Fréttablaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 82
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
K371 sófi
Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir
3ja sæta 2ja sæta og stólar
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
lakaðu á
eð lö
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
ki pir og spe na
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartslá tur
g Kvíði
g Streita
g Pi ringur
Einke i
agnesí
skorts
i t.i
Gunnella Þorgeirs-dóttir, doktor í jap-önskum fræðum og lektor við Háskóla Íslands, heillaðist ung af Japan og
menningu þess.
Einstök menning frá einstöku landi
Gunnella dvaldi
sem skiptinemi
í Norður-Japan
árið 1991 og
gekk í kynja-
skiptan land-
búnaðarskóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Gunnella með skiptinemafjölskyldunni sinni í Honjo árið 1991.
Boðið verður
upp á námskeið
í sushigerð á
Japanshátíðinni
í dag.
Kennarar og nem-
endur í japönsku
við Háskóla Íslands
halda ásamt jap-
anska sendiráðinu
sautjándu Japans-
hátíðina í dag.
Heilluð af landi og
þjóð lætur lektorinn
Gunnella Þorgeirs-
dóttir sig að sjálf-
sögðu ekki vanta.
„Í f lutningum fyrir stuttu rakst
ég á glósubók. Ég hafði þá verið að
horfa á sjónvarpsþættina Shōgun,
sem komu út í kringum 1980. Þegar
aðalpersónunni er kennd japanska
í þættinum þá hafði ég glósað allt
niður sem henni var kennt. Þá hef
ég verið um átta ára gömul, þannig
að ég kann ekki beina útskýringu á
því en áhuginn á Japan og japanskri
menningu hefur alltaf verið til stað-
ar,“ segir Gunnella.
Lærði handverk og hefðir
Áhuginn á landinu dvínaði þvert á
móti með árunum.
„Ég fór sem skiptinemi þegar ég
var unglingur til Norður-Japans
þar sem ég bjó í litlum afskekktum
smábæ sem heitir Honjo Shi. Þetta
var árið 1991. Þar fór ég í kynja-
skiptan landbúnaðarskóla fyrir
lágstéttina, þangað fóru unglingar
sem voru ekki sérstaklega að stefna
á einhvern starfsframa. Það hentaði
mér mjög vel því þar fékk ég ein-
staka innsýn hvað varðar japanskt
handverk og hefðir. Skólinn ein-
blíndi mun frekar á slíkt en hefð-
bundið bóknám, sem mér fannst
mjög gefandi,“ segir Gunnella.
Allar götur síðan hefur Gunnella
verið í miklu sambandi við skipti-
nemafjölskylduna sína í Honjo, en
hana heimsækir Gunnella reglulega.
„Þau líta á börnin mín sem börnin
sín. Við vörðum mánuði í kringum
jólin í Japan og vorum hjá fjölskyld-
unni. Ég reyni að fara út eins oft og
ég get, en fer sjaldnar en ég myndi
vilja.“
Allt sjálfboðavinna
Doktorsverkefni Gunnellu sneri
að hefðum, siðum og hjátrú þegar
kemur að barneignum og frum-
bernsku í japanskri menningu.
„Mastersritgerðin mín fjallaði um
hjátrú á meðgöngu meðal íslenskra
kvenna, svo það lá vel við að gera
þetta að umfjöllunarefni mínu í
doktorsverkefninu. Ég tók við jap-
önsku deildinni hérna árið 2012 og
hef haldið utan um hátíðina síðan.
En þetta er samstarfsverkefni nem-
enda og kennara Háskóla Íslands og
japanska sendiráðsins, og allt gert
í sjálf boðavinnu,“ segir Gunnella.
Ólympíuleikarnir í Tókýó
Japönskukennsla hófst við Háskóla
Íslands 2003 og ári síðar fór hátíðin
fram í fyrsta skipti og hefur verið
árlegur viðburður síðan. Í ár verður
boðið upp á fjölbreytta og veg-
lega dagskrá.
„Við höfum fengið til landsins
Munedaiko, japanskan trommu-
hóp sem spilar á taiko-trommur.
Síðan verður „cosplay“ keppni, en
við vorum fyrst til að halda slíkar
keppnir einmitt á Japanshátíð-
inni. Keppnin óx svo hátíðinni
yfir höfuð og er því núna haldin
í september ár hvert á Midgaard-
hátíðinni. Við erum samt enn
þá með minni útgáfu af cosplay-
keppninni og hljóta sigurvegar-
arnir miða á Midgaard og verðlaun
frá Nexus. Þannig að við hlökkum
til að sjá gesti mæta í búningum,“
segir Gunnella.
Þema Japanshátíðarinnar í ár eru
Ólympíuleikarnir, en þeir fara fram
í Tókýó í Japan í sumar.
„Það þykja nokkuð góðar líkur
á að liðið okkar frá Íslandi keppi
á leikunum í ár og við fáum því til
okkar júdókappa til að leika listir
sínar.“
Hátíðin fer fram í Veröld – Húsi
Vigdísar Finnbogadóttur og hefst
klukkan 13 og hentar bæði börn-
um og fullorðnum og aðgangur er
ókeypis. steingerdur@frettabladid.is
1 8 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