Fréttablaðið - 04.12.2019, Qupperneq 36
MÉR FINNST ÞETTA
EÐLILEGASTI HLUTUR
Í HEIMI OG LÍÐUR NÁTTÚRLEGA
ALLTAF EINS OG ALLIR FARI AÐ
BREYTA ÞESSUM VANA AÐ
KAUPA NÝ FÖT.
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
Slakaðu á
með Slökun
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
kippir og spenna
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartsláttur
g Kvíði
g Streita
g Pirringur
Einkenni
magnesíum-
skorts
www.mammaveitbest.is
lakaðu á
eð lö
g Lítil orka
g Þróttleysi
g Veik bein
g Hormóna ójafnvægi
g Svefntruflanir
g Vöðvakrampar,
ki pir og spe na
g Kölkun líffæra
g Óreglulegur hjartslá tur
g Kvíði
g Streita
g Pi ringur
Einke i
agnesí
skorts
i t.i
Járn & Gler ehf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin
104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is
Bjóðum upp á sjálfvirkan
hurðaopnunarbúnað,
hurðir og gluggakerfi
ásamt uppsetningu
og viðhaldi á búnaði.
Áratuga reynsla.
Helga Rakel Hagalín er átján ára gömul, m a r k a ð s s t j ó r i N e m e n d a f é l a g s Menntaskólans við Hamrahlíð, keppir
með meistaraf lokki Gróttu í fót-
bolta og gengur í buxum af pabba
sínum þar sem hún hefur ekki keypt
sér ný föt í tvö ár.
Meðvituð um neikvæð umhverf-
isáhrif síbreytilegrar fatatískunnar
ákvað Helga Rakel að hætta að
ganga í nýjum fötum enda illmögu-
legt að full- og endurnýta þegar
fatavalið hverfist um að það sem var
töff í gær er orðið glatað á morgun.
Hún segir umhverfisvænt fataval-
ið hafa ýmsa kosti aðra og þótt kol-
efnisjöfnun tískunnar sé auðvitað
aðalmálið þá sé þetta ódýrt og henti
henni þar sem „ég fíla einhvern veg-
inn líka svona „fast fash ion“ vegna
þess að það er alltaf leiðinlegt að
vera í sama dressi og einhver annar
og þetta felur í sér að maður getur
bara keypt einhverja eina f lík sem
enginn annar getur fengið,“ segir
Helga Rakel um tískufrelsi sitt.
Tímaskökk tíska
„Mér finnst þetta eðlilegasti hlutur í
heimi og líður náttúrlega alltaf eins
og allir fari að breyta þessum vana
að kaupa ný föt,“ segir Helga Rakel
þegar hún er spurð hvort ekki sé við
ofurefli að etja í stóra samhenginu
þegar tískuiðnaðurinn er annars
vegar.
„En svo um leið og ég fer út fyrir
þennan innsta hring minn í skól-
anum og heima þá er ég strax alltaf
agndofa yfir fólkinu sem bara kaup-
ir og kaupir,“ segir Helga Rakel sem
þykir síður en svo áberandi hall-
ærisleg á göngum MH þótt fötin
hennar séu mörg hver komin til ára
sinna.
„Nei, alls ekki, enda þykir þetta
eðlilegasti hlutur í heimi. Að kaupa
bara notað. Ég á alveg vini í öðrum
skólum og þau dissa mig ekkert
fyrir þetta og skammast
sín eiginlega bara frekar
fyrir að vera í hinu lið-
inu.“
Fúkkalykt
umhverfisverndar
Þau sem fetta fingur út
í fataval Helgu Rakelar
eiga nær undan-
tek ningarlaust
sameiginlegt að
þetta er í nefinu
á þeim. „Ég hef
reyndar fengið
að heyra að
það sé svo
v o n d l y k t
inni í svona
búðu m og
þ e g a r é g
pæl i í þv í
þá er þetta
h e l s t e i t t-
hvað svona:
„Ug ghhh, ég
get ekki verið
í föt u m sem
annað fólk hefur
á t t ! “ S u m u m
finnst það eitt-
hv a ð s u b b u -
legt og að fötin
lykti öll illa sem
mér finnst bara
f y ndið,“ segir
Rakel og bætir
við að það sé ekkert mál að raða
notuðu flíkunum saman þannig að
úr verði hvort heldur sem er fínasti
spari- eða hversdagsklæðnaður.
Ránið á týndum
fötum foreldranna
Nytjamarkaðir eru helstu veiði-
lendur Helgu Rakelar sem leitar
helst fata hjá Rauða krossinum.
„Svo er það fatamarkaðurinn á
Hlemmi, Hertex, Nytjamarkaður
Samhjálpar og stundum Spúútnik
en þar getur maður alveg lent á
gallabuxum á tíu þúsund kall sem
kosta miklu minna í til dæmis
H&M,“ segir Helga Rakel sem
sættir sig við að notað er ekki
alltaf ódýrasti kosturinn.
„Ég er svo líka bara dugleg
að grafa í skápum. Mamma
geymir allt og ég hef fengið
helling frá henni af ein-
hverju sem hún átti þegar
hún var yngri og þetta
fer allt a f bara í
hring. Það er rosa-
lega f y ndið. Ég
byrjaði í rauninni
frekar snemma á
þessu og þá á því
að ganga bara í
buxum af pabba
og belta þær mjög
vel. Það hef ur
virkað mjög vel,“
segir Rakel sem
f innst f rábær t
að geta þann-
ig virkjað hina
eilíf u hr ing rás
tískunnar.
toti@frettabladid.is
Gegn tískustraumum
í buxum af pabba
Helga Hagalín ákvað að bregðast við loftslagsvánni með því að
virkja hringrás tískunnar. Hún byrjaði að ganga í buxum af pabba
sínum fyrir tveimur árum og hefur síðan þá ekki keypt sér ný föt.
Helga Rakel segir fátt jafn skemmtilegt og að gramsa á stórum nytjamörk-
uðum í útlöndum og nýtir öll tækifæri sem gefast. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Helga Rakel í notuðum fötum úr Spúútnik, Samhjálp,
Wasteland og í úlpu frá fatamarkaðinum á Hlemmi.
Vestið frá Rauða krossinum, buxurnar úr Nytjamarkaði
Samhjálpar, jakkann keypti hún notaðan á Spáni.
Rautt vestið frá
Samhjálp smell-
passar við buxur
úr Spúútnik.
4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