Fréttablaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 8
origo.is
Borgartúni 37, 105 Reykjavík
TILNEFNINGARNEFND
ORIGO HF. auglýsir eftir
framboðum til stjórnar.
Frestur rennur út föstudaginn
31. janúar 2020.
Framboð til stjórnar Origo skal senda til tilnefningarnefndar í síðasta lagi
föstudaginn 31. janúar 2020.
Aðalfundur Origo verður haldinn þann 6. mars nk.
Framboðseyðublöð er hægt að nálgast hér: origo.is og skal skila framboði
ásamt ferilskrá á netfangið: tilnefningarnefnd@origo.is
Almennur framboðsfrestur til stjórnar er fimm dögum fyrir aðalfund skv.
samþykktum Origo hf. Störf tilnefningarnefndar takmarka ekki heimild
frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar allt fram að því tímamarki,
en um slík framboð verður ekki fjallað í tillögu tilnefningarnefndar. Rökstudd
tillaga tilnefningarnefndar um samsetningu stjórnar verður birt samhliða
aðalfundarboði.
NOREGUR Mikil ólga er í norskum
stjórnmálum vegna ákvörðunar rík-
isstjórnar Noregs um að flytja 29 ára
gamla norska konu og börn hennar
tvö frá Írak, en konan hefur tengsl
við hryðjuverkasamtökin ISIS.
Siv Jensen, formaður Framfara-
flokksins, sem á sæti í ríkisstjórn-
inni, segir að hún sætti sig ekki við
ákvörðun stjórnarinnar. Eftir fund
með f lokksmönnum á miðviku-
daginn sagði hún að þetta mál væri
kornið sem fyllti mælinn. Norsk
stjórnvöld ættu ekki að aðstoða
hryðjuverkafólk.
Jensen ætlar hins vegar ekki að
slíta stjórnarsamstarfinu, heldur
mun hún funda með Ernu Solberg
forsætisráðherra um auknar kröfur
af hálfu Framfaraf lokksins. Kröf-
urnar hafa ekki verið opinberaðar
en stjórnmálaskýrendur í Noregi
telja líklegt að þær feli í sér harðari
innflytjendastefnu.
Staðan er f lókin þar sem ekki er
hægt að einfaldlega slíta stjórnar-
samstarfinu og boða til kosninga.
Konan sem um ræðir er norskur
ríkisborgari af pakistönsku bergi
brotin. Hún fór til Sýrlands árið 2012
og giftist þar vígamanni ISIS. Hún á
með honum tvö börn og hefur hún
haldið til ásamt börnunum í flótta-
mannabúðum í Írak.
Eldra barnið, fimm ára drengur,
er alvarlega veikur. Nils Christian
Nordhus, lögmaður fjölskyldunnar,
segir að hann þjáist af öndunarerfið-
leikum og sé mjög léttur. Konan og
börnin eru nú á leiðinni til Noregs
og verður hún handtekin við kom-
una. Faðir hennar segir í samtali við
Dagbladet að fjölskyldan sé undir-
búin fyrir réttarhöld. „Ég treysti því
að réttarkerfið taki af sanngirni á
máli dóttur minnar,“ sagði hann, en
fjölskyldan í Noregi hefur aldrei hitt
börnin tvö.
Erna Solberg segir að hún vilji
ekki sérstaklega flytja norska ríkis-
borgara sem hafi gengið til liðs við
ISIS aftur til landsins, það sem skipti
máli sé drengurinn. Hefur norska
dagblaðið VG eftir heimildarmönn-
um að Solberg hafi ákveðið á fundi
að hann skipti meira máli en friður
innan ríkisstjórnarinnar.
„Hvorki ég né flokkurinn viljum
fá ISIS-liða aftur til Noregs. Vandinn
er hins vegar sá að við þurfum að
velja á milli þess að flytja til lands-
ins veikt barn með móður sinni –
eða hætta lífi norsks drengs á okkar
vakt. Ég er ekki að fara að láta fimm
ára dreng deyja í Sýrlandi,“ sagði í
SMS-skilaboðum Solberg til ritara
síns, Rune Alstadsæter, sem birt var
í VG í vikunni.
