Fréttablaðið - 04.12.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 8 3 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9
Hafnartorg - 511 1900 - michelsen.is
Glæsileiki
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Skemmtileg
jólavara!
Finndu okkur á
Engihjalli
Vesturberg
Arnarbakki
Glæsibær
Staðarberg
VIÐSKIPTI Dreif iveitum er ekki
heimilt að einskorða raforkukaup
sín vegna orkutaps í dreifikerfi
sínu við tengd félög heldur er þeim
skylt að bjóða kaupin út. Þetta var
niðurstaða kærunefndar útboðs-
mála í máli sem var höfðað gegn
dreifiveitunni RARIK en viðskipti
af þessu tagi hlaupa á hundruðum
milljóna króna á hverju ári.
„Það hafa miklir fjármunir verið
að f læða á milli þessara tengdu
fyrirtækja sem áður voru eitt og
sama fyrirtækið og við höfum ekki
fundið dæmi um jafn umfangsmik-
il og vísvitandi brot á lögum um
opinber innkaup. Þarna er verið
að losa um mjög umfangsmikil
viðskipti sem mikil leynd hefur
hvílt yfir,“ segir Magnús Júlíus-
son, framkvæmdastjóri Íslenskrar
orkumiðlunar, sem höfðaði málið
gegn RARIK.
Dreifiveitur kaupa reglulega raf-
magn á raforkumarkaði á hverju ári
til að mæta orkutapi í dreifikerfinu.
RARIK hefur eingöngu keypt raf-
magnið af dótturfélaginu Orkusöl-
unni, sem starfar á sama markaði
og Íslensk orkumiðlun. Niðurstaða
kærunefndar var sú að RARIK yrði
að bjóða raforkukaupin út.
„Þessi úrskurður hefur þá þýð-
ingu að á dreifiveitum hvílir ótví-
ræð skylda til að fara í útboð en
það hefur allt verið reynt til þess að
halda þessum viðskiptum innan-
dyra. Með því að fara ekki í útboð
eru dreifiveiturnar ekki að tryggja
hagkvæmustu verð á hverjum
tíma en kaupa þess í stað raforku
af tengdum aðilum á uppsettum
verðum,“ segir Magnús.
„Það verð fer beint inn í gjaldskrá
dreifiveitnanna sem gerir dreifi-
kostnaðinn hærri en hann hefði
þurft að vera. Á endanum eru það
einstaklingar og fyrirtæki í landinu
sem borga brúsann fyrir þessa ólög-
mætu háttsemi.“
Viðskipti RARIK og Orkusöl-
unnar eru þó ekki einsdæmi. Allar
dreifiveitur, að Veitum undan-
skildum, hafa keypt rafmagn af
tengdu félagi til að mæta dreifitapi
án útboðs. Þá hefur Landsnet keypt
raforku til að mæta tapi í f lutnings-
kerfinu í gegnum útboðsferli um
nokkurra ára skeið.
– þfh / sjá Markaðinn
Orkukaup um árabil í trássi við lög
Dreifiveitunni RARIK er gert skylt að fara með raforkukaup sín vegna dreifitaps í útboð samkvæmt úrskurði kærunefndar. Áttu
eingöngu í viðskiptum við dótturfyrirtækið. Viðskipti dreifiveitna vegna orkutaps í dreifikerfum nema hundruðum milljóna á ári.
Á endanum eru það
einstaklingar og
fyrirtæki í landinu sem
borga brúsann fyrir þessa
ólögmætu háttsemi.
Magnús Júlíusson,
framkvæmda-
stjóri Íslenskrar
orkumiðlunar
NEYTENDUR „Það er mjög bagalegt
ef bæði 25 prósenta stuðningurinn
og lægri virðisaukaskattur er ekki
að skila sér til neytenda,“ segir
Breki Karlsson, formaður Neyt-
endasamtakanna.
Opinberar aðgerð-
ir til stuðnings
b ó k a ú t g á f u
v i r ð a s t e k k i
hafa skilað sér
í læg ra bóka-
verði. Útgefandi
hjá Bjarti Veröld
segir heildsölu-
verð bóka hafa
verið óbreytt í
nokkur ár.
– khg /
sjá síðu 4
Bækur á sama
verði þrátt fyrir
ríkisstuðning
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra kynnti í gær brotthvarf Haraldar Johannessen úr embætti ríkislögreglustjóra og nýtt lögregluráð með lögreglustjórum auk ríkislögreglu-
stjóra. Kjartan Þor kels son, lögreglustjóri á Suðurlandi, verður ríkislögreglustjóri tímabundið. Áslaug Arna starfaði sem lögreglumaður hjá Kjartani 2015-2016. Sjá síðu 6 FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Breki Karlsson.
VIÐSKIPTI Stjórnendur Play bjóðast
nú til að minnka hlutdeild sína í 30
prósent á móti 70 prósenta eignar-
hlut þeirra fjárfesta sem fást til að
leggja félaginu til um 1.700 milljónir
í hlutafé. Fyrri áform gerðu ráð fyrir
að fjárfestar eignuðust helmingshlut
fyrir hlutafjárframlag sitt.
Hlutafjársöfnun Play hefur gengið
erfiðlega og í lok síðustu viku var
kannaður áhugi fjárfesta á að leggja
Play til fjármagn til næstu mánaða,
samanlagt hundruð milljóna, með
því að kaupa skuldabréf til skamms
tíma af félaginu sem myndi bera
20-25 prósenta vexti. Tilgangurinn
væri að tryggja Play nægjanlegt
rekstrarfé fram á næsta ár á meðan
unnið yrði að því að ljúka hlutafjár-
söfnun. – hae / sjá Markaðinn
Bjóðast til að
minnka hlut
sinn í Play