Fréttablaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 73
Elskuleg systir okkar,
mágkona og frænka,
Oddný Halla Hauksdóttir
lést þann 23. nóvember 2019 á
Landspítalanum. Útför hennar hefur
farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Snorri Hauksson
Stefán Örn Hauksson
Margrét Hafdís Hauksdóttir
Ásta Kristín Hauksdóttir
Ástkær eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir og amma,
Borghildur Stefánsdóttir
frá Akurholti,
Huldubraut 25, Kópavogi,
lést 10. janúar.
Útför fer fram frá Kópavogskirkju
fimmtudaginn 23. janúar kl. 15.00.
Þórður Flosason
Stefanía Anna Þórðardóttir Þorvaldur Geir Sigurðsson
Rósbjörg S. Þórðardóttir Hjálmur Þ. Guðmundsson
Sesselja Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Ástkær sonur minn, faðir og afi,
Páll Grétar Viðarsson
lést á heimili sínu
í Noregi 9. janúar sl.
Viðar Pálsson
Sigrún Ellen, Hjördís Lilja, Trym Gretar,
barnabörn og aðrir ástvinir.
Elskuleg systir okkar,
Anna Margrét Björnsdóttir
Hvanneyrarbraut 24, Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði
þriðjudaginn 31. desember sl. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sveinn Björnsson
Hafþór Rósmundsson
Okkar ástkæri
Haukur Hlíðar Þorgilsson
þúsundþjalasmiður,
lést 15. janúar á
Landspítalanum í Fossvogi.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 22. janúar kl. 15.
Geir Gunnar Geirsson, Guðrún Ólafía Sigurðardóttir
og fjölskylda
Guðbjörg Ragnheiður Þorgilsdóttir
Páll Óli Þorgilsson
Anna Ólafía Þorgilsdóttir
Guðmundur Þorgilsson
Guðfinna Ásta Þorgilsdóttir
og aðrir aðstandendur og ástvinir.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Hilmars Þorkelssonar
Vogatungu 75, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landspítalans fyrir alúð og umhyggju.
Guðlaugur Ævar Hilmarsson
Jóhannes Ævar Hilmarsson Berglind Jóhannsdóttir
Sverrir Ævar Hilmarsson Steinunn S. Jakobsdóttir
Jakob Ævar Hilmarsson Kristín Þorsteinsdóttir
Hilmar Ævar Hilmarsson Anna Heiða Pálsdóttir
Kristinn Ævar Hilmarsson Suwanna Munthong
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Helga Magnea Magnúsdóttir
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Hrafnistu
Nesvöllum, sunnudaginn 5. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
þriðjudaginn 21. janúar kl.13.
Aðalheiður María Karlsdóttir
Edda Soffía Karlsdóttir Gunnar Gauti Gunnarsson
Sonja Ósk Karlsdóttir
Hafdís Alma Karlsdóttir Jón Ingi Ægisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu
og langalangömmu,
Elínar Jónsdóttur
kennara,
sem lést annan jóladag á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
Aníta L. Þórarinsdóttir Jón Helgi Þórarinsson
Erna Þórarinsdóttir Ingibjörg Svafa Siglaugsdóttir
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Magnhildar Sigurðardóttur
frá Efsta-Dal.
Sigurður Sigurðsson
Jórunn Sigurðardóttir Sigurður K. Eggertsson
Sigrún Sigurðardóttir Þröstur Þorvaldsson
Jón Sigurðsson Ingibjörg Þóra Arnarsdóttir
Hilmar Steinar Sigurðsson Þórdís Sigurðardóttir
Jóhanna Ellý Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og besti afi,
Jón Björn Hjálmarsson
bifvélavirkjameistari,
Fagrahvammi 6,
Hafnarfirði,
lést á líknardeildinni í Kópavogi
þann 9. janúar. Útför hans fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju 20. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Brynja Þorvaldsdóttir
Birgir Már Guðbrandsson Ingrid Johannessen
Kolbeinn Jónsson Anna Birna Jónsdóttir
Hlini Snær, Birkir Smári, Karítas Ísold og Eirik Brynjar
Birgisbörn
Birnir Breki og Hrafney Tinna Kolbeinsbörn
Þetta verður mjög skemmtileg hátíð. Hún Kristín Lárus-dóttir sellóleikari er að sjá um hana. Hún á rætur á Ströndum og kemur fram með Svavar i K nút i og
strengjahetjunum,“ segir Dagrún Ósk
Jónsdóttir á Kirkjubóli við Steingríms-
fjörð um hátíðina Vetrarsól á Ströndum
sem hófst í gærkvöldi með pöbbarölti og
stendur nú um helgina.
Dagrún Ósk er ein þeirra sem ætla að
koma fram í Sauðfjársetrinu í Sævangi
í kvöld í dagskránni Bábiljur og bögur
í baðstofunni. Þar á að verða notaleg
samverustund fyrir alla fjölskylduna,
vöff lur og kaffi á borðum og öllum
velkomið að hafa handavinnu með.
Dagrún bendir á að slíkt hafi tíðkast í
baðstofum fyrri tíða. „Stundin verður
í þeim anda, þetta verður skemmtivið-
burður, stemmur af Ströndum, sam-
söngur og krakkar að kveða, Ása Ketils
fer með þulur og Jóhanna Ósk og Bragi
Vals syngja fimmundarsöngva. Margir
taka með sér prjóna á svona viðburði,“
lýsir hún. En hvað ætlar hún sjálf að
flytja?
„Ég ætla að segja sögur, það verða
þjóðsögur því þær eru svo skemmti-
legar, nokkrar tröllasögur og huldu-
fólkssögur sem tengjast svæðinu. Hún er
náttúrlega fræg sagan af tröllunum sem
ætluðu að moka Vestfjarðakjálkann frá
afganginum af Íslandi, þegar kristnin
var að breiðast út um landið og kirkjur
risu víða, leist þeim ekkert á. Svo þau
ætluðu að útbúa tröllaparadís á Vest-
fjörðum en fólkið mátti vera á restinni
af landinu með sínar kirkjur. Þessa
sjást enn merki. Tröllin voru þrjú og
byrjuðu að moka beggja vegna frá, tvö
voru saman í Gilsfirðinum og köstuðu
af rekunum aftur fyrir sig, þaðan koma
allar litlu eyjarnar á Breiðafirðinum. Þau
voru svo upptekin af vinnunni að þau
áttuðu sig ekki á hvað tímanum leið og
urðu að steinum. Því er hægt að skoða
þau núna sem klettadranga. Þriðja tröll-
ið var í Steingrímsfirðinum að grafa, það
uggði ekki að sér heldur, sólin kom upp
og það varð að steini sem flaut út á fjörð
og staðnæmdist utan við Drangsnes, þar
er Grímsey.“ gun@frettabladid.is
Mun segja sögur í Sævangi
Sögusýning, tónleikar, göngur og notalegar samverustundir eru á dagskrá hátíðarinn-
ar Vetrarsól á Ströndum. Bak við hana standa Vinir Stranda í samvinnu við heimafólk.
„Margir taka með sér prjóna á svona viðburði,“ segir Dagrún Ósk og á við skemmtidagskrána í Sauðfjársetrinu.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 33L A U G A R D A G U R 1 8 . J A N Ú A R 2 0 2 0