Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019
Hæfileikabúnt í
hjálparhellinum
Rosalingarnir – Kristjana Friðbjörns-
dóttir JPV, 2019. 104 bls. innb.
Ýktur og hress-
andi stíll í Rosa-
lingunum eftir
Kristjönu Frið-
björnsdóttur ger-
ir það að verkum
að það er leikur
einn að bruna í
gegnum bókina.
Rosalingarnir
fjalla um Sólberg7 sem dreymir um
að vera rappari og gleymir að hlusta
á það sem kennarinn segir, Mel-
korku Marsibil vill helst vera bæði
syngjandi og dansandi og Artúr sem
sér heiminn í myndum þegar bók-
stafirnir fara á flug.
Ekkert af þessu kemur sér vel í
hefðbundinni kennslustofu og því
eru nemendurnir sendir í sér-
kennslu í hjálparhellinn til herra
Halla, nýs sérkennslukennara sem
þráir að gerast töframaður. Þegar
hann hverfur einn daginn eru góð
ráð dýr. Þremenningarnir komast á
sporið og úr verður snörp en spenn-
andi leit að Halla.
Rosalingarnir eru fjörug og
heillandi frásögn sem öll börn ættu
að tengja við á einhvern hátt, hvort
sem það tengist draumum um að
gerast rappari, dansari eða mynda-
söguteiknari, eða einfaldlega vilj-
anum til að virkja hæfileika sem við
búum jú öll yfir. Herra Halli, eða
hækjan, er góðmennskan uppmáluð
og hlý og góð persóna sem dregur
það besta fram í börnunum sem
glíma við alls konar hindranir í dag-
legu lífi.
Rosalingarnir eru sömuleiðis til-
valin bók fyrir börn sem eru að byrja
að lesa sér til gamans. Bókin er upp-
full af fjöri og það er nóg að gerast á
hverri síðu. Myndskreytingar skop-
meistarans Halldórs Baldurssonar
lífga enn frekar upp á frásögnina og
hrósa verður honum og Kristjönu
fyrir túlkun og framsetningu á per-
sónu Sólberg7, sem kemur rækilega
á óvart, svo ekki sé meira sagt.
Myndskreytingarnar vöktu löng-
un hjá undirritaðri til að draga fram
blýantinn, eða að minnsta kosti tré-
litinn og lita inn í myndirnar og það
er því gaman að segja frá því að á
heimasíðu bókarinnar, rosalingar.is,
er hægt að nálgast teikningar úr
bókinni, auk þess sem þar má hlusta
á höfundinn lesa fyrstu kaflana í
bókinni. Það er svo sannarlega til
fyrirmyndar.
Ævintýri Randalínar og
Munda halda áfram
Randalín, Mundi og leyndarmálið –
Þórdís Gísladóttir bbbnn
Benedikt, 2019. 112 bls. innb.
Randalín, Mundi
og leyndarmálið er
fjórða bókin um
vinina Randalín og
Munda, sem trú-
lega eru á yngsta
stigi grunnskólans
en skólaganga
kemur þó hvergi
við sögu í nýjustu
bókinni, frekar en þeim fyrri. Vin-
irnir eru of upptekin við að eignast
nýja vini, njósna um nágranna sinn
og stofna rapphljómsveit.
Frásögnin er skemmtilega upp
byggð og útdráttur í upphafi hvers
kafla er snjöll leið til að ná til yngstu
lesenda. Bókin er ætluð allra yngstu
lesendum og áheyrendum til 12 ára
aldurs.
Þrjár af aðalpersónum; Andrés,
Jakob Múhameð og Tinna Binna, eru
töluvert og mikið eldri en Randalín
og Mundi og þó svo að þau nái vel
saman er erfitt að sjá hverjum frá-
sögnin er í raun og veru ætluð.
Randalín er drifkrafturinn í sög-
unni og þegar hún skráir nýstofnuðu
rapphljómsveitina í hæfileikakeppni
grunnskólanna kemst fátt annað að.
Auðvitað þarf að finna nafn á sveit-
ina og þar sem pabbi Andrésar er
með viðurnefnið skyndibitakóng-
urinn kýs Andrés að kenna sig við
prins og úr verður að hljómsveitin
fær nafnið Prins Andrés, sem er
kannski ekki heppilegasta hljóm-
sveitanafnið í dag.
En hvað um það. Í frásögninni er
einnig tekið á viðkvæmum málum og
sýnir nágranni Randalínar og
Munda á sér óvænta hlið og læra þau
mikilvæga lexíu að hlutirnir eru ekki
alltaf eins og fólk heldur í fyrstu.
Í frásögninni má finna fjölmargar
vísanir í samtímann sem fær full-
orðna lesendur oftar en ekki til að
skella upp úr, líkt og samræður um
Tinder, en í önnur skipti er tilfinn-
ingin stundum eins og verið sé að
reyna um of, það fer ekkert á milli
mála að Hatari og Salka Sól eru í
guðatölu hjá börnum í dag.
