Fréttablaðið - 04.02.2020, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 04.02.2020, Blaðsíða 29
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13Þ R I Ð J U D A G U R 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 FÓTBOLTI Thelma Björk Einars- dóttir, leikmaður kvennaliðs Vals í knattspyrnu, hefur ákveðið að hætta knattspyrnuiðkun. Þetta var tilkynnt á Facebook-síðu Vals í gær en Thelma Björk hefur verið mikil- vægur hlekkur í Valsliðinu undan- farin ár. Hún hefur leikið með Valsliðinu lungann úr ferli sínum. Fyrst frá því árið 2006 til 2014 og svo aftur frá 2016 fram á síðasta haust. Þessi öflugi leikmaður hefur lyft Íslandsmeistaratitlinum sex sinn- um með félaginu á þessum kaf la og bikarmeistaratitlinum þrisvar sinnum. Auk þess að spila með Val lék Thelma Björk með Selfossi frá 2013 til 2015. „Ástæðan fyrir því að ég set punkt á þessum tímapunkti er ein- faldlega sú að ég er búin að vera í meiðslum meira og minna síðan árið 2013 þegar ég sleit krossband. Ég hef í raun og veru aldrei náð að vera heil til lengri tíma síðan þá, því hnéð dúkkar alltaf upp með eitthvað vesen. Það dregur svo alveg heilmikið úr gleðinni þegar ég get ekki verið í þessu alveg 100 prósent,“ segir Thelma Björk um síðustu árin í fótboltanum í samtali við Fréttablaðið. Alls lék hún 159 leiki með þessum liðum og skoraði sjö mörk. Þá lék hún 12 A-landsleiki á ferli sínum og spilaði einnig með yngri landsliðum Íslands. Thelma Björk er annar leik- maður Íslandsmeistaraliðsins sem lætur staðar numið frá því að síð- ustu leiktíð lauk en áður tilkynnti Margrét Lára Viðarsdóttir um að skórnir væru komnir upp í hillu. Thelma segir að það sé huggun harmi gegn að kveðja fótboltann með Íslandsmeistaratitli hjá Val. „Já, ætli það sé ekki bara einhver sára- bót í því að kveðja með þeim hætti. Þetta er samt mjög erfið ákvörðun þar sem fótboltinn hefur verið mér mjög  mikilvægur. Ég hef  hins vegar fulla trú á því að stelpurnar hjá Val verji titilinn næsta sumar,“ segir hún um ákvörðun sína.  Var orðið afar leiðinlegt til lengdar að spila hálf meidd Ég er búin að vera í meiðslum meira og minna síðan 2013 þegar ég sleit krossband. Það dregur heilmikið úr gleðinni þegar ég get ekki verið í þessu alveg 100 prósent. Thelma Björk varð Íslandsmeistari með Val í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON NFL Patrick Mahomes sýndi enn og aftur magnaða tilburði þegar hann leiddi Kansas City Chiefs til 31-20 sigurs í Superbowl aðfaranótt mánudags gegn San Fransisco 49ers. Mahomes sem átti erfitt uppdráttar snemma leiks virtist vera að kasta fyrsta tækifæri sínu á Superbowl- titli á glæ þegar hann kastaði bolt- anum í annað sinn frá sér í upphafi fjórða leikhluta en hann gafst ekki upp. Að hætti Mahomes tók það Chiefs fimm mínútur að fara hundr- að jarda fyrir tveimur snertimörkum sem kom Chiefs yfir áður en Damian Williams innsiglaði sigurinn með snertimarki mínútu fyrir leikslok. Eftir jafnan og spennan leik í fyrri hálfleik náði 49ers frumkvæðinu í þriðja leikhluta. Vörn liðsins komst inn í tvær sendingar frá Mahomes sem lagði grunninn að tíu stiga for- skoti þegar komið var inn í fjórða leikhluta. Var þetta þriðji leikurinn í röð í úrslitakeppninni þar sem Chiefs var lent tíu stigum undir. Það var engan bilbug að finna á Chiefs sem sótti hratt og treysti á skærustu stjörnur liðsins í fjórða leikhluta. Chiefs skoraði 21 stig í röð og sigldi fram úr 49ers á lokasprett- inum. Á sama tíma hrundi sóknar- leikur 49ers og þurfti Kyle Shanahan, þjálfari 49ers að horfa á eftir öðrum Superbowl titli á lokamínútum leiksins en hann var sóknarþjálfari Atlanta Falcons þegar Fálkarnir glutruðu niður 25 stiga forskoti í lokaleikhlutanum gegn Patriots. Það var því Chiefs, leitt af Andy Reid, sem tók við titlinum í ár og vann fyrsta titil sinn í 50 ár. Þá var þetta jafnframt fyrsti Superbowl titill Reid í annarri tilraun hans á 22 árum. kristinnpall@frettabladid.is Aldrei afskrifa Höfðingjana Patrick Mahomes leiddi Kansas City Chiefs til sigurs í Superbowl. Titillinn var kominn langleiðina til Kaliforníu áður en sókn Chiefs vaknaði til lífsins Mahomes var valinn besti leikmaður leiksins eftir að hafa kastað fyrir tveimur snertimörkum og hlaupið fyrir einu. Damien Williams kemur Kansas City yfir í fjórða leikhluta án þess að Richard Sherman komi neinum vörnum við. NORDICPHOTOS/GETTY Á 22 ára þjálfaraferli sínum hefur Andy Reid unnið 18 leiki af 21 þegar hann hefur meira en viku til undirbúnings. Fagnað snertimarki sem kom Chiefs inn í leikinn á ný.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.