Fréttablaðið - 04.02.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 04.02.2020, Blaðsíða 16
Ólafur Joshua Baldursson hefur í mörg ár unnið að draumum sínum erlendis en hann er bíla­ hönnuður að atvinnu og hefur unnið við greinina í hartnær 20 ár, meðal annars fyrir alvöru merki eins og Koenigsegg. Ólafur undirbýr nú að opna hér þróun­ armiðstöð og verksmiðju sem myndi þróa og hanna sérstaka ofursportbíla sem fengið hafa nafnið Viking Union. Þeir sem fylgjast vel með hvað er að gerast í heimi sportbíla vita kannski hver Ólafur Joshua Baldursson er. Hann vann á árum áður hjá Koenigsegg og var í þróunardeild fyrirtækisins og bar þar ábyrgð á samsetningu véla en hefur á síðustu árum unnið í Bret- landi við hönnun og smíði sport- bíla og mótorhjóla. Þar hefur hann meðal annars unnið fyrir Superc- ars System og One Off og hefur verið að sérsmíða athyglisverðan sportbíl en síðasta verkefni hans er af öðrum toga og lýtur að eigin framleiðslu. „Mig langar mjög mikið til að geta komið þessu verk- efni til Íslands þar sem mikil tæki- færi eru fyrir slíka framleiðslu,“ segir Ólafur Joshua í einkaviðtali við Fréttablaðið. „Þetta yrði í fyrsta sinn á heimsvísu sem gerð væri tilraun til að búa til sportbíl upp úr Grand Prix kappakstursbíl sem er forveri Formúlu 1.“ Fyrsti íslenski götubíllinn Viking Union GP Tolv verður ef af verður, fyrsti bíllinn sem yrði fjöldaframleiddur á Íslandi fyrir almenna notkun og í raun og veru gæti orðið fyrsta íslenska bílamerkið. Fyrirtækið kringum verkefnið heitir Viking Union Automotive og er með einn stóran fjárfesti sem er mjög stór í orku- geiranum. „Einnig er verið að skoða styrki á Íslandi en það gæti verið gaman að sjá hvort f leiri fjár- festar koma að þessu frá Íslandi í framtíðinni,“ segir Ólafur. „GP Tolv er tilvísun í Grand Prix og strokkatölu vélarinnar en vélin sem ég er með á teikniborðinu núna kemur frá Aston Martin og er V12 bensínvél sem við ætlum að hafa með tveimur forþjöppum. Einnig er ég að skoða V12 vél frá Cosworth en það er enn í skoðun, því svona ferlar taka mikinn tíma og skipta gríðarlegu máli um hvernig endanleg útkoma bílsins verður,“ segir Ólafur um hönnun bílsins. Hugmyndin bak við bílinn sjálfan kemur frá Auto Union bílunum sem voru forverar Audi bílana. „Við hönnuðum bílinn með sama hjólabili og erum að reyna að hafa þyngdartölur svipaðar.“ Auto Union var mjög stórt í Þýskalandi fyrir stríð og háði harða baráttu við Mercedes-Benz í kappakstri þar í landi. Fyrstu bílarnir voru algjör skrímsli, með V16 vélum með forþjöppum sem voru kallaðir C-type. Seinna komu D-type bílar með V12 vélum sem skiluðu um 550 hestöflum, einnig með for- þjöppu. Með strangari reglum voru sett takmörk á stærð bílanna árið 1933 og máttu þá ekki vera þyngri en 750 kg án vökva, dekkja eða ökumanns. Það gerði bílana mun betri í akstri og vélarnar minnkuðu niður í 2,5 lítra. „Auto Union voru fyrstu bílarnir með vélina í miðjunni og settu línurnar fyrir alla sportbílaframleiðendur í dag. Þeir settu hraðamet árið Viking Union – Fyrsta íslenska bílamerkið? Silfurörvarnar frá Auto Union saman komnar á Goodwood Revival árið 2012 en hönnun Viking Union GP Tolf byggir á