Þórarinn M. Baldursson mynd-
skreytir og ferst vel úr hendi. Teikn-
ingarnar eru einfaldar en gæða frá-
sögnina lífi, ekki síst þegar man
bun-in er kominn í hárið og rapp-
dressið er klárt.
Randalín, Mundi og leyndarmálið
er hin ágætasta bók þó það sé svolít-
ið á reiki hvaða lesendahópi hún er
ætluð, en vonandi nær hún til breiðs
hóps.
Lausnin við loftslagsvánni?
Nærbuxnanjósnararnir – Arndís
Þórarinsdóttir bbbbn
Mál og menning, 2019. 112 bls. innb.
Nærbuxnanjósn-
ararnir er önnur
bókin um vinina
Gutta og Ólínu og
sjálfstætt fram-
hald Nær-
buxnaverksmiðj-
unnar, þar sem
tvíeykið bjargaði
verksmiðjunni
Brókarenda þar sem nú er líf og fjör
alla daga.
Þegar amma Lena, sem ræður
öllu í nærbuxnaverksmiðjunni, fer til
útlanda fara skrítnir hlutir að gerast
og kona sem segist vera húsvörður
harðneitar að hleypa Gutta og Ólínu
inn. Þegar þau komast loksins inn er
ýmislegt horfið, til dæmis kan-
ínumamman Snæfríður og blúndu-
brók sem danski kóngurinn átti árið
1874.
Ljóst er að þau þurfa að grípa til
sinna ráða og upp hefst æsispenn-
andi atburðarrás þar sem brækur og
vélmenni koma við sögu. Það voru
einmitt svörin sem Arndís Þórarins-
dóttir, höfundur bókarinnar, fékk
þegar hún spurði son sinn um hvað
hann langaði að lesa.
Arndísi tekst stórvel til og frá-
sögnin er bráðfyndin og uppfull af
húmor, orðaleikjum og skemmti-
legum tilvísunum í íslenskan raun-
veruleika.
Vinátta Gutta og Ólínu er einstök.
Gutti er hlédrægur og skynsamur á
meðan Ólína er drífandi, fram-
hleypin og óhrædd við að taka
áhættu. Stereótýpískum kynja-
hlutverkum er í raun snúið við sem
er kærkomið.
Myndskreytingar Sigmundar
Breiðfjörð Þorgeirssonar ramma
Nærbuxnanjósnarana inn með
glæsibrag og nær hann að magna
upp spennuna með innihaldsríkum
og nákvæmum teikningum.
Nærbuxnanjósnararnir er fyrst
og fremst barna- og unglingabók en
ekki verður framhjá því litið að hér
er komið enn eitt framlagið í lofts-
lagsbókmenntir í ár, og líklega það
frumlegasta, en að minnsta kosti það
skemmtilegasta.
Krúttlegar kanínur, konunglegar
nærbuxur og skólastjóri sem situr
aðgerðalaus á föstudögum sökum
loftslagsverkfalls nemenda tengjast
því hvernig tekið er á loftslagsvánni,
án þess að ljóstra upp of miklu.
Rosalingar Myndskreyting eftir
Halldór Baldursson úr Rosalingunum
eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur.
Rosalegir rapparar og
konunglegar brækur
Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar barnabækur
Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is
Shakespeare verður ástfanginn (stóra sviðið)
Lau 28/12 kl. 19:30 13. sýn Fös 3/1 kl. 19:30 14.sýn Sun 12/1 kl. 19:30 15. sýn
Hrífandi og skemmtileg stórsýning fyrir áhorfendur á öllum aldri
Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn)
Lau 28/12 kl. 19:30 20. sýn Fös 3/1 kl. 19:30 21.sýn Sun 12/1 kl. 19:30 22. sýn
Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga
Atómstöðin (Stóra Sviðið)
Sun 29/12 kl. 19:30 9. sýn Fim 9/1 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Fim 2/1 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Sun 19/1 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Nýtt og framsækið leikverk byggt á skáldsögu Nóbelskáldsins Halldórs Laxness
Engillinn (Kassinn)
Fös 20/12 kl. 19:30 aðalæfing Lau 4/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 11/1 kl. 19:30 6.sýn
Lau 21/12 kl. 19:30 Frums Sun 5/1 kl. 19:30 4.sýn
Fös 27/12 kl. 19:30 2.sýn Fös 10/1 kl. 19:30 5.sýn
Leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson
Leitin að jólunum (Brúðuloftið)
Lau 21/12 kl. 11:00 371.
sýn
Lau 21/12 kl. 14:30 373.
sýn
Sun 22/12 kl. 13:00 375.
sýn
Lau 21/12 kl. 13:00 372.
sýn
Sun 22/12 kl. 11:00 374.
sýn
Sun 22/12 kl. 14:30 376.
sýn
Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyr
Meistarinn og Margarita (Stóra Sviðið)
Mán 23/12 kl. 13:00
aðalæfing
Lau 4/1 kl. 19:30 3. sýn Lau 11/1 kl. 19:30 6. sýn
Fim 26/12 kl. 19:30 Frums Sun 5/1 kl. 19:30 4. sýn Fim 16/1 kl. 19:30 7. sýn
Fös 27/12 kl. 19:30 2. sýn Fös 10/1 kl. 19:30 5. sýn
Hnyttin háðsádeila, gædd myrkum töfrum
Eyður (Stóra Sviðið)
Mið 15/1 kl. 19:30 Frums Mán 20/1 kl. 19:30 2. sýn
Sviðslistahópurinn Marmarabörn
Þitt eigið leikrit II (Kúlan)
Fös 14/2 kl. 18:00 Frums Sun 16/2 kl. 15:00 3.sýn Sun 23/2 kl. 15:00 5.sýn
Lau 15/2 kl. 15:00 2.sýn Lau 22/2 kl. 15:00 4.sýn
Hvert myndir þú fara? Þú mátt velja núna!
