Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2019, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 04.12.2019, Qupperneq 31
The New York Times segir að Sakramentið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson sé ein af níu athyglisverðustu bókum sem koma út nú fyrir jólin í Banda- ríkjunum. Blaðið birti um síð- ustu helgi lista yfir þessar bækur en þar eru fjögur skáldverk og fimm bækur almenns efnis, þar á meðal um hæstaréttardómarann umdeilda Kavanaugh (Supreme Ambition). Sakramentið kom út vestan hafs í gær en Ólafur Jóhann hefur nú þegar áritað 1.000 eintök, meðal annars f y rir stærsta leshring Bandaríkjanna, Parnassus First Editions Club, sem í eru 650 félagar. Það er hvorki lítið verk né löður- mannlegt fyrir rithöfund að árita 1.000 bækur. Blaðamaður náði tali af Ólafi Jóhanni og spurði hvernig hefði gengið. „Það er óhætt að segja að ég hafi vanmetið þetta verkefni. Ég gaf mér um tvo tíma í það en athugaði ekki að það þýddi um tíu bækur á mínútu. Það hefði verið gott að vera jafnvígur á vinstri og hægri. Og svo er rithöndin ekkert til að monta sig af. Þegar ég var strákur í Öldugötuskóla fékk ég alltaf 5 í skrift og handrit mín getur enginn lesið nema ég sjálfur,“ segir Ólafur Jóhann. „En þetta hafðist og allir voru ánægðir. Ég sat uppi með stirða fingur en sá samt ekki neina ástæðu til að vorkenna mér.“ – kb Ólafur Jóhann áritaði 1.000 bækur Ég sat uppi með stirða fingur, segir Ólafur Jóhann, sem hér sést árita Sakra- mentið í bókabúð í New York. The New York Times mælir með bókinni. Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 4. DESEMBER 2019 Hvað? Höfundakvöld Hvenær? 20.00 Hvar? Gunnarshús, Dyngjuvegi Ásta Fanney Sigurðardóttir les úr ljóðabókinni Eilífðarnón, Kristín Eiríksdóttir úr ljóðabókinni Kær- astinn er rjóður og Andri Snær Magnason úr fræðibókinni Um tímann og vatnið. Léttar veigar í boði. Allir velkomnir. Hvað? Teiknismiðja Hvenær? 16.00-17.30 Hvar? Borgarbókasafnið/ Menningarhús Árbæ Áhugasamir geta mætt og teiknað saman. Kristin Arngrímsdóttir, myndlistar- maður og starfsmaður bókasafnsins, verður þátttakendum innan handar. Ókeypis þátttaka. Hvað? Fagnaður á afmæli Hannesar Hafstein Hvenær? 18.00 Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg Nýtt hefti um Fjalldrapann kemur út, samnefnt ljóð Hannesar Haf- stein hefur lifnað við í málverki Eggerts Péturssonar, tónsmíð Þóru Marteinsdóttur sem barnakór úr Kópavogi frumflytur í enskri þýðingu Julians Meldon D’Arcy. Hvað? Heimildarmyndin UseLess Hvenær? 20.00 Hvar? Bíó Paradís Íslensk mynd sem bregður ljósi á hvernig sóun matvæla og fatn- aðar hefur orðið að samfélags- og umhverfislegu vandamáli og hvað við getum gert til að takast á við það. Hvað? Svona fólk – erindi og um- ræður Hvenær? 20.00 Hvar? Safnaðarheimili Neskirkju Erindi f lytja: Jónína Leós- dóttir rithöfundur, Björn Þór Vilhjálmsson lektor og Hafdís Erla Hafsteins- dóttir sagnfræðingur. Pallborðsumræður. Félag íslenskra fræða býður upp á léttar veitingar. Hvað? Spjall- fundur um jólin Hvenær? 20.30 Hvar? Að Háaleitisbraut 13 - IV. hæð Kristín Eiríks- dóttir er meðal höfunda sem lesa upp í Gunn- arshúsi. Þakblásarar Í þakrennur eða vatnslagnir Hitavír Hljóðlátir 100 mm Öflugir blásarar með þykkum koparpípum og léttari hönnun. Mikið úrval af stærðum og gerðum. blásarar Dreifðu varmanum -haltu loftinu á hreyfingu Loftviftur Hljóðlátar baðvifturVatnshitablásarar viftur.is S:566 6000 ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur Íshúsið - Loftræstibúðin á Smiðjuvegi 4a, Græn Gata Verð frá 89.990 kr Þurrktæki Er rakastigið of hátt? Verð frá kr 39.990 Verð frá kr/m1.450 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M I Ð V I K U D A G U R 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.