Fréttablaðið - 21.12.2019, Page 43

Fréttablaðið - 21.12.2019, Page 43
STÖRF HJÁ GARÐABÆ Hofsstaðaskóli • Deildarstjóri stoðþjónustu • Skólaliði • Umsjónarkennari vegna forfalla Urriðaholtsskóli • Þroskaþjálfi Leikskólinn Holtakot • Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður Leikskólinn Krakkakot • Deildarstjóri Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is. GARÐATORGI 7 • SÍMI 525 8500 • GARDABAER.IS Við leitum að framkvæmdastjóra til að leiða öflugt starf þróunarsviðs Vegagerðarinnar á starfsstöðinni í Reykjavík. Starfið heyrir beint undir forstjóra og framkvæmdastjórinn situr í yfirstjórn Vegagerðarinnar. Menntunar- og hæfniskröfur • Verkfræðingur með meistaragráðu. • Marktæk reynsla af stjórnun og mannaforráðum. • Reynsla af fjármálum, áætlanagerð og verkefnastjórnun. • Víðtæk þekking og reynsla af sambærilegum verkefnum. • Góð þekking á hlutverki og starfsemi Vegagerðarinnar. • Framúrskarandi samskiptafærni og rík þjónustulund. • Frumkvæði, metnaður og árangursdrifni. • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. • Góð kunnátta í talaðri og ritaðri íslensku og ensku. Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2020. Nánari upplýsingar um starfið veita Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar, netfang: bergthora.thorkelsdottir@vegagerdin.is, og Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir mannauðsstjóri Vegagerðarinnar netfang: sigurbjorg.helgadottir@vegagerdin.is, sími 522 1000. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur um hæfi til að gegna umræddu starfi. Sækja skal um starfið á netfangið: starf@vegagerdin.is. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Þróunarsvið skiptist í fimm deildir, áætlana-, umferðar-, skipulags-, almenningssamgangna- og rannsóknadeild. Áætlanadeild annast undirbúning endurskoðunar sam göngu- áætlunar, þar á meðal gerð frumdraga fyrir nýjar fram- kvæmdir. Umferðardeild sér um gagnasöfnun og rannsóknir á sviði umferðar og umferðaröryggis. Skipulagsdeild veitir svæðum og deildum ráðgjöf varðandi skipulagsmál sveitar- félaga. Almenningssamgangnadeild annast rekstur almenn- ings samgangna á vegum ríkisins á landi, á sjó og í lofti. Rann sóknadeild hefur umsjón með úthlutun styrkja úr rann- sóknasjóði Vegagerðarinnar. Auk þessa skal þróunarsvið sjá um reglulega endurskoðun veghönnunarreglna. Framkvæmdastjóri þróunarsviðs ÖRYGGI FRAMSÝNI ÞJÓNUSTA FAGMENNSKA • Auglýst er laust til umsóknar starf forstöðumanns tæknideildar Faxaflóahafna sf. Leitað er eftir tækni- eða verfræðimenntaðri manneskju sem hefur eftirfarandi til að bera: • Háskólamenntun í tækni- eða verkfræði sem nýtist í starfi. • Reynslu af verklegum framkvæmdum og mannvirkjagerð, sem jafna má til verkefna á sviði hafnarmála. • Skipulagshæfni og hagnýtri reynslu af áætlanagerð. • Færni í samskiptum við fólk og fyrirtæki. • Góða tölvukunnáttu og færni í ensku. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Í starfinu felst m.a.: • Umsjón og eftirlit hönnunar og hafnarframkvæmda • Eftirlit með hafnarmannvirkjum Faxaflóahafna sf. • Áætlanagerð um skilgreindar viðhalds- og nýframkvæmdir • Umsjón og uppfærsla tæknigagna í eigu Faxaflóahafna sf. • Önnur þau störf, sem viðkomandi kunna að vera falin og falla innan eðlilegs starfsviðs forstöðumanns tæknideildar Umsóknarfrestur er til og með föstudag 10. janúar n.k. Umsókn og ferilskrá með nöfnum umsagnaraðila skal skilað til Faxaflóahafna sf., Tryggvagötu 17, Reykjavík eða þær sendar mannauðs- og launafulltrúa Faxaflóahafna sf. á netfangið olafur@faxafloahafnir.is . Nánari upplýsingar veitir hafnarstjóri gislig@faxafloahafnir.is eða í síma 5258900. Faxaflóahafnir hafa staðist jafnlaunavottun og hlotið Jafnlaunamerki Velferðarráðuneytis. Hafnarstjóri Faxaflóahafna sf. Forstöðumaður tæknideildar Faxaflóahafna sf. ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 L AU G A R DAG U R 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 9

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.