Fréttablaðið - 04.02.2020, Qupperneq 22
KOSTIR OG GALLAR
Mitsubishi L200
Grunnverð: 5.490.000 kr.
Hestöfl: 150.
Tog: 190 Nm/4.400-5.200 sn.
Hröðun: 0-100 km 8,2 sek.
Hámarkshraði: 174 km/klst
Eyðsla bl.ak.: 7,8 lítrar
CO2 losun: 206 g/km
L/B/H: 5.300/1.895/1.795 mm
Hjólhaf: 3.000 mm
Vaðdýpt: 700 mm
Eiginþyngd: 1.485 kg
Dráttargeta: 3500 kg
Vél: 2.268 rsm
Burðargeta: 1.080 kg
n Driflína
n Útlit
n Aksturseiginleikar
n Vélarafl
n Upplýsingaskjár
KOSTIR GALLAR
Einn vinsælasti pallbíll á Íslandi
er án efa Mitsubishi L-200 og þótt
víðar væri leitað. Mitsubishi hefur
þegar selt 4,7 milljón eintök af
L-200 í heiminum síðan fram-
leiðsla hófst árið 1978. Með þeim
2400 breytingum sem átt hafa sér
stað á þessari sjöttu kynslóð er
reynt að gera bílinn kraftalegri
þótt að hann byggi í raun og veru
mikið á fyrri kynslóð. Óhætt er þó
að segja að nýja útlitsbreytingin er
vel heppnuð og bíllinn allur verk-
legri og sportlegri að sjá. Húddið
er töluvert hærra og ljósin hvassari
en þau eru 100 mm hærri en áður.
Með meiri búnaði en áður
Það er þægilegt að ganga um bílinn
og gott að setjast uppí hann miðað
við pallbíl í þessum stærðarflokki.
Þótt L-200 sé með minni pall-
bílum fær maður það þó ekki á
tilfinninguna undir stýri á þessum
bíl. Innréttingin minnir meira
á fólksbíl og er í stíl við nýjustu
bíla Mitsubishi en er samt ekki
mikið breytt frá fyrri kynslóð.
Kominn er meiri búnaður en áður
og þá sérstaklega í dýrari útgáfum
bílsins. Stýrið er með flipum fyrir
sjálfskiptingu en þeir fylgja samt
ekki stýrinu sem er dálítið óþægi-
legt. Sætin eru stærri og þægilegri
og það er nóg af góðum hólfum.
Það eru líka komnir upplýsinga-
skjáir og díóðulýsing í káetu svo
allt umhverfið er nýtískulegra
þótt það sé kunnuglegt. Það vekur
athygli að upplýsingaskjár er ekki
búinn leiðsögutæki og öll upp-
Með verklegra útlit og betri aksturseiginleika
Framendinn er talsvert mikið breyttur með húddi sem er 40 mm hærra og ljósin hafa verið færð upp um 100 mm. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON
Mælaborðið er
kunnuglegt þótt
kominn sé betri
upplýsinga-
skjár og meiri
búnaður.
Afl vélarinnar er minna en áður og skilar hún nú 150 hestöflum og hefur
400 Newtonmetra hámarkstog sem kemur fyrr inn á snúningssviðinu.
Pallurinn ber 1.080 kíló og er með sex botnfestingum en hægt er að fá lok
yfir pallinn sem aukabúnað. Auk þess er hægt að fá hann með klæðningu.
setning mætti vera einfaldari.
Sem dæmi ef velja á að hringja í
síðasta númer, þarf fyrst að fara í
síma og síðan velja síðustu tengi-
liði, svo nafnið og síðan að velja
hringitakkann. Loks þarf að svara
spurningu um hvort maður hafi
örugglega valið rétta aðilann, en
þetta er alltof f lókin leið að jafn
einfaldri aðgerð. Annars er lítið
hljóð frá vélinni í farþegarými
nema á snúningi og greinilegt
að meira hefur verið lagt í hljóð-
einangrun.
Aflminni vél en áður
Þennan nýja L-200 er enn þá
skemmtilegra að keyra en fyrri
kynslóð og sérstaklega er eftir-
tektarvert að finna hversu öruggur
hann er í stýri. Búið er að endur-
hanna fjöðrun til að gefa mýkri
og hljóðlátari akstur, en L200 er
á blaðfjöðrum að aftan en með
sjálfstæða fjöðrun að framan. Ekki
skemmir fyrir að komin er ný sex
þrepa sjálfskipting sem ræður enn
betur við allan þann akstur sem
slíkum bíl eins og þessum er boðið
upp á. Loks er driflína Mitsubishi
pallbílsins sér á parti. Þess vegna
skilur maður ekki hvað hönnuðir
Mitsubishi voru eiginlega að hugsa
þegar þeir ákváðu að minnka afl
bílsins verulega, en nýja vélin er
aðeins 150 hestöfl sem er talsvert
undir því besta sem aðrir bjóða
upp á. Jú, nýja vélin er öll úr áli,
nær 400 Newtonmetra hámarks-
togi 500 snúningum neðar en
gamla vélin og stenst nýjustu
mengunarstaðlana en það er ekki
nóg í f lokki bíla þar sem menn
horfa á afköst vélanna fyrst og
fremst. Til að bæta gráu ofan á
svart er hik á lágsnúningi og aflið
byrjar ekki að skila sér að ráði fyrr
en nálægt 2.000 snúningum. Það
sem bjargar bílnum er eins og áður
var sagt góð driflína sérstaklega
þegar kemur að drætti. Hægt er að
skipta úr afturhjóladrifi í fjórhjóla-
drif á ferð, tölva sér um aksturs-
tillingar ef stillt er á akstur í möl,
leðju/snjó, sandi eða steinum.
L-200 er líka með brekkuviðnám
og læsingu á mismunadrifi að
aftan.
Öflug samkeppni
Eins og áður sagði er mikil sam-
keppni á pallbílamarkaði og þessi
f lokkur orðinn mjög fjölbreyttur.
Helstu samkeppnisaðilar hans
hérlendis eru Toyota Hilux, Nissan
Navara og Ford Ranger. Mitsubishi
L-200 er 150 hestöfl og grunnverð
hans er 5.490.000 kr. Hestaflatala
Toyota Hilux er sú sama en hann
kostar frá 6.270.000 kr. Nissan er
160 hestöfl og kostar frá 5.790.000
kr og loks er Ford Ranger frá 170
hestöflum og kostar frá 6.490.000
kr. Hann er líka hægt að fá með
öflugri 213 hestafla vél en þá
kostar hann frá 7.690.000 kr.
Sjötta kynslóð Mitsubishi L-200
hörkutólsins er nú komin á
markað með nýju útliti og vél.
4. febrúar 2020 Þriðjudagur8 bílar