Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2019, Síða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2019, Síða 10
VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2019 Þ að er bjart yfir Skógum, austasta bænum undir Eyjafjöllum, þetta desembermiðdegi og hríðarkófið sem fylgdi okkur Árna Sæberg ljósmyndara úr borginni og austur yfir fjall er orðið fjarlæg minning. Þjóðin býr sig undir mesta norðanbál í manna minnum en hvorki dettur þó né drýpur af Þórði Tómas- syni, safnverði, rithöfundi og menningarfröm- uði, þegar hann tekur á móti okkur á heimili sínu á staðnum. Þórður er 98 ára, langt geng- inn í 99, eins og hann orðar það sjálfur, en fis- léttur á fæti og telur ekki eftir sér að ræða um gamla tíma og nýja við gestina að sunnan. „Gjöriði svo vel, þetta er skrifstofan mín,“ segir Þórður þegar við höfum tekið af okkur. Athygli vekur að þar er ekkert skrifborð, að- eins drjúgt sófaborð, og hvorki ritvél né tölva. „Hér sit ég og skrifa,“ bætir hann við og setur sig í stellingar við borðið. „Ég vélritaði mjög lengi en síðustu árin hef ég handskrifað allt mitt efni. Sigurlín Sveinbjarnardóttir, fyrrver- andi skólastjóri, hefur verið svo vinsamleg að taka síðan við handritunum mínum og búa þau undir prentun. Fyrir það kann ég henni miklar þakkir. Helgi Magnússon sagnfræðingur á líka drjúgan þátt í þessari nýju bók, las allt vand- lega yfir og jafnvel hægt að kalla hann meðhöf- und.“ Úrvinnsla úr sjóði óbirtra heimilda Auðhumla heitir hún, nýja bókin, og er svo sem nafnið gefur til kynna fræðslurit um gamla verkmenningu, málfar og þjóðhætti sem tengj- ast kúabúskap og nautpeningi í gamla íslenska bændasamfélaginu. Þórður íhugaði nafnið Bú- kolla enda tengingin skýr við aldinn ævintýra- heim en kaus þó Auðhumlu, sem sótt er til hinnar miklu ættmóður kúakyns sem færði björg og blessun í bú bænda um aldir. „Með þessari bók fullkomnar Þórður Tóm- asson úrvinnslu sína á sjóði óbirtra heimilda og nýtur þar bæði fræðilegrar þekkingar sinnar og eigin reynslu af lífi og starfi í þeim menning- ar- og atvinnuheimi sem hér er sagt frá,“ segir í kynningu útgefanda, bókaútgáfunnar Sæ- mundar. Eins og í fyrri bókum, Mjólk í mat og Heyönnum, er Þórður með báða fætur í gömlu búmenningunni. „Þetta tengist allt og ég kem víða við, án þess þó að tæma neitt. Verst hvað áhugi fyrir þessum gömlu fræðum fer dvín- andi. Þór Magnússon skrifaði til dæmis stór- merkilegt tveggja binda verk um silfursmíði og ætti að fá doktorsnafnbót að launum. En mað- ur heyrir fólk ekki tala um þetta. Það er synd.“ Snemma beygist krókurinn, eins og sagt er, og Þórður var aðeins um fermingu þegar hann byrjaði að viða að sér efni um gamla þjóðmenn- ingu Íslands, sem hvarvetna hélt velli í hans sveit undir Eyjafjöllum og raunar um land allt. Húskonan hafsjór af fróðleik „Þegar ég var að alast upp heima í Vallnatúni var ég svo heppinn að búskapur var með svip- uðum hætti og verið hafði um aldaraðir. Lítið hafði breyst. Þetta var gjörólíkt því menning- arsamfélagi sem við þekkjum í dag. Ég naut þeirrar blessunar að alast upp með gömlu fólki og á hverju býli undir Eyjafjöllum var gamalt fólk sem ég gat leitað til. Allt tók þetta fólk mér vel og leiðbeindi af góðfýsi. Þetta var ótruflað fólk sem gat rakið minningar margar aldir aft- ur í tímann en þær höfðu gengið mann fram af manni.