Dansandi Ljóð - Leikhúslistakonur 50+ (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 18/1 kl. 20:00 Fös 24/1 kl. 20:00
Sun 19/1 kl. 16:00 Sun 26/1 kl. 16:00
Kynngikraftur kvenna birtist í leiklist, ljóðum og tónlist
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Sex í sveit (Stóra sviðið)
Lau 21/12 kl. 20:00 33. s Lau 4/1 kl. 20:00 37. s Fös 24/1 kl. 20:00 41. s
Fös 27/12 kl. 20:00 34. s Sun 5/1 kl. 20:00 38. s Lau 25/1 kl. 20:00 42. s
Lau 28/12 kl. 20:00 35. s Fös 17/1 kl. 20:00 39. s Sun 26/1 kl. 20:00 43. s
Fös 3/1 kl. 20:00 36. s Lau 18/1 kl. 20:00 40. s
Sprenghlægilegur gamanleikur!
Matthildur (Stóra sviðið)
Sun 22/12 kl. 13:00 76. s Sun 29/12 kl. 13:00 80. s Lau 18/1 kl. 13:00 83. s
Fim 26/12 kl. 13:00 77. s Sun 5/1 kl. 13:00 81. s Sun 19/1 kl. 13:00 Lokas.
Lau 28/12 kl. 13:00 79. s Sun 12/1 kl. 13:00 82. s
Allra síðustu aukasýningarnar í janúar.
Eitur (Litla sviðið)
Fös 27/12 kl. 20:00 24. s Lau 28/12 kl. 20:00 25. s Sun 29/12 kl. 20:00 Lokas.
Takmarkaður sýningartími, sýningum lýkur í desember.
Vanja frændi (Stóra sviðið)
Lau 11/1 kl. 20:00 Frums. Fim 16/1 kl. 20:00 4. s Fim 23/1 kl. 20:00 7. s
Sun 12/1 kl. 20:00 2. s Sun 19/1 kl. 20:00 5. s Fim 30/1 kl. 20:00 8. s
Mið 15/1 kl. 20:00 3. s Mið 22/1 kl. 20:00 6. s Sun 2/2 kl. 20:00 9. s
Er líf okkar andlegt frjálst fall?
Helgi Þór rofnar (Nýja sviðið)
Fös 17/1 kl. 20:00 Frums. Fös 24/1 kl. 20:00 3. s Sun 26/1 kl. 20:00 5. s
Lau 18/1 kl. 20:00 2. s Lau 25/1 kl. 20:00 4. s Fös 31/1 kl. 20:00 6. s
Lífið getur verið svo niðurdrepandi!
Um tímann og vatnið (Stóra sviðið)
Þri 14/1 kl. 20:00 5. s Þri 21/1 kl. 20:00 6. s
Kvöldstund með listamanni.
Skjáskot (Nýja sviðið)
Þri 21/1 kl. 20:00 3. s Þri 11/2 kl. 20:00 4. s
Kvöldstund með listamanni.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Fös 27/12 kl. 20:00 18. s Lau 28/12 kl. 20:00 19. s Sun 29/12 kl. 20:00 20. s
Allra síðustu sýningar.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 21/12 kl. 13:00 20. s Sun 22/12 kl. 13:00 Lokas.
Aðeins sýnt á aðventunni.
Kynntu þér matseðil Leikhúsbarsins á
borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Nýjasta Stjörnustríðskvikmyndin,
Star Wars: Episode IX – The Rise of
Skywalker, hefur hlotið heldur mis-
jafna dóma gagnrýnenda erlendis
en kvikmyndin var frumsýnd hér á
landi í gær. Vefurinn Metacritic
hefur nú tekið saman dóma 40
gagnrýnenda og er meðaltals-
einkunn þeirra 54 af 100 mögu-
legum sem telst heldur slakt.
Nokkrir eru mjög hrifnir af mynd-
inni, þeirra á meðal gagnrýnendur
The Guardian, Seattle Times, The
Telegraph, Variety og Film en
versta útreið fær myndin hjá Vox
og Slant og dómar Screen Daily og
Hollywood Reporter eru líka í nei-
kvæðara lagi. Gagnrýnandi New
York Times fer milliveginn, segir
myndina hvorki góða né slæma,
enda á því að ekki sé til góð
Stjörnustríðsmynd.
Stjörnustríðsmynd nr. 9 í meðallagi