Fréttablaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 1
Forystufólk Samfylkingarinnar íReykjavík kemur saman í dag til að ræða framboð borgarstjóra og áhrif þess á Reykjavíkurlista- samstarfið. bls. 2 Karlmaður í Skerjafirðinumskaut á tvo hunda nágranna síns sem léku lausum hala. bls. 2 Sjö Palestínumenn, þeirra á með-al lögreglumaður og óvopnaður námsmaður, féllu fyrir ísraelskum hermönnum á annan í jólum. bls. 4 Kínverskar dúkkur af LínuLangsokk með stór brjóst og í gegnsæjum nærbuxum ullu miklu fjaðrafoki í Svíþjóð. bls. 6 JÓLAHALD Misjafnlega hátíðlegt bls. 4 Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 27. desember 2002 Tónlist 20 Leikhús 20 Myndlist 20 Bíó 22 Íþróttir 14 Sjónvarp 24 KVÖLDIÐ Í KVÖLD STJÓRNMÁL Fulltrúaráð Samfylkingar kemur saman í hádeginu í dag og ræðir stöðuna borgarmála og hvernig skuli svara kröfum Fram- sóknarflokks og VG um að Ingi- björg Sólrún Gísladóttir segi starfi sínu lausu haldi hún því til streitu að bjóða sig fram til Alþingis í vor. Rætt um R-listasamstarf TÓNLEIKAR Jólatónleikar dúettsins SlowBlow verða í kvöld á Grand Rokk en þar munu þeir Dagur Kári Pétursson og Orri Jónsson kynna efni af sinni þriðju plötu. Tónleik- arnir hefjast klukkan 23.59. SlowBlow á Grand Rokk LEIKHÚS Önnur sýning Þjóðleikhúss- ins á leikritinu Með fullri reisn verður á stóra sviðinu í kvöld en í sýningunni fækka ýmsir af þekkt- ari karlkynsleikurum landsins föt- um við mikla hrifningu áhorfenda. Sýningin hefst klukka 20.00 Stripplast á stóra sviðinu MYNDLIST Guðjón Ketilsson sýnir verk sín á myndvegg skartgripa- verslunarinnar Mariellu á Skóla- vörðustíg 12. Sýningunni lýkur 5. janúar á næsta ári. Sýning Guðjóns Ketilssonar FÓTBOLTI Bjarki á leið í KR FÖSTUDAGUR 261. tölublað – 2. árgangur bls. 6 STJÓRNMÁL Samfylkingin þarf Ingibjörgu Sólrúnu bls. 19 ATVINNUMÁL „Það er verið að neyða mennina til að flytja til Vest- mannaeyja. Þetta er hreinn hreppaflutn- ingur og yfir- gengilegt að þvinga menn til að vera í Eyjum,“ segir Birgir Björg- vinsson, gjald- keri Sjómanna- félags Reykja- víkur, um þær aðgerðir sem komið hafa í kjölfar þess að frystitogarinn Snorri Sturlu- son var seldur frá Granda hf. í Reykjavík til Ísfélagsins í Vest- mannaeyjum. Með í kaupunum á skipinu fylgdi öll áhöfn skipsins, 25 manns. Því var að sögn Birgis lofað þegar skipið var selt að engin breyting yrði á högum áhafnarinn- ar. „Það er verið að brjóta þetta loforð. Áhöfnin hefur undirritað að þeir vilji vera í Sjómannafélaginu í Reykjavík en því hefur verið hafn- að,“ segir Birgir. Á Snorra Sturlusyni voru átján menn sem allir voru í Sjómannafé- lagi Reykjavíkur þegar skipið var selt til Eyja. Allir mennirnir búa enn í Reykjavík en margir hafa flutt lögheimilið til Eyja. Birgir segir að þeim hafi verið gert að flytja lögheimili sín til Eyja. „Menn eru skíthræddir um að verða reknir. Þeir óttast að til þess komi ef þeir ekki hlýða,“ segir hann. Birgir segir að forstjóri Ísfé- lagsins hafi sagt við sig að honum væri sama hvert mannskapurinn greiddi gjöld sín en nú væri annað komið á daginn. „Nýlega var frystitogarinn Ven- us seldur frá Hafnarfirði til Granda í Reykjavík. Helmingurinn af mannskapnum vill vera áfram í Sjómannafélagi Hafnarfjarðar og við höfum ekki gert athugasemd við það enda á að