Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.12.2019, Qupperneq 18
Theodóra býr ásamt sjö ára syni sínumÓlíver Jack í Hlíðunum. Hún segistgjarnan bjóða fólki heim og þegar veisl-
ur eru skipulagðar fram í tímann gefur Theo-
dóra sér góðan tíma í undirbúning.
„Ég er ekki týpan sem er alltaf að halda
stórar planaðar veislur nema á afmælum og
jólum, en ég býð fólkinu mínu oft óvænt í mat
og þá gefst ekki mikill tími til að dúlla sér við
skreytingar. En þegar ég held veislur gef ég
mér tíma til að dúlla mér við smáatriðin og
geri það þá frekar „grand“. Sem dæmi þá fer
ég dálítið dramatískt þemalega séð inn í
barnaafmæli sonar míns,“ segir hún.
„Með allt annað á heimilinu er ég mjög mik-
ill dúllari og nostrari. Ég á erfitt með að festa
hluti niður og er ágætlega fræg innan míns
hóps fyrir að vera alltaf að mála veggi heimilis
míns. Ég er yfirleitt aldrei með lit á vegg leng-
ur en ár í senn. Mér finnst rosalega gaman að
breyta, bæta og græja. Svo er ég alveg gríðar-
lega mikill fagurkeri. Ég hef gott auga fyrir
litum og formum sem tengist bæði hárinu og
vöruhönnuninni.“
Þema og stemning
Theodóra segir litasamsetningu skipta mestu
máli þegar leggja á fallega á borð.
„Litasamsetning er númer eitt, tvö og þrjú og
að halda sig við ákveðna stemningu, hver sem
hún er. Vil ég hafa það kósí, sumarlegt, jóló,
sveitó eða töff? Þegar búið er að ákveða þemað
og stemninguna sem þú vilt ná fram er mun auð-
veldara að plana og setja borðið upp,“ segir hún.
„Ég er ekki mikið fyrir það að kaupa alls
konar dót og dúllerí til að skreyta með. Ég
reyni alltaf að nota það sem er hendi næst. Ég
fer út í garð og næ í sóleyjar og fífla fyrir sum-
arstemningu. Ég klippi greinarnar af jóla-
trénu sem liggja næst veggnum og set á borðið
í stað þess að kaupa aukagreinar. Ég tíni
köngla og spreyja þá í alls konar litum og tek
þurrkuð laufblöð og spreyja þau gyllt.“
Fyrir hátíðarborðið sem sést hér á myndum
notaði Theodóra hvítu matardiskana Teema
frá Kaj Franck, sem hún hefur verið að safna í
mörg ár. Minni svörtu diskarnir eru fá KER
en gylltu hnífapörin og tauservíetturnar eru úr
Söstrene Grene.
„Ég hef verið að leita að fallegum
hnífapörum í mörg ár og hef aldrei fundið þau
einu réttu, en svo í algjörri heppni í mán-
uðinum rakst ég á þau í Söstrene Grene og
gat ekki setið á mér,“ segir hún.
„Keramiktrén eiga sérstakan stað í hjarta
mér og að taka þau upp fyrir hver jól er eitt af
því sem kemur mér mest í jólaskap. Bæði þau
og fallegu staflanlegu kertastjakarnir eru frá
KER.“
Kaupir jólatré í byrjun nóvember
Ertu mikið jólabarn?
„Ég er mögulega eitt mesta jólabarn sem
fyrirfinnst á þessari jörðu. Það er alveg smá
vandræðalegt stundum því ég er mætt að
kaupa jólatré oft áður en þau eru komin í búð-
irnar. Ég hef fengið símhringingar frá þessum
búðum bara til að láta mig vita að jólatrén séu
komin og þá bruna ég í einum grænum. Í ár
var ég frekar sein í því, en ég keypti jólatréð
15. nóvember. Ég er yfirleitt búin að því fyrstu
vikuna í nóvember.“
Varstu að gefa út bók núna fyrir jólin?
„Það var ég svo sannarlega að gera. Hár-
bókin heitir hún og inniheldur 58 greiðslur í
sítt, millisítt og axlasítt hár fyrir öll tilefni,“
segir Theodóra sem hefur að vonum nóg að
gera í vinnunni fram að jólum.
„Ég er svo snemma í því að græja jólin og
hef þá nægan tíma til að njóta, borða smá-
kökur og horfa á jólamyndir. Jólin okkar
verða einstaklega ljúf eins og alltaf. Við
ætlum að vera heima og hafa það kósí frá því
við vöknum og þangað til við förum að sofa.
Það er allt best við jólin. Gleðin í fólkinu í
kringum mig, samveran og kærleikurinn
sem gefur mér svo mikið yfir hátíðarnar.
Svo er ótrúlega gaman að vinna á hár-
greiðslustofu fyrir jól, allir til í breytingar
og allir glaðir.“
Fagurkerinn Theodóra
Mjöll er mikið jólabarn
og elskar að hafa fallegt í
kringum sig. Hér er hún
ásamt syni sínum Ólíver.
Mesta jólabarn heimsins
Theodóra Mjöll S. Jack,
vöruhönnuður og hár-
greiðslukona, lagði fallega á
hátíðarborð fyrir Morgun-
blaðið. Hún segir litasam-
setningu skipta mestu máli
þegar skreyta á borð.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Theodóra notar oft greinar og
laufblauð til að skreyta borðið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.12. 2019
LÍFSSTÍLL
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
OPNUNARTÍMI VERSLUNAR Í FAXAFENI TIL JÓLA
Lau. 14. des. 11–16
Sun. 15. des. 13–176
16.–18. des. 10–18
19.–22. des. 10–20
23 des. 10–22
Aðfangad. 10–13
QOD AFMÆLIS-DÚNKODDI
Þéttur og góður dúnkoddi. 80% hvítur
andadúnn og 20% smáfiður. 50x75 cm.
920 gr. og 100% bómullaráklæði.
8.900 kr. AFMÆLISVERÐ
QOD AFMÆLIS -DÚNSÆNG
Hlý og létt dúnsæng (650 gr).
90% dúnn, 10% smáfiður. 140x200 cm
100% bómullaráklæði.
25.000 kr. AFMÆLISVERÐ
SATIN STRIPE DÚNKODDI
Þriggja laga dúnkoddi. Efra og neðra
dúnlag með þéttum, hvítum andadún og
smáfiðurkjarna. Bómullarsatínáklæði.
9.900 kr. AFMÆLISVERÐ
HÖFUM LAGT GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI Í
DÚNMJÚKAR G JAF I R F YR I R ÞÁ SEM ÞÉR ÞYK IR VÆNST UM