum í síðari ferðinni.
Samanlagður tími var því 1:51,38
mínútur. Frakkinn Arthur Bauchet
sigraði á 1:26,56 mínútum. Hilmar
bætir stöðu sína á heimslistanum í
stórsvigi töluvert með þessari
frammistöðu. Hann hefur sannað sig
sem á meðal þeirra bestu í svigi en
sækir nú í sig veðrið í stórsviginu
einnig.
Karlalandslið Íslands í knattspyrnu
er í 39. sæti af 210 þjóðum á heims-
lista FIFA í árslok en síðasti listi árs-
ins var gefinn út í gær. Engin breyt-
ing er á 39 efstu sætunum en Belgía,
Frakkland og Brasilía eru í þremur
efstu og Belgar eru því á toppnum
við áramót í annað skiptið í röð. Ís-
land var í 37. sæti listans á sama
tíma fyrir ári, 2018, en besta staða
liðsins í árslok var í desember 2016
þegar landsliðið var í 21. sæti á list-
anum.
Fabian Wiede, skyttan öfluga frá
Füchse Berlín, leikur ekki með þýska
landsliðinu í handknattleik á Evr-
ópumótinu í janúar. Hann þarf að
gangast undir uppskurð á öxl á milli
jóla og nýárs. Wiede var í Evr-
ópumeistaraliði Þjóðverja undir
stjórn Dags Sigurðssonar árið 2016,
þá aðeins 21 árs gamall, en hann hef-
ur verið í röðum Füchse frá 15 ára
aldri og var þar einnig með Dag sem
þjálfara.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, fyrr-
verandi landsliðs- og atvinnumaður í
knattspyrnu og leikmaður ÍBV um
árabil, er kominn í sitt fyrsta starf
sem aðalþjálfari. Gunnar hefur verið
ráðinn þjálfari KFS í Vestmannaeyjum
fyrir næsta tímabil og mun þar vinna
með mörgum ungum leikmönnum frá
ÍBV sem spila með
liðinu í 4. deild-
inni til að öðlast
meistaraflokks-
reynslu. Í til-
kynningu frá
KFS segir
að mark-
miðið sé
að koma
liðinu
strax upp
um deild
og skapa
efnilegum
leik-
mönnum í
Eyjum
betri vett-
vang.
Eitt
ogannað
KÖRFUBOLTI
Skúli B. Sigurðsson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Njarðvíkingar rúlla í jólafríið með
bros á vör eftir að hafa unnið Þór
frá Þorlákshöfn í Dominos-deild
karla í körfubolta í gærkvöldi með
101 stigi gegn 77, en leikið var í
Njarðtaksgryfju þeirra Njarðvík-
inga. Njarðvíkingar leiddu með átta
stigum í hálfleik og náðu mest 26
stiga forskoti í leiknum.
Fyrirfram var búist við nokkuð
jöfnum leik þar sem Njarðvíkingar
hafa verið á bullandi siglingu og
fyrir þennan leik unnið fimm leiki í
röð og Þórsarar voru að koma frá
þungavigtarsigri á toppliði Keflvík-
inga í síðustu umferð. Framan af
virtist stefna í hörkuleik en í seinni
hálfleik tóku Njarðvíkingar frum-
kvæðið algjörlega í sínar hendur.
Þórsarar jusu eins og þeir gátu
vatni úr bátnum en að lokum gáfust
þeir upp og stungu sér til sunds
þegar Njarðvíkingar sökktu þeim
endanlega.
Eftir nokkuð brösuga byrjun í
deildinni í ár hafa Njarðvíkingar nú
unnið sex leiki í röð í deildinni og
sigurinn í gær gríðarlega mik-
ilvægur. Mikilvægur fyrir þær sakir
að hver sigur leikur í deildinni virð-
ist vega ansi þungt og hver umferð
getur kastað liðum upp eða niður
um fjögur til sex sæti. Deildin í ár
er að spilast þannig að allir virðast
geta unnið alla og því til sönnunar
er einmitt fyrrnefndur sigur Þórs-
ara á Keflavík. Njarðvíkingar halda
í jólafríið í fjórða sæti deildarinnar
en Þórsarar verma áttunda sætið.