“ Hann gerir stutt hlé á máli sínu en heldur svo áfram. „Þessi gamla búmenning var undir- staðan undir lífið í landinu og minn skóli í æsku. Ég er ævinlega þakklátur fyrir að hafa kynnst gamla þjóðfélaginu ólöskuðu og fólki sem talaði auðugt mál. Margt af þeim orðum og orðatiltækjum sem þekktust í minni bernsku er horfið og kemur eflaust aldrei aft- ur,“ segir Þórður og nefnir móður sína, Krist- ínu Magnúsdóttur, og vinnukonu hennar, Ólöfu Jónsdóttur, sérstaklega í þessu sambandi. „Þessar tvær konur gáfu mér þann orðaforða og þau föstu orðasambönd sem ég bý að og nú eru fram borin í lesmáli,“ segir hann í bókinni. Hann nefnir einnig Arnlaugu Tómasdóttur, sem fædd var 1860, en hún var húskona hjá foreldrum hans. Með „húskonu“ er átt við manneskju sem var sjálfráðandi og lagði sér allt til á degi hverjum en Arnlaug vann fyrir sér með prjónaskap og átti þess utan nokkrar sauðkindur. „Arnlaug gaf mér efni í heila bók – ætt- arsögu sína,“ segir Þórður og þylur upp nöfn fjölmargra forfeðra og -mæðra Arnlaugar sem uppi voru á átjándu og nítjándu öld, eins og um væri að ræða nána ættingja og/eða vini í sam- tímanum. Eina nafnið sem ég næ í fljótu bragði á blað er Oddur Bárðarson bóndi en lýsingar Arnlaugar voru víst svo mergjaðar og með þeim hætti að Þórður sá Odd og aðra sem um var rætt ljóslifandi fyrir sér. Fyrsta bók Þórðar, Eyfellskar sagnir, sem kom út í þremur bindum, hafði einmitt að geyma efni af þessu tagi. Fyrsta bindið kom út á því herrans ári 1948, þannig að hann átti sumsé sjötíu ára rithöfundarafmæli á seinasta ári. Geri aðrir betur! „Já, já, þetta er orðinn nokkuð langur ferill,“ segir hann og brosir. „Það er einhver innri hvöt sem hefur rekið mig áfram til að skrifa. Ég er búinn að lifa langa ævi og er þakklátur fyrir mín tækifæri.“ En aftur að blessuðum kúnum. Í bernsku Þórðar var fjósið fyrst og fremst verksvið kvenna, umsjón hvíldi á þeim og þær sáu alfar- ið um mjaltir. Í Vallnakoti var téð Ólöf Jóns- dóttir vinnukona afskaplega handgengin kún- um og kunni vel til verka og lærði Þórður margt af henni. Þó ekki í fjósinu. „Sjálfur hef ég aldrei lært að mjólka kú. Það tíðkaðist ekki að drengir önnuðust það verk. Ég man eftir einum pilti sem hjálpaði til í fjósinu á sínu býli og var fyrir vikið hæddur og spottaður um all- ar Landeyjar.“ Barðist fyrir tilveru sinni Heyjað var með orfi og ljá og allt hey flutt heim á klyfjahestum. Upp úr lokum heims- styrjaldarinnar seinni vélvæddust sveitirnar og menningarleg umskipti urðu. Þórður man líka þá tíð að flestir bændur voru jafnframt sjó- menn og róið var frá nánast hverjum einasta bæ úr gömlu vörunum undir Austur-Eyjafjöll- um. Þá lá straumur ungs fólks á vertíðir. Á „Ég er ævinlega þakklátur fyrir að hafa kynnst gamla þjóðfélaginu ólöskuðu og fólki sem talaði auðugt mál,“ segir Þórður Tómasson í Skógum. Hef aldrei lært að mjólka kú Þórður Tómasson í Skógum hefur sent frá sér bókina Auðhumlu, þar sem hann fjallar um kýr og nautahald fyrri tíma. Hann verður 99 ára í vor en gengur ennþá hress og kátur til sinna verka dag hvern, 71 ári eftir að fyrsta bók hans leit dagsins ljós og er þakklátur fyrir að hafa alla tíð getað unnið við sitt helsta áhugamál, gamla búmenningu, og notið til þess ríks stuðnings. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is ’ Ég naut þeirrar blessunarað alast upp með gömlu fólkiog á hverju býli undir Eyjafjöll-um var gamalt fólk sem ég gat leitað til. Allt tók þetta fólk mér vel og leiðbeindi af góðfýsi. Þetta var ótruflað fólk sem gat rakið minningar margar aldir aftur í tímann en þær höfðu gengið mann fram af manni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.