Fréttablaðið - 04.02.2020, Page 24
Land Rover Discovery Sport kom
fyrst til sögunnar árið 2015 og var
kynntur fyrir heimspressunni hér
á Íslandi. Þar fengu blaðamenn að
prófa bílinn við ýmsar aðstæður,
meðal annars uppi á hálendinu.
Nú tæpum fimm árum seinna er
komið að því að gefa bílnum smá
andlitslyftingu og þá aðallega
innandyra en einnig á ljósabúnaði.
Um 60% af bílnum hafa verið end-
urhönnuð og hann er nú kominn í
tvinnútgáfu líka sem við höfðum
til prófunar. Þótt reynsluaksturinn
hafi ekki verið um hálendið að
þessu sinni var bíllinn þó prófaður
í torfærum líka.
Smekkleg innrétting
Að innan er Discovery Sport
nánast eins og aðrir Land Rover
og Range Rover jeppar. Hann er
með einfaldari útgáfu af InControl
upplýsingakerfi Land Rover. Stór
upplýsingaskjár er í mælaborði og
snertiskjár fyrir miðju en hann er
ekki með skjánum fyrir miðstöðina
líka. Það er smá hik í skjánum þegar
nota á flettimöguleikann en annars
virkar hann vel. Þess í stað er hægt
að skipta á milli stillinga á miðstöð,
sætishita eða aksturstillingum með
sama skruntakkanum. Komin er
aftursætaröð sem skiptist 40:20:40
sem að með þriðju sætaröðinni
er hægt að stilla á 24 mismunandi
vegu. Fyrir fjölskyldufólk á faralds-
fæti með alls konar útivistarbúnað
er það eflaust kostur. Óhætt er að
segja að það fer vel um alla fimm
farþegana í Discovery Sport því að
sæti eru í stærri kantinum og fóta-
Lúxusjeppi með góða fjöðrun og torfærugetu
Með andlitslyftingunni kemur Discovery Sport með smekklegum díóðuljósum að framan og fjöðrunargeta í torfærum er áfram aðalsmerki bílsins. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON
Komið er nýtt mælaborð með tveimur stórum upplýsingaskjáum og
stílhreinna útlit í innréttingu, sem er með vel útfærðum miðjustokki.
Ný kynslóð Discovery Sport
kom á markað snemma á síðasta
ári en tvinnútgáfa ekki fyrr en
seint á árinu
rými og höfuðrými gott í hvívetna.
Plássið í farangursrými nýtist vel og
það er þægilegt að hafa niðurfell-
ingu á aftursætaröðinni við aftur-
hlerann. Þriðja sætaröðin, sé hún
fyrir hendi er hins vegar aðeins fyrir
þá fótsmáu því að fótarými er mjög
takmarkað þannig.
Nú með tvinnútfærslu
Fjögurra strokka 150 hestafla vélin
er nú komin í mildri tvinnútfærslu.
Með 48 volta mildri tvinnútgáfu
þýðir það einfaldlega að startaran-
um er umbreytt í stærri rafmótor
sem er tengdur vélinni með belti.
Rafmótorinn getur hlaðið rafmagn
við hemlun sem fer í rafhlöðu sem
komið er fyrir undir aftursætum.
Á undir 17 km hraða slekkur vélin
á sér ef ökumaður er kominn með
fótinn á bremsuna. Notar bíllinn
þá rafmagnið á rafhlöðunni og
aðstoðar við upptakið en raf-
magnið gefur allt að 140 Newton-
metra aukið tog. Þegar verið var að
hægja á bílnum stutta stund, eins
og í vinstri beygju á ljósum fannst
örlítið hik í upptakinu en að öðru
leyti virkaði búnaðurinn vel og
hljóðlaust. Ný níu þrepa sjálfskipt-
ing frá ZF tryggir svo silkimjúkan
akstur enn frekar. Yfirbyggingin er
nú 13% stífari en það finnst ekkert
endilega í akstrinum. Fjöðrunin
er mýkri en í f lestum jepplingum
í sömu stærð og hann leggst fyrir
vikið aðeins í beygjum en á móti
kemur að hún er einstaklega þægi-
leg á grófari vegum og hentar því
bíllinn vel íslenskum aðstæðum
utan borgarmarkanna.
Margir um hituna
Helstu keppinautar eru þónokkrir
og fer það eftir því hvort maður ber
saman lúxus eða þá staðreynd að
hann er með þriðju sætaröðina.
Peugeot 5008 og Skoda Kodiak
eru vel búnir bílar sem bjóða upp
á möguleika á sjö sæta útfærslu
fyrir talsvert minna verð, Peugeot
5008 frá 4.930.000 kr og Kodiak
frá 6.555.000 kr. Það er frekar að
Discovery Sport keppi við bíla
eins og BMW X3, Audi Q5 og nýjan
Mercedes-Benz GLC sem kemur
einnig með sjö sætum. BMW X3
kostar frá 7.190.000 kr, en Q5 frá
9.990.000 kr. Ekki er komið verð á
Mercedes CLS þegar þetta er ritað.
Grunnverð tvinnútgáfu Discovery
Sport er hins vegar 6.890.000 kr
svo að ljóst er að hann stendur sig
ágætlega í samkeppninni verð-
lega séð, enda munar um minna
kolefnaspor tvinnútgáfunnar.
3
1
2
4
1 Ingenium vélar
Hægt er að velja um bæði dísil-
og bensínvélar frá 150 til 250
hestöfl.
2 48V rafhlaða
14 x 84Ah lithium
sellur geyma allt að
200Wh af orku án
þess að hafa áhrif á
innanrými.
3 Beltistengdur Startari/Rafall
Nýtir þá orku sem verður til
þegar inngjöf er sleppt, og
sendir meira snúningsvægi til
að aðstoða við upptak.
4 Straumbreytir
DC/DC straumbreytir sér bæði
48V og 12V kerfi bílsins fyrir
straumi og aðstoðar við hleðslu.
4. febrúar 2020 Þriðjudagur10 bílar
KOSTIR OG GALLAR
Discovery HEV
Grunnverð: 6.890.000
Hestöfl: 150
Snúningsvægi: 380 Nm
Hröðun 0-100 km: 7,7 sek
Hámarkshraði: 220 km
L/B/H: 4.597/2.069/1.727
Hjólhaf: 2.741
Eigin þyngd: 2.009 kg
Vaðdýpt: 600 mm
Dráttargeta: 2.500 kg
Eyðsla. bl, ak: 5,6 l
CO2: 144 g/km
n Fjöðrun
n Rými
n Þriðja sætaröðin
n Fletting á upplýsingaskjá
KOSTIR GALLAR