Staða Jensen innan Framfara-
flokksins er veik um þessar mundir
og eru líkur á að henni verði bolað
út á landsfundi f lokksins í vor.
Jensen sagði við NRK á fimmtu-
dag að hún hyggist beita sér fyrir
auknum áhrifum flokksins innan
ríkisstjórnarinnar. „Það sem skiptir
okkur máli er að hafa áhrif. Það er
markmiðið með því að sitja í ríkis-
stjórn,“ sagði Jensen. Reyndi hún svo
að höfða til Solberg með því að segja
að ef flokkarnir væru duglegri að fá
sitt fram í málum sem skiptu þá máli
þá yrði ríkisstjórnin vinsælli í skoð-
anakönnunum.
Trine Skei Grande, leiðtogi Frjáls-
lynda flokksins, sem á einnig sæti í
ríkisstjórninni, segir það ekki koma
til greina að breyta stjórnarsáttmál-
anum. Hefur hún lýst ánægju sinni
með ákvörðunina um að f lytja
móðurina og börnin tvö til lands-
ins. „Við erum sátt við stjórnarsátt-
málann sem við gerðum, við sjáum
enga ástæðu til að breyta honum,“
sagði Skei Grande við VG. „Það eru
þau sem eru ósátt, ekki við.“
arib@frettabladid.is
Stjórnin klofin vegna flutnings konu
Móðirin og börnin tvo hafa búið að undanförnu í flóttamannabúðum í Írak. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Ágreiningur er innan
norsku ríkisstjórnarinn-
ar um hvort flytja eigi til
landsins norska konu,
sem gekk til liðs við
hryðjuverkasamtök, og
langveikt barn hennar.
Framfaraflokkurinn
krefst meiri áhrifa inn-
an ríkisstjórnarinnar.
Siv Jensen,
formaður
Framfaraflokks-
ins
BRETLAND Ein eftirsóttasta mynt
veraldar seldist á dögunum fyrir
eina milljón sterlingspunda til
einkasafnara. Sú upphæð samsvar-
ar um 160 milljónum króna. Um er
að ræða breska mynt sem var slegin
árið 1936 og skartar prófílmynd Ját-
varðs áttunda konungs.
Eins og frægt er var Játvarður
aðeins konungur í 326 daga þetta
tiltekna ár. Hann tilkynnti þá um
vilja sinn til þess að kvænast banda-
rísku yfirstéttarkonunni Wallis
Simpson. Simspon var fráskilin
og bönnuðu lög landsins því ráða-
hag hennar og konungs. Andstaða
ríkisstjórnar Bretlands við þennan
ráðahag var slík að Játvarður ákvað
að afsala sér krúnunni frekar en að
valda stjórnarkreppu í landinu með
hjónabandinu. Tók bróðir hans,
Georg sjötti, við krúnunni þann 11.
desember 1936. Árið 1937 giftust
síðan Wallis og Játvarður og voru
titluð hertogahjón af Windsor til
æviloka.
Myntin er eftirsótt fyrir þær
sakir að aðeins voru búin til sex
prufueintök en myntin fór aldrei
í almenna dreifingu því Játvarður
sagði af sér konungdómi áður. Þá
er myntin talin sérstök fyrir þær
sakir að löng hefð var brotin við
slátt hennar. Nýir valdhafar horfðu
yfirleitt í öfuga átt við forvera sína
en Játvarði fannst vinstri prófíll
sinn mun fallegri en sá hægri og því
horfði hann í sömu átt og faðir hans,
Georg fimmti.
Því fer þó fjarri að breska myntin
sé sú dýrasta sem hefur selst. Þann
heiður á eins dollara mynt sem var
slegin árið 1794. Söluverð hennar
var rúmlega 10 milljónir dollara
árið 2013, eða um 1,2 milljarðar
króna. – bþ
Fágæt mynt frá Bretlandi
seldist á 160 milljónir
Játvarður áttundi horfði í öfuga átt. MYND/THE ROYAL MINT
Myntin fór aldrei í
dreifingu en sex prufuein-
tök voru slegin.
1 8 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð