Fréttablaðið - 04.12.2019, Side 14
Íslenski verðbréfamark-
aðurinn verður ekki flokk-
aður sem vaxtarmarkaður
hjá vísitölufyrirtækinu
MSCI að svo stöddu. Málið
verður tekið aftur upp í maí
2020.
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang hordur@frettabladid.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
Forvarsmenn Kauphallarinnar munu funda með forsvarsmönnum vísitölufyrirtækis
ins MSCI í vikunni til þess að fá
dýpri skilning á ákvörðun fyrir
tækisins um að íslensk verðbréf
verði ekki gjaldgeng í vísitölur fyr
irtækisins að svo stöddu. Ákvörðun
MSCI kom Kauphöllinni á óvart.
„Ég get ekki neitað því að ákvörð
unin kom okkur á óvart og olli
okkur vonbrigðum. Samráðsferli
eins og þetta er oftast sett í gang
með það í huga að það verði af
f lokkuninni,“ segir Magnús Harð
arson, forstjóri Kauphallarinnar, í
samtali við Markaðinn.
Eins og greint var frá um síðustu
helgi verður íslenski verðbréfa
markaðurinn ekki f lokkaður sem
vaxtarmarkaður hjá MSCI að
svo stöddu. Þetta var niðurstaða
MSCI eftir samráð við alþjóðlega
stofnanafjárfesta en Ísland verður
áfram á athugunarlista MSCI sem
mun taka málið aftur upp í maí á
næsta ári.
„Við fengum engan andmæla
rétt en það stendur til að funda
með þeim í vikunni til að fá dýpri
skilning á þeim atriðum sem vógu
þyngst. Og eins til að átta okkur
betur á því til hvaða aðgerða þurfi
að grípa svo að niðurstaðan verði
jákvæð í maí,“ segir Magnús.
Í samráðsferlinu lýstu
erlendir fjárfestar áhyggj
um yfir tilkynningarferli
vegna gjaldeyrisviðskipta,
aðgengi að miðlurum og
því að gjaldeyrishöft hefðu
aðeins nýlega verið afnumin.
Magnús segir líklegt að
at hu g a s e md i r u m
gjaldeyrishöftin
h a f i v e g i ð
þungt.
„Ég held að
við getum fært
góð rök fyrir
því að það sé
mjög ólíklegt að slíkum höftum
verði aftur komið á í náinni framtíð
miðað við stöðu íslenskra heimila,
fyrirtækja og þjóðarbúsins í heild
sinni,“ segir Magnús.
Þá er enn ekki ljóst hvort MSCI
setji það fyrir sig að hér sé tilkynn
ingarferli vegna gjaldeyrisvið
skipta eða hvort ferlið sé of þungt
í núverandi mynd. Um aðgengi að
miðlurum segir Magnús að vissu
lega hafi engin erlend verðbréfa
fyrirtæki beina aðkomu að verð
bréfaviðskiptum hér á landi eins
og staðan er í dag. Hann bindur
vonir við innleiðingu Nasdaq verð
bréfamiðstöðvar á nýju uppgjörs
kerfi sem mun auðvelda aðgengi
erlendra f jármálafyrirtækja að
íslenska markaðinum. Stefnt er að
því að ljúka innleiðingunni í maí.
„Á undanförnum mánuðum
höfum við fundið fyrir meiri
áhuga frá erlendum fjár
málafyrirtækjum á því að
eiga beina aðild að mark
aðinum. Meiri áhuga en
frá því fyrir hrun. Verð
bréfauppgjör er hnífurinn
sem stendur í kúnni og ég
er þess vegna mjög bjart
sýnn á að það muni
brey t a heil
miklu þegar
ný t t ker f i
v e r ð u r
tekið upp,“
s e g i r
Magnús.
– þfh
Ákvörðun MSCI kom
Kauphöllinni á óvart
Magnús
Harðarson,
forstjóri
Kauphallarinnar.
