Fréttablaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 24
efi. Hvað gerist ef ég veikist aftur? Þeim hugsunum skýtur stundum upp í kollinn.“ Sirrý veiktist meira en í fyrra skiptið. „Ég var nærri dáin úr f lensu. Ónæmiskerfið mitt er svo- lítið skrýtið og hefur alltaf verið. Ég hef alltaf verið lág í hvítum blóð- kornum. Ég fór hins vegar að stunda útivist og það vó upp á móti og gaf mér ómældan styrk.“ Fór til Nepal í göngu Sirrý er alin upp á fallegasta stað í heimi, Bíldudal, að eigin mati við mikla útivist og íþróttir og hafði unun af því að fara á skíði. „Ég hef frá unga aldri haft gaman af útivist og elskaði að vera á skíðum. Ég fór að fara í göngur, gekk upp á Úlfars- fell, Helgafellið og einn daginn fann ég að ég gat þrammað tvisvar upp á Esjuna. Það er svo magnað að finna fyrir styrknum vaxa og finna að þú hefur stjórn á einhverju í lífi þínu þrátt fyrir erfiðleika. Að finna að maður getur klifið hærri tinda. Ég lá uppi í rúmi einn daginn og sá auglýst ferðalag með Vilborgu og Kolbrúnu Björnsdóttur til Nepal, Annapurna í Himalaya fjallgarð- inum. Mig langaði að fara og ákvað að slá til, lét engan vita. Ekki einu sinni manninn minn,“ segir hún og hlær og er sammála blaðamanni um að slíkar ákvarðanir séu þær allra bestu og stafi af djúpri þörf fyrir breytingar og ævintýri. „Ég fann að þetta var rétt, eftir símtal við Kolbrúnu, og ferðalagið reyndist endurnærandi fyrir lík- ama og sál. Það varð líka upphafið að einhverju stærra, ég fór að taka ríkari þátt í útivist og krefjandi göngum. Það er svo sjálfsef landi að gera eitthvað sem reynir bæði á þig og er gefandi. Að stíga út úr erfiðum aðstæðum í lífinu og gera þær að þínum. Maður missir um tíma völdin í eigin lífi þegar maður verður alvarlega veikur eða verður fyrir áfalli. Maður þarf að finna vopn sín og taka þau aftur. Það er verkefnið. Það er svo mikil hamingja sem felst í því og hefur áhrif á allt annað í lífinu.“ Lítil skref, litlir sigrar Sirrý leggur áherslu á að þótt hún sé með verkefni sínu að minna á mikilvægi útivistar og sjálfsef l- ingar í endurhæfingu og styðja við starf félaganna Krafts og Lífs þá eigi boðskapurinn við um fleiri. „Að það sé hægt að taka stjórnina og finna sína leið til að lifa lífinu af hugrekki og gleði. Það er svo f lókið að vera manneskja og við getum orðið fyrir erfiðum áföllum og höfnun sem geta reynst jafnerfið og alvarleg veikindi. Ég hef stundum hugsað um það hvað ég eigi að segja við þá sem eru að berjast við að ná stjórn á eigin lífi en geta ekki stundað fjallgöngur, er ég að setja mig á háan hest hugsa ég þá? Ég vil það nefnilega alls ekki. Það er auðvitað ekki allra að fara í fjallgöngur en ég er viss um að flestir geta fundið eitthvað sem nærir þá og gefur þeim kraft. Þetta var mín leið til að finna frið og hamingju. Það er svo gott að vita að það er hægt að taka lítil skref, eitt í einu, í mjög krefjandi aðstæðum og komast samt á toppinn. Ef það er eitthvað sem ég hef lært af þessum veikindum þá er það að þessir litlu sigrar í lífinu eru mikilvægir.“ Sjúklingurinn frekur gestur Sigrarnir hjálpa til við að vera eins lítið og mögulegt er í hlutverki sjúklings. „Það er ekki gott að gefa því hlutverki of mikið pláss en stundum er sjúklingurinn eins og frekur gestur sem vill endilega búa með manni. Þá verður maður að finna leið til að búa með honum þannig að hann sé ekki plássfrekur, sé ekki á öllum hæðum hússins!“ Hún segir ferðina töluverða áskorun. „En andinn er ofsalega góður í hópnum. Við komum úr öllum áttum en útivistin tengir okkur saman. Nokkrar konur í hópnum hafa gengið í gegnum krabbamein og sumar misst náinn ástvin. Ferðin er áskorun og ég við- urkenni að ég kvíði stundum fyrir, ég er nú bara mannleg, segir hún og brosir breitt. Ég hlakka þó meira til en kvíði ferðinni, við förum strax í byrjun maí og göngum í krafti kvenna upp á hæsta tind landsins, þjóðarfjallið okkar Hvannadals- hnúk.“ Börnin hennar fjögur eru stolt af móður sinni að hennar sögn. „Þau gleðjast með mér. Þau eru ólík og hafa tekist á við þessa lífsreynslu með ólíkum hætti. Þau eru reyndar svo ólík að þau gætu þess vegna verið úr sitthverri heimsálfunni,“ segir hún og hlær. Eitt barnanna glímdi lengi við kvíða en er nú loks að ná tökum á honum. „Hún var sannfærð um að ég myndi deyja, það var alveg sama hvað við foreldrarnir sögðum við hana. Hún trúði því ekki.“ Annað barnanna dró sig inn í skel. „Og fjarlægðist okkur um skamma hríð, við erum afskaplega náin og ég er stolt af honum því hann fann sína leið og stendur sig vel. Það er yndislegt að sjá hvað þessi lífs- reynsla hefur þroskað hann mikið. Elsta dóttir mín tók á sig mikla ábyrgð, gekk inn í hlutverk sem ég skil hreinlega ekki hvernig hún gat höndlað. Og sá yngsti var mikið með mér í einangrun, því ég lagði áherslu á að kynnast honum vel. Enginn ómissandi Börnin mín hafa þurft að ganga í gegnum mikið og ég get sett mig í þeirra spor. Ég fæ sjálf sting í hjartað við það að hugsa um að að missa móður mína, og ég er 45 ára! Ég er heppin að hafa átt ástríka móður í heil 45 ár. Lífið er svo óútreiknan- legt og það er svo margt sem maður þarf að þakka fyrir,“ segir Sirrý. „Ég var mjög ung þegar ég hugsaði með mér að ég vildi ekki lifa lífinu þannig að ég væri ómissandi. Ég held ég hafi verið sextán ára gömul þegar ég komst að þessari niður- stöðu. Ég hef oft sagt það við börnin mín, því það er satt. Það er enginn ómissandi og það eru forréttindi og ótrúleg gjöf að fá að lifa. Eitthvað sem maður á að þakka reglulega fyrir því maður á bara stundina vísa.“ Sirrý ásamt dætrum sínum, þeim Unu og Heklu, en hún segir börnin sín fjögur hafa tekist á við veikindi hennar á ólíkan hátt. Öll séu þau þó stolt af móður sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Snjódrífurnar eru hópur fjórtán útivistarkvenna sem ætla að ganga þvert yfir Vatnajökul í byrjun apríl undir dyggri leiðsögn þeirra Vilborgar Örnu Gissurardóttur og Brynhildar Ólafsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ÉG HEF OFT SAGT ÞAÐ VIÐ BÖRNIN MÍN, ÞVÍ ÞAÐ ER SATT. ÞAÐ ER ENGINN ÓMISSANDI OG ÞAÐ ERU FORRÉTTINDI OG ÓTRÚLEG GJÖF AÐ FÁ AÐ LIFA. 1 8 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.