Eftir stendur að tvö mót eru eft-
ir: Seinni hluti deildarinnar og svo
auðvitað úrslitakeppnin. Bæði þessi
lið hafa burði og getu til að fara í
úrslitakeppnina að öllu jöfnu, en
sem fyrr segir, eins og deildin er að
spilast, gæti einbeitingarleysi hæg-
lega slökkt vonir beggja liða um
þann draum. „Flott frammistaða
hjá mínum mönnum og þetta var
bara virkilega góð jólagjöf til okkar
stuðningsmanna sem áttu það inni
hjá okkur,“ sagði Einar Árni Jó-
hannsson, þjálfari Njarðvíkinga,
eftir leik.
Stjarnan aftur á toppinn
Stjarnan er enn í toppsætinu eft-
ir erfiðan 95:88-sigur á Fjölni á
heimavelli. Fjölnir náði mest 19
stiga forskoti í fyrri hálfleik en
Stjörnumenn voru betri í síðari
hálfleik. Stjarnan hefur lent í vand-
ræðum gegn liðum sem eru neð-
arlega í töflunni og rétt marið sigra
gegn Fjölni, Val og Þór Akureyri,
þremur neðstu liðunum. Það er eins
og ákveðið kæruleysi grípi um sig
hjá Stjörnunni gegn lakari and-
stæðingum, en hingað til hafa
Stjörnumenn sloppið með skrekk-
inn. Einhvern daginn verður
Stjörnunni refsað nái þeir ekki að
gíra sig betur í þá leiki sem flestir
búast við að liðið vinni örugglega.
Nikolas Tomsick er búinn að vera
einn besti leikmaður Íslandsmótsins
til þessa og hefur hann hjálpað
Stjörnunni að grafa sig úr nokkrum
holum í vetur. Tomsick skoraði 31
stig í gær. Hlynur Bæringsson er
allur að koma til eftir meiðsli fram-
an af leiktíð og skoraði gamli lands-
liðsfyrirliðinn 18 stig og tók 21 frá-
kast.
Stjörnumenn fara kampakátir í
jólafrí á toppnum og með sjö sigra í
röð. Fjölnismenn verða hins vegar
að fara rólega í jólasteikina og
koma öflugri til baka eftir frí.
Líður vel í Skagafirði
Tindastóll sýndi sitt rétta andlit
er liðið vann 106:88-heimasigur á
Grindavík. Tindastóll er með 16
stig, rétt eins og Keflavík, tveimur
stigum frá toppliði Stjörnunnar.
Tindastóll tapaði á útivelli fyrir ÍR í
síðasta leik, en Skagfirðingum líður
vel á heimavelli þar sem liðið hefur
unnið fimm sinnum og aðeins tapað
einu sinni.
Gerel Simmons, sem átti mjög
slakan leik gegn ÍR í síðustu um-
ferð, er greinilega orðinn heimakær
á Króknum en hann skoraði 31 stig
og hitti mjög vel. Jaka Brodnik,
Pétur Rúnar Birgisson og Sinisa
Bilic léku allir vel og var allt annað
að sjá til Tindastóls.
Fyrir leikinn hafði Grindavík
unnið þrjá leiki í röð, gegn Val, ÍR
og Þór Akureyri, en það er ljóst að
Grindavík á nokkuð í land þegar
liðið mætir bestu liðum landsins.
Sigtryggur Arnar Björnsson og
Ingvi Þór Guðmundsson áttu góða
leiki, en Grindavík verður að fá
meira framlag frá fleiri leik-
mönnum. Björgvin Hafþór Rík-
harðsson og Ólafur Ólafsson verða
t.a.m. að sýna meiri stöðugleika ef
liðið ætlar sér stærri hluti en á síð-
ustu tímabilum, þar sem það hefur
fallið úr leik í átta liða úrslitum Ís-
landsmótsins.