10
Airbus-þotur stefnir Play á
að hafa í flota sínum frá og
með árinu 2022.
18
milljarðar króna er verðmat
Goldman Sachs á Valitor
sem er til sölu.
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
Fjárfestingarbankinn Goldman Sachs ráðleggur nú fjárfestum að kaupa í Arion banka en
áður var fjárfestum ráðlagt að halda
bréfum sínum í bankanum. Grein
endur fjárfestingarbankans meta
gengið á 80 krónur á hlut sem er
tveimur prósentum hærra en mark
aðsgengið var við lokun markaðar
í gær. Greinendur Goldman Sachs
telja tólf mánaða markgengi vera
97 krónur á hlut. Það er 21 prósenti
hærra en markaðsgengið. Fjárfest
ingarbankinn á 3,7 prósent í Arion.
Samkvæmt greiningu Goldman
Sachs, sem kom út á mánudaginn og
Markaðurinn hefur undir höndum,
er dótturfélagið Valitor sem er til
sölu metið á um 18 milljarða en í
reikningum Arion er bókfært virði
þess 11,7 milljarðar. Virðið er sagt 10
krónur á hvern hlut í Arion banka
og er fengið með kennitölumarg
faldara. Takist að selja Valitor verð
ur hægt að greiða andvirði sölunnar
til hluthafa.
Fram hefur komið að stjórnendur
Arion banka horfa til þess að lána
safn til fyrirtækja muni minnka
um 20 prósent. Gangi það eftir
horfa greinendur Goldman Sachs
til þess að íslenski bankinn þurfi
ekki að binda jafn mikið fé og því
verði meira fé laust sem gæti ratað í
hendur hluthafa.
Eins og sakir standa eru vaxta
greiðslur af skuldabréfum sem
teljast til viðbótar við eiginfjárþátt
1 (AT1) ekki frádráttarbærar frá
skatti. Skattyfirvöld hafa málið til
skoðunar og væntir Arion banki
niðurstöðu fyrir árslok. Heimili
skattyf irvöld að slíkar vaxta
greiðslur verði frádráttarbærar frá
skatti telja greinendur Goldman
Sachs að Arion banki muni gefa út
slík skuldabréf og greiði andvirðið
til hluthafa. Verði svar skattyfir
valda neikvætt gætu stjórnendur
bankans lækkað „stuðpúða“ sinn í
eiginfjárhlutfallinu sem er til staðar
ef gefur á bátinn. Hlutfallið er núna
1,5 prósent. – hvj
Goldman mælir með kaupum í Arion
Stjórnendur og stofnendur hins nýstof naða lággjaldaflugfélags Play, sem hafa síðustu vikur ásamt Íslenskum verðbréfum (ÍV) unnið að fjármögnun
félagsins, bjóðast til að minnka hlut
deild sína í Play í 30 prósent á móti 70
prósenta eignarhlut þeirra fjárfesta
sem fást til að leggja félaginu til um
1.700 milljónir króna í nýtt hlutafé.
Fyrri áform gerðu ráð fyrir að fjár
festar myndu eignast helmingshlut
í Play á móti stofnendum og starfs
mönnum flugfélagsins fyrir hluta
fjárframlag sitt. Þær hugmyndir hafa
mætt mikilli andstöðu á fundum
með fjárfestum og fyrirtækjum, sem
leitað hefur verið til með fjármögn
un, og hafa þeir sett sig alfarið upp
á móti því að stofnendurnir eignist
svo stóran hlut í félaginu.
Samkvæmt heimildum Markaðar
ins hafa forsvarsmenn Play og ÍV nú
komið að hluta til móts við þá gagn
rýni og bjóðast til að minnka hlut
deild sína – úr 50 prósentum í 30 pró
sent – í því skyni að freista þess að fá
fjárfesta að félaginu en fjármögnun
þess hefur gengið afar erfiðlega frá
því að tilkynnt var um áform Play á
blaðamannafundi í byrjun síðasta
mánaðar. Upphaflega stóð þannig
til að selja flugmiða nú um mánaða
mótin en um liðna helgi sendi Play
frá sér tilkynningu um að sölunni
hefði verið frestað og er nú stefnt að
því hefja miðasölu fyrir áramót.