vera félagafrelsi og Ísland eitt atvinnusvæði. Haldi þetta áfram þá getur komið til þess að við verðum að beita sömu að- ferðum og Vestmannaeyingar. Reykjavík er eina sveitarfélagið sem ekki notfærir sér svona vinnu- brögð,“ segir Birgir. Elías Björnsson, formaður Sjó- mannafélagsins Jötuns í Vest- mannaeyjum segir ekkert óeðlilegt við að áhöfn Snorra sé gert að eiga lögheimili í Eyjum. Hann segir að útgerðin hafi undirgengist að það yrði viss aðlögunartími eftir að skipið kom til Eyja. Síðan átti að ráða Vestmannaeyinga í þau störf sem losnuðu. „Það er ekki verið að þvinga neinn. Margir sjómenn hér eru at- vinnulausir og samkvæmt kjara- samningum eiga félagsmenn á svæðinu að hafa forgang til vinnu. Þetta vita þeir hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur,“ segir Elías. Hann segir að menn hjá Sjó- mannafélagi Reykjavíkur verði að vera sjálfum sér samkvæmir. Þeg- ar nótaskipið Faxi hafi verið keypt frá Vestmannaeyjum til Reykja- víkur hafi áhöfnin fylgt með og þeir hafi við flutninginn greitt fé- lagsgjöld sín til Sjómannafélags Reykjavíkur. „Við gerðum enga athugasemd við það enda samkvæmt kjara- samningum,“ segir Elías. rt@frettabladid.is Sjómenn neyddir til að flytja til Eyja Hreinn hreppaflutningur, segir gjaldkeri Sjómannafélags Reykjavíkur um áhöfnina á Snorra Sturlusyni. Sjómönnum gert að greiða sín gjöld í Eyjum. Samkvæmt kjarasamningum, segir formaður Jötuns. VEÐUR Eftir miklar vangaveltur á aðventunni um það hvort jólin yrðu rauð eða hvít í ár er svarið loksins fengið: Jólin voru hvorki rauð né hvít. Þau voru græn. Þegar farið er um höfuðborg- arsvæðið blasa hvarvetna við græn tún og grasflatir. Sum tré og runnar eru byrjuð að bruma. Svipaða sögu er að segja af öðr- um stöðum víða um land. Garð- yrkjufræðingar telja gróður í hættu kólni ekki fljótlega í veðri. Það er reyndar einmitt það sem veðurspár gera ráð fyrir. Hrafn Guðmundsson veður- fræðingur á Veðurstofu Íslands segir stefna í að desember verði hlýrri en hann hefur áður verið frá því mælingar hófust. Þó muni nokkuð kólna á næstu dög- um. Fyrirliggjandi spár gera nú ráð fyrir frosti um allt land á gamlársdag og nýársdag. Sam- kvæmt spánum verða él fyrir norðan og austan en léttskýjað annars staðar. Líklegt þykir að hvass vindstrengur verði með suðurströndinni en að annars staðar verði vindur mun hægari, eða á bilinu 5 til 10 metrar á sek- úndu. ■ Hvorki rauð né hvít jól: Græn jól en frost á gamlárskvöld NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 24% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á föstudögum? 66% 71% REYKJAVÍK Hæg norðlæg eða breytileg átt og léttir smám saman til. Vægt frost. VEÐRIÐ Í DAG VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-10 Léttskýjað 1 Akureyri 5-10 Skýjað 1 Egilsstaðir 3-8 Skýjað 1 Vestmannaeyjar 3-5 Léttskýjað 1➜ ➜ ➜ ➜ - - - - NÁMSMENN bls. 30 Kær- komnir jólagestir AFMÆLI ÞETTA HELST Stoltur Vestur- bæingur bls. 27 BIRGIR BJÖRGVINSSON Menn eru fluttir hreppaflutningum. „FÆÐING FRELSARANS“Það var sannkölluð jólastemning í fjölskylduguðþjónustu í Langholtskirkju í gær. Meðal þess sem boðið var upp á var helgileikurinn „Fæðing frelsarans“ eftir Hauk Ágústsson í flutningi barna í Kórskóla Langholtskirkju. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.