þeim. NORDICPHOTOS/GETTY Ólafur stillir sér upp á mótorhjólasýningunni í Köln við hliðina á hjóli sem hann hannaði og smíðaði sjálfur, með grind úr koltrefjum og felgur úr tré. Viking Union GP Tolv sportbíllinn er hreinræktaður tólf strokka sportbíll sem byggir á ofurbílum Audi Union frá fyrri hluta síðustu aldar. Hér í Bretlandi er meiriháttar mál að fá eitthvað sérsmíðað en á Íslandi er meiri áhugi og vilji til að redda hlutunum. Auk þess er sér- þekking og málmsmíði orðin mjög góð á Íslandi með öllum iðnað- inum kringum fiskvinnsluna. Loks væri svona starfsemi einstaklega góð fyrir nemendur í bílgreininni þar sem svona bílar eru handsmíð- aðir,“ segir Ólafur enn fremur. Framleiða einn bíl á mánuði Viking Union verður tveggja manna götubíll með yfirbygg- ingu og einrýmishönnun úr bestu koltrefjum á markaðnum í dag. Bíllinn verður „Retro“ með analog mælum í mælaborði og laus við allan tölvubúnað. Það verður samt ABS og spólvörn sem hægt verður að slökkva á, kjósi menn svo. Menn munu geta valið um bein- skiptan eða flipaskiptan gírkassa, sem er ekki í boði frá f lestum samkeppnisaðilum. „Við erum að skoða með nokkur einkaleyfi á nokkrum íhlutum í bílnum en þeir hlutir hafa ekkert með keyrslugetu bílsins að gera en skipta miklu máli samt. Einkaleyfin eru meira á tækniþáttum því margir kvarta mjög yfir afskiptasemi bíla í dag og þessi bíll er í raun og veru eins hreinn sportbíll og mögulegt er, sem er sérstakt í dag,“ segir Ólafur. „Ég er með fleiri bíla á teikni- borðinu sem kannski verða að veruleika ef þessar áætlanir ganga eftir. Hugmyndin er að framleiða kannski um 10-14 bíla á ári. Þessir bílar eru handsmíðaðir frá A-Z og verða gríðarlega vandaðir og sér- stakir sem þýðir að 99% bílanna verða seldir til safnara og veru- lega fjársterkra aðila um heim allan,“ segir Ólafur um væntanlega kaupendur bílsins. Ef framleiðsla fer ekki yfir 60 bíla á ári í Evrópu þurfa bílarnir ekki að gangast undir eins strangar framleiðslu- reglur og hjá stóru merkjunum. Bíllinn verður tólf strokka, tveggja manna sportbíll með yfirbyggingu og ein­ rýmishönnun úr kol­ trefjum. w w w .fr et ta bl ad id .is Umsjón blaðsins NjallGunnlaugsson njall@frettabladid.isBílar Auglýsingar: Atli Bergmann atli@frettabladid.is | Sími 550 5657 Útgáfufélag: Torg ehf. | Kalkofnsvegur 2 | 101 Reykjavík | Sími 550 5000 1938 sem stóð lengi, en þá fór Auto Union Streamliner í 432 km á klst. sem var svo ekki slegið fyrr en árið 2017 af Koenigsegg,“ sagði Ólafur. Aðstæður að skapast hér Stefnan er að finna hentugt hús- næði sem yrði innan við 1.000 fm til að byrja með. „Óskastaðsetning væri nálægt akstursbraut sem myndi þýða að auðveldara yrði að prófa bílana á meðan á þróun þeirra stendur og hver bíll þarf að vera prófaður áður en hann er afhentur viðskiptavini,“ segir Ólafur. „Það að opna verksmiðju hérlendis myndi einfaldlega þýða að um hreinustu bílaframleiðslu í heimi yrði að ræða, þar sem við notum svo mikla græna orku og við erum ekki að tala um stóriðju. Auk þess er mjög auðvelt að eiga við tæknileg vandamál öfugt við það sem margir kunna að halda. 4. febrúar 2020 Þriðjudagur2 bílar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.