Ekki hafa fengist staðfestar upp
lýsingar um fjárfesta sem hafa skuld
bundið sig til að taka þátt í hlutafjár
útboðinu. Í samtölum við mögulega
fjárfesta í þarsíðustu viku, eins og
sagt hefur verið frá í Markaðinum,
kom fram í máli forsvarsmanna Play
og ÍV að fjárfestar væru þá búnir að
lýsa yfir áhuga (e. soft commitment)
á að leggja félaginu til samtals um
700 til 800 milljónir. Sá áhugi, að
sögn kunnugra, sé hins vegar skil
yrtur við að það takist að fá kjöl
festufjárfesti að hlutafjárútboðinu.
Það hefur ekki tekist enda þótt enn
sé unnið hörðum höndum að því
að bóka fundi með fjárfestum í því
skyni að afla þess hlutafjár sem til
þarf til að koma flugfélaginu af stað.
Auk þess að gagnrýna upphaf
legar áætlanir stjórnenda og stofn
enda Play, sem gerðu ráð fyrir að þeir
myndu eignast helmingshlut í félag
inu, hafa fjárfestar sömuleiðis sett
spurningarmerki við takmarkaða
f lugrekstrarreynslu stjórnenda
teymisins og þá þykja viðskipta
áætlanir Play um margt óraunhæfar.
Þannig er gert ráð fyrir því að félag
ið verði farið að skila um 70 milljóna
hagnaði á fyrsta fjórðungi næsta árs.
Í lok síðustu viku, samkvæmt
heimildum Markaðarins, var kann
aður áhugi hjá fjárfestum á því leggja
Play til fjármagn til næstu mánaða,
samanlagt hundruð milljóna króna,
með því að kaupa skuldabréf til
skamms tíma af félaginu sem myndi
bera 20 til 25 prósenta vexti. Tilgang
urinn, að sögn þeirra sem þekkja til,
væri að tryggja flugfélaginu nægjan
legt rekstrarfé fram á næsta ár á
meðan áfram yrði unnið að því að
ljúka hlutafjársöfnun þess.
Fram kom á fundi með ferðaþjón
ustufyrirtækjum í síðustu viku að 40
milljóna evra fjármögnun frá breska
sjóðnum Athene Capital og öflun
f lugrekstrarleyfis hjá Samgöngu
stofu væri skilyrt við að Play takist
að sækja sér 1.700 milljónir í hlutafé.
„Þetta hangir allt saman,“ sagði
Jóhann M. Ólafsson, framkvæmda
stjóri ÍV. Var fundurinn meðal ann
ars sóttur af stjórnendum Kynnis
ferða, Kúkú Campers, bílaleigunnar
Geysis, Mountaineers Iceland, Hóp
bíla, Stracta Hótels og Eldingar.
Ásamt því að biðla til fjölmargra
einkafjárfesta, fyrirtækja, einkum í
ferðaþjónustu, og fjárfestingarfélaga
er búið að leita til tryggingafélaga,
sjóðastýringarfélaga, einkabanka
þjónustu bankanna og þá hefur fjár
festingin í Play verið kynnt lífeyris
sjóðum. hordur@frettabladid.is
Bjóðast til að minnka
hlut sinn í 30 prósent
Stjórnendur biðla til fjárfesta um að koma að fjármögnun Play með því að
leggja til að þeir fái 70 prósenta hlut í stað 50 prósenta fyrir hlutafjárframlag
sitt. Kanna áhuga fjárfesta á að leggja Play til lánsfé á 20-25 prósenta vöxtum.
Flugfélagið hyggst flytja um 1,7 milljónir ferðamanna til landsins á næstu þremur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN