Fréttablaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 27.12.2002, Blaðsíða 22
22 27. desember 2002 FÖSTUDAGUR LIKE MIKE kl. 12, 2 og 4 JAMES BONDkl. 2, 5, 6.30, 8, 10 og 11.30 Sýnd kl. 12, 2, 4, 6, 8, 10 og 11.30 Sýnd í lúxus kl. 3, 7 og 11kl. 1.50 og 3.55SANTA CLAUSE 2 HARRY POTTER kl. 8HARRY POTTER ÍSL TAL kl. 2 og 5 GULL PLÁNETAN kl. 2, 4 og 6 ísl. tal Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 GULL PLÁNETAN kl. 2, 4, 6 og 8 VIT498 LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 2 VIT 429 SANTA CLAUS 1.40, 3.40, 5.50, 8, 10.10 VIT485GOST SHIP kl. 10.10 VIT 487 kl. 6.20, 8.10 og10.10HLEMMUR kl. 5.55, 8 og 10.05HAFIÐ 1.45, 4, 8 og 10.20EINRÆÐISHERRANN Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10 VIT 494 Sýnd í lúxus kl. 6, 8 og 10.10 VIT 495 TÓNLIST Það var hjartaáfall sem fell- di pönkhetjuna Joe Strummer. Hann varð 50 ára gamall í ágúst síðastliðnum. Frægðarsól hans reis hæst er hann leiddi pönk- rokksveitina The Clash upp vin- sældalistana í lok áttunda áratug- arins. Sú sveit var ásamt Sex Pistols í fremstu röð breskra pönk- sveita, þó að báðar hafi eflaust fengið innblástur frá New York- sveitinni The Ramones. Í The Clash sameinaðist þó pönkrokkið reggae-tónum í fyrsta sinn. Sveitin var einnig þekkt fyrir hápólitískar og beittar textasmíðar. The Clash lagði árar í bát árið 1986. Joe Strummer fæddist John Graham Mellor þann 21. ágúst árið 1952 í Ankara í Tyrklandi þar sem faðir hans var sendiherra. Hann sökkti sér í rokk og reggae á unglingsárum sínum og stofnaði fyrstu sveit sína, pöbbabandið 101’ers, árið 1974. Þá hafði hann þegar tekið upp sviðsnafnið Joe Strummer. Sagan segir að Strummer hafi frelsast til pönks- ins eftir að hafa séð Sex Pistols leika á tónleikum. Hann á þá að hafa hætt samstundis í pöbbasveitinni, staðráðinn í því að taka þátt í pönksenunni. Strummer stofnaði Clash ásamt gítarleikaranum Mick Jones árið 1976. Hljómsveitin gaf út sex breiðskífur og fjöldann all- an af smáskífum á ferli sínum og olli straumhvörfum. Sveitin brotnaði í öreindir sínar árið ‘86 eftir að liðsmenn gátu ekki komið sér saman um þá stefnu sem sveitin ætti að taka. Sama ár gerði Strummer tvö lög fyrir kvikmyndina „Sid and Nancy“ sem fjallaði um líf og dauða Sid Vicious, bassaleikara Sex Pistols. Leikstjóri myndarinn- ar, Alex Cox, og Strummer urðu góðir vinir og söngvarinn lék í næstu tveimur myndum hans auk þess að semja tónlist við aðra þeirra. Strummer þótti standa sig ágætlega og var fyrir vikið ráðinn í fleiri myndir. Hann lék m.a. í „Candy Mountain“ eftir Robert Frank og „Mystery Train“ eftir Jim Jarmusch. Fyrsta sólóplata hans, „Earth- quake Weather“, kom út árið 1989 og mátti glögglega heyra þar að hann var byrjaður að svamla um í heimstónlist. Eftir að Shane Mac- Gowan var rekinn úr The Pogues fyrir sóðalíferni tók hann við stöð- unni í stutta stund. Hann hafði hægt um sig á tí- unda áratugnum en sneri aftur við lok hans með aðra sólóplötu sína, „Rock Art and the X-Ray Style“. Í þetta skiptið hafði hann hljóm- sveitina The Mescaleros sér til stuðnings. Þriðja og síðasta plata hans, „Global A-Go-Go“, kom svo út í fyrra. Strummer skilur eftir sig eiginkonu og tvö börn. biggi@frettabladid.is JOE STRUMMER Orðrómur um að The Clash hafi ætlað að taka upp þráðinn á nýjan leik á næsta ári hafðir verið á kreiki í nokkurn tíma. Þekktustu lög The Clash eru líklegast „London Calling“, „Should I Stay Or Should I Go“, „Rock The Casbah“ og „White Riot“. Joe Strummer fallinn í valinn Söngvari bresku rokksveitarinnar The Clash, Joe Strummer, lést sunnudaginn 22. desember. Hann var fimmtíu ára að aldri. Strummer er talinn einn af braut- ryðjendum pönksins á áttunda áratugnum í Bretlandi. Framtíð bresku sveitarinnarPulp er nú óráðin. Sveitin er án plötusamnings eftir að hafa upp- fyllt skyldur sínar við plötufyrir- tæki sitt. „Greatest Hits“ platan sem kom út frá þeim á árinu seld- ist ekki sem skyldi og sýna liðs- menn sveitarinnar víst engin merki um að halda henni gangandi. Söngvarinn Jarvis Cocker sagði í við- tali við NME fyrir jól að allar ástæð- ur þess að hann gekk í sveitina í upphafi væru út- runnar. Hann sagði að tími sinn í Pulp hefði upphaflega snúist um það að forðast hjónaband, barn- eignir og það að þurfa að vinna heiðarlega vinnu. Þar sem hann gifti sig á árinu og á von á sínu fyrsta barni á næsta ári segist hann eiga erfiðara með að finna tilganginn í því að vera í hljóm- sveit. Saga Pulp gæti því vel verið á enda. FRÉTTIR AF FÓLKI HARRY POTTER ÍSL TAL kl. 2, 4 og 8 HARRY POTTER kl. 6 og 9.15 SJÓNVARP Bandaríska sjónvarpsstöð- in NBC hefur gengið frá samning- um við leikarahóp „Friends“-þátt- anna um að leika í tíundu og allra síðustu seríunni. Leikararnir sex höfðu flestir gefið það í skyn að ní- unda serían yrði sú allra síðasta í röðinni. Leikkonan Jennifer Ani- ston hafði meðal annars sagt að hún væri reiðubúin til þess að hætta þar sem hún hygðist stofna fjölskyldu ásamt eiginmanni sínum Brad Pitt. Hugsanlega hefur leik- konan Lisa Kudrow, sem leikur Phoebe, fengið hana til þess að snúa aftur. Hún hefur talað opin- berlega um það hversu hentugt vinnuplan þáttanna sé fyrir ungar mæður. Sýningar á níundu seríunni standa nú yfir og lýkur tökum á henni ekki fyrr en á næsta ári. Ekki er vitað hvenær tökur á tíundu ser- íunni hefjast. Talsmaður NBC, Rebecca Marks, segir að tíunda serían verði án efa sú allra, allra síðasta. ■ FRIENDS Vinirnir slitna víst ekki í sundur á næstunni og aðdáendur fá loforð um tíundu seríuna í jólagjöf. Vinir halda áfram: Tíunda serían verður gerð Jet Black Joe Á stórdansleik á Broadway föstudaginn 27.12 Aldurstakmark 18 ár TÍSKA Í ÞÝSKALANDI Þessi fyrirsæta sýndi föt Anju Gockel frá London á forskotssýningu á tískuvikuna í Düsseldorf í Þýskalandi sem haldin verður eftir áramót.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.