Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 48
Karlakórinn Fóstbræður heldur
jólatónleika í Langholtskirkju í
kvöld kl. 19.30 sem bera yfirskrift-
ina „Stafa frá stjörnu“. Er hún sótt í
fyrstu línu kvæðis Matthíasar Joch-
umssonar „Á jólum 1904“ en Árni
Harðarson, stjórnandi kórsins,
samdi lag við kvæðið. Á efnisskrá
verða innlend og erlend kórverk,
gömul og ný, sem tengjast jólum og
hinu eilífa ljósi og einsöngvarar
verða úr hópi kórmeðlima. Meðleik-
ari með kórnum er Tómas Guðni
Eggertsson.
Fóstbræður syngja í
Langholtskirkju
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 354. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Ég hef verið í þessum handbolta
frá því ég var krakki. Hef verið at-
vinnumaður, landsliðsmaður, þjálf-
ari, landsliðsþjálfari og hef mennt-
að mig í þessu. Þar af leiðandi er
líklegt að ég starfi við handbolta en
hvort það verði meistaraflokks-
þjálfun er ekkert öruggt,“ segir
Patrekur Jóhannesson m.a. í sam-
tali við Morgunblaðið í dag. »37
Ekki farinn að huga að
næsta keppnistímabili
ÍÞRÓTTIR MENNING
ússonar í Klúbbnum en svo kynntist
ég henni löngu síðar. Hún var
skemmtileg og yndisleg.“
Prentarinn Sigurdór var jafn-
framt íþróttafréttamaður á Þjóðvilj-
anum 1967 til 1969 og fór síðan í al-
mennar fréttir. „Þá fannst mér
vanta vísur í blaðið, bauðst til þess
að sjá um eina vísnasíðu á viku og
gerði það næstu 18 árin eða þangað
til ég fór yfir á DV.“ Þar segist hann
hafa verið beðinn að sjá um Sand-
korn, þar sem einkum höfðu verið
birtar skrýtlur og Hafnarfjarðar-
brandarar. „Ég byrjaði á því að setja
inn eina og eina vísu og síðustu þrjú
til fjögur árin var þetta eingöngu
vísnaþáttur. Þegar ég fór á Dag tók
ég upp daglegan tveggja dálka
vísnaþátt og síðan bjó ég til vísna-
þátt í Bændablaðinu sem enn lifir
góðu lífi, en sjálfur varð ég að hætta
sjötugur vegna aldurs.“
Á vefsíðunni kemur fram í aðfara-
orðum Halldóru að vísurnar séu
mikill menningarfjársjóður. „Frá því
ég man eftir mér sagði faðir minn
okkur systrunum sögur og vísur og
söng fyrir okkur vísur fyrir svefn-
inn.“ Hún segir að efnið jafngildi um
400 síðna bók. Mikill tími hafi farið í
samantektina en hann hafi verið
þess virði. „Ég ólst upp við þessar
vísur og mér þykir afskaplega vænt
um þessa vinnu hans,“ segir hún.
Sigurdór heldur enn vísum til
haga og birtir reglulega á Fésbók-
inni. „Eftir að ég hætti að vinna
byrjaði ég að setja inn tvær til þrjár
vísur daglega og ég hef eignast
marga vini og kynnst mörgum sem
hafa ánægju af þessum vísum.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Safn yfir 2.000 vísna, sem blaðamað-
urinn og söngvarinn Sigurdór Sigur-
dórsson birti í vísnaþáttum sínum í
Þjóðviljanum, DV, Degi og Bænda-
blaðinu á ríflega 40 árum, er nú að-
gengilegt á netinu (sdor.viki.is).
Halldóra dóttir
hans tók efnið
saman vegna
verkefnis í hag-
nýtri menningar-
miðlun í Háskóla
Íslands og ætlaði
að gefa það út í
bók, en vefurinn
varð fyrir valinu
til að fleiri gætu
notið þess.
„Ég er mjög
ánægður með þetta,“ segir Sigurdór,
sem fékk vefinn í afmælisgjöf á dög-
unum. „Vinnan hjá henni er afskap-
lega vönduð. Ég var ekki hrifinn af
því að hafa vísur eftir mig með en
hún vildi það og þetta er hennar
verk, ekki mitt, svo ég sagði bara
pass.“
María, María, María …
Vísna- og ljóðadella hefur fylgt
Sigurdóri eins lengi og hann man.
Hann rifjar upp að hann hafi búið í
sveit í æsku, þar hafi ekki verið sími
og aðeins hlustað á fréttir og kvöld-
söguna í batterísútvarpinu. „Þá sat
pabbi gamli oft með okkur ungu
systkinin tvö á kvöldin, sagði okkur
sögur, fór með vísur og söng fyrir
okkur. Ég lærði vísurnar og kunni
um tíma mikið af söguljóðum.“
Gleðigjafinn byrjaði snemma að
syngja og meðal annars söng hann
Þórsmerkurljóð Sigurðar Þórarins-
sonar inn á plötu með hljómsveit
Svavars Gests og gerði Maríu um
leið að þjóðareign í útilegum og öðr-
um mannfagnaði. „Röddin fór 1967,“
rifjar hann upp með söknuði en bæt-
ir við að hann hafi kynnst Ellý Vil-
hjálms þegar hann var fararstjóri á
Spáni. „Þegar hún veiktist leysti ég
hana af í hljómsveit Kristjáns Magn-
Ánægjuleg afmælis-
gjöf til gleðigjafans
Vísnasafn Sigurdórs úr dagblöðum aðgengilegt á netinu
Sólarmegin Blaðamaðurinn og söngvarinn Sigurdór Sigurdórsson.
Halldóra
Sigurdórsdóttir
Sölvi Kolbeinsson saxófónleikari og
Magnús Trygvason Eliassen slag-
verksleikari bjóða til snarstefjaðrar
óvissuferðar í menningarhúsinu
Mengi í kvöld kl. 21.
„Súrt og sætt, gamalt og nýtt;
þetta eru tónleikar númer … þeir
vita það ekki alveg sjálfir, strák-
arnir, en þeir fyrstu fóru fram sum-
arið 2015,“ segir um viðburðinn á
facebooksíðu hans.
Snarstefjuð óvissuferð
Sölva og Magnúsar