Keflavík aftur á sigurbraut
Í Keflavík sýnu heimamenn styrk
sinn og unnu sannfærandi 93:70-
sigur á ÍR. Keflavík tapaði nokkuð
óvænt fyrir Þór Þorlákshöfn í síð-
ustu umferð en ÍR vann sterkan
sigur á Tindastóli og bjuggust
margir við jöfnum leik. Keflvík-
ingar mættu hins vegar miklu
sterkari til leiks og var staðan
snemma orðin 19:2. Tókst ÍR-
ingum aldrei að jafna eftir það.
Dominykas Milka sýndi allar sínar
bestu hliðar og skoraði 16 stig, tók
14 fráköst og gaf 14 stoðsendingar.
Milka er góður í svo gott sem öllu á
körfuboltavellinum og þegar hann
spilar vel spilar Keflavík oftast vel.
Ágúst Orrason skoraði svo 23 stig
af bekknum á aðeins rúmum ellefu
mínútum og svaraði kalli margra
sem höfðu gagnrýnt Keflavík fyrir
að of fáir legðu í púkkið í stiga-
skorun. Keflvíkingar vonast til að
þeir séu komnir á rétta braut á ný
eftir þrjú töp á skömmum tíma.
ÍR-ingar eru ólíkindatól. Þeir
hafa unnið góð lið á borð við Tinda-
stól og KR en í gær fór allt í baklás
og liðið leit alls ekki vel út. ÍR er í
sjöunda sæti og þarf mun meiri
stöðugleika til að lyfta sér upp töfl-
una eftir jól og ná þeim hæðum
sem liðið gerði á síðustu leiktíð.
Jólagleði hjá Njarðvíkingum
Sjötti sigur Njarðvíkinga í röð kom gegn Þórsurum Stjarnan lenti 19 stig-
um undir gegn nýliðunum Keflavík og Tindastóll aftur á sigurbraut eftir töp
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vörn Nikolas Tomsick, sem skoraði 31 stig fyrir Stjörnuna, verst Róberti Sigurðarsyni úr Fjölni.
Sverrir Ingi Ingason og samherjar
hans í PAOK höfðu betur gegn
Panionios á útvelli í grísku úrvals-
deildinni í fótbolta í gær, 2:0. Sverr-
ir skoraði fyrra mark PAOK í upp-
hafi seinni hálfleiks. Sverrir hefur
spilað afar vel upp á síðkastið, en
liðið hefur aðeins fengið á sig eitt
mark í síðustu sex leikjum og
Sverrir skorað tvö í síðustu fjórum.
PAOK er í 2. sæti deildarinnar með
37 stig, eins og Olympiacos, sem er
með betri markatölu. Sverrir og fé-
lagar leika við Atromitos á Þorláks-
messu, áður en liðið fer í jólafrí.
Sverrir skoraði
og hélt hreinu
AFP
Ánægja Sverrir Ingi Ingason skor-
aði, hélt hreinu og er við toppinn.
Oddur Gretarsson var markahæst-
ur í liði Balingen sem mátti þola
26:36-tap fyrir toppliði Kiel í þýsku
1. deildinni í handbolta í gærkvöldi.
Oddur skoraði átta mörk, en það
dugði skammt. Gísli Þorgeir Krist-
jánsson lék ekki með Kiel vegna
meiðsla. Kiel náði tveggja stiga for-
skoti á toppi deildarinnar, þar sem
Flensburg tapaði óvænt fyrir Lud-
wigshaven, 23:25. Þá var Alexand-
er Petersson ekki með RN Löwen
sem vann 32:28-sigur á lærisveinum
Geirs Sveinssonar í Nordhorn.
Kristján Andrésson þjálfar Löwen.
Markahæstur
gegn toppliðinu
Heimasíða Balingen
Átta Oddur Gretarsson var marka-
hæstur hjá Balingen með átta mörk.