Fréttablaðið - 21.12.2019, Síða 42

Fréttablaðið - 21.12.2019, Síða 42
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laus til umsóknar tvö embætti dómara til setningar við Landsrétt. Stefnt er að því að setja í embættin hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum til með 30. júní 2020. Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016, sbr. lög nr. 79/2019. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010, um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum auka- störfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetn- ingar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) upplýsingar um tvo fyrrverandi eða núverandi samstarfsmenn eða yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munn- lega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf landsréttardómara. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem um- sækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tíma- ritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni um- sækjanda til starfa sem landsréttardómari. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 6. janúar 2020. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningar liggur fyrir. Dómsmálaráðuneytinu, 20. desember 2019 Tvö embætti dómara við Landsrétt laus til setningar Barnaverndarstofa Tvær stöður sálfræðinga við Barnahús Barnaverndarstofa óskar eftir öflugum sálfræðingum til starfa í Barnahúsi. Barnahús tekur rannsóknarviðtöl af börnum þar sem grunur leikur á að börn hafi orðið fyrir eða orðið vitni að ofbeldi, bæði fyrir dómstóla og barna- verndarnefndir, og veitir barnungum þolendum ofbeldis meðferð. Megináhersla í meðferðarstarfi Barnahúss er áfallamiðuð hugræn atferlismeðferð en þjálfa þarf sér- staklega í yfirheyrslutækni. Helstu verkefni og ábyrgð: • Meðferðarviðtöl við börn sem eru þolendur kynferðis-/ líkamlegs ofbeldis. • Ráðgjöf við barnaverndarnefndir vegna meintra ofbeldisbrota. • Rannsóknarviðtöl við börn sem þolendur. • Skýrslu- og vottorðaskrif. • Önnur verkefni sem forstöðumaður Barnahúss ákveður. Menntunar- og hæfniskröfur: • Krafa um sálfræðing með löggildingu á Íslandi. • Reynsla á sviði meðferðar barna, af vinnu með þolendum ofbeldis, vinnu með foreldrum og af barna- verndarstarfi æskileg. • Krafa um mjög góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti. • Krafa um enskukunnáttu, kunnátta í einu norðurlanda- máli æskileg. Persónulegir eiginleikar: • Mikilvægt að búa yfir góðri samstarfshæfni, sveigjan- leika og jákvæðu viðhorfi til skjólstæðinga og sam- starfsaðila. • Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega, markmiðatengt og lausnamiðað. • Mikilvægt er að geta starfað vel undir álagi í lengri eða skemmri tíma. Um 100% starfshlutfall er að ræða. Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður Barnahúss, Ólöf Ásta Farestveit, í síma 530 2500 eða olof@barnahus.is. Við úrvinnslu um- sókna um starfið gildir mat Barnaverndarstofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sálfræðingafélags Íslands og ríkisins. Tekið er mið af jafnréttisáætlun Barnaverndarstofu við ráðningar á stofuna. Umsóknarfrestur er til og með 7. janúar 2020. Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu á netfangið bvs@bvs.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.Við erum alltaf með bókara á skrá hagvangur.is 4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.